Þjóðviljinn - 01.07.1982, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 01.07.1982, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 1. júll 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 Umferðar- ljós við Tjamar- brúna? Umferðarnefnd fjallar nú um hvort sett skuli upp umferöarljós á gatnamótum Skothúsvegar, Sóleyjargötu og Frikirkjuvegar, þ.e. við Tjarnarbrúna austan- veröa. Tillaga þessa efnis var lögð fram i borgarráði i siöustu viku. Það var Albert Guðmunds- son sem flutti hana og óskaði eftir að framkvæmdum yrði hraðað. Fjármála- stjórínn situr nú BÚR-fundi Vantraust á meirihlutann, segir Kristján Ben. Björn Friðfinnsson, fjármála- stjóri borgarinnar situr nú fundi útgerðarráðs sem sérstakur full- trúi Daviðs Oddssonar, borgar- stjóra. Hcfur Björn málfrelsi og tillögurétt. Það var á fundi útgerðarráðs 16. júni sl. að lögð var fram ósk borgarstjóra um þetta, ,,þar til önnur skipan yrði ákveðin”. Voru greidd atkvæði um málið og voru 5 fulltrúar Sjálfstæöisflokks og Alþýðuflokks þvi fylgjandi að Björn sæti fundina. Kristinn Kristivinsson og Kristján Bene- diktsson sátu hjá og lét Kristján Benediktsson bóka eftirfarandi: „Ég tel skipun Björns Frið- finnssonar til aö sitja fundi I út- gerðarráði sem sérstakur fulltrúi borgarstjóra með málfrelsi og til- lögurétti vera vantraust á útgerð- arráð og þá sérstaklega nýkjör- inn meirihluta þess.” — AI Sambands- stjóm VSÍ samþykkti A fundi sambandsstjórnar VSÍ i gær voru samþykktir kjarasamn- ingar ASl og VSI frá því i fyrri- nótt, með fyrirvara um samþykki aöildarfélaga. Alls greiddu 30 at- kvæði með samþykkt samnings- ins 8 greiddu atkvæði á móti og 1 sat hjá. — hól. Dalarósir úr Svíaríki — alþýðulistin í hávegum höfð í Árbæjarsafni Dalamyndir nefnist alþýðulist frá Dölunum i Sviþjóð, en það eru mvndir, sem sjálf- menntaðir málarar þar i héraði gerðu á tæplega 100 ára timabili, milli 1780 og 1870. Aðallega voru þessir málarar i norðanverðum Dölun- um, þar sem menn lifðu mest á búskap og skóg- nytjum, og þar reis upp stétt málara, sem mál- uðu rósamálverk á hús- búnað fólks, en yfirleitt var sá búnaður vegg- fastur: borð, rúm og skápar. • En því er frá þessu greint, aö n.k. laugardag, 3. júli, verður i Arbæjarsafni opnuð sýning á Dalarósum úr Sviariki, og verður þar að finna mörg og góð sýnis- horn þessarar listar. Sunnudaginn 4. júli mun svo Birgitta Dandanell, safnvöröur frá F alun, sem er st ærsta bo rgin i Dölum iSviþjóð, halda fyrirlestur i Arbæjarsafni i tengslum við sýninguna. Sýningin verður opin fram I ágúst á sama tima og Arbæjar- safn er opið, þ.e. milli kl. 13.30 og 18.00 alla daga nema mánudaga. Sýningin er til húsa i svonefndri Eimreiðarskemmu i Arbæjar- safni, hún er gerð af ,U>alarnas Museum” i Falun, og er hingað komin meö styrk frá „Statens kulturrfld” i Sviþjóð. — Jsj- Islenskar vörur sækja stöðugt á Markaðshlutdeild inn- lendrar málningar, kaffi- framleiðslu og sælgætis hefur aukist talsvert það sem af er árinu,en aftur á móti féll hlutdeild inn- lendra hreinlætisvara litil- iega á sama tima í saman- burði við erlenda fram- leiðslu. Þetta kemur fram i könnun sem Félag ís- lenskra iðnrekenda og Hagstofa islands hafa gert. Innlend kaffiframleiðsla jók markaðshlutdeild sina á fyrsta ársfjórðungi i ár um tæpt prós- entustig eða úr 81% i 81,7%. Þrátt fyrir þetta vantar enn nokkuð á að innlend kaffiframleiðsla hafi náð þeirri háu markaðshlutdeild sem einkennt hefur þessa grein islensks iðnaöar um nokkurra ára skeiö. Til dæmis var framleiðslan innanlands 1978 92.5% af neysl- unni. Hlutur innlendrar málningar á markaðnum