Þjóðviljinn - 14.10.1982, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 14.10.1982, Blaðsíða 6
6 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 14. október 1982 Úti um sveitir ganga aliar breytingar hægt. Hægrisinnar eru fullir heiftar og þeir eiga marga hauka í horni í hernum Spönsku þingkosningarnar 28. október Hríkaleg vandamál bíða nýrrar rOdsstjómar Því er nú spáð, að þingkosningarnar, sem fram eiga að fara 28. okt. n.k. muni valda straumhvörfum í spönsku þjóðlífi, vegna þess að Sósíalistaflokki Spánar er spáð miklum frama, jaf nvel hreinum meirihluta á þingi, líkt og gerðist í héraðskosningunum í Andalúsíu í vor er leið. Þá fékk Sósíalistaflokkurinn 53% atkvæðaog þvíhreinan meirihluta. En hversvegna er þessi vinstri sveifla svo mikil á Spáni nú og hvaða afleiðingar mun uppreisnartilraun hersins sem kæfð var í fæðingu á dögunum, hafa fyrir þá sveiflu? FRETTASKÝRING Margar ástœður Ástæðurnar fyrir þeirri vinstri sveiflu sem nú á sér stað á Spáni eru margar. Ef rætt er við almenning á Spáni kemur í ljós að fólki þykir hafa verið illa stjórnað þau 6 ár sem Miðflokkabandalagið, fyrst undir forsæti Suares, en síðan Leopoldo Calvo Sotelo, hefur setið við völd. Hvorugri ríkisstjórninni hefur tek- ist að ráða við hinn mikla efna- hagsvanda sem Spánn á við að etja og atvinnuleysi hefur vaxið hröð- um skrefumtog er nú talið vera um 30% á landinu öllu. Ástandið er misjafnt eftir héruðum, en lang- verst er það á Suður-Spáni. Opin- berar tölur segja atvinnuleysi aðeins 14%, en virtasta dagblað Spánar „E1 Pais“, segir það vera fölsun. Og fölsunin fer þannig fram, að einungis þeir sem missa atvinnu eru skráðir atvinnulausir. Ungt fólk sem kemur fullnuma úr skólum landsins, en fær ekki atvinnu fær sig ekki skráð atvinnú- laust. Heimavinnandi húsmæður, sem vilja fá vinnu utan heimilis, en fá hana ekki, eru heldur ekki Fóstrur Viljum ráöa hressa fóstru frá 1. nóv. á skóla- dagheimilið Langholt. Upplýsingar í síma 31105. Forstöðumaður FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Droplaugarstaðir Heimili aldraöra Snorrabraut 58. Eftirtalið starfsfólk óskast: Hjúkrunarfræðingar á næturvaktir, Sjúkraliðar á morgun og kvöldvaktir, Sjúkraþjálfi í hlutastarf. Nánari uplýsingar í síma 25811. skráðar atvinnulausar. Þannig er hægt að koma tölunni niður í 14%, segir „E1 Pais“. Þá er einnig ljóst að þær félags- legu umbætur sem lofað var þegar lýðræðí var endurvakið á Spáni 1977, hafa ekki nema að litlu Íeyti náð fram að ganga. Foringi Sósíal- ista, Filipe Gonzalez, hefur á undanförnum árum bent á ýmsar leiðir til úrbóta á þessum sviðum báðum og svo virðist, sem fólk hafi ákveðið að gefa honum tækifæri til að sanna kenningar sínar, allavega benda úrslit héraðskosninganna í Andalúsíu s.l. vor,svoogþærskoð- anakannanir sem fram hafa farið í landinu að undanförnu, til þess. Félagslegar úrbœtur Miðað við þau félagslegu rétt- indi sem fólk í flestum löndum V- Evrópu býr við, er langt í land að spánverjar nái þeim. Atvinnuleys- isbætur eru ekki nema rétt vísir að því sem þekkist víðast hvar annars staðar í V>-Evrópu. Maður sem unnið hefur í 5 ár samfleytt og miss ir vinnuna á rétt á 18 mánaða atvinnuleysisbótum, en síðan fær hann aldrei framar á ævinni bætur. Sá er unnið hefur í 3 ár og missir vinnuna fær bætur í 1 ár og sá sem unnið hefur í eitt ár fær 6 mánaða bætur. Sem sé 18 mánaða atvinnu- leysisbætur er það hæsta sem menn geta komist. Almannatryggingakerfið er einnig afar ófullkomið, kannski rétt meira en vísir að slíku. En þess ber að geta að allt hefur þetta kom- ið