Þjóðviljinn - 03.09.1982, Síða 5

Þjóðviljinn - 03.09.1982, Síða 5
Föstudagur 3. september 1982 ÞJÓDVILJINN — SÍÐA 5 'l Viljum vemda Fossvogsdal segir formaður Skipulagsnefndar Kópavogs um hug- myndir að heimila litla byggð í botni dalsins til að koma í veg fyrir hraðbraut þar „Jú, hjá okkur i skipulagsnefnd Kópavogskaupstaðar er verið að ræða hugmyndir um að heimila einbýlishúsabyggð I Meltungu- landi, sem er fyrir botni Foss- vogsdalsins. Yrði af sliku má um leiö reikna með að Fossvogshrað- braut, eins og hún er fyrirhuguð i aðalskipuiagi Reykjavikur sé þar með úr sögunni”, sagði As- mundur Ásmundsson formaður Skipuiagsnefndar Kópavogs I samtali við Þjóðviljann i gær. „Ahrifin af þessu yrðu auðvitað þau að við þyrftum að taka allt höfuðgatnakerfið okkar vestan Reykjanesbrautar, að minnsta kosti, til gagngerrar endur- skoðunar. Byggð fyrir botni Foss- vogsdals og afnám Fossvogs- hraðbrautar hefur nefnilega áhrif á áætlanir um umferð annars staðar i Kópavogi. Við höfum þegar verulegar áhyggjur af um- ferðinni á Nýbýlavegi og það er vitað að ef Suðurhliðarvegur verður látinn tengjast Digranes- Skammt austan við þessa byggð er hugmyndin að heimila smáa byggð í botni Fossvogsdais til að koma algerlega i veg fyrir að Fossvogshraðbraut verði lögð. 1 baksýn sést Fossvogsútivistarsvæðið. Ljósni. —eik. vegi með nokkuð greiðum hætti, kallar það yfir okkur enn eitt skipulags- og umferðarvanda- málið i Kópavogi. Má jafnvel reikna með að á Digranesvegi kæmi upp enn meira „umferðar- lost” en þegar er á Nýbýlaveg- inum”, sagði Asmundur enn- fremur. — Þannig að þið hugsið ykkur að endurskoða allt höfuðgatna- kerfið i Kópavogi? „Já, það er verið að vinna að endurskoðun aðalskipulags fyrir Asmundur Ásmundsson formaður skipulags- nefndar Kópa- vogs: Vil með öllum ráðum reyna að koma endanlcga i veg fyrir lagn- ingu Fossvogs- hraðbrautar. Kópavog austan og vestan Reykjanesbrautar og steínt að frágangi þess á næst ári. Ég er þeirrar skoðunar að mikið af þeim umferðarvandamálum sem viö Kópavogsbúar búum viö, stafi af þeim skipulagsákvörðunum sem teknar hafa veriö i Reykja-. vik og aö þau verði ekki leyst nema við i Kópavogi setjum okkur önnur markmið i um- ferðarmálum en reykvisk skipu- lagsyfirvöld hafa sett sér”. — Bæjarstjórn Kópavogs hefur verið á móti lagningu Fossvogs- hraðbrautar. Hvers vegna? „Fyrst og fremst er Kópavogs búum annt um útivistarsvæðið I dalnum sem við lagningu brautarinnar myndi algerlega verða eyðilagt. Það er skoðun min að Fossvogshraðbraut styðji fyrst og fremst áframhaldandi upp- byggingu stórs höfuðborgar- kjarna i kvosinni i Reykjavik og það er ekkert sjálfgefið að ibúum höfuðborgarsvæðisins sé best þjónað með þvi. En með þvi að byggja i þess stað upp kjarna við Reykjanesbrautina umfram það sem þegar er fyrirhugaö i Mjódd- inni, kippum við grundvellinum undan Fossvogsbrautinni aö nokkru leyti”. „Þensla byggðar á höfuð- borgarsvæðinu er til austurs. Hins vegar er þungamiöja versl- unar og þjónustu á vestur hluta svæðisins, i Kvosinni i Reykjavik. Ég tel eðlilegra aö leggja aukna áherslu á svæöið meðfram Reykjanesbraut, sem innan tiðar verður i hjarta höfuðborgar- svæðisins.” — Og nú hyggið þið á byggingu I botni dalsins til af afmá brautina endanlcga úr skipulaginu? „Náttúruverndarmenn á höfuð- borgarsvæðinu hafa löngum haft horn i siðu þessa mikla umferðar- mannvirkis. Það er ljóst að Foss- vogsdalur og Kópavogsdalur eru mjög vel fallnir til útivistar og gróðurræktar. Vegna nálægðar sinnar við þéttbýlið gætu hér verið um að ræða dýrmætustu útivistarsvæði á landinu öllu. Þau viljum viö nýta með öörum hætti en fyrir meiriháttar umferðar- mannvirki”, sagöi formaður