Þjóðviljinn - 05.01.1983, Qupperneq 12
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 5. janúar 1983
ALÞÝÐUBAN DALAGIÐ
Alþýðubandalagið Akranesi -
Bæjarmálaráð
Fundur verður haldinn mánudaginn 10. janúar kl. 20.30 í Rein.
Umræðuefni: Fjárhagsáætlun bæjarins fyrir 1983. - Félagar fjölmennið. -
Stjórnin.
Alþýðubandalagið
Húsavík
Árshátíö Alþýðubandalagsins á Húsavík verður haldin í Félagsheimili
Húsavikur laugardaginn 29. janúar n.k. Fjölbreytt dagskrá að venju.
N’ánar auglýst síðar.
Undirbúningsnefndin.
Hjörleifur
Vopnaíjörður - almennur
fundur
Almennur fundur verður meö Hjörleifi Guttorms-
syni, iðnaðarráðherra, miðvikudaginn 5. jan. kl.
20.30 í kaffistofu frystihússins á Vopnafirði. - All-
ir velkomnir. - Alþýðubandalagið.
Eskifjörður - Almennur fundur
Almennur fundur veröur meö Hjörleifi Guttormssyni iönaöarráö-
herra í Valhöll á Eskifiröi fimmtudaginn 6. janúar kl. 20.00. Allir
velkomnir. Alþýðubandalagið.
Alþýðubandalagið Suður-
Þingeyjarsýslu - aðalfundur
verður haldinn í barnaskólanum Laugum í Reykjadal
kl. 15.00lttugardaginn7. janúar. Fundarefni: Kosin
ný stjórn, ræddar reglurogframkvæmd vætnanlegs
forvals í kjördæminu. Stefán Jónsson alþingismaður
mætir á fundinn. Nýir félagar velkomnir. -Stjórnin.
Stefán
Fyrsti fundur laga- og skipu-
lagsnefndar Alþýðubandalagsins
Fundur veröur haldinn ílaga-ogskipulagsnefnd þeirri sent flokksráðs-
fundur Alþýöubandalagsins setti á laggirnar til þess aö endurskoða skipu-
lagflokksins fyrir hmdsfund á þessu ári föstudaginn 7. janúar.
Fundur laga- ogskipulagsnefndar veröur haldinn aö Grettisgötu 3 í
Reykjavík og hefst kl. 16.
í uppitafi fundarins munu Ragnar Arnalds, 11 jalti Kristgeirsson, Ólafur
Ragúar (irímsson og Artluir Morthens hafa stutta framsögu unt þau
verkefni sem fýrir liggja.
Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalagsins.
Arlhur Ólafur Hjalti Ragnar
Forval á Suðurlandi
Frá uppstillingarnefnd Alþýöubandalagsins á Suöurlandi:
Ákveðiö hefur veriö að viöhafa forval vegna komandi alþingiskosninga og
verður það í tveimur umferöum.
Fyrri umferðin fer fram dagana 8. og 9. janúar nk. frá kl. 16 ti! 22 og sú
síöari 27. janúar kl. 13 til 23.
Upplýsingar um kjörstaöi veita formenn viðkomandi félagsdeildar.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hófst hjá formönnum félaganna 1. janú-
ar sl. fyrir fyrri umferð.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fyrir síðari umferð hefst 22. janúar.
Þátttökurétt í forvalinu hafa allir félagar Alþýðubandalagsinsá Suður-
landi sem liatá veriö félagsbundniría.m.k. einn mánuð þegarfyrri umferð
fer fram.
Alþýðubandalagið Egilsstöðum
Fundur í hreppsmálaráði mánudaginn 10. janúarað Lagarási 8. Fundur-
inn hefst kl. 20.30.
Fundarefni: Gerö fjárhagsáætlunar. - Framsögumaður veröur Björn Ág-
ústsson. - St jórnin.
Leiklistarskóli
Sigrúnar Björnsdóttur
auglýsir
Nýtt námskeið hefst miðvikudaginn 12.jan..
Innritun daglega kl. 5-7 síðdegið í síma
31357.
