Þjóðviljinn - 01.07.1982, Síða 16

Þjóðviljinn - 01.07.1982, Síða 16
D/OÐVIUINN Fimmtudagur 1. júH 1982 Abalslmi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudags. Utan þess tima er haegt a6 ná i blaftamenn og abra starfsmenn blabsins i þessum simum : Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt ab ná I af greibslu blaösins i sima 81663. Bla&aprent hefur sima 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími 81333 Kvöldsími 81348 Helgarsím! afgreiðslu 81663 Samningar ASI og samtaka vinnuveitenda Samningarnir sem und- irritaðir voru í gær milli Alþýðusambands Islands annars vegar og Vinnu- veitendasambandsins og Vinnumálasambands sam- vinnufélaga hins vegar gilda frá 1. júlí til 31. ágúst 1983. Undirrituðu fulltrúar ASÍ og VSÍ samninginn um kl. 7 i gærmorgun eftir að stöðugir fundir höfðu verið alla nóttina. Skömmu síðar undirrituðu svo fulltrúar Vinnumálasambandsins sams konar samning, en voru hins vegar með ann- ars konar fyrirvara og bokanir. Samningurinn i heild þýðir um 9 — 10% launahækkun að meðaltali fyrir félaga Alþýðusam- bundsins. 1 samningnum er kveðið á um 4% grunnkaupshækkun strax i dag, 1. júli og nær hún til allra launaflokka innan taxtakerfis ASt. Starfsaldurshækkanir sam- ræmast og miðast við starf innan sömu starfsgreinar þannig að hækkanir miðað við byrjunarlaun viðkomandi launaflokks verði sem hér segir: Eftir 1 ár 2.5%, eftir 2 ár 5.0%, eftir 3 ár 7.5% og eftir5 ár 10.0%, Þeirsemþegar hafa náð meiri starfsaldurshækk- un en hér er gert ráð fyrir, halda þeirri hækkun áfram. 1. janúar 1983 er gert ráð fyrir að öll starfsheiti flytjist upp um 1 launaflokk en hlutfallslegt bil milli launaflokka haldist óbreytt. 10% meðaltalshækkun á samnlngstimabllmu 2.9% vísitöluskerðing í haust. — Samið til 1. september 1983 Fulltrúar Alþýðusambandsins og vinnuveitenda undirrita samkomulagið um kl. 7 i gærmorgun. Guð- laugur Þorvaldsson rlkissáttasemjari situr á milli þeirra Asmundar Stefánssonar forseta ASl og Páls Sigurjónssonar formanns VSt. Ljósm. hm. Gagnrýni á ASÍ og VSI samkomulagið Eins og fyrri daginn Pctur Sigurðsson formaður Alþýðusambands Vestfjarða og Jón Kjartansson formaður Verkalýðsfélagsins i Vcst- mannaeyjuni sögðu i frctta- tima útvarps i gærkvöldi að þótt samningar ASÍ og VSÍ tækju mið af þeim crfiðu að- stæðum scm væru i efnahags- lifi þjóðarinnar þá væri það „eins og fyrri daginn, að ckk- ert væri eftir fyrir láglauna- fólkið i framleiðslugrcinun- um. Það fólk skal áfram eins og áður gera sér að góðu þá mola, sem el' til vill lalla af boröum höfðingjanna, sem eru með fjórföld eða l'immföld verka- mannalaun”, sagði Pétur m.a. Ennfremur kom sú gagnrýni fram að samningagerðin færi fram á röngum tima þegar verkalýðshreyíingin væri ekki tilbúin til átaka vegna þess að orlofstiminn væri framundan. Þá álitu Pétur og Jón að sér- stök visitöluskerðing upp á 2.9% sem samið hefði veriö um væri bæði stórhættulegt fordæmi i samningagerö og viðurkenning á „jarminu i Þorsteini Pálssyni og lelög- um”. Ekki kom þó fram að verka- lýðsíélög á Vestfjörðum, sem semja sér, eða i Vestmanna- eyjum hyggðu á séraðgerðir vegna samningsniöurstöðunn- ar i heildarsamningunum. —JS Evrópuferðir Amarflugs Flogið 4. júlí Sunnudaginn 4. júli n.k. verður fyrsta brottför i hinu nýtilkomna áætlunarflugi Arnarflugs til Evr- ópu, og flogiö veröur til ZDrich i Sviss, en þangað verður farið vikulcga. Miðvikudaginn 7. júli verður siðan flogið til Dösseldorf i Þýskalandi, en þangað verður fariðtvisvar i viku, að þvi er scgir I fréttatilkynningu frá Arnarflugi. 1 tengslum við sölu áætlunar- farseðla hefur Arnarflug opnað nýja söluskrifstofu að Lágmúla 7. Markaðsskrifstofur hafa tekið til , starfa i Zörich, Frankfurt og Amsterdam, en i siðastnefndu borginni hefur nýráðinn svæðis- stjóri i Evrópu, Magnús Oddsson, aðsetur sitt. Auk ýmissa starfa vegna Evrópuflugsins mun Magnús vinna aö markaðsöflun i Evrópu og hafa fjölmiðlar og ferðaskrifstofur erlendis þegar sýnt þessu nýja áætlunarflugi mikinn áhuga. Einnig kemur fram i fréttatil- kynningu Arnarflugs, að félagið bindur miklar vonir við áætlunar- flugið til Evrópu, og segir að á- fangastaöirnir séu einkar heppi- legir til styttri eöa lengri sumar- leyfisferða, og viðskiptaferða. Er bent á að fjölmörg timarit um ferðamál og flugumferö hafi aö undanförnu valið Amsterdam ákjósanlegustu flughöfn veraldar fyrir þá, sem hyggja á fram- haldsflug til annarra staða i Evrópu eöa til annarra heims- álfa. Jafnframt þessu hækka lág- markstekjur um 2%. 