Þjóðviljinn - 17.12.1982, Page 19
Föstudagur 17. desember 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 19
RUV ©
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Gull í
mund. 7.25 Leikfimi.
8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Morgun-
orð: Ingibjörg Magnúsdóttir talar.
8.30 Forustugr. dagbl. (útdr.)
9.05 Morgunstund barnanna: „Komm-
óðan hennar langömmu“ eftir Birgit
Bergkvist Helga Harðardóttir les þýð-
ingu sína (19)
9.20 Leikfimi. Tilkynningar. Tónleikar.
9.45 Þingfréttir
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Til-
kynningar.
11.00 Islensk kór-og cinsöngslög
11.30 Frá norðurlöndum Umsjónarmað-
ur: Borgþór Kjærnested
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Á frívaktinni. Margrét Guð-
mundsdóttir kynnir óskalög sjómanna.
15.00 Miðdegistónleikar Arnold van Mill
syngur atriði úr óperum eftir Nicolai og
Lortzing með kór og hljómsveit undir
stjórn Roberts Wagner
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregn-
ir. Tilkynningar. Tónleikar.
16.40 Litli barnatíminn Stjórnandi: Dóm-
hildur Sigurðardóttir (RÚVAK) Kristín
Jónsdóttir segir frá jólahaldi í sveit fyrir
50-60 árum. Tvíburasysturnar Kolbrún
og Katrín Harðardætur koma í heim-
sókn og segja frá jólaundirbúningi
heima hjá sér og kynna efni þáttarins.
17.00 Nýtt undir nálinni Kristín Björg Þor-
steinsdóttir kynnir nýútkomnar hljómp-
lötur.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
19.00 Kvöldfréttir.
19.40 Tilkynningar. Tónleikar.
20.00 Lög unga fólkins Hildur Eiríksdóttir
kynnir.
2.40 „ítölsk ljóðabók“ eftir Hugo Wolf;
seinni hluti Luvia Popp og Hermann
Prey syngja. Irwin Gage og Helmut De-
utsch leika á píanó. - Kynnir: Porsteinn
Gylfason. Lesari: Þórhildur Por-
leifsdóttir. (Hljóðritað á tónlistarhá-
tíðinni í Vínarborg s.l. sumar).
21.45 „Spor frá Gautaborg“ - Þáttur um
íslendinga í Svíþjóð Umsjónarmaður:
Adolf H. Emilsson.
22.35 „Skáldið á Þröm“ eftir Gunnar M.
Magnúss Baldvin Halldórsson les (24)
23.00 Kvöldgestir - Þáttur Jónasar Jónas-
sonar
00.50 Fréttir. 01.00 Veðurfregnir.
01.10 Á næturvaktinni-Sigmar B. Hauks-
son - Ása Jóhannesdóttir.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli og aug-
lýsingar
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.45 Á döfinni Umsjónarmaður Karl Sig-
tryggsson. Kynnir Birna Hrólfsdóttirr
21.05 Skonrokk Dægurlagaþáttur í umsjón
Porgeirs Ástvaldssonar.
21.55 Kastjós Þáttur um innlend og erlend
málefni. Umsjónarmenn: Helgi E.
Helgason og Margrét Heinreksdóttir.
23.05 Konuandlit (En kvinnas ansikte).
Sænsk bíómynd frá 1938. Leikstjóri
Gustaf Molander. Aðalhlutverk: Ingrid
Bergman, Tore Svennberg, Anders
Henrikson, Georg Rydeberg og Karin
Kavli. Söguhetjan er ung stúlka sem ber
mikil andlitslýti og hefur leiðst á villigöt-
ur. Atvikin haga því svo að henni býðst
fegrunaraðgerð sem veldur
straumhvörfum í lífi hennar. Þýðandi
Jóhanna Þráinsdóttir.
00.50 Dagskrárlok
fjtvarp
kl. 11.30
Jólahald
„Það má segja að þessi pist-
ill minn sem hlotið hefur yfir-
skriftina Frá Norðurlöndum
sé einskonar framhald af síð-
asta þætti, en þá fjallaði ég um
jólahald á Norðurlöndum. Þá
tók ég fyrir allt tilstand tengt
jólum í Danmörku, Noregi og
Svíþjóð, en nú fer ég á slóðir
scm eru Islendingum ekki svo
nákomnar sem þcssi lönd.
