Þjóðviljinn - 01.07.1982, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 01.07.1982, Blaðsíða 14
14 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 1. júll 1982 ALÞÝOUBANDALAGIÐ Alþýðubandalagið á Akranesi Fundur i bæjarmálaráði Alþýðubandalagsins verður i Rein fimmtu- daginn 1. júlí og hefst kl. 20.00 stundvislega. DAGSKRA: 1) Starfsreglur bæjarmálaráðs. 2) Kosning stjórnar bæjarmálaráðs 3) Verkefnin framundan. Nýkjörnir fulltrúar og varafulltrúar I nefndum bæjarins hvattir til að mæta stundvislega. Stjórnin Ráðstefna Austurland... Tilefni ráðstefnunnar: börfin fyrir mótun skólastefnu AB f kjördæm- um, sveitarstjórnum og á landsmælikvaröa. Markmið ráðstefnunnar: ,,að taka eitt litið skref fram á viö”. I. Upplýsingamiðlun til félaga um skólakerfið og stöðu skólamála. II. Umræður: hver/hvað mótar skólastarfið? III. Undirbúningur að frekara starfi að stefnumótun i skólamálum. Framsöguerindi: „Valdsvið skólastjóra, fræðslustjóra og ráðuneyt- is”, „Kjaramál kennara”, „Skipan framhaldsskólans”, „Sálfræðideiid skóla”, „Starfssvið og valdssvið kennarans, nemenda, foreldra”, „Hin dulda námsskrá”, „Tengsl menntunar og atvinnuuppbyggingar”. Höpstarf, umræður, kvöidvaka fyrir alla fjölskylduna. báttaka tilkynnist tii: Gerðar óskarsdóttur, Neskaupstað, s. 7616/7285, Berit Johnsen, Hallormsstað, s. um Hallormsstað. Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins á Austuriandi. Alþýðubandalagiö Akureyri Aöalfundur bæjarmálaráðsins n.k. mánudag kl.20.30 i Lárusarhúsi. Stjórnin. Sumarferð Alþýðubanda- lagsins á Austur- landi 24. og 25. júlí 1982 að Eyjabökkum og SnæfeUi Ferðaáætlun: Farið verður frá Neskaupstað á laugardagsmorgun 24. júli kl.8.30. Viðkoma á Eskifirði og Reyðarfirði. bar slást þátttakendur af Suður- fjörðunum íhópinn. Brottför frá Egilsstööum um ki.l0.30.Hádegisnesti snætt á Hailormsstað. Gist I Snæfellsskála (i svefnpokum). Gengið á fjallið. Skoðunarferð um Eyjabakka og umhverfis Snæfell. Heimkoma seinnipart sunnu- dags. Nauðsynlegur útbúnaður: Nesti og nýir skór, hlýr göngufatnaöur, svefnpoki og ferðaskap. Þátttökugjaldáætlað 300 kr. fyrir fullorðna en 100kr. fvrir börn. Þátttaka tilkynnist til: Einars Más Sigurðarsonar, Neskaupstað, s.7625 Sveins Jónssonar, Egilsstöðum s.1622. Kjördæmisráð AB Austurlandi Lausar kennarastöður Nokkrar kennarastöður við Fjölbrautaskólann á Sauðár- króki eru lausar til umsóknar, kennslugreinar: stærð- fræði, eðlisfræði, islenska, danska, enska, saga og sér- greinár tréiðna. Nánari upplýsingargefur Jón Hjartarson skólameistari. