Þjóðviljinn - 06.01.1983, Síða 9

Þjóðviljinn - 06.01.1983, Síða 9
Fimmtudagur 6. janúar 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9 LAUKURINN KÆTIR OG GRÆTIR sannarlega til margra hluta nyt- samlegur. Mörgum þykir hann ómissandi við matargerðina, baeði vegna bragðs og góðra á- hrifa, en hann hrcinsar innvtlin vel og rækilega. Og svo má nota hann tii margs annars, eins og dæntin hér á eftir sýna. En fyrst er að geta þess, að í hverjum hundrað grömmum af lauk eru 38 kcal, 17: grantm af prótcini, 0,1 gramm af fitu og 8,7 grömm af koivetnum. Og þá eru það nokkur húsráð tcngd lauknum: 1 Linconshire í Englandi cr til húsráð gcgn tannpínu. Taka á lauksnciðar og setja í fingur- björg sem síðan er sett á stóru tána á hinuni tannpínuþjáða. í Grænmctiskveri Iðunnar um laukinn segir nt.a. svo: „Enginn veit fyrir víst hver voru heimkynni villta ætt- föðurins. Ein kenningin er að hann haFi vaxið um alla Evrópu og Vestur-Asíu, en nær dáið út áður en steinöld hófst. Líklegra þykir þó, að laukurinn sé upp- runninn í Mið-Asíu. Vitað er að hann hefur verið ræktaður frá því sögur hófust, en er nú óþckktur í sinni upprunalcgu mynd.“ (Þetta síðasta þykur okkur dá- lítið fyndið. Hvað er svo sem þekkt ísinni upprunalegu mynd?) Hvað um það; laukurinn er svo Heilhveitibrauð og franskbrauð tílheyra vísitölubrauðfjölskyldunni og þau eiga að vera um 500 grömm að þyngd - annars eiga þau að lækka í verði í hlutfalli við þyngdina. Vísitölubrauð Rómvcrja lögöu rnikla áherslu á tvennt í sinni stjórnlist er aö almenningi Rómar sneri: brauð og leiki. Þótt brauðin skipti okkur ekki jafnmiklu máli og Rómverja til forna, er sjálfsagt að fylgjast vel meðvigtinni. Núgildandi verðerfrá 13. desember síöastliönum og er þannig: Rúgbrauð.seydd, 750 gr.................kr. 8.45 Maltbrauð, 675 gr.....................- 7.80 Sigtibrauð (normalbr.) 625 gr..........- 7.45 Franskbrauð, 500 gr...................- 8.10 Franskbrauð, 500 gr (formb.)..........- 8.85 Heilhveitibrauð, 500 gr...............- 8.20 Heilhveitibrauð, 500 gr (formb.).......- 8.95 Þyngd brauöanna miöast viö þau nýbökuö, en er þau kólna rýrna þau dálítið í vigt, en ekki á þaö aö nema miklu. Séu brauðin bökuö með annarri' þyngd en aö ofan greinir, skal verðleggja þau í hlutfalli við ofangreint verð. Þó er heimilt aö selja sérbökuö 250 gramma franskbrauð og heilhveitibrauð á kr. 4.55 í smá- sölu. Þá má bæta sannanlegum flutningskostnaöi viö hámarksverðiö á stööum, þar sem brauögeröir eru ekki starfandi. Hámarksálagning á brauðum, inn- lendum og innfluttum, er 16.4 prósent í smásölu. Vísitölubrauðin svokölluðu eru háð ströng- um verðlagsákvæðum, eins og fólki flestu er kunnugt. Verð þeirra skal miða við þyngd, og ákveður verðlagsráð hámarksverð í smá- sölu. Brauðin hafa fylgt mannkyninu lengi og verið mikilvæg undirstáða mataræðis fjölmargra þjóöa. í Róm til forna skiptu brauðin t.d. þaö miklu máli aö þeir bakarar, er uppvísir uröu að því að svindla á vigtinni, voru umsvifalaust teknir af Iffi. Keisarar Gamalt og gott ráö gegn vört- um er að nudda þær með lauk og grafa laukinn síðan í jörð. Þar rýrnaði laukurinn - og vartan mcð. Einu sinni var því trúað, að ef maður hefði lauk í vasanum vcrndaði hann gegn snákuin og nornum. Það var gömul þjóðtrú, að laukar drægju að sér sjúk- dóma. Settu menn því lauka ■ garðinn hjá sér þegar svarti dauði herjaði og ætluðu þeim að draga að sér allt smit í ná- grenninu. Stúlkur sem gátu ekki gert upp við sig hverjum þær skyldu giftast tóku lauka, jafnmarga og biðlarnir voru, og klóruðu nöfn þeirra á þá og röðuðu þcim síðan upp inn í reykháf. Laukurinn sem spíraði fyrst gaf svo til kynna hvern þær skyldu velja. Laukur undir koddanum á að kalla fram drauma um vcrðandi maka. Við ábyrgjumst ekkert af þess- um gömlu húsráðum. Hitt viljum við ábyrgjast, að langi ykkur til þess að losna við fýlu í kringuni ykkur, svo sem tóbaksfýlu, er ó- brigðult að skera lauk í tvennt og setja báða helniingana í vatn. Mun þá öll fýla hverfa svo að segja samstundis. Frönsk lauk- súpa Og hér kemur svo uppskrift af lauksúpu franskrar ættar - þekktri á öllum sælkerastöð- um heimsins. Hún er mjög cinföld, afar saðsöm og hress- andi; og yljar vel á kölduni dögum. Og innytlin verða tandurhrein. Uppskriftin er miðuð við þrjá til fjóra full- orðna meðalmatmenn. 1/2 kíló al' lauk 25 gr al' smjöri I lítri af kjötkrafti (notið annaðhvort sóputening eða dul't, en utan á umlniðunuin stendur liversu mikið skuli nota í 1 iítra af vatni) salt og pipar að smekk 25 gr al' liveiti l’armesan ostur, rilinn (hann fæst nú í nokkrum húðum; Annars má nota íslenskan hrauðost með góðum árangri). 1. Afhýðið laukana og skcrið í mjög þunnar sneiðar. 2. Bræðið smjörið í potti og setj- ið lauksnciðarnar útí. 3. Setjið þétt lok á pottinn og látið' krauma við mjög vægan hita í um það bil tuttugu mín- útur eða þar til laukurinn er orðinn mjúkur og gulleitur. Hristið pottinn öðru hverju svo ekki brenni við. Athugið að laukurinn má ekki brúnast - þá kemur af honum beiskt bragð, sem ekki er gott í þess- ari súpu. Það er því mikilvægt að hitinn sé ekki mikill á plöt- unni og fylgst sé með lauknum. 4. Uætið kjötkraftinum útí. 5. Krvddið með salti og pipar. Látið kraunia í þrjátíu mín- útur. 6. Biandið hvcitið með dálitlum kjötkrafti og hellið síðan út í súpuna. 7. Hrærið vel. Sjóðið í tiu mín- útur. 8. Setjið ofninn á 220 gráður. Ilellið súpunni í cldfasta skál, stráið rifnum osti yfir og látið inn í ofninn þar til osturinn brúnast (5-10 mínútur). 9. Berið fram með ristuðu brauðii Njótið heil!

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.