Þjóðviljinn - 01.07.1982, Blaðsíða 1
ÞJOÐVIUINN
Fimmtudagur 1. júli — 146. tbl. 47. árg.
Dagsbrún með fund
í dag kl. 16.30
Á 72 manna nefndar fundi Alþýðusambandsins, sem hófst f húsnæði
rikissáttasemjara kl. 14 i gærdag var nýgerður samningur um kaup og
kjör samþykktur samhljóða. Þegar hefur verið boðað til funda i félögum
launafólks.
Verkamannafélagið DagsbrUn i Reykjavik verður með fund i Gamla
biói 1 dag kl. 16.30. Hefur félagið hvatt til þess i auglýsingum sfnum að
félagsmenn Dagsbrúnar komi á fundinn úr vinnu og jafnframt er skorað
á atvinnurekendur að gefa fólki sinu kost á að mæta á fundinn. —v.
,Meðalkaupmáttur árs-
ins 1981 helst óskertur’
Stórt
spor
segir Theódór A.
Jónsson formaður
Sjálfsbjargar um
yfirlýsingu
rikisstjórnarinnar
um mál fatlaðra
Sjá síðu 3.
segir Ásmundur Stefánsson
forseti Alþýðusambandsins,
um samningana sem undir-
ritaðir voru í fyrrinótt
Afléttu
yfirvinnu-
banninu
Fjölmennur fundur i stjórn og
trúnaðarmannaráði Snótar og
Verkalýðsfélagsins I Vestmanna-
eyjum var samþykkt meö til-
skildum meirihiuta, 80% að af-
létta yfirvinnubanni i trausti þess
að atvinnurekendur hæfu sér-
kjaraviðræður i Eyjum. Miklar
umræður urðu á fundinum.
Akveðið hefur verið að boöa til
félagsfundar á laugardaginn til
að fjalla um heildarkjarasamn-
ingana, en sérkjaraviðræður
verkalýðsfélaga og atvinnurek-
enda i Vestmannaeyjum hefur
verið ákveðið að hefja á morgun.
—jsj- •
n
,,Svört skýrsla,? frá fiskifræðingum:
Útllokað að vinna
upp aflabrestinn
Heildarstofn þorsksins fer minnkandi
Samkvæmt upplýsingum
Þjóðviljans telur Hafrannsókn-
arstofnunin útilokað aö afla-
brögð batni svo á seinni hluta
ársins að aflabrestur sem
veriðhefur frá áramótum, veröi
unninn upp á seinni hluta ársins.
Þetta kemur fram i skýrslu sem
stofnunin lagði fram að beiðni
sjávarútvegsráðherra sl. mánu-
dag.
1 samtali við Þjóðviljann i sið-
ustu viku kom fram hjá Jóni
Jónssyni forstjóra Hafrann-
sóknarstofnunarinnar aö vertið-
araflinn suð-vestan lands það
sem af er þessu ári er i sam-
| ræmi við það sem búist var við
og að þar hafi einkum veriö um
áð ræða 7-9 ára gamlan fisk. Nú
er það itrekað aö þorskstofninn
fari greinilega minnkandi, sér-
staklega ókynþroska hluti hans
þarsem árgangarnir frá 1977 og
yngri viröast ætla að veröa
undir meðallagi.
Fiskifræöingarnir sem svara
fyrirspurn ráöherra um ástand
þorskstofnsins og veiðarnar á
þessu ári benda á að þorskur
hafi undanfarnar vetrarvertiö-
ar gengið frá Grænlandsmiðum
til hrygningar hér við land og að
þetta eigi sinn þátt i þvi að afla-
brögð hafa hér verið með ágæt-
um, sérstaklega á vetrarvertið-
inni 1981. Nú sé hins vegar ljóst
að þessara gangna sé ekki leng-
ur að vænta næstu árin. Þá fari
heildarstofn þorsksins minnk-
andi og kom það raunar fram i
samtali Þjóðviljans við for-
stjóra Hafrannsóknarstofnun-
arinnar i siðustu viku. Þetta
tvennt eru að álit fiskifræðing-
•anna aðalástæður þess að afli
hefur brugðist það sem af er ár-
inu.
Lélegt ástand loðnustofnsins
hefur einnig sitt að segja I þess-
ari óheillaþróun, segja fiski-
fræðingjarnir ennfremur i áliti
sinu. Þorskurinn hefur verið
mjög dreifður þar sem hann
hafi ekki þést I æti eins og áöur
var, en skortur á loönunni til átu
á sinn þátt i þvi. — v.
,,Viö i samtökum fatlaðra
litum svo á að ineð þessari
yfirlýsingu ráðherranna um
málefni fatlaðra sé stórt
skrcf stigiö fram á við og við
bindum miklar vonir við þau
fyrirheit sem þar eru gcfin'’,
sagði Theódór A. Jónsson
formaður Sjálfsbjargar i
við Þjóðviljann i
gær. I framhaldi af viðræð-
uin fulltrúa ~ Alþýðusam-
hands tslands og ríkisstjórn-
arinnar um málefni fatlaðra
gaf rikisstjórnin út yfirlýs-
ingu um að unnið skyldi að
iausn nokkurra baráttumála
samtaka fatlaðra.