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu fyrir 10. júli n.k. Menntamálaráðuneytið Sveitaheimílí —sumargestir Eggjaþjóf- arnir voru sektaðir Liffræðingurinn v-þýski sem kom hingað tii lands fyrir nokkru og lét greipar sópa i varplöndum landsins hefur verið dæmdur I 30 þús. króna sekt af Sakadómi Reykvikinga. Þjóðverjinn, Norman Bretz, var handtekinn á Seyðisfirði með meira en 120 fuglaegg af ýmsum tegundum. Fyrir utan sektina var Þjóöverj- anum gert að greiða allan máls- kostnað. Af öðrum eggjaþjófnuðum er það að frétta að Belgarnir tveir sem stöðvaðir voru á Keflavikur- flugvelii með 162 egg, þar af 3 straumandaregg.en straumöndin er friðuð hér á landi, voru dæmdir til að greiða 20 þús. krónur hvor. Bændurnir tveir i Mývatnssveit sem aðstoðuðu við ósómann fengu samþykki rikissaksóknara fyrir dómssátt, þó með þeim skilyrðum að greiða sekt og málskostnað. — hól. Friðar- sinnar á Suður- landi Hópferð verður laug- ardaginn 3. júlí frá Sel- fossi á útihátíðina á AAiklatúni í Reykjavík. Farið verður frá Kirkjuvegi 7 kl.12.30. Skráning hjá Ármanni Ægi í síma 99-2142. Suðurlandsdeild SHA ANorðurlandi vestra eru eftir- taldir staðir I sveit undir það bún- ir, að taka á móti gestum til sum- ardvalar: Staður í Hrútafirði, (Staðarskáli): Húsráðendur: Bára Guð- mundsdóttir, Magnús Gíslason og Eirikur Gislason. Simi 95-1150. Gistiaðstaða fyrir 12 manns i 2 og 3 manna herbergjum, greiða- sala, hægt að taka á móti allt að 100 manns i mat í einu. — öll venjuleg ferðamannaþjónusta. Tjaldstæði. Staðarskáli stendur við þjóð- veginn til Norðurlands, skammt norðan við Brú i Hrútafirði. — Opið allt árið. Aðalból i Miðfirði, V. Hún.: Húsráðandi: Arinbjörn Jó- hannesson. Simi 95-1311. Einnig upplýsingar hjá Otivist i' sima 14606. Veiðiferðir á hestum inn á Arn- arvatnsheiði. Skipulagðar 6 daga ferðir um Miðfjarðardali og Arn- arvatnsheiði, m.a. komið að Arn- arvatni. Vanur leiðsögumaður. Hámark þátttakenda 7 manns i hverri ferð. Fæði, gisting, reiðver og veiðiútbúnaður innifalið. Friðsæld og fögur fjallasýn. Mikið um fjallagrös. Aðalból er i Austurárdal i Mið- firði, 30 km. innan við Lauga- bakka. Þátttakendur sóttir að Laugabakka ef óskað er. Geitaskarð, Engi- hliðarhreppi, A-Hún.: Húsráðendur: Asgerður Páls- dóttir og Agúst Sigurðsson. Simi 95-4341. Gisting og fæði eftir samkomu- iagi. Hestaleiga og silungsveiði- leyfi. Sundlaug á Blönduósi. Bærinn stendur skammt ofan við þjóðveginn um Langadal, 11 km. frá Blönduósi. Steinsstaðaskóli, Lýt- ingsstaðahreppi, Skag.: Húsráðandi: Sigriður Jónsdótt- ir, Lækjarbakka 11, Steinsstaða- byggð. Simium Sauðárkrók 95- 5100. Gistiaðstaða, svefnpokapláss fyrir 30-40 manns. Morgunverður ef óskað er. Eldhúsafnot eftir samkomulagi. Sundlaug á staðn- um, hestaleiga, næsta verslun að Varmaiæk i 2 km. fjarlægð. Steinsstaðaskóli er 10 km. framan við Varmahlið við þjóð- veginn um Tungusveit á leið til Sprengisands. Góð aðstaða til fundahalda i fé- lagsheimilinu Árgarði. Fagurt og friðsælt umhverfi, fjölbreyttar gönguleiðir. Hraun í Fljótum, Skag.: Húsráðendur: Rósa Pálma- dóttir og