Þjóðviljinn - 06.01.1983, Side 11
Fimmtudagur 6. janúar 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
íþróttir
Umsjón:
Víðir Sigurðsspn
Ardiles. Getur ekki lcikið með Tottenham gegn Southampton um helgina
eins og ráð hafði verið gert fyrir.
Enska bikarkeppnin um helgina:
Ardiles ekki
með Tottenham
Argentínski knattspyrnu-
snillingurinn verður að láta sér
lynda og horla á næsta leik Totten-
ham í enska bikarnum á laugardag-
inn. Þá sækja Dýrðlingarnir frá So-
uthampton Lundúnarliðið hcim og
fyrir lcikinn var fastlcga gert ráð
fyrir að Ardilcs myndi leika með
Tottcnham, í fyrsta sinn frá því að
Falklandscyjastríðið var og hct.
Eftir að Falklandseyjadeilan var
komin í þann voða sem raun bar
vitni var Ardiles og félagi hans með
Tottenham-liðinu, Villa, ekki vin-
sælasti maður á Bretlandseyjum.
Stjórnarmenn Tottenham tóku
það til bragðs að „lána“ Ardiles
franska liðinu Paris Est Germ og
þar hefur hann leikið síðan. Hann
kom svo til sinna gömlu félaga rétt
fyrir jólin, en þar sem staðfesting á
endurnýjuðu keppnisleyfi hans
hafði ekki borist enska knatt-
spyrnusambandinu '/: mánuði fyrir
bikarleikinn, eins og lög gera ráð
fyrir, getur hann ekki leikið með
Tottenham á laugardaginn.
VS/hól.
Kanadamenn ítreka
Stjórnvöld í Kanada hafa ítrckað
unisókn sína um að fá að halda
næstu heimsmeistarakeppni í
knattspyrnu sem fram á að fara
1986. Eins og kunnugt er áttu Kol-
umbíumenn að halda úrslit keppn-
innar cn þcir féllu frá því, aðallega
af cfnahagslegum ástæðum.
Fjögur lönd hafa sótt um að
halda þessa keppni: Mexíkó,
Brasilía, Bandaríkin og svo, eins
og áður sagði, Kanada. Keppnin
hefur áður verið haldin í Brasilíu
1950 og í Mexíkó 1970. FIFA hefur
gert stjórnvöldum að ítreka um-
sóknir sínar og eru Kanadamenn
þeir fyrstu sem það gera. Slík ítrek-
un verður að hafa borist fyrir 14.
mars næstkomandi.
í apríl á þessu ári mun nefnd á
vegum FIFA heimsækja þau lönd
sem sækja um að fá að halda
keppnina og kynna sér allar að-
stæður. Ákvörðun um það hvar
keppnin skal haldin verður svo
tekin í Stokkhólmi 20. maí á þessu
ári.
VS/hól
Gústaf Baldvinsson
„kaiattspynuimaður
Isafjarðar”
ísfirðingar völdu sér knattspyrn-
umann ársins um jólaleytið og kom
titilinn í hlut Gústafs Baldvins-
sonar en hann lék allt síðasta
keppnistímabil með ísfirðingum og
átti drjúgan þátt í velgengni liðsins.
Mörg undanfarin ár hefur Gústaf
verið leikmaður með ÍBV, enda
Vestmannaeyingur.
-hól.
D eildarkeppnin
í badminton
Gústaf Baldvinsson „Knattspyrnu-
maður ísafjarðar 1982“.
haldin um helgina á Selfossi
Dcildarkeppni Badmintonsam-
bands íslands verður haldin um
hclgina í íþróttahúsinu á Selfossi.
Verður keppt í 1. og 2. deild. Hefst
keppnin á laugardag kl. 10 og verð-
ur haldið áfram á sunnudag kl. 10.
Allir bestu badmintonmenn
landsins munu mæta til leiks en
eftirtalin lið taka þátt í keppninni:
1. deild: KR, ÍAogTBR A-, B-, C-
og D-lið.
í 2. deild keppa 8 lið og eru þau
eftirtalin: BH, IBV, Selfoss, Ger-
pla, ÍA B-lið, TBR E-lið, Víkingur
og Valur.
-hól.
✓
Urskurður Alþj óðakörfuknattleikssambandsins:
Pétur ekki
hhitgengur með
landsliðinu!
