Þjóðviljinn - 29.01.1983, Blaðsíða 3
Helgin 29. - 30. janúar 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Rafdeild
JL-hússins
auglýsir:
Fyrirliggjandi:
Barnaherbergisloftljos
10 gerðir
Bastljos og borölampar
15 gerðir
Þyskir kastarar.
einfaldir, tvofaldir og
þrefaldir
Rískulur (Ijos) margar stæröir
verö fra kr. 53.-
Holland-Electro ryksugur
1000,1100 og 1200 W
Aukiö urval rafbunaðar
Eigum gott úrval af snurum,
margir litir
Kaplar 1,5 - 16 q
Eigum 100 möguleika í perum
Eigum 100 móguleika i'perum
Helgi J. Halldórsson:
Sundrungar- o
sérgæðingspoti
Hvers konar sundrungar- og
sérgæðingspot er að heltaka þá sem
þykjast vera á vinstri væng stjórn-
mála? í lesendadálki blaðsins í gær
mátti lesa: „Sigurður Einarsson
vélskólanemi, félagi í ABR skrifar:
Niðurstöður fyrri umferðar forvals
ABR ollu mér vonbrigðum að und-
anteknu fyrsta sætinu. í sjálfum
verkalýðsflokknum finnst enginn
verkamaður né -kona, sem til
greina komu í þessu forvali.“ Og
einnig hefur verið orðað í dag-
blöðum að verkamenn hygðu á
sérframboð.
Hverjir eru þessir verkamenn nú
á dögum? Hafa ekki allir launþegar
svipaðra hagsmuna að gæta? Að
hvaða feyti er iðnaðarmaður meiri
verkamaður en t.d. þeir kennarar
sem sjá um uppfræðslu vélstjóra,
skipstjórnarmanna eða hinna
mörgu starfsstétta iðngreina? Að
vísu eru starfsstéttirnar misjafn-
lega vel launaðar og það er hin
sanna verkalýðsbarátta að
leiðrétta það misrétti og koma í veg
fyrir að það aukist. En láglauna-
Helgi J. Halldórsson
stéttir ná ekki betri árangri með því
að segja sig úr lögum við aðra.
Hverjir voru það sem á sínum
tíma börðust harðast fyrir rétti
verkamanna meðan hér voru raun-
verulegir verkamenn, kúgaðir erf-
Sveitarstjómar-
námskeið
í Ölfusborgum
Á mánudaginn kemur, 31. jan.,
efna Samtök sunnlenskra sveitarfé-
laga, í samvinnu við Samband ísl.
sveitarfélaga, til fræðslunámskeiðs
fyrir sveitarstjórnarmenn á Suður-
landi. Verður það haldið í Ölfus-
borgum og stendur í þrjá daga.
Verkefni á námskeiðinu verða
margvísleg svo sem sveitarstjórn-
arskipunin, fjárhagsáætlun, inn-
heimta og tekjustofnar og settur
verður á svið fundur í sveitarstjórn.
Framsögumenn á námskeiðinu
verða: Magnús E. Guðjónsson,
framkvstj.: Sveitarstj órnarskipun-
in. Páll Björnsson fulltrúi: Sýslufé-
lög og sveitarstjórnir. Hjörtur Þór-
arinsson framkvstj. SASS:
Landshlutasamtökin og hér-
aðsverkefni. Helgi Helgason,
bæjarritari: Undirbúningur að
gerð fjárhagsáætlunar sveitarfé-
Iaga. Birgir L. Blöndal skrifstof-
ustj.: Reikningsskil sveitarfélaga.
Garðar Sigurgeirsson viðskiptafr.:
Tekjustofnar sveitarfélaga og inn-
heimta sveitarsjóðsgjalda. Tölvu-
væðing sveitarfélaga og Launa-
nefnd sveitarfélaga. Jón R. Hjálm-
arsson, fræðslustj.: Fræðsluskrif-
stofan og sveitarfélögin. Hafsteinn
Kristinsson og Páll Lýðsson,
oddvitar: Sveitarstjórnarfundir,
þéttbýli, dreifbýli. Að sjálfsögðu
verða svo umræður um erindin og
fyrirspurnir í sambandi við þau.
