Þjóðviljinn - 06.01.1983, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 06.01.1983, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 6. janúar 1983 ÞJÓÐVILJÍNN - SÍÐA 7 Það eru komnir gestir Dans- námskeið -/j n .1 Þjóðdansa- félags Reykjavíkur Sigríður Hagalín, Soffía Jakobsdóttir, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Gísli Halldórsson og Kjartan Ragnarsson: Skál, og mikið er þetta indælt heim- ili.— Árni Bergmann skrifar um leikhús Leikfélag Reykjavíkur Forsetaheimsóknin eftir Luis Rego og Phiiippe Bruneau Leikstjóri: Stefán Baldursson Þýðandi: Þórarinn Eldjárn Leikmynd og búningar: Ivan Török. Höfundar þessa franska ærsla- leiks eru drjúgir fagmenn og þekkja vel brögð sinnar greinar. Þeir hafa dottið niður á ágæta hug- mynd, sem er nálægt samtíðinni: Kveikjan að leiknum er það uppá- tæki næstsíðasta Frakklandsfor- seta, Giscards d’Estaings, að sýna „alþýðleik“ með því að koma í heimsókn til venjulegra fjöl- skyldna sem svo heita. í leiknum er málum snúið á þann veg, að kven- fólkið í fjölskyldu atvinnulauss verkamanns hefur boðið forsetan- um heim og ætlar að nota tækifærið til að slá hann um aðstoð vegna skuldasúpu, sem kokkuð hefur verið f lífsgæðakapphlaupinu fræga. En verkamaðurinn styður komma og þarf að beita hann brögðum til að hann samþykki svoddan forsetaheimsókn...Og þessi hugmynd er semsagt skrúfuð áfram af góðum hagleik, með drjúgri hugvitssemi á köflum og vaxandi æsingi eftir því seni á líður. En þó svo sé til stofnað og þó sýning Leikfélagsins sé mjög þokk- alegt verk, þá er því ekki að neita, að nú verður sem alloft áður þegar farsar eru skoðaðir, að áhorfand- inn gengur út með dálítið blendnum áhrifum. Víst mátti hlæja að þessu og stundum með öllum kjaftinum, en samt fylgir einhver ófullnægja með í kaupunum: Séð hefur maður annað eins! Kannski er þessi niðurstaða tengd eðii flestra farsa, þeirri aðferð hlátur meistara að sneiða sinn mannlífs- geira niður í ákveðnar formúlur, loka persónurnar inni í tilteknu lát- bragði. Einhæfnin, ofnotkunin, vofir jafnan yfir frjálsum leik farsa- höfundarins. Ekki síst þegar svo er sem í Forsetaheimsókninni, aðallir eru fáráðlingar fullkomnir eða þá falshundar- nema hvorttveggjasé. Skítt veri með það allt eða svei því. Kannski söknum við einhverrar þeirrar eitraðrar pólitískrar ósvífni sem gæti sett brodd í leikinn, eða jafnvel chaplinskrar viðkvæmni á stundunr, hver veit? Stefán Baldursson leikstýrir verkinu af prýðilegri fagmennsku, góðum hraða, samkvæmni í stíl- færslunni. Þó mætti spyrja, hvort ekki hefði mátt vinna betur gegn þeim ofnotkunarhættum sem eru þræddar í leikinn: Kannski var verkamaðurinn óþarflega mikið „allur á iði“ og kannski Var of oft gripið til þess að forsetinn afhjúp- aði sinn landsföðurleik meðgrettu. En semsagt: Þetta gekk allt mjög greiðlega. Liðskost hefur leikstjór- inn ágætan. Kjartan Ragnarsson er Georg, atvinnuleysinginn sem er orðinn fuilsáttur við dáðlitla sjón- varpstilveru sína, a.m.k. að dómi eiginkonunnar, Soffíu Jakobsdótt- ur, síúðrandi dugnaðarforks. Það er hún sem heldur fjölskylduó- myndinni uppi, hefur litla stoð í móð- ur sinni símasandi og sífullri, sem Sigríður Hagalín leikur, eða þá systur sinni falleraðri, Hönnu Mar- íu Karlsdóttur. Gísli Halldórsson og Margrét Helga Jóhannsdóttir eru forsetahjónin, virðuleg og vandræðaleg og náttúrlega ;amm- fölsk í alþýðusnobbinu. Þeirn fylgja Steindór Hjörleifsson siða- nieistari og Aðalsteinn Bergdal líf- vörður. Guðrún Asmundsdóttir er Gerða, kona húsvarðarins, og vill allt vita og allsstaðar vera og kemur sér fyrir í forsetaboöinu í gervi heyrnarlausrar ömmu. Guóniund- ur Pálsson er barnslegur kennari og vinur réttra dyggða, náskyldur for- verum í Tópas og víðar. Harald G. Haraldsson er einn af þessum vin- sælu