Hann mun þó leika
tvo af þrem
landsleikjum íslands
um helgina
Það virðist ekki alvcg ætla að
verða átakalaust fyrir Pétur Guð-
mundsson, okkar besta körfuknatt-
leiksmann, að komast inní íslcnsk-
an körfuknattleik aftur. A sinuni
tíma voru áhöld um hvort I’étur
væri löglegur mcð íslcnsku ielags-
liði þar sem hann lék á síðasta
keppnistímabili í bandarísku at-
vinnumannadeildinni.
Eftir að Alþjóðakörfuknatt-
leikssambandið gaf ótvírætt svar
um að Pétur gæti leikið með ís-
lensku félagsliði. fór KKÍ að kynna
sér möguleikana á að Pétur léki
jafnframt með íslenska landsliðinu
í körfuknattleik. Nú hefur borist
svar um það mál frá Alþjóðakörfu-
knattleikssambandinu, FIBA, og
er það úrskurður sambandsins að
Pétur sé ekki hlutgengur með
landsliðinu.
Þetta mun þó ekki hafa teljandi
áhrif á leik íslendinga og Dana um
helgina, því að samningar hafa tek-
ist með körfuknattleikssambönd-
um þjóðanna þess efnis að Pétur
leiki tvo af þremur leikjum.
í fyrsta landsleiknum, sem háður
verður í Keflavík á morgun, föstu-
dagskvöld, leikur Pétur ekki, en á
hinn bóginn mun hann leika annan
leikinn í Laugardalshöllinni á
laugardaginn og þriðja leikinn sem
fram fer í Borgarnesi á sunnu-
daginn.
-hól.
PÉTUR GUÐMUNDSSON. Hann mun leika tvo af þrem landslcikjum sem
háðir vcrða við Dani um helgina.
Iþróttamaður ársins
útnefndur á morgun
Á morgun munu Samtök í-
þróttafréttaritara gangast fyrir
hinni árlegu útncfningu á Iþrótta-
manni ársins. I fyrra hlaut Jón
Páll Sigmarsson lyftingamaður
þcnnan titil sem samtökin hafa
veittallt fráárinu 1956. Vilhjálm-
ur Kinarsson hreppti titilinn þá óg
varð Iþróttamaður ársins fimm
sinnum eða oftar en nokkur ann-
ar. Hreinn Halldórsson hrcppti
þcnnan titil fjórum sinnum og
scnnilcga ekki oftar því hann hcf-
ur dregið sig frá keppni.
Það vekur athygli þegar listinn
yfir íþróttamenn ársins er
skoðaður, að undanfarin ár hafa
hinir kraftmeiri íþróttamenn
hlotið hann, þ.e. lyftingamenn
ellegar kastarar. Verður fróðlegt
að sjá hvort einhver breyting
verður þar á nú. Aöeiirs einu
sinni hefur kona verið útnefnd
íþróttamaður ársins, en það var
Sigríður Sigurðardóttir sem
leiddi íslenska kvennalandsliðið í
handknattleik til sigurs á
Norðurlandamótinu sem haldið
varí Reykjavík 1964. Listinn lítur
þannig út:
1956 Vilhjálmur Einarss. ÍR frj.íþr.
1957 Vilhjálmur Einarss. ÍR frj.íþr.
1958 Vilhjálmur Einarss. ÍR frj.íþr.
1959 Valbjörn Þorlákss. ÍR frj.íþr.
1960 Vilhjálmur Einarss. IR frj.íþr.
1961 Vilhjálmur Einarss. ÍR Irj.íþr.
1962 Guömundur Gíslas. ÍR sund
1963 Jón 1». Ólafss. ÍR frj.íþr.
1964 Sigríöur Siguröard. Val handkn.
1965 Valbjörn borlákss. ÍR frj.íþr.
1966 Kolbeinn Pálss. KR frj.íþr.
1968 Geir Hallsteinss. EH handkn.
1969 Guömundur Gíslas. ÍR sund
1970 Erlendur Valdimarss. ÍR frj.íþr.
1971 Iljalti Einarss. Fll handkn.
1972 Guöjón Guömundss. ÍA sund
1973 Guöni Kjartanss. IBK knattsp.
1974 Ásgeir Sigurvinss.
Staiid.Liege knattsp.
1975 Jóhannes Eövaldss. Celtic knattsp.
1976 Mreinn Halldórss. KR frj.íþr.
1977 ilreinn Halldórss. KR frj.íþr.
1977 ilreinn Ilalldórss. KR frj.íþr.
1978 Skúli Óskarss. UÍA lylt.
1979 Hreinn Halldórss.KR frj.íþr.
1980 Skúli Óskarss. UÍA lyfl.
1981 Jón Páll Sigmarss. KR lylt.
- hól.