Þjóðviljinn - 05.01.1983, Side 5
Miðvikudagur 5. janúar 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA £
11,8 miljónir í vasann utan fjárhagsáætlunar:__
númerakerfið
ekki lagt niður
Gamla
verður
Tillaga Öddu Báru Sigfús-
dóttur um að tekið verði upp
heilsugæslukerfi í Reykjavík frá
1. maí n.k. hlaut aðeins tvö at-
kvæði í heilbrigðisráði, hennar
eigin og fulltrúa Kvennaframb-
oðs. Fulltrúi Framsóknar-
flokksins var ekki mættur á
fundinum, sem haldinn var á
mánudag. Sjáifstæðisflokkur-
inn samþykkti síðan tillögu sem
gerir ráð fyrir að kerfls-
breytingin fari fram 1. janúar
1984, en í henni er ekki gerð
nein grein fyrir því hvernig
kosta á þá breytingu, hvað þá
að fé sé veitt til hennar. For-
maður heilbrigðisráðs er Katr-
ín Fjeldsted, yflrlæknir heilsu-
gæslustöðvarinnar í Fossvogi.
Tillaga Öddu er svohljóðandi:
„Heilbrigðisráð samþykkir að
beina því til borgarstjórnar að nú-
verandi fyrirkomulag heimilis-
lækninga verði lagt niður 1. maí
Engar nýjar
heilsugæslu-
stöðvar á árinu
1983 og í stað þess tekið upp heilsu-
gæslukerfi skv. lögum nr. 57/1978.
Breytingin verði gerð með þeim
hætti sem samninganefnd heilsu-
gæslu í Reykjavík leggur til í ioka-
skýrslu sinni og stjórnir Sjúkra-
samlaga Reykjavíkur og Læknafé-
lags Reykjavíkur hafa fallist á í
meginatriðum.
Kostnaðarauka borgarinnar
vegna kerfisbreytingarinnar á ár-
inu 1983 verði mætt með framlagi
ríkissjóðs til heimahjúkrunar sam-
kvæmt nýsamþykktum lögum um
málefni aldraðra. Samkvæmt áætl-
un embættis borgarlæknis verður
það framlag kr. 11.874.555,- fyrir
árið 1983.“
Langur aðdragandi
Aðdragandinn að þessari til-
lögugerð er orðin langur, sagði
Adda Bára í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær. Fiest sveitarfélög önnur
en Reykjavík hafa nú tekið upp
heilsugæslukerfi samkvæmt iögunt
sem nú eru frá 1978 en voru upp-
haflega sett 1973. Það sem á hefur
strandað er einkum að kostnaður
borgarinnar við nýtt kerfi heilsu-
gæslu verður allmiklu meiri en af
gamla númerakerfinu unt leið og
kostnaður ríkisins við heilsugæslu í
Reykjaík minnkar verulega þegar
það er af iagt. Fyrrverandi borgar-
stjórn samþykkti því að taka nýja
kefið upp s.i. haust að því tilskyldu
að til kæmi á móti fjárframiag frá
ríkinu.
Oheiðarleiki
Núverandi heilbrigðisráð ítrek-
aði þessa samþykkt síðan í októ-
bermánuði, sagði Adda, en svo,
þegar tjárframlag kernur frá ríkinu
með lögum um málefni aldraðra
fyrir jólin, þá á bara að stinga því í
vasann og láta vera að framkvæma
það sem til stóð. Þetta kalla ég
óheiðarleika, auk þess sem fjár-
hagsáætlun er greinilega fölsuð,
þegar ekki er gert ráð fyrir þessum
tekjum í henni.
- En er þetta fjárframlag nóg?
„Já, og meira en það. Samkvæmt
útreikningum borgarlæknisemb-
ættisins mun ríkið greiða borginni
rúmlega 11,8 miljónir á þessu ári,
en kostnaður við kerfisbreytinguna
frá 1. janúar 1983 hefði verið um
13,6 miljónir. Nú er hins vegar of
seint að gera þetta frá 1. janúar s.l.
og mín tillaga gekk út á 1. maí n.k.
