Þjóðviljinn - 06.01.1983, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 6. janúar 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
„Ferlega dýrt
„Þetta er alveg ferlega dýrt“,
sögðu þær Ágústa og Birna um
fargjöld strætisvagnanna. Þær
búa í Kópavogi og þurfa að
koma nokkuð oft í bæinn til að
gera upp, en þær bera út
Tímann og Þjóðviljann í Kópa-
voginum.
Þeim fannst erfitt að bera út í
þeirri lélegu færð, sem verið hefur
undanfarið, en halda ótrauðar
áfram. Lesendur hljóta að vera öll-
um blaðberum ansi þakklátir þessa
dagana, því að fátt er betra en
heitur kaffibotli og málgagnið þeg-
ar farið er á fætur í skammdeginu,
og þá ekki síöur þegar færðin er
slæm.
sagði Jón Guðmundsson yfirlögregluþjónn
„Hér á Selfossi er búi'ð að vera
meira og minna ófært síðan í gær,
en í sveitunum hér í kring skilst mér
að Vegagerðin sé að búa sig undir
að ryðja helstu vegina", sagði Jón
Guðmundsson ytlrlögrcgluþjónn á
Sclfossi þegar Þjóðviljinn sló á
þráðinn síðdegis í gær til að spyrj-
ast fyrir um veður og færð.
„Veðrið er skaplegt núna en mér
skilst að Veðurstofan sé búin að
spá slæmu veðri í nótt og á morgun,
þannig að búast má við að strax
fenni í slóöina þar sem talsverður
snjór er hér“, sagði Jón ennfremur.
„Það hafa hins vegar engin óhöpp
orðið umfram þetta venjulega, að
rnenn festa bíla í skafli og eiga erfitt
með að komast yfir. Veðrið var þó
það slæmt hér á Selfossi um hádeg-
isbilið að krökkum var haldið í
skólanum og fólk átti erfitt með að
komast úr vinnu“, sagði Jón Guð-
mundsson að síðustu. -v.
Þau Elín Helgadóttir og Haraldur Helgason sátu í hlýjunni á Hlemmi í gær,
þegar veður var válegt úti og bið eftir strætó.
- Ljósm. Atli.
50% hækkun fargjalda SVR_
Líst illa á
hækkunina
V esónannaeyjar:
„Agætis veður hér”
sagði Birgir Sigurjónsson hjá lögreglunni
„Hér hjá okkur er búið að vera
ágætis veður frá því um hádegi en
fram að því búið að ganga á með
hríð og skafrcnningi frá því í morg-
un", sagði Birgir Sigurjónsson hjá
lögrcglunni í Vestmannaeyjum,
þegar Þjóðviljinn hafði samband í
gær.
í fyrradag gekk á með afar
slæmu veðri í Vestmannaeyjum
eins og á flestum öðrum stöðum á
landinu, en það veður stóð stutt
yfir. Birgir kvað alla báta vera í
höfn núna og ekki yrði róiö fyrr en
spáin liti betur út.
„Menn áttu auðvitað svolítið í erf-
iðleikum í færðinni áður en rutt var
en allt gekk stóráfallalaust fyrir sig.
Það var einkum dimmviðrið sem
háði okkur", sagði Birgir Sigur-
jónsson í Eyjum.
-V.
Ágústa, 13 ára síðan í fyrradag, og Birna, 12 ára, blaðberar í Kópavogi, sögðu sitt álit á hækkunum á
strætól'argjöldum: „Ferlega dýrt“. - Ljósm. Atli.
„Mer list auðvitað afar illa a þessa hækkun á fargjöldunum“, sagði
Elín Helgadóttir við Þjóðviljann, en hún sat í biðskýli strætisvagna
Reykjavíkurborgar á Hlemmi í gær, þegar Þjóðviljafólk bar þar að
garði.
Hún kvaðst nota strætisvagna
daglega úr og í vinnu og það mun-
aði skiljanlega um 50 prósent
hækkun á einu bretti. Þessi hækk-
un þýðir, að nú þarf Elín að borga
tuttugu og fjórar krónur á dag í
stað sextán áður - eitthvað minna
ef hún kaupir miða.
„En hvað er svosem ekki að
hækka?“jtlykkti Elín út með; sam-
ferðafólk hennar á Hlemmi kink-
aði kolli.
„Nei, nei, ég bíð aldrci eftir strætó,
-ég kem bara hingað til þcss að ylja
mér og horfa á mannlífið“, sagði
Sigurður Magnússon, áttræður
unglingur, sem við hittum á biðstöð
strætisvagnanna á Hlemmi í gær.
Hann lét veðrið lítt á sig fá - eða
færðina. „Ætli maður hafi ekki séð
annað eins um dagana“, sagði hann
bara og brosti.
Auglýsing um
breytingu á
tollafgreiðslu-
gengi
í janúar 1983.
Skráð á tollafgreiðslugengi
5. janúar 1983:
Bandaríkjadollar USD 18,170
Sterlingspund GBP 29,526
Kanadadollar CAD 14,769
Dönsk króna DKK 2,1908
Norsk króna NOK 2,6136
Sænsk króna SEK 2,4750
Finnskt mark FIM 3,4662
Franskur franki FRF 2,7237
Belgfskur franki BEC 0,3929
Svissneskur franki CHF 9,2105
Hollenskt gyllini NLG 6,9831
Vesturþýrkt mark DEM 7,7237
ítölsk líra ITL 0,01339
Austurr. sch. ATS 1,0995
Portúg. escudo PTE 0,2039
Spánskur peseti ESP 0,1462
Japanskt yen JPY 0,07937
írskt pund IEP 25,665
Tollverð vöru sem tollafgreidd er í janúar skal miða við
ofanskráð gengi. Hafi fullbúin tollskjöl borist tollstjór-
um fyrir lok janúar skal þó til og með 8. febrúar 1983
miða tollverð þeirra við ofanskráð tollafgreiðslugengi
janúarmánaðar.
Augýsing þessi er birt með þeim fyrirvara að í janúar
komi eigi frekar til atvik þau er um getur í 2. mgr. 1. gr.
auglýsingar nr. 464/1982 um tollafgreiðslugengi.
Hafi tollskjöl komið fullbúin til tollstjóra fyrir lok desem-
bermánaðar skal tollverð varnings reiknað sam-
kvæmt tollafgreiðslugengi er skráð var 1. desember
1982, með síðari breytingum til og með 7. janúar
1983.
Hafi tollskjöl komið fullbúin til tollstjóra 3. janúar s.l.
skal tollverð varnings reiknað samkvæmt tollaf-
greiðslugengi erskráð var 1. janúar s.l. til og með 12.
janúar 1983.
Fjármálaráðuneytið 5. janúar 1983.
Selfoss:
Allt gengið
áfaUalaust