Þjóðviljinn - 17.12.1982, Side 13

Þjóðviljinn - 17.12.1982, Side 13
Föstudagur 17. desember 1982 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13 bókmenntir Ragnar í Smára Straumhvörf í listbóka- útgáfu? Það er ávallt mikið fyrirtæki að gefa út listaverkabækur, einkum vandaðar og vel gjörðar. Nú hefur Listasafn alþýðu og bókaforlagið Lögberg hleypt af stokkunum metnaðarfullu ritsafni listaverka- bóka og er það ætlunin að tvær bækur komi út á ári. Sem próf- steinn og frumraun lítur nú dagsins ljós bók um Ragnar í Smára. Reyndar er önnur bók komin út og er hún um Eirík Smith listmálara. Verður vikið að henni í annarri grein síðar. Það fer vel á því að hleypa slíkri útgáfu af stokkunum með Ragnari Jónssyni. Hann lagði grunn að Listasafni ASÍ með eftirminnan- legri málverkagjöf. En það er ekki stofnun listasafnsins einvörðungu sem tengir Ragnar við þessa nýju bókaútgáfu, heldur og hitt að hann var fyrstur til að gefa út listaverka- bækur á skipulegan hátt, hér á Skáldsaga eftir Ómar Halldórsson Út er komin skáldsagan Þetta var nú í fylleríi eftir Ómar Þ. Hall- dórsson. Á bókarkápu segir: Ungt fólk úr Reykjvík hyggst eyða jóladögununt í gömlu sumar- húsi í sveit sunnanlands. Svo náið sambýli leiðir brátt í ljós breitt bil milli lífsstíls og skoðana fólksins og elur á tortryggni og óöryggi. Mitt í samdrykkjunni gerast at- burðir sem neyða viðstadda til að kasta hversdagsgrímunni. En þrátt fyrir góðan vilja sýnist bilið milli manneskjanna lítið styttast þegar á reynir. Á draumkenndan hátt fléttast inn í frásögnina saga manns sem hefur villst af leið í lífinu. Hann hyggst snúa til betri vegar en kemst að því að sú leið er fæstum greið. Þetta var nú í fylleríi er þriðja bók höfundar. Ragnar í Smára landi. Það voru bækurnar um Kjarval, Ásgrím og Jón Stefáns- son. Þær komu út hjá Helgafelli og voru óvenjulegt þrekvirki. Fleiri bækur um íslenska list fylgdu í kjölfarið, en segja má að svo veg- leg útgáfa hafi á sínurn tíma verið full snemmborin. En Ragnar lét sér ekki allt fyrir brjósti brenna, hann hélt ótrauður áfrarn að hlúa að ís- lenskum listum og ávöxturinn er Listasafn ASÍ og hinn nýi bóka- flokkur „íslensk myndlist." Bókin um Ragnar í Smára er rúmlega 200 blaðsíðna stór. Hún er byggð á viðtölum sem Ingólfur Margeirsson átti við 14 landskunna menn, sem þekktu Ragnar náið. Fremst er æviágrip eftir Gylfa Gíslason. Ljósmyndir eru eftir Sigurgeir Sigurjónsson, utan ein sem er eftir Leif Þorsteinsson. Auk allra þessara viðtala, ljós- mynda, eftirmála eftir Ásmund Stefánsson, nafn- og myndaskrá, eru 48 litprentaðar heilsíðumyndir af listaverkunt, hluta af þeirri miklu listaverkagjöf sem Ragnar ánafnaði Alþýðusambandi íslands. Það er því vart hægt að segja annað en það, að þessi bók sé veg- leg byrjun á listbókaröð sem reyndar er byggð á brautryðjanda- starfi Ragnars Jónssonar. Hún er væntanlega einhver fegursta lista- verkabók sem gefin hefur verið út á íslandi. Litmyndirnar sem Kristján Pétur Guðnason tók af listaverk- unum og litgreining Kassagerðar- innar er fullkomnasta verk af sínu taki sem hér hefur sést. Setning, filmuvinna, prentun og bókband er unnin í Odda og er til sóma. Ekki er auðvelt að höndla allt ævistarf Ragnars í Smára, í þágu menningar og lista. Slíkur allherjar intpresario hlýtur að eiga sér jafn fjölbreyttar liliðar og ntargslungið starf hans bendir tii. Það er því vel til fundið að safna sarnan vinum hans og hafa við þá viðtal, svo endurspeglað geti persónu Ragn- ars og starf. Því er það augljós kostur þessar- ar bókar, hve texti og myndir eru í miklu jafnvægi, þ.e. að bókin er bæði ágæt heimild um Ragnar og forkunnarfögur listaverkabók. Verði framhald þessarar útgáfu lík byrjuninni, er íslenskri list borgið úr þeirri öskustó heimildarleysis. sem hún hefur svo lengi setið í. E1 það verður, mun bókin um Ragnai í Smára kallast tímamótaverk. ! Zva-UMJ-t&tSl Heyrnar- og Taimeinastöð íslands Heyrnar- og talmeinastöð íslands óskar að ráða hjúkrunarfræðing til heyrnarmælinga og hjúkrunarstarfa sem fyrst. Umsóknir sendist fyrir 15. janúar 1983 til Stjórnar Heyrnar- og talmeinastöðvar íslands, Háa- leitisbraut 1, Pósthólf 5265. PÚTBOÐfp Tilboð óskast í jarðstrengi fyrir Rafmagns- veitu Reykjavíkur. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3 Reykjavík. Til- boðin verða opnuð á sama stað, þriðjudag- inn 25. janúar 1983 kl. 14 eftir hádegi. INNKAUPASTOFNUN REYKJ AVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800 Gjöfín sem gefíur arð Sodastream tækið er tilvalin jólagjöf fyrir alla fjölskylduna Gerið sjálf gosdrykkina og sparið meira en helming. Sól hf. Þverholti 19. sími 91-26300 ROKK GEGN VIMU p P 1 T áteJi I HASKOLABIÓ 17. DES kl. 18 og 23 Þcir sem talui þátt í hljómieikunum eru: Bubbi Mortbens og EGO Kimiwasa-banlagalist: Haukur og Hörður. Kynnir: Þorgeir Ástvaldsson. Trommur: Sigurður karlsson Gunnlaugur Briem - Mezzoforte. Bassi: Jakob Garðarsson - Tíbrá. Gítar: T ryggvi Húbner Friðryk, Björn Tboroddsen H.B.G. Eðvarð Lárusson - Start. Söogvarar: Pálmi Gunnarsson, EUen Kristjánsdött- ir, Sigurður K. Sigurfcson, Sverrir Guðjónsson, Björk Guðmundsd. Kór: Magnés Þor HdgHM, Birgir Hrd.nn, Sverrir Guðjónssen, Björk Gufcnundsdöttir. Blásarar: Sigurður Long, Einar Bragi, Rúnar Gunnarsson, Ari Haraldsson, Agúst Eliasson, Þorleikur Jóhannesson, Konráð Konráðsson. Rúnarog nýja Rimlarokkið koma fmm. Hljómborð: Hjörtur Hauser - H.B.G. Eyþór Gunnarsson - Mezzoforte Eðvarð Lárusson - Start. ágóði rennur til irfástí byggingar «<w ar SAA MManum Hlttwrá 150.- STYRKTARFELAG SOGNS

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.