þar sent undirbúnings- og kynning-
artími yrði þá nægur. Með því móti '
hefði talsverður afgangur orðið af
þessu framlagi ríkisins.
Engar nýjar
heilsugœslustöðvar
- Verða þá engar nýjar heilsu-
gæslustöðvar tcknar í notkun hér á
þessu ári?
Það er alla vega vilji Sjálfstæðis-
flokksins að svo verði ekki, enda er
ekki króna ætluð til rekstrar nýrra
heilsugæslustöðva í fjárhagsáætl-
uninni í ár. í þeirra samþykkt er
miðað við 1. janúar 1984, sem er
alger markleysa, þarsem engu fé er'
veitt til kerfisbreytingarinnar á
fjárhagsáætluninni. Það verður því
engin breyting á þessu, hvorki á
þessi ári né 1. janúar 1984, og engin
trygging fyrir því hvenær það verð-
ur.
- En fær borgin þá þetta fjár-
framlag frá ríkinu?
Já, það er ótvírætt bundið í
lögum að frá 1. janúar s.l. greiðir
ríkið 35% af heimilisþjónustunni.
Hins vegar ætlar borgarstjóri að
loka augunum fyrir þeirri
staðreynd og láta sem nýju lögin um
málefni aldraðra séu ekki til við
afgreiðslu fjárhagsáætlunar. Pen-
ingana ætlar hann síðan að nota til
að skalka og valka með, sagði
Adda Bára.
Voru á mógi lögum
um málefni aldraðra
Þessi afstaða Sjálfstæðisflokks-
ins tengist undarlegri andstöðu
þeirra við lög um málefni aldraðra,
en í borgarstjórn töfðu þeir í tvo
ntánuði atgreiðslu á tillögu frá mér
unt að borgin skoraði á Alþingi að
samþykkja lögin fyrir árarnót,
sagði Adda. Þegar tillagan loks
kontst á dagskrá lá fyrir mjög
neikvætt álit frá félagsmálaráði en
þá var frumvarpið til lokaumræðu
á alþingi og því engin ástæða til að
álykta um það. Ég dró tillöguna því
til baka, en engu að síður sáu Sjálf-
stæðismenn ástæðu til þess að bók-
færa andstöðu sína við lög unt ntál-
efni aldraðra.
Það er Ijóst, sagði Adda, að
Sjálfstæðismenn í borgarstjórn
hafa haft takmarkaðan áhuga á því
að fá þessa fjárveitingu og því að
hrinda nýskipan heilsugæslu í
framkvæmd. Þeir hafa heldur ekki
haft teljandi áhuga á því að tryggja
áframhaldandi uppbyggingu B-
álmu Borgarspítaians en hún er
tryggð meö lögunum, sem þeir
voru svo mótfallnir. - Á1
»>
„Þegar við erum að gera upp á milli
risanna verðum við að athuga hvor
hefur komið betur fram gagnvart
okkur... “
Hugleiðingar
um hervæðingu
Fyrsta des s.I. bar hernáms-
málin á góma svona upp á grín og
kannski til þess að þau féllu ekki
alveg fyrir róða. Lykillinn var a<5
sjálfsögðu Óli Jó. Hann var
auðvitað á sinni línu þótt hægra
og vinstra bros sé nú afmáð af
þeirri ásjónu.
Norðurlandaþjóðir hafa íað að
því, að Islendingar yrðu með
þeirri tillögu að Norðurlönd yrðu
friðlýst, en Óli vill ekki neitt
nöldur um frið. Heldur sig fast
við afsalið, sem hinar pólitísku
brúður undirrituðu í Bandaríkj-
unum en þar kvað standa, að
Bandaríkjunum væru heimill
hver blettur af landi þessu til
hernaðarþarfa, ef þess væri ósk-
að. Hinir ómálga menn rituðu
undir þetta með gleði. Þeir, sem
ekkert vita í lögum, vita þó að
afsal þetta er utan við öll lög og
rétt. Þeir, sem sendu þessa vesl-
inga, höfðu til þess engan rétt,
hvorki frá Alþingi né þjóðinni.