til, eftir að lýðræði var endur- reist á Spáni 1977. Eitt er það mál sem verður mjög brýnt að taka til gagngerrar endurskoðunar, en það er skólakerfi landsins. Ríkisskól- arnir eru svo lélegir, að hver sem með einhverju móti ræður við að setja barn sitt í einkaskóla gerir það. En einkaskólar á Spáni eru dýrir, og því má segja að það sé ekki á færi annarra en efnafólks að mennta börn sín svo viðunandi megi teljast. Filipe Gonzalez for- ingi sósíalista hefur heitið því að leggja höfuðáherslu á að kippa þessum málum í lag. Atvinnuleysið Eins og áður segir telur „E1 Pais“ atvinnuleysið vera nærri 30% í landinu öllu. Sósíalistar hafa bent á leiðir til að fjölgaatvinnutækifær- um um allt að 800 þúsund manns á einu ári, með því að lækka eftir- launaaldur og stytta vinnuvikuna. Þetta segir þó ósköp lítið fyrir þær milljónir sem atvinnulausar eru, en Spánverjar eru um 38 milljónir. Það sem allir eru sammála um er að þrýsta á þá sem fjármagninu ráða til að leggja það í atvinnufyrirtæki, en til þess hafa þeir verið tregir af ótta við upplausnarástand í landinu að Franco gengnum. Sagt er að þegar hann lést hafi miljarðar ef ekki tugir miljarða peseta verið fluttir úr landi og Iagðir í banka í Sviss. Þá binda Spánverjar einnig miklar vonir við inngöngu í EBE. Ailt er þó í óvissu um hvort af inn- göngu Spánar í EBE verður, vegna harðrar andstöðu Frakka og ítala gegn því. Þessi lönd óttast enn frekari samkeppni í vínsölu og ekki síður sölu landbúnaðarafurða, en Spánn er eitt af stærstu landbúnað- arlöndum Evrópu, jafnframt því að vera eitt af mestu vínfram- leiðslulöndum álfunnar. Það eru því ljón á veginum varðandi inn- göngu Spánverja í bandalagið. Fáist ekki fjármagn til þess að reisa atvinnufyrirtæki er lítil von til þess að hið hrikalega atvinnuleysi á Spáni hverfi. Afleiðingar aukins atvinnuleysis hafa verið auknir glæpir, einkum innbrot og rán. Þegar komið er að þeim punkti að fjölskyldan sveltur, þá grípur fólk til örþrifaráða, jafnvel óyndisúr- ræða; slíkt er alþekkt. Herinn Og þá er komið að spurningunni um hvað herinn gerir, komist Sósí- alistar til valda. Herforingjar hafa að vísu nýverið lýst því yfir að þeir Gonzales foringi sósíalista: Flokkur hans er líklegur til að vinna góðan sigur muni virða úrslit þingkosninganna, hver sem þau verða. En loforðum þeirra er vafasamt að treysta. Það sýna tvær byltingatilraunir þeirra, á innan við tveimur árum glöggt. Enn eru Franco-sinnar í flestum lykilstöðum í hernum og má vissu- lega ásaka þær ríkisstjórnir sem setið hafa síðan 1977, fyrir eð hafa ekki skipt þar um menn. En sann- leikurinn er sá, að bæði Suares og Calvo Sotelo, stóðu báðir mjög nærri Franco meðan hann lifði og hafa því báðir veigrað sér við að breyta til í æðstu stjórn hersins, enda líka kannski óttast að slíkt gæti orðið til þess að herinn gripi til vopna. En ljóst er að lýðræði á Spáni stendur afar veikum fótum, og varlega skulu menn treysta yfirlýsingum herforingjanna um að þeir ætli að virða kosningaúrslitin. Það gæti svo sannarlega dregið til tíðinda þar suður frá að loknum þingkosningum 28. október n.k. -S.dór. sll FÉLAGSMÁLASTOFNUN reykjavíkurborgar Vonarstræti 4 - Sími 25500 Laus staða Staöa fulltrúa í heimilishjálp er laus til um- sóknar. Verksvið: umsjón meö launa- greiðslum og almenn skrifstofustörf. Reynsla í skrifstofustörfum nauðsynleg. Umsóknarfrestur er til 25. okt. n.k. og liggja umsóknareyðublöð frammi á skrifstofunni. Upplýsingar um stöðuna veitir skrifstofustjóri daglega fyrir hádegi.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.