Skipulagsnefndar Kópavogs að lokum. —v ,,Við skulum greina skýrt á milli ríkisstjórnarinnar annars vegar og þeirra óyndisúrræða sem hún grípur til og Alþýðu- bandalagsins hins vegar ...” Tímamót Ekki er langt um liðið siðan gengið var frá kjarasamningum Alþýðusambands tslands og Vinnuveitendasambandsins. Þá var það flestra álit að launa- mönnum hefði ekki tekist að flá feitan gölt. Forystumenn verka- lýðshreyfingarinnar báru sig og illa af augljósum ástæðum, en töldu niðurstöðu samninganna viðunandi miðað við aðstæður. En hverjar voru þessar að- stæður sem visað er til? Þótt þær séu að vonum margvisleg- ar, þá má ætla að mönnum hafi einkum verið i huga takmörkuð samstaða meðal launamanna innan ASt i bland við það mat ASt-forystunnar aö verkafólk væri ekki reiðubúið til átaka. Niðurstaða nýafstaðinna sveit- arstjórnakosninga bendir til þess að þetta mat hafi verið rétt. Við þetta bætist svo sá skuggi, sem féll á baráttu verkalýðsstéttarinnar i landinu, þegar 80% kjósenda studdi kjaraskerðingarkröfur borgara- flokkanna við siðustu alþingis- kosningar. En þá var Alþýðu- bandalagið eini stjórnmála- flokkurinn sem ekki boðaði kjaraskerðingu. Þótt tekist hefði að troða flokknum inn i rikisstjórn til að tryggja að nið- urstöður kosninganna 1979 um kjaraskerðingar næðu ekki fram að ganga, þá er öllum heil- vita mönnum ljóst aö þingstyrk- ur 11 alþingismanna af 60 er takmarkaður, þótt tekist hafi með þrautseigju og ráðsnilld að koma i veg fyrir langvarandi kaupmáttarskeröingar og meiriháttar aukin umsvif hins bandariska hervalds i landinu. Þetta er ekki litið, og sannar að Alþýðubandalagiö er ávallt til- búið til að fórna sér til torsóttrar baráttu fyrir hag verkalýðs- stéttarinnar, jafnvel þótt beita þurfi flóknum og illútskýranleg- um aðferðum sem einkenna völ- undarhús hins borgaralega samfélags óyndisríkisstjórn Þessa dagana er ráðist gegn Alþýðubandalaginu fyrir að standa að kaupráni, og má vart á milli sjá hvorir ganga harðar fram stuðningsmenn flokksins eða Mogginn. Það blað hefur þó birt langan pistil um aðdrag- anda bráðabirgðalaganna titt- nefndu, og kemur þar fram ein frásögn af þvi hvernig Alþýðu- bandalagið beitti afli sinu, til aö koma i veg fyrir að ákvæöi um skerta visitölu yrði tekið upp i lögunum. Enda hygg ég að ef við skoðun afstöðu Alþýðu- bandalagsins undanfarið þá komumst við fljótt að þvi að okkar ásakanir i garð eigin flokks eru einungis til þess fallnar að frýja okkur sjálf ábyrgðar á rikisstjórnarsam- starfi við borgaraflokkana, sem flest okkar studdu þó i önd- verðu. Menn byggja þannig upp eigið varnarkerfi gegn áróðri iháldsins um hinn „óábyrga flokk kommúnista”, sem við er- um hluti af, hvert og eitt. Þannig gefa menn að vissu leyti þeirri skoöun undir fótinn aö Mogganum hafi tekist að þvinga fram i hugum okkar sína skoðun á Alþýðubandalaginu, þvert gegn okkar innri vitund. Þótjt rikisstjórnir eigi ekki að styðja upp á hvað sem er, þótt kjaraskerðingar i kjölfar nýrra kjarasamninga séu siðleysi, þá verða menn að gera sér ljósan þann pólitiska veruleika að rikisstjórnaraðild Alþýðu- bandalagsins skapar stöðu til að hamla gegn kaupmáttarskerð- ingu, sem það hefur notað sér út i ystu æsar. Við skulum þvi greina skýrt á milli rikisstjórn- arinnar annars vegar og þeirra óyndisúrræöa sem hún hefur gripið til, og Alþýðubandalags- ins hinsvegar og þess málstaðar sem það hefur barist svo hart fyrir og sameinar okkur öll. Þannig má segja, að þótt rikis- stjórnin hafi látiö ýmislegt gott af sér leiða þá verður ekki hjá þvi vikist að hún hefur i megin- atriðum beitt sér fyrir firna- gömlum ihaldsúrræðum i efna- hagsmálum, og verður þvi okk- ur sósialistum aðallega minnis- stæð