Þjóðviljinn - 12.10.1982, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 12.10.1982, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 12. október 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15 RUV <9 Þriðjudagur 12. október 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Gull í mund. 7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt mál. Endurtekinn þáttur Ólafs Oddssonar frá kvöldinu áður. 8.00 Fréttir 8.15 Morgunorð: Sveinbjörg Arnmundsdóttir talar. 8.30 Forustugr. dagbl. (útdr.) 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Barna- sögur“ eftir Peter Bichsel í þýðingu Franz Gíslasonar. Sigrún Björnsdóttir les (2) 9.20 Leikfimi. Tilkynningar. Tónleikar. 9.45 Þingfréttir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 „Man ég það sem löngu leið“ Raitn- heiður Viggósdóttir sér um þáttinn. Hugvitsmaður í stríði við samtíð sína. Sagt frá séra Sæmundi Hólm. Lesari: Bald-vin Halldórsson. 11.00 Islcnskir einsöngvarar og kórar syngja. 11.30 Eru lánardrottnar að tröllríða skuldunautum sínum? Þáttur í umsjá Önundar Björnssonar. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Þriðjudagssyrpa - Páll Þor- steinsson og Þorgeir Astvaldsson. 14.30 „Ágúst“ eftir Stefán Júlíusson Höf- undurinn les (7) 15.00 Miðdegistónleikar Vladimir As- hkenazy Og Sinfóníuhljómsveitin í Chic- ago leika Píanókonsert nr. 3 í c-moll eftir Ludwig van Beethoven; Georg Solti stj. 16.20 Lagið mitt. Helga Þ. Stephensen kynnir óskalög barna. 17.00 „SPÚTNIK" Sitthvað úr heimi vís- indanna. Dr. Þór Jakobsson sér unt þáttinn. 17.20 Sjóndeildarhringurinn Umsjónar- maður: Ólafur Torfason. (RÚVAK) 20.00 Sinfónískir tónleikar. a) Hljóm- sveitarsvíta nr. 4 í D-dúr eftir Jóhann Sebastian Bach. Hátíðarhljómsveitin í Bath leikur; Yehudi Menuhin stj. b) Sellókonsert eftir Luigi Boccherini. Maurice Gendron og Lamoreux- hljómsveitin f París leika; Pablo Casals stj. c) Dúó-konsert í d-moll eftir Johann Sebastian Bach. Arthur Grumiaux, Ko- ji Toyoda og Nýja fílharmóníusveitin í Lundúnum leika; Edo de Wart stj. d) Sinfónía nr. 3 í a-moll op. 56 eftir Felix Mendelssohn. Fílharmóníusveitin í Berlín leikur; Herbert von Karajan stj. - Kynnir: Guðmundur Gilsson 21.45 Utvarpssagan: „Brúðarkyrtillinn“ eftir Kristmann Guðmundsson Ragn- heiður Sveinbjörnsdóttir les (4) 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins 22.35 Þriðji heimurinn: Tansanía Umsjón: Þorsteinn Helgason. 23.15 Oní kjölinn Umsjónarmenn: Krist- ján Jóhann Jónsson og Þorvaldur Kri- stinsson. RUV jO. 19.45 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og dagskrá. 20.35 Bangsinn I’addington. Þýðandi Þrándur Thoroddsen. Sögumaður Mar- grét Ilelga Jóhannsdóttir. 20.40 Þróunarhraut mannsins 2. Eitt lítiö skrcf. í öðrum þætti fjailar Richard Leakey um elstu minjar um mannverur sem gengu uppréttar. Þýðandi og þulur Jón O. Edwald. 21.55 Dcrrick. Óður til Margrétar. Stúlku- lík finnst undir brú og Derrick rekur slóðina til gítarleikara í næturklúbbi. Þýðandi Veturliði Guðnason. 22.50 Þingsjá. Umsjónarmaður Ingvi Hrafn Jónasson. 23.40 Dagskrárlok. Sjónvarp kl. 20.40: Elstu minj- ar um mannverur sem gengu uppréttar „Maðurinn er fullkomn- asta, slóttugasta og hættuleg- asta dýrið á jörðu allri. Hvers- vegna og hvernig? Þeirri spurningu vclta margir fyrir sér, en fáir geta státað af því að hafa fundið svör upp á eigin spýtur. Einn þcirra er Ric- hard Leakey sem hefur rann- sakað elstu fornminjar með þcim árangri sem sést í myndaflokknum Þróunar- braut mannsins." Homo erectus - hinn upprétti maður. Svo segir í kynningarriti um myndaflokk Leakey og gera sér sennilega fæstir áhorfend- ur grein fyrir þeirri geypilegu vinnu sem liggur að baki þátt- anna. Eitt er að finna þessar fornminjar, annað að koma þeim til skila í jafn frábærum þáttum sem Leakey hefur staðið fyrir. Þátturinn í kvöld er númer tvö í röðinni en sá fyrsti var sýndur fyrir viku síðan í sjón- varpinu. I kvöld eru sýndar og skilgreindar elstu þekktu minjar um hinn upprétta . mann, Homo erectus. Richard Leakey á ekki langt að sækja áhuga sinn á uppruna mannsins, því foreld- rar hans voru þekktir og virtir fornleifafræðingar, Louis og Maria Leakey. Þau byrjuöu leiðangra sína í Afríkuí kring- um 1930 og í kjölfar þess fundu þau stórmerkilegar mannvistarleifar. Louis varð framkvæmdastjóri Þjóð- minjasafns f Kenýa og Ric- hard sonur hans varð arftaki hans. Þátturinn í kvöld tekur 1 klst og 15 mínútur í ílutningi. Utvarpkl. 