Þjóðviljinn - 02.12.1982, Qupperneq 16
DlOÐVIUINN
Fimmtudagur 2. desember 1982
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum sínum: Ritstjórn 81382,81482og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Aðalsími Kvöldsími Helgarsími afgreiðslu 81663
Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348
Krafa tollstjóra í gjaldþrotabú:
Féll niður vegna
tölvuvæðingar
Krafa tollstjóra uppá 1,2 mill-
jónir króna vegna vangoldins sölu-
skatts fyrirtækisins T.H.Garðars-
son h.f., sem var tekið til gjaldþrot-
askipta í júlímánuði s.l., kom ekki
fyrr en 14. nóv. s.l. en áttiaðberast
fyrir 11. nóv. Þar sem hér er ekki
um neina smá upphæð að ræða, var
tollstjórinn í Reykjavík Björn Her-
mannsson spurður að því hvað
valdið hafi.
Björn sagði að ástæðan væri fyrst
og fremst sú, að mánuðina ágúst,
september og október hafi átt sér
stað tölvuvæðing hjá embættinu og
hafi þá verið ákveðið að leggja ekki
í þann tvíverknað sem gerð eftir-
stöðvalista er. Ekki vildi tollstjóri
samþykkja að um embættisafglöp
væri hér að ræða.
Auk þess benti hann á að ríkið
hefði afar lélegar tryggingar fyrir
vangoldnum söluskatti og í þessu
umrædda tilviki hefðu aðeins rösk-
ar 100 þúsund krónur komið til
skiptanna; eign hins gjaldþrota
fyrirtækis var ekki meiri þegar til
skiptanna kom.
Varðandi þetta umrædda gjald-
þrot vekur það athygli að þegar
sýnt var að hlutafélagið var orðið
gjaldþrota, keypti aðalhluthafi
þess allar eignirnar og lagerinn og
hóf að reka Sjónvarpsbúðina, sem
hlutafélagið hafði áður rekið og
haft nafnið að láni frá viðkomandi
aðalhluthafa.
Að sögn lögfróðra manna er hér
um ólöglegt athæfi að ræða, og er
meginreglan sú að rifta slíkum
kaupum sem þessum, en það mun
ekki hafa verið gert. Auk þess
hafði umrætt hlutafélag ekki farið
að hinum nýju hlutafélagalögum.
- S.dór
Stórsfgur hjá Pálma
Þegar búið var að teija 1200 at-
kvæði af 1850 í prófkjöri Sjálfstæð-
isflokksins í Norðurlandi vestra,
laust eftir miðnætti í nótt stefndi í
stórsigur Pálma Jónssonar land-
búnaðarráðherra. Hann hafði þá
hlotið 747 atkvæði í fyrsta sæti en
helsti keppinautur hans, Eyjólfur
Konráð Jónsson alþingismaður og
stjórnarandstæðingur hafði þá
hlotið 400 atkvæði í sama sæti.
í fyrsta til annað sæti hafði Eyj-
ólfur hlotið 437 atkvæði en næstur
honum að atkvæðum koni Páll Dag-
bjartsson skólastjóri í Varmahtíð
með 359 atkvæði í 1. og 2. sæti en
samtals 551 atkvæði í þrjú efstu
sætin.
Þá stefndi í mjög tvísýna baráttu
um þriðja og fjórða sætið. Ólafur
Óskarsson bóndi í Víðidal hafði
hlotið 537 atkvæði í þrjú fyrstu sæt-
in og Jón Ásbjörnsson forstjóri á
Sauðárkróki var kominn með sam-
tals 514 atkvæði í sömu sæti. í fjög-
ur efstu sætin hafði Jón hlotið 728
atkvæði en nafni hans ísberg sýsl-
umaður á Blönduósi var þá með
aðeins 5 atkvæðum færra í sömu
sæti. ig.
Nýr framkvæmdastj óri
Nýr auglýsingastjóri
Guðrún Guðmundsdóttir,
viðskiptafræóingur, hefur verið
ráðin framl væmdastjóri Þjóðviljans
og tekur hún við störfum um næstu
áramót. Guðrún er starfandi kerf-
isfræðingur við Háskóla íslands.
Eiður Bergmann, sem verið hef-
ur framkvæmdastjóri Þjóðviljans
mörg undanfarin ár, hefur sagt
starfi sínu lausu og mun láta af
störfum framkvæmdastjóra í byrj-
un næsta árs.