fyrir það sem okkur tókst að koma i veg fyrir að hún gerði. Timamót 1 þeirri hrinu kjarabaráttunn- ar sem upp hófst með Sólstöðu- samningunum áriö 1977 virðist nú vera draga til timamóta. Islendingar hafa oröið fyrir al- varlegum búsifjum. Aflabrestur ihelstu fiskistofnum, sölutregða fiskafurða á erlendum mörkuð- um með miklum og vaxandi við- Ásmundur Ásmundsson skrifar skiptahalla i kjölfarið gerir það að verkum aö beita verður nýj- um úrræðum i verkalýðsbarátt- unni. Og sem svo oft áður hefur flokkur sósialista tekið frum- kvæðið með nýjum tillögum um lausn efnahags- og kjaramála, sem umfram allt miöa að þvi að tryggja efnahagslegt sjálfstæði landsins, meö aðgeröum gegn vaxandi viðskiptahalla, verð- bólgu og hugsanlegu atvinnu- levsi. Einn þáttur i þessum tillög- um, og sá sem hefur mest póli- tiskt inntak er krafan um auk- inn jöfnuð. Hún hlaut að sjálf- sögöu takmarkaða náö fyrir augum samstarfsflokka Al- þýðubandalagsins i rikis- stjórn, en þó er athyglisvert hve mikið tillit er tekið til hennar. Astæðan er einfaldlega sú aö búiö er að gripa til allra ihalds- úrræða sem þekkjast nema leiftursóknar og menn eru ekk- ert vissir um árangur. Gunnar Thoroddsen getur ekki varpað Alþýðubandalaginu fyrir róða, nema að eiga visan stuðning úr annarri átt, sem allir vita að er ekki fyrir hendi. Honum er þvi nauðugur sá kostur að fallast á þær tillögur sem Alþýðubanda- laginu tekst að fá Framsóknar- flokkinn til að samþykkja. Niðurstaöan er svo sú að Framsókn fær einhverja niður- talningu og kjaraskerðingu gegn kröfu Alþýðubandalagsins um aukinn jöfnuð. — Bráða- birgöalögin eru þvi á vissan hátt visbending um þá póli- tisku stefnu sem tekin yröi ef þessir tveir flokkar væru einir i rikisstjórn. Ljóst er og öllum, aö þau væru mun vinsamlegri launafólki ef ihaldspostula inn- an Framsóknar, eins og Ólafs Jóhannessonar, nyti ekki við. Það kann að verða viö næstu kosningar. Lokaorð Maður veröur aldrei fyrir vonbrigðum með andstæðinga sina segir einhvers staðar. Þetta á ekki hvað sist við i stjórnmálum. Þvi má segja með nokkrum sanni að stjórnmála- flokki stafi fyrst og fremst hætta af sjálfum sér. Þvi er það ekki nóg að vera sjálfum sér sam- kvæmur og standa styrkan vörð um eigin hugsjónir. Flokkur sem er byggöur á hugsjónum verður að sýnavilja tilaö berjast fyrir þeim. Hann verður einnig að öðlast skilning þeirra sem barist er fyrir. Min tilfinning er sú að Alþýðubandalagið geti lent i pólitiskri kreppu, vegna þess að það fórnar sér fyrir hugsjónar slnar en skeytir minna um að gera fólki grein fyrir þvi i hverju fórnirnar eru fólgnar og hvers vegna þær eru færðar. Mér segir svo hugur að pólitisk verkefni okkar i framtiðinni séu umfram flest annað að túlka og skýratengsldægurpólitikurinnar viö annars vegar sósialisk grundvallaratriði og hins vegar hagsmuni verkalýðsstéttarinn- ar eins og hún sér þá hverju sinni. — Þótt þeir vinnustaða- fundir, sem Alþýðubandalagið hefur efnt til að undanförnu lofi góðu, þá þarf slikt starf að vera mun reglubundnara. Það dugar ekki lengur að visi- tala sósialiskrar baráttu sé ein- ungis bundin við það sem talið er upp úr launaumslögunum. Alþýða þessa lands á annað og meira skilið. Taumlaus hag- vaxtardýrkun til aö viðhalda auðvaldsþjóðfélaginu, þar sem verðbólgan hjálpar hinum rik- ari til að ræna hina snauðari, gerir þá kröfu til sósialista að þeir sýni fram á að lifsins gæði veröa ekki við slikar aðstæður mæld i áunnum krónum einum saman. Höfuðdag 1982 Ásmundur Ásmundsson Asmundur Asmundsson verk- fræðingur i Kópavogi. Hefur starfaö mikið aö málefnum her- stöövaandstæöinga og bæjar- málum i Kópavogi

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.