Formaður stjórnar SASS er Jón
Þorgilsson, Hellu. -mhg
Skólasýning Ásgrímssafns
Hin árlega skólasýning Ásgríms-
safns hefur verið opnuð og stendur
yfir til aprílloka. Þriðju bekkjum
grunnskóla er boðin leiðsögn safn-
kennara í vetur. Heimsóknartímar
fyrir þá hópa eru mánudags- og
miðvikudagsmorgna og þriðjudaga
eftir hádegi, auk þess verður tekið
á móti öðrum hópum á opnunar-
tíma safnsins á fimmtudögum eftir
hádegi.
Á sýningunni er að þessu sinni
fjölbreytt yfirlit verka sem sýna
flest þeirra viðfangsefna sem Ás-
grímur Jónsson glímdi við. Þá geta
nemendur kynnst ýmisskonar
tækni myndlistarmannsins og séð
þær breytingar sem verða á list
hans á löngum ferli.
Heimsóknartíma skal panta með
a.m.k. viku fyrirvara hjá Sólveigu
Georgsdóttur safnakennara á
Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur
mánud. kl. 13.30-16.00 í síma
28544. Þá verður undirbúningsefni
sent um hæl. Grunnskólar Reykja-
víkur eiga þess kost að fá hópferða-
bifreið til safnferðarinnar sér að
kostnaðarlausu.
iðismenn? Það voru ekki eingöngu
verkamenn sjálfir heldur einnig
hugsjónamenntamenn, menn eins
og Jón Baldvinsson, HéðinnJiÆild-
imarsson, Einar Olgeirsson,
Brynjólfur Bjarnason, Sigfús Sig-
urhjartarson og fleiri. Ef verka-
menn segja sig úr lögum við hug-
sjónamenntamenn er þeim voðinn
vís.
Þeir sem valist hafa til forystu í
launþegahreyfingunni og oft hafa
fórnað persónulegum hagsmunum
eru alls góðs maklegir. Og það er
einn ljótasti bletturinn á misjöfn-
um ferli Vilmundar Gylfasonar
hvernig hann talaði um forystu-
menn launþegasamtakanna meðan
hann hafði aðstöðu til að nota Al-
þýðublaðið til að ata þá auri. Og
launþegar mega gjarnan hugleiða
hvernig hag þeirra muni komið
þegar Vilmundur er búinn að koma
á hinum „frjálsu samningum“ sem
hér ríktu fyrir fimmtíu til sextíu
árum eins og hann boðar nú - eða
þegar fólk er búið að kjósa sér í
almennum kosningum hinn
„sterka mann“ eins og gert er nú í
Bandaríkjum Norður-Ameríku og
Frakklandi.
Og svo er það kvennaframboðið.
Eru konur alveg vissar um að kon-
ur séu alltaf konum bestar hvernig
sem þjóðfélagsskoðanir þeirra
eru? Þær konur, sem vilja Íeggja
það á sig að taka þátt í félagsmálum
og fylgja fram þeim lífsskilningi og
þjóðfélagsafstöðu sem til heilla
horfir, eru alls góðs maklegar og
æskilegt að nýta starfskrafta
þeirra. Og mér skilst að af þeim sé
mikið val í röðum framboðsfólks
Alþýðubandalagsins bæði hér í
Reykjavík og annars staðar á
landinu. En mér er alveg sama
hvaða starfsstétt þær tilheyra ef
þær eru aðeins líklegar til að þoka
„rhannskepnunni" til betra og
sannara lífs.
Opnunartimi:
manudaga - midvikudaga kl. 9-18
fimmtudaga kl. 9-20
föstudaga kl. 9-22
laugardag kl. 9-12
J||
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121
Rafdeild
Sími 10600
LAUGAVEGUR 45