Nöfn allra þessara auðnuleysingja
ætti að skrá á töflu og finna
henni stað í Alþingishúsinu.
Hlutverk okkar er að neita þessu
plaggi sem hverri annarri niark-
leysu. Bandaríkin fá þá átyllu til
að gefa okkur í nefið því ekki
mun þá eldinn skorta. Óli getur,
áður en þetta fer fram, forðað sér
til guðs eigin lands og frétt þá um
hvernig best sé að ljúka þessu æv-
intýri.
Metingur um
morðtœki
Óli og hans nótar vilja bíða þar
til sannanir berast um hvor að-
ilinn sé betur búinn til dráps.
Þetta mun vera ein sú djöfulleg-
asta tillaga sem hinir drápfúsu
láta sér urn ntunn fara. Trúir
nokkur maður því að öll þessi
hervæðing stuðli að friði eða að
sú stund renni upp, að þessi jöfn-
uður, sem þeir mala um, skjóti
upp kolli? Oli segir að Rússar séu
betur í stakk búnir. Báðir vitum
við jafnt unt þetta en ég ætla ekki
að heimska mig á að leggja þar á
dónt.
Við reyndum að hervæðast á
Sturlungaöld en hvernig er sú
reynsla? Jú, sumir eignuðust
vopn og verjur en voru aldrei
óhultir um líf sitt, því margirvildu
komast yfir vopnin. Aðrir, sem
áttu eitthvað af þessu tagi án þess
að nota, voru drepnir eða kúg-
aðir til að láta þau af hendi. Allir
vita hvernig þetta endaði. Blómi
þjóðarinnar var myrtur með ein-
hverjum hætti. Þetta ættum við
að leggja á minnið.
Bandaríkjaforseti virðist una
því illa að korriast ekki í tölu
hinna stærri slátrara. Ljómi kú-
rekanna leikur enn urn hans litla
heila. Þá mátti drepa indíána eftir
vild og enn fara skotglaðir ame-
ríkumenn á indíánaveiðar og
skjóta það sem finnst því slíkt
banna engin lög.
Að hanga í halanum
Það er lítt skiljanlegt, að ís-
leridingar, best kynjaða þjóðin á
Norðurlöndum, skuli alltaf sælast
eftir því að vera taglhnýtingur
stærri þjóða, svo að ekki sé nú
talað um stórveldi. Eftir 6 alda
áþján buðust þeir til að fórna sér
fyrir Bandaríkin, sem líta á okkur
með fyrirlitningu, því hver getur
virt slíkt fólk? Sá, sem býðst til að
vera þræll á enga aðstoð skilið.
Og hvað hafa svo íslendingar í
aðra hönd? Jú, hópum af úrkynj-
uðum mönnum hefur verið boðið
til Bandaríkjanna, upp á allt frítt,
jafnvel sofa í herskipum. Hvort
hjalskonur hafa fylgt nteð fara
ekki sögur af. En lítt munu menn
þessir hafa átt aðgang að stærri
ntönnum.
Bandaríkin fjármagna ógnar-
öldina í Suður-Ameríku, sem all-
ir ntennskir menn standa á önd-
inni yfir, en við erum kannski ekki
of góðir til að deyja fyrir svona
mannvini?
í einhverju blaðinu mátti sjá
um daginn frásögn af morðum,
ránum, nauðgunum og allskonar
fleiri illvirkjum, sem framin væru
á ári hverju í Bandaríkjunum.
Alit var þetta reiknað út í eining-
ar: mánuði, vikur, daga, klukku-
stundir og allt niður í mínútur.