Pétur Kr. Guðmunds- son. Simi 96-73232. Sumarhús til leigu, 3 herbergi og eldhús. f húsinu er rafmagns- hitun, rennandi vatn, salerni, raf- magnseldavél, dýnur i rúmum. Hentar vel 4-6 manna fjölskyldu. Möguleikar til veiða i sjó og i Miklavatni. Hægt að fá leigðan bát. Hestar til útreiða, viðáttu- mikið og gott berjaland. Sundlaug að Sólgörðum i 14 km. fjarlægð. Fagurt og friðsælt umhverfi, kjarri vaxnar hliðar og skemmti- leg sjávarströnd. Bærinn stendur skammt neðan þjóðvegarins, 18 km. frá Siglu- firði. —mhg Alþýðubandalagið á Vestfjörðum ■ ' : Horft til Ketildala Sumarferð um Arnarf jörð 3. og 4. júlí Alþýðubandalagið á Vest- fjörðum efnir til sumarferðar um Arnarfjörð þann 3. og 4. júli n.k. Farið verður i ..hópferöar- bilum frá öllum þorpum og kaupstöðum á Vestfjörðum og safnast saman i Trostansfirði fýrir hádegi á laugardag. Þaðan verður ekið sem leið liggur um Suðurfiröi og Ketil- dali i Selárdal. A laugardagskvöld verður tjaldað i Bakkadal og þar efnt til kvöldvöku en siðan dansað i gamla samkomuhúsinu á Bakka við undirleik harmóniku. A sunnudag verður ekið um Auðkúluhrepp á norðurströnd Kvöldvaka í Ketildölum Arnarfjarðar, allar íærar leiðir, og viðastaldraðviðá eyðibýlum og byggðum bólum m.a. skoðað safn Jóns Sigurðssonar á Hrafnseyri. A sunnudagskvöld skilja leiðir og heldur þá hver heim til sin. Með i ferðinni verða sérfróðir menn um staðhætti og sagna- fróðleik úr byggðum Arnar- fjarðar en þar þrýtur seint söguefnin. Þátttakendur i ferðinni hafi með sér viðleguútbúnað, góðan klæðnað og nesti. Þátttökugjald kr. 375,- fyrir fullorðna og kr. 150 fyrir börn 12 ára og yngri. Innifaiinn er flutningur i Arnar- fjörð frá öðrum stöðum á Vest- fjörðum og þátttaka öllum heimil, lika fólki utan Vest- fjarða. Fararstjórn: Aage Steinsson, Isafirði, Guðvarður Kjartans- son, Flateyri, Halldór Jónsson, Bildudal og Kjartan ólafsson, ritstjóri. Þátttaka tilkynnist sem fyrst einhverjum eftirtalinna manna: Alþýðubandalagið á Vestfjörðum tsafjörður: Aage Steinsson simar 3680 og 3900, Elin Magnfreðsdóttir simi 3938 og Þórunn Guðmundsdóttir simi 3702 Bolungarvik: Kristinn H. Gunnarsson simi 7437 Inn-djúpið: Elinborg Baldvinsdóttir, Múla Nauteyrarhreppi Súðavik: Ingibjörg Björnsdóttir, simi 6957 Súgandafjörður: Þóra Þórðardóttir, simi 6167 Flateyri: Ágústa Guð- mundsdóttir, simi 7619 Þingeyri: Davið H. Krist- jánsson, simi 8117 Bíldudalur: Halldór Jónsson simi 2212 Táiknafjörður: Lúðvik Th. Helgason simi 2587 Patreksfjörður: Guðbjartur Ólafsson simi 1452 Reykhólasveit: Jón Snæ- björnsson Mýrartungu Strandasýsla: Jóhann Thorarensen, Gjögri Pálmi Sigurðsson, Klúku Bjarnarfirði Hörður Asgeirsson Hólmavik simi 3123 Sigmundur Sigurðsson Óspakseyri Reykjavlk: Guðrún Guðvarðardóttir, simar 20679 og 81333

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.