11.30: Eru lánadrottnar að tröllríða skuldu- nautum sínum? Önundur Björnsson nýskip- aður prestur í Bjarnanes- prestakalli í Hornafirði mun á næstunni sjá um þætti sem tengjast cfnahagslífi þjóðar- innar. Þættirnir munu bera yfirskriftina, Eru lánadrott- nar að tröllríða skuldunaut- um sínum? Fyrsti þátturinn sem er á dagskrá í dag og hefst kl. 11.30, stendur í hálfa klst. „Það má nú eiginlega segja að nafn þessa þáttar gæti verið með öfugum formerkjum, þ.e.a.s. Eru skuldunautar að tröllríða lánadrottnum sín- um,“ sagði Önundur þegar Þjóðviljinn sló á þráö til hans þar sem hann var staddur á heimili sínu fyrir austan. „Þetta verða vangaveltur um bankakerfið og ég mun ræða við formann Félags ís- lenskra sparisjóðsstjóra. Þarna verður ra:tt um verð- tryggingarstefnuna sem kom- in er á á flestum sviðum við- skiptalífsins. Égmun ræðaum þá aðila sem hér í eina tíö voru staddir í víxlasúpu og gátu gert sér góðar vonir um aö borga til baka með aðstoð verðbólgunnar eða þá að framlengja látlaust sem mjög var vinsælt. Hvernig þessir menn komast af nú þegar þeir tá hnefann í borðið og eiga að Hvað gera menn nú andspænis bankakerfinu þegar þcir þurfa að borga verðtryggð lán? standa full skil," sagði On- undur. Önundúrsagðist hafa þcgar tekið upp nokkra þætti til flutnings og t.d. fengið þá Guðmund J. Guðmundsson og Vilmund Gylfason til að leiða saman hesta sína í um- ræðu um verkalýðsmál. Þáttur Þráins Bertelssonar heldur áfram i kvöld 5? Það 9? var og Einn af ágætari þáttum sem Ríkisútvarpið hefur boðið uppá, „Það var og“, þáttur Þráins Bertelssonar verður ekki settur af dagskrá eins og til stóð. Þáttur þessi sém undanfarið hefur veriö fastur liður á sunnudögum heidur áfram ogsagði Þráinn Bertels- son í samtali við Þjóðviljann að hann yrði á dagskránni a.m.k. lil jóla. Þátturinn er að mestu byggður upp með léttu spjalli óg músik. Brasiliufararnir: Stórgóð heimildarmynd Sjónvarpsáhorfandi hringdi: l'aö cr iilltal an;cg|ulegt að sjá iiv andlit á sjonvarps- skcrminum. ckki síst |>cgar þau cru íslcnsk. Allra skcinmtilcgast ci |>o ;hí vcra vitni að stórgöðuni hand- hrogðum islcnskra listamanna i kvikmyndagcrð. Siðustu ai hclur hvcr kvikmyiulast jth inn og kvikmyndatokumaðurínn íslcnskui stigið tram á sjónar- s\iðið, og ckki lictui \ciið Bjornsdótlu og Jakoh Magnuson. hotundar mynd- arinnar uni Brasilíularana. Anna cr þckkt scm tyriisa*ta og kvikmyndalcikkona *)g Jakoh scm tónlistarmadur. l'au hala mi h;cði haitt cnn. cinni skrautljöðurinm i hatt sinn. |>ar scm cr kvikmvnda- taka Onnu og handrit. kvik- myndast jórn og lcikur Jakohs i umræddri hcimildarmynd um atdril og afkoipcndur Brasiiiularaniia svonctndu. Sjónvarpsáhorfandi þakkar þeim Jakobi Magnússyni og Onnu ItjornsHnlli. Einkenni Brasilíumyndarinnar Klaufaleg vinnubrögð Annar sjónvarpsáhorfandi hringdi. Ég er ekki jafnhrifin 'af myndinni um Brasilíufarana og „sjónvarpsáhorfandi" lýsir yfir á leséndasíðunni sl. föstu- dag. Mvnd þessi einkennist því miður um of af klaufalegum vinnubrögðum. Það hlýturað hafa verið dýrt að ferðast alla leið til Brasilíu og ekki síður að leita uppi alla þá afkom- endur íslensku frumbyggjana sem sýndir voru á skerminum. Hins vegar var ekkert talað við þetta fólk. Ég heföi gjarnan viljað fá aö heyra við- tal við einn eða fleiri af þess um brasilíu-íslendingum. Það hefði verið gaman að fá að heyra sögu þessa fólks og fá að vita hvort það á einhvern liátt sker sig úr brasilísku samfélagi. Við fengum einnig minnst lítið að vita hvað þetta fólk gerir. Þar fyrir utan var framburð- ur Jakobs alveg hræðilegur. Forvitnin um aö fá kannski að heyra í þessu fólki eitthvað annaö en eina og eina bjagaða setningu á íslensku hélt mér viö tækið, en því miöur varð ekkert úr. Sem sagt. ég er alls ekki sammála öðrum sjónvarpsá- horfenda um að þessi mynd hafi verið stórgóö, hvaö þá góð. Slátranir stórbóndans G.S. hringdi: Það var ekki seinna vænna að tjölga borgarfulltrúum í Reykjavík því þar er hver bjálfinn öðrum betri. En þetta stendur allt til bóta þvt Davíð ætlar að slátra einhverju af lömbununt í næstu borgar- stjórnarkosningum. Vonandi slátrar stórbóndinn mest frá sjálfum sér. > G.S.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.