Þannig var öllu þessu markaður
bás og hann hryjlilegur. Mann-
réttindi virðast þarna minni en
margir halda og ekki sambærileg
við okkar. Menn ættu að athuga
aðstöðu Bandaríkjanna í hinum
svokallaða nýja heimi. Þar ráða
þeir mestu enda falla þar miljónir
manna á hverju ári úr hungri og
allsleysi. Það er löngum vitnað í
harðstjórn Rússa og meðferð á
fólki þar. Ekki skal því bót mælt
en eitt verður að segja þeim
mönnum, sem vilja hreinsa
Rússa af jörðunni á sama hátt og
Bandaríkin indíánana:
Samanburður
Þegar við erum að gera upp á
milli risanna verðum viö að at-
huga hvor hefur komið betur
fram gagnvart okkur. Þegar viö
stóðum í þorskastríðunum gerðu
Rússar engar kröfur á hendur
Halldór
Pétursson
skrifar
okkur. Stríð þessi vöröuðu líf
okkar eða dauða. Þá kom engin
hjálp frá bræðraþjóðunum og
Bandaríkin önsuðu ekki máli
okkar. Svo var sett á okkur
viðskipta- og sölubann, sem átti
að virka sem hengingaról. Þá
keyptu Rússar af okkur allt, sem
við þurftum að selja og settu ekki
upp neitt nauðungarverð. Þetta
bjargaði okkur frá ríkisgjald-
þroti. Og þetta er ekki í eina
skiptið sent þeir hafa hlaupið
undir bagga meö okkur, seinast
nú fyrir fáum dögum. Og ég veit
ekki til að þeir hafi sýnt okkur
nokkurn ágang. Bandaríkin hafa
gert aðeins eitt fyrir okkur:
spennt dauöagildruna. íslending-
ar ættu að minnast þess, að þeir,
sem gjalda gott með illu. verða
aldrei hátt skrifaöir. Hiö stærsta
er þó, að þaö voru Rússar sem
gerðu það „útslag" að Ilitler og
hans dátar lögðu ekki undir sig
heiminn. Fer þannig flestum
óþokkum þegar á reynir.
Hinir stóru risar kenna hvor
öðrum um hervæðingu dauöans,
sem nú er á dagskrá. Ekki ætla ég
að gerast dórnari þar en sé hlut-
laust horft, þá held ég að Banda-
ríkin eigi þar stærri sök. Lítið á
alheimskortið og teljið her-
stöðvar Bandaríkjanna. Athugið
þá ábyrgð, sem þau bera á hinum
þriðja heimi, þar sem miljónir
manna falla daglega úr hungri og
allsleysi. Þó standa þessar þjóðir
á mestu hráefnum heimsins, sem
þau hafa veðbundið dauðanum
og djöflum þeint, sem hafa þar
allt á valdi sínu gegnum arðránið.
Þegar Bretar misstu úr klóm sér
þessar nýlendur tóku Bandaríkin
þær í faðnt sér og blíökuöu með
liergögnum. Þetta hefur haft þau
áhrif, að vígbúnaðurinn hefur
gleypt það, sem þurfti að koma
annarsstaðar niður.
Ég held að enginn trúi því að
Rússar æski stríðs þótt þeir vilji
ekki liggja hundflatir. Þeir vita
hvað stríð qr, allt frá byltingunni.
Fórnir þeirra í síðasta stríöi verða
ekki nteð tölum vegriar. Banda-
ríkjamenn þekkja ekkert þes-
skonar, þótt þeir tækju þátt í síð-
ustu styrjöld. Aftur á rnóti getur
Bandaríkjaforseti lagt þetta að
jöfnu við reynslu sína í kvik-
myndastyrjöld sinni við indíána
og aðra, sent ekki eru klíkunni
meðmæltir.
Við höfum urfigengist þennan
ágæta heim verr en nokkurt rán-
dýr og nú er annað hvort að snúa
'Við eða ganga fyrir ætternisstap-
ann nteð ómennskuna eina að
veganesti.
Ilalldór Pjetursson er 85 ára að
aldri, austfirskur a'ð ætt og upp-
runa. Hann stundaöi sveitastörf
og sjóróðra framan af áruni en
Ilutti til Reykjavíkur 1928. Hann
var 15 ár starfsmaður Iðju en
vann að öðru leyti vcrkamanna-
störf þar til fyrir fáum árum „að
mér fannst ég vera orðinn of lé-
legur til þess“. - Halldór hefur
skrifað l'jölda blaðagreina og
bæklinga auk þess sem út hafa
komið eftir hann bækur.