1. mars 1983 komi nýtt starfs- aldursþrep, er miðist við 6 ára starf i sömu starfsgrein, þar af tvö siðustu árin hjá sama at- vinnurekanda, og verði þá laun 12.5% hærri en byrjunarlaun við- komandi launaflokks. Akvæðisvinnutaxtar skulu taka sömu hlutfallslegu breytingum og timavinnutaxtar eftir fyrstu starfsaldurshækkun. Samningur- inn tekur þó ekki til sildarsöltun- arsamninga. Verðbætur á laun skal greiða samkvæmt ákvæðum ólafslaga en þó skal sérstaklega draga 2.9% frá útreikningi verðbótavisi- tölu 1. september 1982. Umræðum við rikisstjórnina um nýjan visi- tölugrundvöll skal halda áfram. Þetta eru meginatriði þessa samnings sem aðilar vinnumark- aðarins voru að gera i fyrrinótt. Auk þess var svo samiö um ýmis konar flokkatilfærslur fyrir fé- laga innan Verkamannasam- bandsins, Landssambands iðn- verkafólks, Landssambands is- lenskra verslunarmanna og Málm- og skipasmiöasambands- ins. Rafiðnaðarsamband Islands er eina stóra iðnaöarmannafélagið sem stóð utan þessa samnings.en fulltrúar þess hafa þegar fengið hinn nýgerða kjarasamning til skoðunar. 1 lok kjarasamnings ASt, VSl og VMSS er tekið fram að samn- ingstiminn sé frá 1. júli 1982 til 31. ágúst 1983. Er hann uppsegjan- legur með eins mánaðar fyrir- vara. Kaupgjaldsákvæðum samningsins er heimilt að segja upp á samningstimabilinu með eins mánaðar fyrirvara ef sett verða lög sem breyta ákvæðum um greiðslu verðbóta á laun eða ef launahækkanir i aðal- og sér- kjarasamningum opinberra starfsmanna verða meiri en i samningnum felst. — v. Prestastefnan ályktar um frið og afvopnun Allir kallaðir tO ábyrgðar Kirkjan hefur forgöngu um friðarmálaumræðu og sérstakan friðardag í september Prestastefnan 1982 var haidin að Hólum i Hjalta- "dal dagana 29. og 30. júní. Aðalmál prestastefnunnar var um afvopnunar- og friðarmál undir yfirskrift- inni „ Friður á jörðu", og var fjallað um þau mál í inngangserindum, pall- borðsumræðum og um- ræðuhópum. I lok ráðstefnunnar var eftir- farandi ályktun samþykkt sam- hljóða: 1. Sá friður, sem kirkjan boðar er friður Guðs, sem hún er send með út i heiminn til þess að fagn- aðarerindið fái að móta mannlifið ailt. Við minnum á, aö friöur er af- leiðing af réttlæti i samskiptum manna og verður aðeins tryggður á þann hátt að réttlæti riki. Viö minnum á aö hinn kristni fagnaðarboðskapur á erindi við manninn á öllum sviðum lifs hans. Fagnaðarerindið er boðskapur um ábyrgð mannsins á öllu lifrik- inu og þar með einnig um velferö þjóöa og einstaklinga. 2. Vér fordæmum geigvænlegan vigbúnað i heiminum, og vér minnum á þá gifurlegu fjármuni, sem variö er til vigbúnaðar, með- an stór hluti mannkyns sveltur. Vér bendum á, aö málefni frið- ar og afvopnunar eru ofar flokks- sjónarmiðum stjórnmálaflokk- anna. 1 málefnum friöar og af- vopnunar hljóta allir menn að vera kallaðir til ábyrgðar. Vér æskjum þess, að kirkju- stjðrnin taki höndum saman við alia stjórnmálaflokka landsins til umræðu um friðarmál og beinum þvi til biskups að hafa forgöngu i þvi efni. 3. Vér hvetjum söfnuði landsins til þess að leggja aukna áherslu á uppeldi til friðar meö þvi að a) ástunda slikt uppeldi innan fjölskyldunnar sjálfrar og i sam- skiptum milli heimila á þann hátt, meöal annars, aö sýna sátt- fýsi, sanngirni, hógværð og um- buröarlyndi, b) vekja menn til vitundar um skaðsemi ofbeldis i fjölmiðlum, myndböndum, leikföngum og á fleiri sviðum, c) vekja til umhugsunar um sáttaleiðir i deilumálum, stórum og smáum, og minnast gildis hins fórnandi kærleika, og d) byggja upp gagnkvæmt traust milli einstaklinga og hópa og vinna gegn fordómum með þvi að hvetja menn til þess að virða skoöanir annarra. Vér bendum söfnuðum landsins á eftirfarandi leiðir til þess aö vinna aö uppeldi til friðar: Með þvi að leggja rækt við guð- þjónustur safnaöarins og biðja fyrir friði. Með þvi að efna til umræðu- funda i kirkjum og safnaðarheim- ilum um málefni friöar og af- vopnunar. Meö friöarsamkomum, friðar- vökum og guöþjónustum, þar sem meginefnið er friður, sáttargjörð eða skyld efni. Vér leggjum til að haldinn verði sérstakur friðar- og sáttargjörð- ardagur 14. sunnudag eftir þrenn- ingarhátið á þessu ári. — jsj.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.