Þjóðviljinn - 14.10.1982, Qupperneq 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 14. október 1982
ALÞVÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalag Selfoss
og nágrennis
Garöar Sigurösson alþingismaður veróur meö viö-
talstíma aö Kirkjuvegi 7, Selfossi laugardag 16. okt-
óber kl. 14.0».
Stjórnin. Garðar.
Alþýðubandalagið í Reykjavík
- Fundaröð um efnahagsmál
VALKOSTIR í EFNAHAGSMÁHJM -
TILLÖGUR ALÞÝÐUBANDALAtiSINS
er yfirskrift þriöja fundarins í
fundaröö Alþýðubandalagsins í
Reykjavík um efnahagsmál, sem
haldinn verður í kvöld, fimmtudag,
kl. 20:30 í Sóknarsalnum að
Freyjugötu 27. Frummælendur:
Ragnar Arnalds og Björn Arnórs-
son.
Félagar og stuðningsmenn,
fjölmennið. Stjórn ABR
Ragnar
Björn
Hverjir ætla norður?
Fyrirhugaö er aö efna til hópferöar frá Reýkjavík til Akureyrar á ráö-
stefnu ABA 30.-31. október. beir Alþýöubandalagsmenn á Reykjavíkur-
svæöinu sem hyggjast taka þátt í ráðstefnunni á Akureyri eru beönir aö
liafa samband viö skrifstofu ABR sem allra fyrst. síminn er 17500, - ABR.
Alþýðubandalag Selfoss og nágrennis
Alþýöubandalag Selfossog nágrennis heldur félagsfund aö Kirk juvegi 7
laugardaginn 16. október kl. 16.00.
Fundarefni:
Kosning fuiltrúa á flokksráösfund.
Efnahags- og utanríkismál.
Framsögu hafa þeir: Ragnar Arnason og Pétur Reimarsson.
Félagar fjölmenniö.
Orðsending til styrktarmanna
Alþýöubandalagiö hvetur styrktarmenii flokksins til aö greiöa útsenda
gíróseöla hið allra fyrsta.
— Alþýðubandalagið.
Þessir hlutu vcrðlaun hjá Skýrslutæknifélaginu. F.v.: Sigurjón Pétursson varaformaður félagsins en hann
veitti verðlaun, Hannes R. Jónsson Háskóla íslands, Bjarki Karlsson Verslunarskóla íslands, Hjörleifur
Kristinsson Iðnskólanum í Reykjavík, Bjarni Kristjánsson Menntaskólanum við Sund, Sveinn Baldursson
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti, Friðrik Skúlason Menntaskólanum við Hamrahlíö, Vilhjálmur Þorsteins-
son Tölvuskólanum og Jón Þór Þórhallsson formaður Skýrslutæknifélags íslands. A myndina vantar Ólaf
Jóhann Ólafsson Menntaskólanum í Reykjavík sem ekki gat verið viðstaddur afhendingu verðlaunanna.
Sýndu frábæran árangur á sviði tölvufræða:
Hlutu viðurkenningu
Skýrslutæknifélagsins
Fyrir stuttu veitti Skýrslutækni-
félag Islands nokkrum skólanem-
endum viöurkenningu fyrir aö hafa
náð frábærum árangri á sviði tölvu-
fræöa, gagnavinnslu og skyldra
greina.
Þaö var Jón Þ. Þórhallsson for-
maður félagsins sem veitti nem-
endunum átta viðurkenninguna
sem er í formi skjals og valinnar
bókar um tölvufræðiefni. Voru
nemendurnir tilnefndir af skóla-
stjórum þeirra skóla sem hafa
tölvu- og gagnavinnslugreinar á
kennsluskrá sinni. Nemendurnir
eru:
Bjarki Karlsson, Verslunarskóla
íslands, Bjarni Kristjánsson,
Menntaskólanum við Sund, Frið-
rik Skúlason, Menntaskólanum við
Hamrahlíð, Hannes Rúnar Jóns-
son, Háskóla íslands, Hjörleifur
Kristinsson, Iðnskólanum í
Reykjavík. Ólafur Jóhann Ólafs-
son, Menntaskólanum í Reykja-
vík, Sveinn Baldursson, Fjöl-
brautaskólanum Breiöholti og Vil-
hjálmur Þorsteinsson, Tölvuskól-
anum.
Tilgangur Skýrslutæknifélags-
ins, með því að veita þessar viður-
kenningar, er m.a. sá aö vekja at-
hygli nemenda, skólayfirvalcla og
annarra á þessurn námsgreinum,
sem stutt er síðan aö fóru aö sjást á
kennsluskrám íslenskra skóla.
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Félagsfundur
Stjórn Alþýðubandalagsins í Reykjavík boðar til félagsfundar í Hreyfils-
húsinu við Grensásveg miðvikudaginn 20. október kl. 20:30. Dagskrá
fundarins verður auglýst síðar.