þennan fyrsta árs- fjórðung þessa árs jókst allveru- lega, eða úr 61.1% i 67%. Hefur marksaðshlutdeild þessarar framleiðslu aðeins einu sinni áður verið meiri. Sælgætisframleiðslan jók einn- ig hlutdeild sina úr 47.4% i 53.8%. Er þetta 3ji ársfjórðungurinn i röð sem þessi framleiðsla eykur hlutdeild sina á innlendum mark- aði og viröist mörlandinn vera farinn að átta sig á að islenskt gotteri er mun betra en það sem frá útlöndum kemur! Hlutdeild hreinlætisvara sem framleiddar eru á tslandi minnk- ar hins vegar fyrstu 3 mánuði þessa árs úr 63.2% i 62.6%. Hlut- deild þessarar framleiðslu var 72% árið 1978 en hefur minnkað stöðugt siðan. Þess verður þó að geta að þessi könnun nær aöeins til hluta hreinlætisvörufram- leiöslunnar. — v. Könnun á markaðshlut- deild nokkurra vörutegunda Markaðshlutdeild innlendrar málningarframleiðslu árin 1978-1982 Yfirlýsing ríkisstjómarinnar um málefni fatlaðra Bensínstyrkur vegna öryrkj abifreiða verði hækkaður og látinn ná til fleiri t framhaldi af viðræðum full- trúa Alþýðusambands tslands og rikisstjórnarinnar um mál- efni fatlaðra, lýsir rikisstjórnin yfir eftirfarandi: 1. A næsta Alþingi munu frum- varp um málefni fatlaöra og frumvarp um málefni aldr- aðra veröa lögð fram. Rikis- stjórnin mun beita sér fyrir þvi að bæði þessi frumvörp verði aö lögum á þvi þingi. 2. Rlkisstjórnin mun beita sér fyrir þvi að hraðað veröi setn- ingu reglugerðar um vernd- aða vinnustaði og endurskoð- un laga um vinnumiðlun. Rik- isstjórnin mun tryggja fulla aðild ASI að mótun reglu- gerðar um verndaða vinnu- staði. 3. Rikisstjórnin er sammála ASl um að allt fatlað fólk, sem ' vinnur á vernduöum vinnustöðum, eigi að njóta þess ótviræða lagaréttar sem er aðild að verkalýðsfélögum með fullum félagsskyldum, og félagsréttindum, svo sem orlofi, atvinnuleysisbótum, lifeyrissjóðum, sjúkrasjóð- um, orlofsheimilum og öörum stofnunum verkalýðshreyf- ingarinnar. Sömuleiðis lýsir rikisstjórnin þvi yfir aö nauð- synlegt sé að tryggja betur rekstursgrundvöli vernd- aðra vinnustaöa, m.a. með þvi að beina meira innkaup- um rikisins að þessum fyrir- tækjum, svo og rétta sam- keppnisstöðu þeirra gagnvart erlendri samkeppnisvöru. 4. Rikisstjórnin mun beita sér Jyrir þeim breytingum á lög- Tim um almannatryggingar á fiæsta Alþingi að öryrkjar, sem dveljast lengur en einn mánuð á stofnun, þar sem sjúkratryggingar greiða dvalarkostnað / þeirra, fái sambærilega hækkun og gert er ráð fyrir i frumvarpi tíl laga um málefni aldraðra. 5. Vegna bifreiðarakstrar fatl- aðra verði gerðar eftírfarandi ráðstafanir: a) Bensínstyrkur vegna ör- yrkjabifreiða skal hækkað- ur, þannigað eftirleiðis mið- ist hann við ákveðinn litra- fjölda af bensini á ári hverju. Nú skal miða við 800 litra af bensíni. Sama fjárhæð gangi til þéirra.sem eiga dieselbila. b) Regíur þær, sem ráöa fjölda þeirra, sem njóta bensln- styrks verði rýmkaöar, þannig að fleiri fái notið hans og framkvæmd öll auö- velduð. Rikisstjórnin er tilbúin til þess að beita sér fyrir frek- ari lagfæringum þessara mála i samráði við ASt og hagsmunasamtök fatlaðra. 6. Rikisstjórnin mun beita sér fyrir nauðsynlegum breyting- um á lögum sem miða að þvl að leiðrétta kjör óvinnufærs fatlaös fólks. 7. Komið skal á föstu samráöi ASt, hagsmunasamtaka fatl- aðra og nkisvaldsins, þar sem hagsmunamál fatlaðra verði tíl stöðugrar endurskoð- unar og umfjöilunar. Yfirlýsing þessi er undirrituð af dr. Gunnari Thoroddsen, for- sætisráðherra, Svavari Gests- syni, félagsmálaráðherra og Steingrimi Hermannssyni, samgönguráðherra.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.