Svanhildur Bjarnadóttir, sem
verið hefur auglýsingastjóri Þjóð-
viljans að undanförnu, lét af því
starfi nú þann 1. des. -Þjóðviljinn
þakkar Svanhildi vel unnin störf.
Við starfi auglýsingastjóra blaðs-
ins hefur tekið Sigríður Hanna Sig-
urbjörnsdóttir, en hún hefur starf-
að á auglýsingadeild blaðsins að
undanförnu.
Æskulýðsnefnd Alþýðubandalagsins:
Friðarfundur í kvöld
í kvöld gengst Æskulýðsnefnd Alþýðubandalagsins fyrir fundi um
afvopnunarmál og baráttuna fyrir friði. Fundurinn er að Grettirgötu 3
og hefst kl. 20.30. Sjá auglýsingu á bls. 10.
Mikill vatnselgur var á götum borgarinnar í gærdag, þegar skyndilega fór að rigna. Höfðu menn á orði að
nú ættu við ummæli Jóns Marteinssonar úr íslandsklukkunni: „Þvíllkt djöfuls land, að nú skuli líka vera
rigníng í frostinu.“ Myndina tók Atli.
Kvótaskipting á kolmunnaveiðum á næsta leiti:
Stöðugt hækkandi fasteignaverð:______________________________
íbúðir hækka um 78%
aðeins 2,6 íbúar um hverja íbúð í Reykjavík!
Nýtt fasteignamat tók gildi í Nú er í landinu skráðar 179 Samkvæmt frétt frá Fasteigna-
gær, 1. desembcr og hækkar þúsund fasteignir í landinu og niati ríkisins eru nú tæplega 80
samanlagt mat allra fasteigna í hefur þeim fjölgað um 5000 síðan þúsund íbúðir í landinu, en það
landinu um 77%, en það er í dag í fyrra. Hefur orðið um 4% þýðir að tæplega 3 íslendingar
89.3 miljarðar króna. Fasteignir aukning á heildarrúmmáli þeirra eru um hverja íbúð. í Reykjavík
á höfuðborgarsvæðinu eru dýr- á þeim tíma. búa menn betur en landsmeðal-
astar eins og vænta mátti og Langstærstur hluti fasteigna er talið segir um, en þar eru aðeins
hækkun á mati þeirra talsvert auðvitað í Reykjavík, en þar eru 2.6 íbúar á hverja íbúð, en
meiri, en landsmeðaltalið scgir til 47.4% af samanlögðu fasteigna- íbúðirnar í höfuðborginni eru 33
um. Þær hækka um 78%, en mati. í Reykjanesi eru 23%, en þúsund talsins.
meðaitalið cr um 65% yfir allt önnur kjördæmi hafa minna hlut- - v.
landið. fall.
Verðiim að gera
okkur gíldandi
segir Sigurjón Arason hjá Hafrannsóknarstofnuninni
Nú er veidd um það bil 1 milljón
lesta af kolmunna á ári og ekki er
talið að hægt sé að auka þær veiðar
og því er talið að tekin verði upp
kvótaskipting milli þeirra þjóða,
sem þessar veiðar stunda. Því er
nauðsynlegt fyrir okkur íslendinga
að gera okkur gildandi í þessum
veiðum, ekki síst í ljósi þess hve vel
gengur hjá Eldborg GK á kol-
munnaveiðunum nú, sagði Sigur-
jón Arason hjá Hafrannsókn, en
hann hefur fylgst mjög náið með
kolmunnaveiðum.
Sigurjón sagði að Sovétmenn
veiddu nú um það bil 2/3 hluta þess
sem veitt er af kolmunna, en Fær-
eyingar og Norðmenn afganginn.
Við ættum að geta fengið að koma
inní kvóta Færeyinga, vegna
þeirrar undanþágu, sem þeir hafa
til veiða í okkar landhelgi.
Þá sagði Sigurjón ennfremur að
samkvæmt rannsóknum virtist svo
sem kolmunnastofninn hefði minnk-
að milli ára, en þó ekki meir en það
sem gæti legið innan skekkjumarka
þeirra sem fiskifræðingar miða við.
Ekki er vitað með vissu hve stór
hrygningarstofn kolmunnans er, en
talið að hann sé á milli 5 og 6 mill-
jónir lesta, en kolmunni til mann-
eldis er ekki veiddur fyrr en hann
er 3ja til 4ra ára gamall.
- S.dór