blaðamönnum sem sér aðeins það sem hann þarf að sjá og Karl Guðmundsson er lögtaksmaðurinn sem kemur að hirða búslóðina þeg- ar hæst stendur leikurinn. Þessi hamskipti öll gefa ekki til- efni til umkvörtunar, árangur leikaranna var nokkuð jafn og freistar til hlátra í þeim mæli sem sómasamleg farsasýning krefst. En Guðrún Ásmundsdóttir er þó vafa- laust sú sem mesta ábyrgð ber á gamninu sem af leiknum má hafa og sýnir af sér ágæt klókindi og vel við eigandi útsjónarsemi. Aðal- steinn Bergdal og Hanna Marta Karlsdóttir sauma vei og rækilega utan um sínar týpur og Softiu Jakobs- dóttur tekst að gera furðu mikiö úr hlutverki eiginkonunnar, sem ekki er beinlínis staðsett í ærsla- verkinu miðju. Ogsvo mætti áfram halda. Ivan Törok hefur gert þén- anlegan umbúnað um fólk þetta. Gamanmál af því tagi sem hér eru á seyði eru einatt harla staðbundin og þar eftir vandasöm í þýðingu - en Þórarinn Eldjárn lætur þá erfið- leika ekki verða sér að fótaskorti í haglegri íslenskun textans. Þó fór ekki hjá því, að hann þyrfti að sprengja hinn franska ramma þeg- ar menn voru að velta því fyrir sér hver Karl sá væri Marx, sem hékk uppi á vegg hjá verkamanninum: Einn komst að þeirri niöurstöðu að hann væri Matthías Joehumsson. Árni Bergmann Hefjast mánudaginn 10. janúar 1983 í Fáksheimilinu v/Bústaöaveg. BARNAFLOKKAR: mánud. kl. 16.30-20 GÖMLU DANSAR fullorönir: Mánud. kl. 20-23 ÞJÓÐDANSAR: fimmtud. kl. 20-22 í fimleikasal Vöröu- skóla. Innritun og upplýs- ingar í símum 10082 og 43586 milli kl. 14- 19. Skákþing>Reykjavík- ur1983 hefst aö Grensásvegi 46, sunnudaginn 9. janúar kl. 14. í aðalkeppninni tefla keppendur í einum flokki 11 umferðir eftir Monradkerfi. Umferðir verða á sunnudögum kl. 14 og á miövikudögum og föstudögum kl. 19.30. Skráning í mótið fer fram í síma Taflfélagsins á kvöldin kl. 20 - 22. Lokaskráning í aðalkeppnina verður laugar- daginn 8. janúar kl. 14 - 18. Keppni í flokki 14 ára og yngri hefst laugar- daginn 15. janúar kl. 14. Teflar verða 9 umferðir eftir Monradkerfi og tekur keppnin þrjá laugardaga, þrjár umferðir í senn. Taflfélag Reykjavíkur Grensásvegi 44 - 46, símar 83540 og 81690. Ér IÐNSKÖLINN í reykjavík Samningsbundnir iðnnemar, nemendur í framhalds- deildum verknáms og tækniteiknun komi kl. 16, föstu- daginn 7. janúar. Nemendur í grunndeildum verknáms og fornámi komi kl. 8, mánudaginn 10. janúar. Meistaraskólanemendur komi kl. 16.30, mánudaginn 10. janúar. Iðnskólinn í Reykjavík f||ÚTBOÐf|= Tilboð óskast í blöndunartæki og tilheyrandi fyrir B-álmu Borgarspítalans. Utboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Frí- kirkjuvegi 3, Reykjavík. Tilboðin verða opnuð á sama stað miðviku- daginn 19. janúar 1983 kl. 14 e.h. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Frikirkjuvecji 3 — Sími 25800 Fjölbrautaskóli Suðurnesja Öldungadeild Lokaskráning í Öldungadeild é fer fram í skrifstofu skólans janúar kl. 16-18. Kennsla verður í eftirtöldum áfc þátttaka fæst: bókfærslu 103 bókfærslu 203 dönsku 103 ensku 103 ensku 202 íslensku 103 íslensku 203 íslensku 363 líffræði 103 sögu 103 stærðfræði 103 stærðfræði 203 stærðfræði 232 tölvufræði 103 vélritun þýsku 203 Þátttökugjald sem ákveðið er af menntamálaráðuneytinu greiðist við skrán- ingu. Gjaldið er hið sama fyrir alia án tillits til áfangafjölda. Aðstoðarskólameistari. fp Ú T B O Ð |p Tilboð óskast í innréttingar í B-álmu Borgar- spítalans. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Frí- kirkjuvegi 3, Reykjavík gegn 100 kr. skila- tryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað, fimmtu- daginn 20. janúar 1983 kl. 14. e.h. INNKAUPASTOFNUN REYK3AVÍKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 — Sími 25800 i vorönn 1983 dagana 5.-7. óngum ef næg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.