Þjóðviljinn - 06.01.1983, Page 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN, Fimmtudasur 6. janúar 1983
ÞJOBVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýðs-
hreyfingar og þjóðfrelsis
Utgefandí: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Ólafsson.
Umsjónarmaður Sunnudagsblaðs: Guðjón Friðriksson.
Auglýsingastjori: Sigríður H. Sigurbjörnsdóttrr
Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson.
Blaðamenn: Álfheiður Ingadóttir, Helgi Ólafsson, Lúðvík Geirsson, Magnús
H. Gíslason, Ólafur Gíslason, Óskar Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson,
Þórunn Sigurðardóttir, Valþór Hlöðversson.
íþróttafréttaritari: Víðir Sigurðsson.
Útlit og hönnun: Andrea Jónsdóttir, Guöjón Sveinbjörnsson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Atli Arason
Handrita- og prófarkalestur: Elías Mar, Gísli Sigurðsson, Guðmundur Andri
Thorsson.
Auglýsingar: Áslaug Jóhannesdóttir, Ólafur Þ. Jónsson
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Jóhannes Harðarson.
Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, Sæunn Óladóttir Kristín Pétursdóítir.
Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir.
Bílstjóri: Sigrún Bárðardóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigmundsson.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir.
Otkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar: Síðumúla 6 Reykjavík, sími 8 13 33
Umbrot og setning: Prent.
Prentun: Blaðaprent h.f.
Samkvœmt tillögu
Halldórs
• í forystugrein Tímans í gær veitist Þórarinn Þórarinsson
að Alþýðubandalaginu og telur það bera sérstaka ábyrgð á
umdeiidri tilhögun á greiðslu launabóta til lágtekjufólks í
síðasta mánuði.
• Af gefnu tilefni er rétt að upplýsa, að reglugerð fjármála-
ráðuneytisins um þessi mál var sett samkvæmt tillögu
þriggja manna nefndar, sem í áttu sæti einn fulltrúi frá
hverjum þeirra pólitísku aðila, sem að ríkisstjórninni
standa.
• Fulltrúi Framsóknarflokksins í þessari nefnd og einn til-
lögumanna var Halldór Asgrímsson alþingismaður, varafor-
maður Framsóknarflokksins. - Þetta veit Þórarinn ritstjóri
Tímans mætavel. Eins og innanflokksástandið er í Fram-
sóknarflokknum um þessar mundir má því ætla, að þótt
Þórarinn tali um Alþýöubandalagið þá sé hann í raun að
koma höggi á varaformann Framsóknar, sem lagði til að
launabæturnar yrðu greiddar einmitt með þeim hætti sem
gert var. Sjálfsagt er að það komi einnig fram, að sú þriggja
manna nefnd sem lagði til aðferðina við greiðslu bótanna
hafði verulegt samráð við fulltrúa verkalýðshreyfingarinnar
um þessa tillögugerð, og þá ekki síst varðandi það atriði
hvaða launastig gæfi rétt til hæstra bóta og hvernig bæturnar
skyldu reiknaðar út frá útsvarsskyldum tekjum manna á
árinu 1981.
• Þetta allt er vert að hafa í huga. Með því er hins vegar ekki
sagt að heppilegasta leiðin haíi verið valin, og reyndar full
ástæða til að skoða nú vandlega að fenginni reynslu, hvort
ekki sé skynsamlegt að standa með öðrum hætti að greiðslu
bútanna í mars og júní.
• Til þess er Alþýðubandalagið fúst, en máske stendur vara-
formaður Framsóknarflokksins fast á sínum upphaflegu til-
lögum. Þá er skiljanlegt að Þórarinn Tímaritstjóri taki hann
til hirtingar.
-k.
Að snúa vörn
í sókn
í áramótagrein Svavars Gestssonar formanns Alþýðu-
bandalagsins hér í blaðinu á gamlaársdag rakti hann nokkuð
á hvern hátt Alþýðubandalagið vill brcgðast við þeim efna-
hagsvanda sem hér er nú við að glíma. Svavar bendir þar
m.a. á þetta:
1. „Með betra skipulagi fiskveiða og fiskvinnslu má stór-
auka framleiðsluverðmæti sjávarútvegsins. í tímaritinu
Ægi var greint frá því að auka mætti verðmætamyndun í
vinnslunni um 200 miljónir króna með betri meðferö og
meiri áherslu á vöruvöndun en nú er um að ræða. Kunn-
ugir telja að þessi tala sé þó alltof lág, og hana mcgi
margfalda, ef tekið er tillit til þeirra möguleikasem felast í
því ef settar verða reglur um meðferð aflans um borð og
um veiðarnar sjálfar. Hér er því um að ræða háar upp-
hæðir fyrir þjóðarbúið, sem nema jafnvel þriðjungi þess
áfalls, sem þjóðarbúið hefur orðið fyrir.