-Stjórn ABR
Alþýðubandalagið í Reykjavík - Baknefndir
B orgarmálaráðs
Baknefndir Borgarmálaráðs Alþýðubandalagsins í Reykjavík hafa nú
allirhafiðstörf. Ibaknefndumsitjaaðal-ogvarafulltrúar ABRínefndum
og ráðum borgarinnar og þeir flokksmenn sem óska eftir að taka þátt í
starfi nefndanna. f vetur munu eftirtaldar nefndir starfa:
1. Baknefnd félags-, heilbrigðis- og menningarmála.
2. Baknefnd fræðslu-, íþrótta- og æskulýðsmála.
3. Baknefnd umhverfis-, umferðar- og skipulagsmála.
4. Baknefnd framkvæmda- og atvinnumála.
Stjórn Alþýðubandalagsins í Reykjavík hvetur flokksmenn til að taka
virkan þátt í starfi baknefnda. Skráið ykkur strax í þá baknefnd sem þið
viljið starfa í. Síminn á skrifstofu ABR er 17500.
Baknefndir Borgarmálaráðs eru
opnar öllum félagsmönnum.
Skráið ykkur til þátttöku.
Síminn er 17500. Stjórn ABR.
Alþýðubandalagið í Reykjavík - opið hús
Alþýðubandalagið efnir til opins hús í Sóknarsalnum við Freyjugötu
þriðjudaginn 26. ok'tóber.
I. deild ABR
t)
mroskahjálp
Landssamtökin Þroskahjálp halda ráðstefnu
16. október n.k. að Hótel Heklu í Reykjavík
og hefst hún kl. 10. f.h.
Fjallað verður um: Framtíðarhlutverk sólar-
hringsstofnana.
Ráðstefnan er öllum opin.
Sauðfjárfækkunin
Svör að berast
Til þessa að hamla gegn offram-
leiðslu á sauðfjárafurðum hefur
verið talað um að fækka fullorðnu
fé á landinu um 50 þús, nú í haust.
Á annað hundrað bændur hafa gef-
ið í skyn, við Framleiðsluráð, sím-
leiðis, að þeir hefðu hug á að fækka
fé sínu.
Var þeim öllum sent bréf, þar
sem óskað var ákveðinna svara.
Ennfremur sauðfjáreigendum í
þéttbýli, bændum, sem búa við
riðuveiki í fé sínu, bændum í þeim
sveitum, þar sem Landgræðslan
telur að um ofbeit sé að ræða og þar
sem Skógræktin telur gengið á
skóglcndi.
Arni Jónasson, erindreki Stétt-
arsambands bænda, taldi enn of
snemmt að fullyrða nokkuð um ár-
angur þessara bréfaskrifta, en svör
væru að byrja að berast. Vera
kynni einnig að ýmsir fækkuðu fé
án þess að hafa samráð við Fram-
leiðsluráð.
-mhg
Tannviðgerð-
ir og tekju-
skattur
Lagt hefur verið fram frumvarp
um breytingu á lögum um tekju og
eignskatt- frá Jóhönnu Sigurðar-
dóttur og fleirum. f frumvarpinu
felst sú breyting að ef maður hefur
haft veruleg útgjöld vegna tann-
viðgerða og gjaldþol hans skerðist
verulega af þeim sökum sé skatt-
stjóra heimilt að lækka tekjuskatt-
stofn viðkomandi.
-<>g
Búnaðar-
blaðið Freyr
Meðal efnis í nýjasta Frey er
þetta:
Ritsjórnargrein, þar sem bent er
á að hingað til hafi ekki veriö kraf-
ist sérstakrar menntunar til að fá aö
stunda búskap en Stéttarsamband
bænda vinni nú að því að setja regl-
ur um starfsréttindi í landþúnaöi.
Viðtal er við Halldór Jónsson á
Leysingjastöðum þar sem hann
segir af sér og búskap sínum.
Hólmgeir Björnsson greinir frá
helstu tegundunt og stofnum tún-
grasa, sem ræktuö eru hér á landi
og eiginleikum þeirra. „Stofnanir
eða heimili handa illa stöddum
börnum", nefnist þriðja grein
Björns S. Stefánssoirar um börn,
send í sveit. Stefán Aðálsteinsson
segir, í máli og myndum, frá fjár-
hundinum Rex í Kýrholti í Skaga-
firði. Trausti Eyjólfsson, kennari á
Hvanneyri, segir frá ferðalagi
Hvanneyrarbúfræðinga til Norður-
Noregs vorið 1981. Jón Viöar Jón-
mundsson birtir skýrslu um hrúta,
sent notaðir verða á sæöingar-
stöövunuin á þessu ári og upplýs-
ingar unt þá. Ottar Geifsson ræðir
viö Sigurö H. Richtcr um ormasýk-
ingu í nautgripum. Loks er áætlun
um girðingakostnað í ágúst 1982.
eftir Kristján Bj. Jónsson.
Laus staða
Staða bifreiðaeftirlitsmanns við Bifreiðaeftir-
lit ríkisins á Húsavík er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rík-
isins.
Umsóknir berist Bifreiðaeftirliti ríkisins, Bílds-
höfða 8, fyrir 28. þ.m. á þar til gerðum eyðu-
blöðum, sem stofnunin lætur í té.
Reykjavík, 11. október 1982.
Bifreiðaeftirlit ríkisins
Blikkiðjan
t
Ásgarði 7, Garðabæ
Önnumst þakrennusmíði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmiði.
Gerum föst verðtilboð
SIMI 53468
- mhg