Blaðberi óskast
Fornhagi - Melhagi
Kvisthagi - Neshagi
D/OÐV/U/M
Þorskveiðarnar
árið
1983
Á tundum, sem sjávarútvegs-
ráðuneytiS hefur haldið með
hagsmunaðiljum í sjávarútvegi
nú í haust og vetur hefur sam-
komulag náðst um takmarkanir
á þorskveiðum árið 1983.
Verður hér á eftir gerð grein
fyrir helstu atriöum þorskveiða á
næsta ári.
I. Almennt.
1. Heildarþorskaflinn verði 370
þús. lestir. Auknar verði rann-
sóknir á ástandi þorskstofnsins
og heildarmagnið.
2. Heildarþorskafli skiptist þann-
ig: 185 þús. lestir til báta og 185
þús. lestir til togara.
3. Togaraafli telst afli, sem veiöist
af skipum, sem falla undir
„skrapdagakerfið".
4. Árinu skipt í þrjú fjögurra mán-
aða viðmiðunartímabil.
5. Togveiðar loðnuskipa falla
undir „skrapdagakerfið", en
netaveiðar þeirra veröi ekki
takmarkaðar við ákveðinn
þorskkvóta.
II. Bátaflotinn
1. Þorskveiðar í net eru bannaðar
1.-15. janúar. Heimilt verður
að stunda ufsa- og ýsuveiðar á
sama tíma, enda fari hlutur
þorsks ekki yfir 20% af afla
veiðiferðar.
2. Allar þorskveiðar verða bann-
aðar um páska eins og undan-
farin ár. Lengd banns verður
ákveðin með hliðsjón af afla-
magni því, sem á land verður
komið um ntiðjan mars. Allar
netaveiðar bannaðar í páskast-
oppi.
3. Stöðvun netavertíðar ákveðin
með hliðsjón af afla, sem kom-
inn verður á land um miðjan
apríl. Stöðvun vertíðar tekur
aðeins til báta fyrir Suður- og
Vesturlandi á svæðinu frá
Eystra-Horni að Horni.
4. Þorskveiðar togbáta eru bann-
aðar 1.-7. maí.
5. Þorskveiðar í net eru bannaðar
1. júlí - 15. ágúst.
6. Þorskveiðar eru bannaðar 24.
júlí - 2. ágúst. Banniö taki ekki
til línu- og færabáta, sent eru 12
lestir og minni.
7. Þorskveiðar eru bannaðar 20. -
31. desentber. Á þeint tíma all-
ar netaveiðar bannaðar.
8. Að þorskveiðar séu bannaðar
merkir að hlutur þorsks í afla
veiðiferðar má ekki fara yfir
15%.
9. Viðmiðunarmörkin verði:
Jan/vertfðarlok: .135 þús. 1.
vertíöarlok/ág.: .30 þús. 1.
sept/des.:........20 þús.'i.
Samtals 185 þús. lestir.
III. Togaraflotinn
1. Viðmiðunarmörkin verði
Jan./apríl:...........70 þús. 1.
maí/ágúst:........... 60 þús. I.
sept/des.:............55 þús. 1.
Samtals 185 þús. lestir
2. Takmarkanir á þorskveiðúm
togara verði:
Jan/ apríl: 30 dagar.
þ.a. 10 dagar í jan/febr.
Maí/ágúst: 45 dagar,
þ.a. 25 dagar í júlí/ágúst
sept/des.: 35 dagar.
3. I þorskveiðibanni er leyfilegt
hlutfall þorsks í afla einstakra
veiðiferða:
5% í 33 daga
15% í 44 daga
30% í 33 daga.
4. Eftir löndun hverju sinni skal
tilkynnt til ráðuneytis með
skeyti, hvaða tímabil togari lét
af þorskveiðum og hvert var
hlutfall þorsks í afla.
5. Aðrar reglur, t.d. um upphaf og
lok tímabils, siglingar með fisk
til sölu erlendis verða óbreyttar
frá 1982.
6. Stundi loðnuskip netaveiðar,
eftir áramót, telst sá tími er það
notar til þeirra veiða ekki sem
Vestur-Skaftf'ellingar hafa nú
fetað í fótspor íbúa ýmissa annara
héraða og hafið útgáfu tímarits.