,,A þingi ASl 1980 var sam-
þykkt að efla samvinnu al-
þýðusamtakanna og sam-
taka fatlaðra og i framhaldi
af þvi var skipuð samstarfs-
nefnd þessara aöila um þau
málefni. Þessi nefnd hefur
svo átt viðræöur m.a. við
fulltrúa rikisvaldsins. Ar-
angur þeirra viðræðna
meðal .annars su 5ff»rl^stn|
sem rikisstj'órnin gaf i gær i
tilefni kjarasamninganna.”
Og hvaö er þar helst sem
þið fagnið?
,,Þar má nefna að þvi er
heitið að rikisstjórnin muni
beita sér fyrir þvi að þegar
tramlagt frumvarp félags-
máiaráðherra um málefni
fatlaðra verði að lögum á
næsta þingi. Þá er ákvæði
um verndaöa vinnustaði og
sérstaklega vil ég nefna lof-
orð um breytingar á al-
mannatryggingalögum sem
tryggja öryrkjum á stofnun-
um mun meiri vasapeninga
en hingað til hefur tiðkast.
Þá mun bensinstyrkur vegna
öryrkjabifreiða hækkaöur og
að fleiri munu geta notið
hans en áður v^r”, sagði
Theódór ennfremur.
Teljið þið að samvinnan
viö ASt hafi átt mikinn þátt f
. að þessi yfirlýsing fékkst
gefin?
,,A þvi er ekki nokkur vafi.
Við hefðum aldrei getaö' náð
fram þessum réttarbótum
nema vegna öflugs stuðnings
Alþýðusambands Islands.
Hins vegar dreg ég enga dul
á að mikið starf fjölmargra-
Sjálfsbjargarfélaga að rétt-
indamálum okkar á auðvitað
sinn stóra þátt i að þesSi ár-
angur hefur náðst", sagöi
Theódór A. Jónsson íormað-
ur Sjálfsbjargar. -v.
,,Ef borin er saman sú kröfu-
gerð sem við lögðum fram sl.
haust og sá samningur sem nú
liggur fyrir, er alveg augljóst að
töluvert vantar upp á að allt hafi
náðst fram. Það sem hins vegar
skiptir mestu er að það tekst með
þessum samningi að viðhalda
meðaltalskaupmætti ársins
1981”, sagði Asmundur Stefáns-
son forseti Alþýðusambands ts-
lands eftir að fundi 72 manna
nefndar ASt lauk I gær.
,,Sé þessi árangur skoðaður i
ljósi þess að allar spár um fram-
vindu efnahagsmála undanfarið
benda til þess að þjóðartekjur
dragist saman, er ljóst að þessi
samningur eykur hlut verkafólks
og miðar að þvi að styrkja okkar
hlut frá fyrri stöðu”.
Þú telur þá sumsé að samning-
ur ykkar við vinnuveitendur sé
viðunandi?
„Já, ég tel hiklaust að svo sé.
Meiri kauphækkun eða betra visi-
tölukerfi hefði ekki náðst fram
nema með miklum átökum á
vinnumarkaðnum. Ég er sam-
mála liðsmönnum okkar hreyf-
ingar um að mikil átök til að ná
fram betri samningi, hefðu verið
of dýru verði keypt”.
En hvað með vlsitöluskerðing-
una sem nú er samið um að verði
2.9% 1. september i haust?
„Visitöluákvæðin i þessum
samningi eru gölluð, það er alveg
rétt. Það verður 2.9% skerðing nú
i haust og auk þess haldast skerð-
ingarákvæði Olafslaga áfram
óbreytt. En það er hins vegar
augljóst mál að visitöluákvæðin
verða aldreimetin nema i tengsl-
um við annað það sem i samn-
ingnum felst. Sé samningurinn
skoðaður i heild, annars vegar
þær grunnkaupshækkanir, ald-
urshækkanir og flokkatilfærslur
sem verða á samningstimabilinu
og hins vegar þær visitöluskerð-
ingar sem hann hefur að geyma,
er heildarniðurstaðan sú að á
samningstimabilinu næst meðal-
talskaupmáttur ársins 1981. Það
tel ég viðunandi árangur i ljósi
þessað allar spárhniga i þá átt að
þjóðartekjur dragist saman á
þessuári”, sagði Asmundur Stef-
ánsson forseti Alþýðusambands
Islands að siðustu.
— v.
Asmundur Stefánsson forseti
ASl: t Ijósi þess að þjóðartekjur
dragast saman á næstu misserum
ef að líkum lætur, má teljast gott
að með þessum samningitekst að
viðhalda kaupmætti ársins 1981
óskertum. Þessi mynd er tekin
við upphaf 72 manna nefndar-
fundarins I gær. Björn Þórhalls-
son varaforseti ASt er á tali við
Ásmund. Ljósm.: — gel.