Þjóðviljinn - 01.07.1982, Qupperneq 8

Þjóðviljinn - 01.07.1982, Qupperneq 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 1. júll 1982 Fimmtudagur I. júll 1982 ÞJ6ÐVILJINN — StÐA 9 Um yínnuvemd í Svíþjóð Vinnuverndarsjóðurinn í Svíþjóð hefur til umráða 880 miljónir í siöustu viku heimsótti island Áke Nilsson, fyrr- verandi formaður sænska Vinnuverndarsióösins. Fyrir heimsókninni stóðu Vinnueftirlit ríkisins og Málm- og skipasmiðasam- band islands og var mein- ingin að kynna hlutverk sjóðsins sænska# sem á sér enga hliðstæðu hér á landi, en gegnir umfangsmiklu hlutverki » vinnuverndar- málum i Svíþjóð. Helstu samtök, sem að vinnu- verndarmálum vinna i Sviþjóð, Heili og taugakerfi Allt taugakerfið getur skaddast. Hjarta- og æðakerfi Mörg efni hafa hér skaövænleg áhrif m.a. á myndun blóðkorna Lifur Grunur leikur á, að vínandi og leysiefni hafi hættuleg áhrif sam- Húðin Húðin missir fitu: sum leysiefna eiga greiða leið gegnum húðina Augun Sum efnanna erta augun öndunarfærin Leysiefnið erta slimhúð Nýrun Sýnt hefur verið fram á, að starf- semi nýrnanna hefur breyst vegna áhrifa frá leysiefnum. Æxlun Hætta á fósturlátum i byrjun meðgöngu. Einnig leikur grunur á að leysiefni geti haft áhrif á kynfrumur karla og kvenna. eru „Arbetarskyddsstyrelsen”, eða Vinnueftirlitiö, sem hefur um 1300—1400 starfsmenn, og er rikisstofnun, þá er Arbetar- skyddsnamden” samstarfsnefnd aðila vinnumarkaöarins, 25 ára gömul, og gengst hún einkum fyrir upplýsingaherferðum við- vfkjandi vinnuvernd, „Föringen för arbetarskydd”, eru 101 árs gömul frjáls félagasamtök, að visu mikið rfkisstyrkt, og gefa þau m.a. út blaöiö „Arbetars- miljö” sem kemur út 16 sinnum á ári og i 300 þúsundum eintaka. Siðast er þaö svo Vinnuvernd- arsjóðurinn, eða „Arbetar- skyddsfonden” sem stofnaður var árið 1971 og tók til starfa á árinu 1972. Xke sagöi að tilkoma sjóðs- ins hefði byggst á þvi, að atvinnu- sjúkdómar höföu breyst og sömuleiðis vinnuslys, komin væru alls kyns kemisk efni, sem menn vissu litil deili á en sannanlega yllu heilsutjóni, þótt oft væri ekki vitað hvernig eða á hvaða hátt nákvæmlega. Þá hafði stress einnig aukist á mörgum vinnu- stööum — eðli vinnunnar hefur breyst mikið frá siðari heims- styrjöld og þessu nýja eðli fylgja nýir, eða öðruvisi sjúkdómar. Þetta þyrfti að kanna nákvæm- lega. Þvi var sjóðnum komið á fót. Hlutverk hans er að stuöla að og standa fyrir rannsóknum i vinnuumhverfi manna. Til þessa ætlunarverks leggja atvinnurekendur fram 0.075% af öllum launum, sem þeir greiða. A árinu 1975 haföi sjóðurinn til um- ráða 75 milljónir sænskar. sem Áke Nilsson sagði mjög mikið fé. Um starfsemi sjóðsins gaf Ake eftirfarandi dæmi: á árunum 1972—82 var veitt fé i 2.000 rannsóknarverkefni; sjóöurinn fékk 800 skýrslur; sjóðurinn veitti fé i 1.500 menntunar- og upplýs- ingaverkefni, og er áætlað að þau hafi náð til 470.000 manna. Þá stóð sjóðurinn fyrir útgáfu á 490 bæk- lingum eöa skýrslum með helstu niðurstöðum rannsóknarverk- efna. Sjóðnum bárust 850.000 pantanir á þessum bæklingum og skýrslum, og verður það að telj- ast allgóð útbreiðsla. Auk þessa styrkir Vinnuvernd- arsjóöurinn bæði Vinnueftirlitið og hin tvö samtökin meö fjár- framlögum. Sjóðurinn hefur til ráöstöfunar á fjárhagsárinu 1982/83 488.9 milljónir sænskra króna (u.þ.b. 880 milljónir is- lenskra króna). A þessu sama fjárhagsári mun sjóðurinn veita 49.4 milljónum til rannsókna á kemiskum efnum á vinnustöðum (88.9 milljónir fsl.) og til rann- sókna á likams/félagslegum vandamálum (stress, áhrif tölvu- væðingar, áhrif atvinnulýðræöis o.s.frv.) kr. 25.9 milljónum (46.3 millj. Isl.) Og hver eru svo áhrifin af þessu öllu? Xke Nilsson svaraði þvi reyndar sjálfur. Hann sagði, aö enda þótt ávallt væri erfitt að meta árangur starfs sem þessa færi ekki hjá þvi að það hlyti aö skila miklum árangri þegar til lengri tima væri litiö. Hann hafði meðferðis bækling, sem sjóöurinn hefur gefið út um hættur sem fylgja leysiefnum. Vinnueftir- litsmenn islenskir, sem