Þjóðviljinn - 13.01.1983, Qupperneq 8

Þjóðviljinn - 13.01.1983, Qupperneq 8
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 13. janúar 1983 Raf eindabúnaður: Möguleíkar okkar eru mjög miklir Komið hefur í ljós að íslendingar geta nú selt til annarra þjóða sérþekkingu sína á sviði véla og rafeinda- búnaðar til frystihúsa. Sérfræðingar á þessu sviði hafa um nokkurn tíma unnið að smíði og uppsetningu slíks búnaðar fyrir íslensk frystihús með góðum árangri og nú er svo komið að sóst er erlendis frá. Fyrirtækið Framleiðni s.f. og Óðinn í Vestmannaeyjum hafa sem kunnugt er nýverið gert samn- ing við frystihús í Boston í Banda- ríkjunum um uppsetningu svona búnaðar þar. í tilefni af þessu ræddi Þjóðviljinn við Árna Bene- diktsson, framkvæmdastjóra Framleiðni s.f. og Jón Hjaltalín Magnússon verkfræðing, en hann er verkefnastjóri undirbúningsfé- lags rafeindaiðnaðarins á íslandi. Ásókn erlendis frá Til okkar hefur verið mikið leitað erlendis frá um hönnun, smíði og uppsetningu svona bún- aðar og á ég þá við bæði vélasam- stæður í frystihús og rafeindabún- að. En við höfum því miður ekki getað sinnt þessum beiðnum, vegna þess að við höfum haft meira en nóg að gera hér innanlands, við uppsetningu þessa búnaðar fyrir ís- lensku frystihúsin, sagði Árni Benediktsson framkvæmdastjóri Framleiðni s.f. Árni sagði að fyrirtækið væri það lítið að það annaði ekki meiru. Hann sagðist telja góða möguleika á því að stofna hér eitt stórt fyrir- tæki, er færi útí svona framleiðslu en þar verður að fara saman smíði tækja og véla í frystihúsin í beinu sambandi við framleiðendur rafeindatækjanna, þar sem ekki væri hægt að koma rafeindabún- aðinum við þau tæki sem fyrir eru í frystihúsunum. Ekki sagðist hann vita til að stofnun slíks fyrirtækis væri í deiglunni, en sagðist vita að menn hefðu áhuga á að koma þeirri íslensku sérþekkingu sem í þessu felst á markað erlendis. Þá benti hann ennfremur á, að ef eftir þessum búnaði þeirra á sviði rafeinda- tækj aframleiðslu til skipa og frystihúsa. — Rætt við Jón Hjaltalín Magnússon og Árna Bene- diktsson tækist að hefja útflutning á þessum tækjum, gæfi auga leið að þau yrðu ódýrari á heimamarkaði, sem eðli- lega á sér stað eftir því sem mark- aðurinn er stærri. Miklir möguleikar Jón Hjaltalín Magnússon, sagðist telja að við íslendingar ætt- um mikla möguleika á þessu sviði, bæði hvað varðar vélabúnað til frystihúsa og rafeindabúnað til þeirra og skipa, svo sem olíu- eyðslumælarnir hafa sýnt. Áðspurður um hvort mikill mark- aður væri erlendis fyrir þennan ís- lenska búnað, sagði hann svo vera, einkum í Kanada og Noregi þar sem hann taldi vera möguleika á stórum samningi. Það sem helst Millivog stæði í veginum fyrir því, að við gætum nýtt okkur þessa möguleika taldi Jón vera smæð fyrirtækjanna hér á landi. Vonandi stendur þetta til bóta, sagði Jón Hjaltalín, því að samtök 12 fyrirtækja á þessu sviði hafa fengið styrk frá Norræna iðntækn- isjóðnum til að þróa þessa tækni og það yrði síðan að ráðast af verkefn- um, hvort menn færu út í það að sameina mörg fyrirtæki í eitt stórt til að geta annað eftirspurn er- lendis frá. En þetta er sem sagt allt saman í fullum gangi hjá okkur og starfandi eru margir verkhópar á þessu sviði hér á landi, sagði Jón og hann benti ennfremur á að það væri samdóma álit manna sem þekkingu hefðu á þessum hlutum að í rafeindaiðnaði væru langmestir vaxtarmöguleikar af öllum greinum iðnaðar nú á tím- um. Þess vegna sagði Jón að menn vonuðust til þess að stutt yrði við bakið á þeim sem að rafeinda- iðnaði vinna hér á landi í komandi framtíð, þannig að sú sérþekking sem íslendingar búa yfir á þessu sviði gæti orðið dýrmæt útflutn- ingsvara. Það sem gert hefur verið hér á landi á þessu sviði og sá samningur við frystihús í Boston sem þegar liggur fyrir, sanna að Jón og Árni hafa á réttu að standa hvað varðar möguleika okkar íslendinga að gera okkur gildandi á þessu sviði erlendis. - S.dór Samvalsvél Rafeinda-pökkunarvog frá Framleiðni s.f.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.