Sem sé: jólahald á Álands-
eyjum, Færeyjum og Græn-
landi verður efni þáttarins í
dag,“ sagði Borgþór Kjærnest
ed umsjónamaður þáttarins
frá Norðurlöndum sem er á
dagskrá hljóðvarps kl. 11.30 í
dag.
„Ég mun fá mér til fulltingis
þrjár heiðurskonur, þær Millu
Isaksson, Benediktu Þor-
steinsson og Silju Jóhannes-
dóttur og þær munu halda sitt
erindið hver.
Benedikta ntun ræða urn
jólahald á Grænlandi, en það
sem gerir það líkt okkar ís-
lendinga er sá ófrávíkjanlegi
siður innfæddra að leggja sér
rjúpur til munns á aðfanga-
dagskvöld.
1 Færeyjum borða menn sitt
skerpiket og halda þess utan í
heiðri ýmsar ágætar matar-
venjur, en Silja mun fræða
okkur nánar um það.
íbúar Álandseyja hafa
marga siði skemmtilega og
einn þeirra sem tengdur er
aðeins einni eyjunni í klasan-
um, er hin svokallaða jóla-
kh'pa. Á aðfaranótt 2. jóladags
gera menn sitt til að koma
nágrannanum í klípu og sitja
þá ýmis prakkarastrik í fyrir-
rúmi. Milla mun ræða um jól-
ahaldið á Álandseyjum."
Sigríður Hagalín
Valtýr Pétursson
Útvarp kl. 23.00
Kvöldgestir
Jónasar
Þáttur Jónasar Jónassonar
útvarpsmanns á Akureyri er á
sínum stað í dagskránni í
,,kvöld. Kvöldgestir Jónasar
verða að þessu sinni Valtýr
Pétursson listmálari og Sigríð-
ur Hagalín leikkona.
1937: Um svipað leyti og Ingrid Bergman lék í Konuandliti.
Myndin var tekin þegar hún giftist tannlækninum Peter
Lindström.
Sjónvarp kl. 23.05
Konuandlit
Leikkonan nýlátna Ingrid
Bergman leikur aðalhlutvcrk-
ið í sænsku kvikmyndinni
Konuandlit sem sýnd er í sjón-
varpinu kl. 23.05 í kvöld.
Þetta var ein af fyrstu mynd-
unum sem Ingrid lék í og er
hún frá árinu 1938.
Aðalsöguhetjan er ung
kona sem hefur mikla útlits-
galla. Andlit hennar er af-
skræmt og í ofanálag hefur
hún leiðst út á hálar brautir í
lífsins ólgusjó. Það rofar til
þegar hún á þess kost að fara í
fegrunaraðgerð og veldur sú
aðgerð hreinni byltingu í lífi
hennar.
/
frá lesendum
Stóriðja ekki endilega
sama og stórgróði
Ekki er hægt að segja að
samstarf okkar íslcndinga við
útlent stórauðvald og stóriðju
sé þannig, að Ijóma leggi af.
Er þar fyrst að taka álhring-
inn. Þar stóðu fremstir í dansi
sjálfstæðið og kratar og þótt-
ust þar hafa höndlað gullkálf
góðan, sem falla skyldi fram
fyrir og tilbiðja og myndi þá
smjör af hverju strái drjúpa.
Og skyldi senr fyrst afla sér
margra slíkra gullkálfa.
En svo fór þó að ýmsum
fannst að illa hefði verið hald-
ið á spilunum í samningum við
álhringinn og illt undir því að
búa að innlendir rafmagns-
notendur væru látnir borga
að meiri hluta fyrir það raf-
magn, sem álhringurinn fengi.
Þetta töldu þeir, er sömdu,
mestu firru, við græddum svo
miklu meira á hringnum á
annan hátt. Þann gróða sáu að
vísu engir nema þeir. Og enn
gaf á bátinn. Sannanir voru
lagðar fram, sem sýndu að
hringurinn beitti fölsunum við
reikningsuppgjör, svo verri
niðurstaða varð en vera átti og
þar með urðu skattar, sem
hringurinn átti að greiða hér
litlir og jafnvel engir.
