Þjóðviljinn - 13.01.1983, Side 15

Þjóðviljinn - 13.01.1983, Side 15
RUV <9 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Gull í mund. 7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur Árna Böðvarssonar frá kvöldinu áður. 8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Morgun- orð: Sigurður Magnússon talar. 8.30 Forustugr. dagbl. (útdr.) 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Líf“ eftir Else Chappel Gunnvör Braga les þýð- ingu sína (6). 9.20 Leikfimi. Tilkynningar Tónleikar. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 Iðnaðarmál Umsjón: Sigmar Ár- mannsson og Sveinn Hannesson. 10.45 „Kórstelpan“ smásaga eftir Anton Tsjekhov Ásta Björnsdóttir ies þýðingu sína. 11.00 Við pollinn Gestur E. Jónasson velur og kynnir létta tónlist (RÚVAK). 11.40 Félagsmál og vinna Umsjón: Helgi Már Arthúrsson og Guðrún Ágústs- dóttir. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Fimmtudagssyrpa - Ásta R. Jóhannesdóttir. 14.30 „Leyndarmálið í Engidal“ eftir Hug- rúnu Höfundur lýkur lestrinum (13). 15.00 Miðdcgistónleikar Sveinn Sæmundsson blaðafulltrúi, rabbar við Sigmar B. Hauksson í kvöld. 15.40 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregn- ir. 16.20 Utvarpssaga barnanna : „Aladdín og töfralampinn“ Ævintýri úr „Þúsund og einni nótt“ í þýðingu Steingríms Thor- steinssonar. Björg Árnadóttir les (2). 16.40 Tónhornið Stjórnandi: Anne Marie Markan. 17.00 Djassþáttur í umsjá Jóns Múla Árna- sonar. 17.45 Neytendamál Umsjónarmenn: Anna Bjarnason, Jóhannes Gunnarsson og Jón Ásgeir Sigurðsson. 17.55 Tónieikar. Tiikynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. 19.40 Tiikynningar. Tónleikar. 20.00 Fimmtudagsstúdíóið - Útvarp unga fólksins Stjórnandi: Helgi Már Barða- son (RÚVAK). 20.30 Spilað og spjallað Sigmar B. Hauks- son ræðir við Svein Sæmundsson blaða- fulltrúa, sem velur efni til flutnings. 21.30 Gestur í útvarpssal 22.00 Tónleikar. 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 Við eld skal öl drekka Umsjónar- maður: Jökull Jakobsson. Þátturinn var' áður á dagskrá í janúar 1968. 23.05 Kvöldstund með Sveini Einarssyni. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. Fimmtudagur 13. janúar 1983'ÞJOÐVILJINN — SÍÐA 15 frá lesendum Námiö gengur seint Sveinn á fótunum skrifar: Töluverður illviðrisgarður hefur gengið yfir landið nú að undanförnu og gert mönnum lífið leitt og erfitt. Einkum hafa samgöngur farið úr skorðum og þá ekki hvað síst hér suðvestanlands og raunar víðar, þótt hljóðara hafi ver- ið um það. Nú má alltaf við því búast að svona hvellir komi, og mætti því ætla, að menn væru undir jrað búnir. En það er nú eitthvað annað hér í Reykja- vík. Strax á fyrsta morgni snjókomunnar æddu menn út á göturnar á hundruðunt bíla, fjölntörgum þeirra gjörsam- lega vanbúnum og ófærum til aksturs í ófærð, og auðvitað sátu þessir bílar fastir fyrr en stðar. Þau ferðalok máttu flestum vera fyrirfram ljós. Og hverju voru menn þá að bættari? Sjálfir komust þeir ekki leiðar sinnar, en ekki nóg með það, heldur stöðvuðu þeir einnig þá bíla, sent gátu Reiptog þó brotist áíram; töfðu, trufl- uðu og jafnvel stöðvuðu strætisvagnana. Niðurstaðan varð auðvitað sú, að fæstir komust neitt. Síðan verður, með ntiklum tilkostnaði, að moka þessa bíla upp þar sem þeir eru fenntir í kaf og draga þá í burtu svo að aðrir komist áfram. Ætlar þetta blessað fólk aldrei að átta sig á því að það býr á íslándi? Ætlar það aldrei að geta lært af reynslunni? Aðeins fyrir fjallgöngumenn Ingibjörg hringdi: Mig langar til þess að spyrja að því hvort við, gangandi vegfarendur, höfum engan rétt til þess að geta komist leiðar okkar um borgina? Ekki eru allir á einkabílum, sem betur fer liggur mér nú við að segja. Og strætisvagn- arnir nema auðvitað aðeins staðar þar, sem þeirn er ætlað að gera það. Fjölmargir verða því að ganga lengri eða skemmri vegalengdir. En hvar er fólki þá ætlað að ganga þessa dagana? Nú er öllum snjó af götunum mokað beint upp á gangstéttirnár, svo þær eru víða gjörsamlega ófærar öðrurn en fjallgöngu- mönnum. Það er eins og aðeins sé hugsaö urn þá, sem eru í bílunum. Við hin erum neydd til þess að ganga bara á götunni innan um alla bíla- Líklega hefðum við bara heldur átt að ganga. þvöguna, og þarf ekki orðurn að því að eyða hvað slíkt getur haft í för með sér. Eigum við. sem erum fótgangandi, ekki santa rétt til þess að koniast leiðar okkar og hinir, sem eru i bílunum? Fróðlegt væri að fá álit einhvers lögfróðs manns á því. 2 gátur Hann Sigurður sem útbjó fyrir okkur töluteikniþrautina sendir okkur líka tvær gátur sem við birt- um hér. 1) Hvaða fangi syngur alltaf glað- lega söngva? 2) Hvaða auga sér ekkert? (Z •nuunq t uuqánj (f :J<?as Núna höfum við um tvo möguleika að velja til að komast í gegnum völundar- húsið. Pað er ykkar að velja þann rétta og finna lausnina. o. K Siauriu^ r*/K»jVj»ta / Reyrja V' 8 Þessa töluteikniþraut sendi hann Sigurður Guðmundsson 8 ára gamall okkur. Við þökkum hon- um kærlega fyrir sendinguna um leið og við hvetjum ykkur öll hin til að senda Barnahorninu alls kyns efni, teikningar, sögur, myndir og þrautir.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.