viðstadd- ir voru, sögðu bækling þennan mjög góðan, og innihalda flest það sem menn þyrftu aö vita um málið. Og vissulega litur hann vel út, sbr. meöfylgjandi mynd. —ast Leysiefni og fósturskaðar Eitt af því, sem vakti sérstaka athygli blaöa- manns í bæklingi Vinnu- verndarsjóðsins sænska um áhrif leysiefna, voru skrif um fósturskaða. Þar er fullyrt, að ýmis leysi- efni hafi eða geti haft þau áhrif, að fóstur verði af- brigðilegt, konan láti fóstri og, ennfremur, að leysi- efni geti haft áhrif á kyn- frumur kvenna og karla og afleiðingin er að sjálf- sögðu afbrigðilegur erf- inqi. Við leituðum á fund Vilhjálms Rafnssonar, læknis hjá Vinnu- eftirliti rikisins, og spurðum hann nokkurra spurninga viðvikjandi málinu. Fyrsta spurningin var við hvers konar vinnu leysiefni væru notuö einna helst hér á landi. „Þau eru notuð afskaplega viða”, sagði Vilhjálmur. „Til dæmis i málningarvinnu, plast- iðnaði þar sem plastiö er steypt i mót, við dúklagningar, á rann- sóknarstofum og viðar. Útbreiðsla þeirra fer sivaxandi.” — t hvaða atvinnugreinum vinna konur? „Það má taka plastiönaöinn, hér er steypt talsvert af plasti og nokkur fyrirtæki, eru hér til staðar i þeirri atvinnugrein. Það má einnig nefna að svæfingar- hjúkrunarkonum getur veriö hætta búin, þvi þessi efni eru notuö til svæfinga og rannsóknir virðast benda til þess, að þau hafi þessi áhrif. Þá má einnig nefna vinnu á rannsóknarstofum, þar sem meinatæknar vinna viö rann- sóknir á bakterium og alls kyns sýnum. Þar koma ótal mörg efni við sögu og erfitt er að fullyrða, um áhrif þeirra, en margt bendir til þess, að fóstri geti verið hætta búin, ef móðirin vinnur slika vinnu. Að lokum má siöan nefna lyfjaiðnaöinn, en hann er all- nokkur i landinu. Þetta eru helstu atvinnugreinarnar.” Vilhjálmur sagði okkur enn- fremur, að hér áður fyrr heföu menn álitiö, aö engin efni gætu borist til fósturs. Alitið gjör- breyttist eftir Talidómiðslysið mikla, en þúsundir kvenna i Evrópu fæddu vansköpuö börn á 6. áratugnum eftir aö hafa tekið inn lyfið Talidómið. Það var ró- andi lyf, einkum ætlað vanfærum konum. Eftir það fóru menn að segja sem svo, að öll efni bærust til fósturs nema annað væri sannað. „En það er ekkert af- skaplega langtsiöan þetta viðhorf varð allsráðandi og þvi eru rann- sóknir á þessu sviði ekki komnar mjög langt. Þeim fleygir hins vegar óðfluga fram,” sagði Vil- hjálmur. — Hafa einhverjar rannsóknir verið gerðar hér á landi á sam- bandi leysiefna og fósturþró- unar? „Jú, þeir Gunnar Biering og Gunnlaugur Snædal læknar, eru að vinna aö rannsókn hérlendis á konum i plastiðnaði. Þessi rann- sókn sem ekki er lokið, er liður i norrænu samstarfi um viða- miklar rannsóknir á þessu sviði. Hér á landi er samstarfsnefnd um þessar rannsóknir, sem i eiga sæti læknarnir fyrrgreindu, Hrafn Túlinius, örn Bjarnason og ég. Starfið strandar þó frekar á mannskap en fjármagni hér á iandi — það vantar hér fólk sem vill helga sig svona rannsóknum i einhvern ákveðinn tima og sinna þeim sem fullri vinnu. 1 sjálfu sér væri ekkert mikið mál að gera rannsókn á þessu sambandi hérlendis. Finnar eru einna lengst á veg komnir með þessar rannsóknir og margar rannsókna þeirra byggjast á tölvuathugunum á mæöraskrá þeirra. Þeir hafa mjög full- komnar skrár, þar sem ótal þættir eru skráðir og tiltölulega einfalt að vinna upp úr með hjálp tölvu. Viö höfum sömuleiðis góðar mæðraskrár hér og gætum þess vegna unnið ýmislegt upp úr þeim. En þaö stendur semsé meira á mannskap til að vinna þetta heldur en fjármagni.” — ast Vilhjálmur Rafnsson, læknir Vinnueftirlits rikisins Fósturlát, heilaskemmdir og vanskapnað má stundum rekja til atvinnu foreldra 0 Fósturskaðar geta orðið vegna beinnar eiturverkunar á fóstur eða legköku 0 Meðal þeirra efna, sem hafa skaðvænleg áhrif eru tóbak, áfengi og leysiefni ýmis 0 Leysiefnin hafa hugsanlega áhrif á kynfrumur manna, bæði karla og kvenna 0 Margar konur hér á landi vinna með eða innan um leysiefni

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.