Þjóðviljinn - 12.10.1982, Blaðsíða 1
DJOÐVHHNN
Bókasafnið á að
vera alhliða
menningar- og
upplýsingamiðill,
segir Kristian
Lindbo-Larsen
bókafulltrúi Dana í
viðtali.
Sjá 8.
október 1982
þriðjudagur
230. tölublað
47. árgangur
Bráðabirgðalögin:
Enn er
alltí
óvissu
Kkki lá fyrir í gær, með hvaða
hætti, né hvenær, hráðahirgðalög
ríkisstjórnarinnar verða lögð
fram. Sem kunnugt er, þá ræður
forsætisráðherra því einn ineð
hvaða hætti það verður.
Páll Pétursson. formaður þing-
flokks Framsóknarflokksins sagði í
gær að sér væri ekki kunnugt um
það í hvorri deildinni lögin verða
fvrst lögð fram, en það getur skipt
miklu máli, vegna þess að atkvæði
eru jöfn i neðri deild og þar myndi
frumvarpiö því falla, sem kunnugt
er. ef allir stjórnanmdstæðingar
greiöa atkvæði á móti því. En verð-
ur þaö svo?
Arni Gunnarsson, þingmaöur
Alþýðuflokksins hefur látið hafa
þaö eftir sér að hann telji óeölilegt
að fella bráöabirgöalögin, án þess
að koma með fullmótaöar tillcigur
um önnur úrræði. I lann var inntur
eftir þessu í gær ogsagði þá að hann
væri enn þessnrar skoðunar. Um
það hvort hann eð;i þingflokkur
Alþýöuflokksins hefði slíkar til-
lögur á takteinum. sagði Árni að
liann gæti ekkert fyllyrt um það á
þessu stigi málsins hvernig það
yrði, en eins og málin stæðu nú,
væri einhugur f þingflokki Alþýðu-
flokksins að greiða atkvæði á móti
bráða b i rgða I ög u n um.
Eggert llaukdal. sem hljópst
undan merkjum sem stuðnings-
maður nkisstjórnarinnar í suniar,
sagöi að hann hefði engu við það að
hæta sem liann heföi sagt í sumar,
er hann lýsti yfir andstöðu við ríkis-
stjórnina. - S.dór.
þegar þeir gengu saman í Alþingishúsið í gær, en þrátt
fyrir það ríkir enn óvissa um afdrif bráðabirgða-
laganna. Ljósm. gel.
Sjaldan hefur verið eins lítil óvissa um afstöðu þeirra
Eggerts Haukdal og Alberts Guðmundssonar eins og
Átök hjá Sjálfstæðismönnum á Alþingi:
Eggert út, Friðjón inn
er krafa Gunnars Thoroddsen
við kjör í fjárveitinganefnd
Mikil átök eiga sér nú stað hjá
Sjálfstæðismönnum á Alþingi,
vegna bréfs, sem forsætisráð-
herra Gunnar Thoroddsen hef-
ur ritaö þingllokki Sjálfstæðis-
tlokksins, þar sem hann óskar
eftir því að Friðjón Þórðarson
dómsmálaráðherra, taki sæti
Fggerts Haukdal í fjárveitinga-
nefnd, þar sem Iiggert hefur
lýst því yfir að hann styðji ríkis-
stjórnina ekki lengur. Óskar
Gunnar eftir samstarfi milli
þingtlokksins og Sjálfstæðis-
menn í rikisstjórn um málin líkt
og var um nefndarkjör í fyrra.
Pingflokkurinn mun ekki ýkja
hrifinn af þessari hugmynd og var
málið tekið fyrir á þingflokksfundi
í gær, en þar tókst ekki að afgreiða
málið og verður það tekiö fyrir á
öðrunt fundi unt hádegisbilið í dag,
þar sem nefndarkjör fara fram á
Alþingi eftir hádegi.
Náist ekki samkomulag um þetta
mál milli Sjálfstæðismanna á þingi,
verða ráðherrar Sjálfstæðisflokks-
ins að bjóða fram lista með öðrum
stjórnarliðum ef ríkisstjórnin á að
hafa meirihluta í fjárveitinganefnd
og öðrum nefndum. - S.dór.
100 loðdýrabú
í landinu um
„Þúsundþjalasniið-
urinn" Dietcr Roth
er viðfangsefni í
myndlistargrcin
Halldórs B.
Runólt'ssonar í dag.
Aukin
vígbúnaðaráform á
íslandi gera andófs-
starfSamtaka
herstöðvaandstæð-
inga nú
mikilvægara en
nokkrusinnifyrr.
næstu áramot
Mikil gróska er nú í loðdýraræktinni. Um það leyti, sem
aðalfundur Loðdýraræktarsambandsins var haldinn í fyrra voru
12 loðdýrabú starfandi á landinu. Um sl. áramót voru þau orðin30.
ar er gert rað tyrir að við bætist
100 talsins um næstu áramót.
Petta kont fram í ræöu llauks
Halldórssonar í Sveinbjarnargerði,
formanns Sambands íslenskra
loðdýraræktenda á aðalfundi Sant-
bandkins á Hótel Sögu í gær.
Til sölu komu í fyrra 22.500
minkaskinn og um 3000 refaskinn.
Á þessu ári hefur minkastofninn
nokkuð dregist saman en þó má
búast viö að til sölu komi í ár 22-23
þús. minkaskinn ogurn lOþús. ref-
askinn. Verðmæti skinnanna var
um 8 milj. nýkr. í fyrra en reiknað
er með að þaö verði unt 12 milj.
nýkr. nú.
Eihs og alkunna er herjar nú ill-
vígur sjúkdómur á minkastofninn.
70 bú og verði þunnig orðin um
Veröur ekki viö honum brugöist
svo að árangurs megi vænta nteð
öðru en niöurskurði. Aðeins tvö
tiltölulega lítil minkabú hat'a slopp-
ið viðsýkingu. I lin hafaákveðið að
skipta urn stofn. Búið er nú aö festa
kaup á 2000 minkalæðum í Dan-
mörku, frá úrvalsbúum þar, en
Danir eru taldir eiga besta minka-
stofn á Noröurlöndum. Koma
þessi dýr væntanlega um miðjan
apríl n.k. Til stendur að flvtja inn
6000 ntinkalæður á næstu tveimur
árum í stað þeirra dýra, sem fargaö
verður á Sauöárkróki, Dahík og
G renivík.
- mhg.
Með djúpsprengju á 20-25 metra
færi hristist kafbáturinn og raf- »
magnsljós slokkna.
-•ó^jMeð sprengju sem sekkur á 10-15 metra
TKfæri skemmist kafbáturinn alvarlega
Með sprengju á 5 metra færi
springur kafbáturinn.
Týndi kafbáturinn í skcrjagarði Stokkhóhns er nieiri háttar álitshnekkir
fyrir sænska flotann. - Á mvndinni iná sjá hvernig áætlað var að sauma að
kafbátnum. - Sjá 6. ;__
Bein líha til Svavars
Svavar Gestsson formaður Alþýðuhandalagsins og félagsmálaráðherra
svarar spurningum lesenda Þjóðviljans í síma 8 13 33 milli kl. 17 og 19 í
dag, millí kl. 5 og 7 eftir hádegi. Lesendur sem hafa hug á að leggja
spurningar fyrir eru beðnir um að hafa til reiðu fastmótaðar spurningar.
svo að afgreiðsla símtala geti gengið greitt fvrir sig. Blaðamenn munu skrá
niður spurningar og svör sem birt verða í blaðinu síðar í vikunni.