Þjóðviljinn - 06.01.1983, Síða 8

Þjóðviljinn - 06.01.1983, Síða 8
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 6. janúar 1983 Talsmenn innlendra framleiðenda hafa mótmælt:_________________ 35% innborgunarskylda á innfluttum húsgögnum hefur nú verið afnumin ið í gildi frá því 1. janúar 1982 og til 1. janúar 1983 eins og áður sagði. Sveinn Björnsson sagði að talsmenn innlendrar framleiðslu hefðu mótmælt afléttingu inn- borgunarskyldunnar en innflytj- endur hefðu hins vegar lýst yfir ánægju sinni. -óg Rætt við Ingvar Örn Hafsteinsson Með auglýsingu frá viðskipta- ráðuneytinu og Seðlabankanum hefur innhorgunarskyldu af inn- fluttum húsgögnum og innrétt- ingum verið allétt frá og með s.l. áramótum. Hér var um að ræða 35% innborgun af innlausnar- verði vöruskjala, sem var bundin í 90 daga en greiddir 34% vextir af innborguninni. Þetta verndar- gjald fyrir innlenda framleiðslu hefur mætt afskiptaleysi Efta og EBE, vegna þess að um tíma- bundið gjald er að ræða, sagði Sveinn Björnsson hjá viðskipta- ráðuneytinu í viðtali við Þjóðvilj- ann í gær. Innborgunarskyidan hefur ver- byggingariðnaðinum. Það virðist enginn stjórnmála- aðili þora að taka almennilega á þessu máli. Hjörleifur hefði fengið fjöldastuðning frá okkur hefði hann gengið frarn í þessu máli. Nú er bara spurningin hvort eigi að horfa á eftir fleiri greinum iðnaðar- ins fara í súginn af því enginn þorir að gera neitt, - sagði Ingvar Örn Hafsteinsson að lokunt. -óg Húsgagnasmiðir á námskeiði. innflutningi þeir ágætismenn. Þeir eru heildsalar meðan við erum iðnaðarmenn. Til dæmis flytur Da- víð Scheving, sá góði maður, inn appelsínusafa á tunnum, þá flytur hann inn umbúðir. Hérlendis er lítið annað gert en pakka vörunni inn. Það er ekki við þessa nienn að sakast, þeir gæta sinna hagsmuna sem eru einfaldlega aðrir en inn- lendra framleiðenda. - Menn bera fyrir sig samninga við Efta og EBE, en þau lönd sem flutt er inn frá eru einnig í þessum bandalögum. Þau nota niður- greiðslur og aðrar aðferðir til að styðja iðnaðinn í samkeppninni og við verðum að grípa til sams konar aðgerða. -Tómas Arnason lofaði okkur að fara með skýrslu um niöurgreiðslur í helstu viðskiptalöndum okkar til Efta-fundarins sem hann sótti. En það voru vomur á þeim og á end- anum þóttust þeir hafa týnt þessu. Allavega var ekki farið með þessa skýrslu til að styðja við bakið á inn- lendum framleiðendum. Svona eru nú vinnubrögðin ömurleg. - Það er verið að ganga af iðnaðinum dauðum. Fyrst var það teppaiðnaðurinn, síðan fata- iðnaðurinn og húsgagnafram- leiðslan og nú er röðin komin að eiga Úr húsgagnaverkstæði Ingvars og Gylfa (Ljósm. - eik). Það að gjaldið falli niður þýðir einfaldicga aukinn innflutning hús- gagna og innlendi iðnaðurinn rná ekki við því. - Mér er ómögulegt að skilja hversu ótrúlegt fjármagn liggur inni í Seölabankanum - tugir ntilj- óna í bindiskyldu. Það væri sér- stakt rannsóknarefni, því ég held að þetta væri ekki hægt nema með aðstoð erlendis frá. Þetta er stór ráðgáta, því þeir sem reka fyrirtæki vita hversu stór hluti veltunnar þyrfti í bindiskyldu viö eðlilegtir aðstæður. - Við sendunt viðskiptaráðherra bréf á sl. ári og fórum fram á að inn- borgunarskyldan yrði framlengd. Þannig að fyrst yrði hún hækkuð úr 35% í 40% en síðan yrðu Iagðir á tollar til mótvægis viö niður- greiðslur í þeim löndum sem varan er flutt inn frá. Enn frernur lögðum við til að binditíminn yrði lengdur í 4 mánuði. En því miður, svo virðist sem viðskiptaráðherra sé nteir í mun að halda útlendingunum gangandi en innlendri framleiðslu. Það er um líf og dauða fjölmargra framleiðenda að tefla. Erlendiseru allra handa niðurgreiðslur fyrir þessa vöru sem síðan er flutt hing- að inn, en hér er ekkert gert til að vernda innlendu framleiðsluna. - Félag íslenskra iðnrekenda? Þeir eru nú meir og rninna sjálfir í Iðnrekend- um ósárt um afnám innborgun- arskyldu Félag íslenskra iðnrekenda hefur ciginiega frekar verið á móti þessari innborgunar- skyldu, vegna þess að við telj- um að hún beri ekki tilætlaðan árangur, sagði Ólal'ur Davíðs- son framkvæmdastjóri hjá Fé- lagi íslenskra iðnrekenda er blaðið leitaði álits hans á niðurfellingu innborgunar- skyldn á iinfluttum húsgögn- um og in "éttingum. Sagði Olafur að iðnrekend- ur hefðu meiri trú á jöfnun skiiyrða atvinnuveganna heldur en verndaraðgerðum af þessu tagi. -óg Húsgagnaframleiðendur • •• / ••! mjog í vok að verjast - Það er ekki nema eitt sem skeður; fleiri og fleiri húsgagnaframleiðendur týna tölunni, sagði Ingvar Örn Hafsteinsson formaður félags húsgagna- og innrétting- aframleiðenda er Þj'v. innti'hann álits á afnámi innborg- unarskyldu innflytjenda.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.