2. Með sérstöku átaki til eflingar innlends iðnaðar, og með
takmörkun innflutnings, má vafalaust spara stórfelldar
fjárhæðir gjaldeyris og ná þannig öðrum þriðjungi þess
áfalls, sem þjóðarbúið hefur orðið fyrir vegna aflasam-
dráttar og markaðsörðugleika. Alþýðubandalagið hefur í
sínum tillögum gert ráð fyrir beinum eða óbeinum tak-
mörkunum innflutnings, en hér skiptir auðvitað mestu að
velja úr þær greinar innflutningsins þar sem innlend frani-
leiðsla, heimaiðnaðurinn, er best í stakk búin til þess að
uppfylla þær óskir, sem koma fram í almennri vörueftir-
spurn.
3. Með sparnaðarátaki og skipulagsbreytingum má án efa
spara í viðbót háar upphæðir og ná endum saman í þjóðar-
búinu. Verði þessi leið Alþýðubandalagsins farin er unnt
að komast hjá því að skerða laun frá því sem þau eru nú.
Tillögur Alþýðubandalagsins byggjast á þeirri forsendu
að launin verði ekki lækkuð frá því, sem þegar hefur átt
sér stað. Þannig er áhersla Alþýðubandalagsins allt önnur
en annarra flokka.“
Þjóðviljinn hvetur til þess að menn sameinist um að leita
leiða til úrlausnar með hliðsjón af þeirri stefnumótun, sem
þarna kemur fram í orðum Svavars. -k.
klippt
Kraftaverka-
maður
prettar banka
Þaö er alkunna aö Helguvíkur-
Ólafur Jóhannesson hefur látiö
þau orö falla um konunginn af
Iscargo og sérlegan sendimann
næstu hægri stjórnar í Framsókn-
Yfir skransölu hersins.
arflokknum, Kristin Finnboga-
son, að hann gerði hvorki meira
né minna en þrjú kraftaverk á
dag í fjármálum. Tímaritið Frjáls
verslun segir frá einu slíku í síð-
asta hefti sínu. Þess má einnig
geta aö Kristinn Finnbogason er
fulltrúi Framsóknarflokksins í
bankaráöi Landsbankans.
Hefur nú frásögn Frjálsrar
verslunar:
„Framsóknarmönnum í Lands-
bankanum er ekki einungis ljóst
að Kristinn hafi þegið af þeim
fyrirgreiðslu, sem öllunt öðrum
almennum viðskiptavinum yrði
fyrirmunað, heldur hafi hann
einnig prettað bankann þannig
að skuldaski! vegna Iscargo-
sukksins verða mun verri og
seinna á ferðinni en bankinn ætl-
aði, ef þau þá verða nokkur."
Víxill hálft
annað ár
fram í tímann
„Landsbankinn mun eiga veð í
sexu Iscargo fyrir $300.000
skuldum og baktryggingu í víxli
samþykktum af Kristni og Árna
Guðjónssyni, stjórnarformanni
Iscargo. Tryggingarvíxillinn er
hins vegar dagsettur eitt og hálft
ár fram í tímann, sem er sérstakt,
því hámarkslengd annarra trygg-
ingarvíxla er eitt ár. Bankanum
er orðið ljóst að hann á enga von
um að fá eyri út úr sexunni, enda
vart hægt að ímynda sér annan
mögulegan kaupanda en slökkvi-
liðið á Reykjavíkurflugvelli.
Flugvélin hefur margoft verið
Frá Iscargo
auglýst á nauðungaruppboði en
því verið jafnoft frestað, sem
sjálfsagt er þægilegt fyrir Lands-
bankann. Það er slæmt fyrir
bankann að verða afhjúpaður á
opinberu uppboði.“
Blóðpeningar í
eigin vasa - pín-
legt
fyrir Framsókn
„Landsbankinn hafði vænst þess
að fá blóðpeningana, sem Árn-
arflug var neytt til að greiða fyrir
Iscargo, en þeim greiðslum, sem
inntar vóru af hendi í vor stakk
Kristinn í eigin vasa. Málið er
pínlegt fyrir framsókn, því Krist-
inn er varaformaður bankaráðs
Landsbankans og situr þar sem
fulltrúi Framsóknarflokksins."