I stað þess að áteija þessa
framkomu hringsins, risu þeir
upp sem lofsungu samningana
við álhringinn, og helltu sér
með óbótaskömmum yfir þá,
er beittu sér fyrir því að
reikningafalsið var upplýst,
töldu þetta árásir og lognar
sakir á þetta saklausa guðs-
lantb, álhringinn. En af því að
þeir finna að þeint er ekki
lengur stætt á því að hamla á
móti hækkun raforkuverðsins
þá taka þeir nú þann kostinn,
að skamma stjórnvöld og sér-
staklega orkumálaráðherra,
klaufaskapur hans hafi komið
í veg íyrir það að hækkun
næðist fram. O-jæja, máski
þeir eigi eftir að upplýsa það
síðar, að þeir hafi alltaf vitað
um reikningsfalsanirnar en
þeir hafi bara ekki komið
frarn leiðréttingum af því að
Hjörleifur var alltaf að flækj-
ast fyrir þeim?
Næsta ævintýri okkar á
stóriðjusviðinu var alþjóðar-
ómaginn á Grundartanga. Nú
skyldi ekki detta í sömu keldu
og álverið í Straumsvík lenti í.
Nú skyldi ríkið eiga meiri
hluta fjár í fyrirtækinu og þar
með meirihluta í stjórn, sem
að vísu er ágætt en þó því ntið-
ur hæpið að verði í reynd.
Forgangsmenn þessa rháls
fundu fljótt ágætt verkefni,
sem skila myndi þjóðinni stór-
gróða, og fengu til samvinnu
15 ára gamall Ghanabúi
hefur sent Þjóðviljanum eftir-
farandi bréf þar sem hann
óskar eftir að komast í bréfa-
samband við einhvern ís-
lending:
Kæri lcsandi.
Ég er 15 ára gamall Ghana-
við sig norskan auðhring. En
svo fór þó, er líða tók á
fæðingarhrtðir, að allmjög
fóru að rninnka gróðavonirn-
ar og sýnt þótti, áður fæðingu
lauk, að afkvæmi þetta yrði
þjóðarómagi af dýrara tagi,
en aðstendendur voru hinir
hreyknustu og köruðu af-
kvæmið með velþóknun.
búi, nemandi við Sunyandi
Day of Secondary School. Ég
hef heyrt talsvert um Island
svo ég kom nafni mínu og
heimilisfangi á framfæri í
þeirri von að mér auðnist að
finna pennavin. Þannig að
hver sá er sér nafn mitt í
blaðinu getur skrifað mér.
Og því miður fór svo sem
andstæðingar þessa máls
sögðu. Þessi fratnkvæmd þarf
tugi, ef ekki hundruð milljóna
í framfærslustyrk frá ríkinu ár-
lega. Væri því ekki ólíklegt að
einhverjum dyti í hug að segja
við þá, er samþykktu þennan
ómaga á þjóðina: Berið þið
sjálfir djöíul ykkar.
Mætti þetta kenna okkur að
stóriðja er ekki endilega sama
og stórgróði, jafnvel hið gagn-
stæða, svo hyggilegra sé að
huga að smærri fyrirtækjum,
sem við ráðum við og byggjast
á innlendum efnum og orku.
Glúmur Hólmgeirsson.
Áhugamál mín- eru lestur,
bókmenntir, skipti á gjöfum,
söfnun póstkorta og rnynda,
knattspyrna, borðtennis og
bréfaskriftir.
Pennavinir skrifi á ensku.
Með þökk.
Am James Kiu
Sunyand Day of Secondary
School.
PO Box 340, Sunyandi,
B/A
GHANA.
Burtganga Guðmundar
Lesandi Þjóðviljans hringdi fornti bréfs sem fauk fyrir fæt-
og vildi koma á framfæri ur mér“, eins og hann orðaði
tveim vísum sem hann kvaðst það:
•hafa „hirt upp af götunni í
Guðmundar er gengi sigið
sem gekk úr vist hjá Hjörleifi,
en eflaust fœr hann uppvid migið
hjá Alusuisse í leiðinni.
Gætu ei mútur mótað skoðun
manns af hœnsnakynstofni,
effrá ÍSAL bærist boðun
um breytni á hœnsnarafmagni?
15 ára gamall piltur frá Ghana:
Pennavinur óskast