Þjóðviljinn - 05.01.1983, Qupperneq 1
VIUINN
Kókaínframlciðsla
er hvergi meiri í
heiminum en í
Kólumbíu og eitur-
lyfjaframleiðslan er
að kollsigla cfnahag
landsins.
Sjá 8
janúar 1983
miðvikudagur
48. árgangur
2. tölublað
Óvedrid í gær
Allt
fór
úr
skorðutn
Önnur holskefla
gæti komið í dag
þar sem kröpp
lægð nálgast
Segja má að allt hafi farið úr
skorðum á Suður- og Vestur-
landi í gærmorgun, þegar yfir
skall hvassviðri mikið um kl. 8 í
gærmorgun. Kyngt hafði niður
snjó síðustu daga, þannig að
skafrenningur varð mikill og
fram undir hádegi sást varla
milli húsa.
*
fsítt 4
A ■■■ *
*g|
Þegar birti í gærmorgun tók Ijósmyndari Þjóðviljans þessa mynd, sem sýnir hvernig skafið hafði í skalla, bílaröð sem lítt mjakaðist, jeppaeiganda í
essinu sínu og bjartsýnis-manneskju við strætisvagnabiðskýli. (Ljósm. - Atli-).
Veðrið hélt svo áfram yfir landið
og var komið hið versta veður á
Norðurlandi síðdegis og búist var
við að Austfirðingar fengju demb-
una yfir sig í gærkveld , en þá var
búist við að dregið hefði verulega
úr veðrinu þegar það kom yfir
Austurland.
Að sögn Trausta Jónssonar
veðurfræðings nálgast landið mjög
kröpp lægð og sagðist hann búast
við henni við Suður- og Vesturland
um hádegisbilið og gæti þá hvesst á
ný. Varla er hætta á jafn miklum
skafrenningi og í gær, þar sem
snjórinn barðist svo mjög í skafla í
gærmorgun, en þó gæti skafið
nokkuð. Nánarersagtfráóveðrinu
í gær í blaðinu í dag. - S.dór
Gengið fellt um 9%
Gengi íslensku krónunnar var í gær fellt um 9%, og
þar með hækkar erlendur gjaldeyrir í verði um nálægt
10% að jafnaði.
Þessi gengisbreyting tengist
ákvörðun fiskverðs og er af
Seðlabanka og ríkisstjórn talin
óhjákvæmileg til að tryggja
rekstur fiskvinnslunnar í
landinu, og gera vinnslunni
kleift að standa undir 14%
fiskverðshækkun og 4% hækk-
un útflutningsgjalds.
í fréttatilkynningu frá Seðla-
bankanum um májið segir m.a.:
Hinn 31. desember s.l. var sam-
þykkt 14% hækkun fiskverðs, sem
tók gildi nú í ársbyrjun, auk þess
sem stefnt er að lagasetningu um
4% hækkun útflutningsgjalds til að
greiða niður olíuverö til útgerðar.
Forsendur ákvörðunar voru m.a.
þær, að ráðstafanir yrðu gerðar til
þess að bæta fiskvinnslunni
kostnaðaráhrif þessara aögerða.
Með hliðsjón af stöðu mála eftir
þessa fiskverðsákvörðun sam-
þykkti ríkisstjórnin í dag, aö hún
gæti fyrir sitt leyti samþykkt, að
gengi krónunnar væri lækkaö um
ca 9%. Meö tilvísun til þess, sem
hér hefur verið rakið, hefur banka-
stjórn Seðlabankas að höfðu sam-
ráði við bankaráö ákveðið, að
gengisskráning veröi tekin upp að
nýju á morgun, 5. jariúar, og vcrði
þá meðalgengi íslensku krónunnar
9% lægra en það var síðast skráð
31. desember sl.
Sjá 6.
í forystugrein
Þjóðviljans > dag er
fjallað um
fiskverðs-
ákvörðunina og þau
kjör sem
sjómönnum og
fyrirtækjum í
sjávarútvegi eru nú
búin.
Davíö borgarstjóri methafi í veröhækkunum
F ar með strætó á
að hækka um 50 %!
Á fundi borgarráðs í gær var samþykkt með þremur
atkvæðum gegn tveimur að Ieggja til við borgarstjórn
50% hækkun á strætisvagnafargjöldum í Reykjavík.
Það er Davíð Oddsson, borgarstjóri íhaldsins, sem hef-
ur sérstaklega beitt sér fyrir þessari gífurlegu hækkun
og allir þrír fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í borgarráði
samþykktu hækkunina. Sigurjón Pétursson, fulltrúi Al-
þýðubandalagsins í borgarráði, greiddi atkvæði gegn
hækkuninni og einnig fulltrúi Kvennaframboðsins.
Þessi tillaga Davíðs borgarstjóra
um 50% hækkun strætisvagnafar-
gjalda kemur til endanlegrar af-
greiðslu í borgarstjórn Reykjavík-
ur annað kvöld.
Samkvæmt tillögunni eiga ein-
stök fargjöld fullorðinna að hækka
úr 8 kr. í 12 krónur og einstök far-
gjöld barna úr 2 krónum í 3 krónur.
Verð farmiðaspjalda hækkar iitlu
niinna veröi tillágan sámþykkt.
Farmiðaspjöld aldraðra eiga þá að
hækka um 45,4%, farmiðaspjöld
barna uni 46,2% og stór farmiða-
spjöld fyrir almenna farþega um
45,4%.
Gert er ráð fyrir, að tekjuauki
borgarinnar vegna þessarar hækk-
unar, nemi um 31 miljón króna.
Það er yfirleitt tekjulægsta fólkið í
borginni sem mest notar strætis-
vagnana. - Útgjöldþessafólksvill
Davíð borgarstjóri íhaldsins
hækka um 50% á sama tíma og
hann telur borgina hafa efni á að
lækka fasteignaskatta hjá
stóreignamönnum, en sú skatta-
lækkun kemur fyrst og fremst þeint
Davíð borgarstjóri: - Gerum þá
ríku ríkari, þá fátæku fátækari.
til góða seni mestar eiga eignirnar.
Lækkun fasteignaskattanna og
50% hækkun strætisvagnafar-
gjaldanna er lýsandi dæmi um við-
horf Davíös Oddssonar og félaga
hans til tekju- og eignaskiptingar í
]?jóðfélaginu.