Þetta hefur semsagt Frjáls
verslun að segja um viðskipta-
hætti Framsóknarmanna. Því er
svo við að bæta að pólitíkin er á
sömu nótum. Enda er Kristinn
Finnbogason úr natóklíkunni og
brasks, heisti krossfari framboðs
Ólafs Jóhannessonar í Reykjavík
og þar með næstu hægri stjórnar
íhalds og Framsóknar.
Hanastél í
virðingarskyni
í Frjálsri verslun er að finna
allra handa ráðleggingar fyrir þá
sem stýra fyrirtækjum. Meðal
þess er greinin „Hvernig á að
Til Helguvíkur
komast í blöðin?" Þar er m.a.
sagt að ekki sé vænlegt að hella
áfengi ofan í blaðamenn í vinnu-
tímanum. „Hins vegar er vel til
fundið að bjóða einum eða fleiri
blaðamönnum í virðingarskyni í
hóf eða hanastél ef tilefni er til
slíks." Mikið er lagt upp úr hug-
ntyndaauðgi við að koma sér í
blöðin og afla sér þannig velvild-
ar og góðs almenningsálits.
Líknarstarf og
Morgunblaðs-
skeifa
Þá segir Frjáls verslun:
„Enn er það ekki óalgengt að
fyrirtæki eigi þátt í fjármögnun
ýmiss konar líknarstarfsemi og
noti tækifærið til að koma nafni
sínu á framfæri.
Önnur leið nýtur vaxandi vin-
sælda, en það er stuðningur við
ákveðin íþróttamót. Hver kann-
ast ekki við Ljómarallið, Morg-
unblaðsskeifuna og Kóka Kóla
golfmótið. Stuðningur við íþrótt-
aviðburði getur þannig gefið
fyrirtækjum ókeypis auglýsingu í
öllum fjölmiðlum þá daga, sem
keppnin er fréttaefni."
-óg
og ráðstöfunartekna á mann á ár-
„Misskilningur
Morgunblaðs-
insu
Hið vandaða fréttablað Morg-
unblaðið gerði sér lítið fyrir unt
daginn og birti töflur um þróun
kauptaxta og ráðstöfunartekna,
sem auðvitað reyndust alrangar.
Ekki fór jafn ntikið fyrir leiðrétt-
ingunni og fréttinni, enda kann
Mogginn ekki að skammast sín.
Ólafur ísleifsson hagfræðingur,
sem nefndur var heimildarmaður
að ósköpunum sendir Mogganum
sínum athugasemd vegna þessa.
Þar segir rn.a.:
„Tafia sú í riti Stjórnunarfélags
íslands, sem fjallar um árlegar
breytingar kaupmáttar kauptaxta
abilinu 1972-1983 getur á engan
hátt gefið tilefni til ályktana af því
tagi sem blaðamaður birti í fyrr-
greindri frétt. Tölur þær, sem
standa í fyrirsögn fréttarinnar, er
hvergi að finna í ritinu. Heimildir
að frétt þessari eru því engar
aðrar en misskilningur blaða-
manns, sem komast hefði mátt
hjá nteð símtali.
Með þökk fyrir birtinguna,
Olafur ísleifsson,
hagfræðingur.“
Komdu seinna
vinur
Tíminn heldur áfram að níðast
á Guðmundi Þórarinssyni og
fjalla um liann eins og hann sé
hættur afskiptum af pólitík: „Það
er algengt að stjórnmálamenn
dragi sig í hlé þegar dregur að
sjötugu. Hitt er mjögóalgengt að
þingmenn láti af þingstörfum á
besta aldri og þegar augljóslega
er mikil þörf fyrir starfskrafta
þeirra á stjórnmálasviðinu."
Sér er nú hver þörfin, þegar
áður hefur verið þrengt að þing-
manninum og honunt gert ókleift
að fara í framboð! Síðar segir að
„samherjar” hans vonist til að
hann sé aðeins að gera hlé á
stjórnmálastarfi sínu. Hvaðan
hefur Tírninn fengið fregnir af
þessu hléi? Getur Guðmundur
ekki farið í framboð á vegum ein-
hvers annars en Framsóknar-
flokks Kristins Finnboga- og
Ólafs Jóhannessonar?
-óg