Nefnist það Dynskógar og mun
sýslufélagið vera útgefandinn.
Útgáfa þessi á sér orðið all-
langan aðdraganda.
Var henni fyrst hreyft í Þjóðhá-
tíðarnefnd Vestur-Skaftfellinga
1974. Hugmyndin hélt svo áfram
að þróast og hefur nú orðið að
veruleika.
Ritnefnd Dynskóga skipa: Helgi
Magnússon, sem jafnframt er rit-
stjóri, Björgvin Salómonsson og
Sigurjón Einarsson. í formáls-
oröurn ritnefndar segir svo m.a.
um tilganginn með útgáfu Dyn-
skóga:
„í Dynskógunt verður fyrst og
fremst fjallað um sögu Vestur-
Skaftfellinga og þannig reynt að
forða frá gleymsku mörgu því, sem
drifið hefur á daga héraðsins og
íbúa þess“.
Ritið hefst, að formálanum frá-
gengnum, - á ávarpi, sem Björn
Magnússon flutti á þjóðhátíð
Vestur-Skaftfellinga 17. júní 1974.
Þá kemur fróðleg og viðamikil
grein um Vík í Mýrdal, myndun
þorpsins og þróun, eftir Jón Thor
„skraptími", fari skip síðar til
togveiða.
7. Takmörkunardögum verði
fjölgað eða fækkað miðað við
aflamagn í lok hvers viðmiðun-
artímabils á undan.
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
gefið út reglugerð um bann við
þorskveiðum í net 1.-15. janúar
n.k. og mun næstu daga gefa út
heildarreglugerð um þorskveiði-
takmarkanir togskipa fyrir árið
1983. Verða reglurnar um þær
veiðar þá ítarlega kynntar í frétta-
tilkynningu.
Haraldsson en eftirmála ritar
Björgvin Salómonsson. Eftir Kötlu
nefnist þáttur, sem Sigurjón Ein-
arsson skráði eftir Sveinbjörgu
Jónsdóttur. Þá er greinin Smávegis
um Prestsbakkakirkju og aðdrag-
anda að smíði hennar, eftir Björn
Magnússon. Eyjólfur Eyjólfsson
segir frá jarðarfararsiðum í Meðal-
landi á ofanverðri 19. öld og önd-
verðri hinni 20. Sigþór Sigurðsson
ritar þátt um Dyrhólahöfn. Þá eru í
ritinu annálar úr öllum hreppum
sýslunnar. Er þar drepið á þróun
byggðar og búsetu, mannalát og
fæðingar, árferði og ræktun, fram-
kvæmdir, félags- og menningarmál
og loks sveitarstjórn. Höfundar
annálanna eru: Bergur Helgason,
Sigurjón Einarsson, Loftur Run-
ólfsson, Valur G. Oddsteinsson,
Júlíus Jónsson, Jón Ingi Einarsson
og Björgvin Salómonsson. Dyn-
skógum lýkur svo að þessu sinni
með frásögn af heilsugæslustöðv-
unum í Vík og á Kirkjubæjar-
klaustri, sem formlega voru teknar
í notkun 1979. Fjölmargar ntyndir
eru í ritinu, sent er ágætlega úr
garði gert bæði að efni og búningi.
-mhg.
AÐALFUNDUR
aöalfundur Vélstjórafélags íslands verður
haldinn laugardaginn 15. janúar kl. 14 aö
Borgartúni 18.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Krafist verður félagsskírteina viö innganginn.
Félagar fjölmenniö.
Stjórn Vélstjórafélags íslands
Faðir okkar
Gestur Oddfinnur Gestsson
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 6. jan-
úar kl. 10.30.
Þeim sem vildu minnast hans er vinsamlega bent á Krabba-
meinsfélag íslands.
Börn hins látna.
(Fréttatilkynning frá
sj ávarútvegsráðuneytinu 1
Dynskógar — nýtt rit
V estur-Skaftf ellinga
Samtals: 110 dagar