Þjóðviljinn - 29.01.1983, Side 4

Þjóðviljinn - 29.01.1983, Side 4
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 29. - 30. janúar 1983 stjórnmál á sunnudegi Elnhliða aðgerðir eru óhjákvæmUegar Nú á þriðjudaginn kemur, þann 1. febrúar, hækkar orkuverð frá Landsvirkjun til almenningsrafveitnanna í landinu um 29% og hlýtur slíkhækkun heildsöluverðsins óhjákvæmilega að valda verulegri hækkun þess smásöluverðs sem almennir notendur verða að greiða. Það er ótrúlegt en satt, að þessi hækkun orkuverðs frá Landsvirkj- un til almenningsrafveitna úr 50,7 aurum á kwh upp í 65,4 aura á kwh nemur hærri upphæð en svarar öllu orkuverðinu sem Alusuisse greiðir Landsvirkjun fyrir þá raf- orku sem álverinu er seld. Álverið borgar Landsvirkjun 12,1 eyri fyrir hverja kílówatt- stund, og þar verður engin hækkun á orkuverði um mánaðamótin, - en 29% hækkun til almenningsraf- vcitnanna gefur Landsvirkjun hins vegar ein sér 14,7 aura á hverja kílówattstund. Við borgum 850 milj- ónir. - Þeir 157 milj- ónir fyrir sama orku- magn Það eru um 1300gígawattstundir á ári, sem álverið kaupir hér af raf- orku og borgar fyrir þetta orku- magn 157 miljónir króna. Landsvirkjun selur almennings- rafveitunum líka 1300 gígawatt- stundir á ári. Fyrir þessa orku þurfa almenningsrafveiturnar hins vegar ekki bara að greiða 157 miljónir eins og Alusuisse heldur 660 milj- ónir króna á ári, miðað við verðlag nú í janúar. Síðan kemur hækkunin þann 1. 'febrúar, upp á 29%, og hún ein nemur 190 miljónum króna. Niðurstaðan er þá þessi: Landsvirkjun selur álveri Alu- suisse í Straumsvík um 1300 gíga- wattstundir af orku á ári og fær fyrir það 157 miljónir króna. Landsvirkjun selur almennings- rafveitunum í landinu líka 1300 gígawattstundir á ári og fær fyrir þetta orkumagn 660 miljónir króna á ári eins og verðið er nú, en 850 miljónir króna á ári, þegar hækk- unin kemur tii framkvæmda þann 1. febrúar, á þriðjudaginn kemur. Þetta eru nú viðskipti í lagi, eða hvað finnst lesendum? Dettur máske einhverjum í hug, að þarna sé um tvö óskyld mál að ræða, að orkuverðið til álversins hafi engin áhrif á orkuverðið til ís- lensks almennings? Væntanlega blasir hið augljósa samhengi við hverjum manni, við hverju barni. Allt bundið til 2014 Og hversvegna er verðmunurinn svona hrikalegur? Það er ekki vegna þess, að stjóm Landsvirkj- unar hafi sérstaka ánægju af því að féfletta almenning í landinu og færa fjármuni frá íslenskum heimil- um og íslenskum fyrirtækjum í gullkistur Alusuisse suður í Alpa- fjöllum. Ástæðan fyrir þessum hrikalega verðmun, fyrir þessum vaxandi fjárflutningum frá íslandi til Alu- suisse er önnur. Það eru þeir hrak- smánarlegu samningar, sem gerðir voru á árum „viðreisnarstjórnar- innar“ um orkusölu til Alusuisse. Samkvæmt þeim samningum, og viðbótarsamningi frá árinu 1975, þá á orkuverðið til álversins að haldast nær óbreytt til ársins 2014, hvað sem öllum hækkunum á öðru orkuverði hér innanlands eða ann- ars staðar líður. ,Að gefa og taka“ Þegar síðast var samið við Alu- suisse árið 1975 náðust sáralitlar lagfæringar fram, og það verður að segjast eins og er, að það sem þá vannst í Íítilsháttar hækkun orku- verðsins tapaðist aftur í þeim sömu samningum vegna breytinga á skattgreiðslum til móts við kröfur Alusuisse í þeim efnum. Að minnsta kosti kemur þetta svona út sé litið bæði á skattgreiðslur Alu- suisse hér og tekjur af orkusölu til fyrirtækisins þau ár sem liðin eru síðan samningar voru endur- skoðaðir 1975. Hér skal því ekki haldið fram, að íslensku samningamennirnir árið 1975 hafi ekki reynt það sem í þeirra valdi stóð til að ná fram frek- ari leiðréttingum. Það sem þá kom í veg fyrir ár- angur var hins vegar það grundvall- arviðhorf ráðamanna Alusuisse, að afsala sér aldrei neinu sem þeir hafi áður náð fram í samningum, nema fá á móti samsvarandi tilslök- un frá gagnaðila, þannig að auðhringurinn léti ekki af hendi meira en hann fengi að fullu bætt. - Á móti hærra orkuverði kæmu lægri skattar eða öfugt, svo dæmi sé tekið. Þessu sjónarmiði álfurstanna hafa menn líka fengið að kynnast rækilega í þeim samningum, sem nú hafa staðið yfir í tvö ár. Það heitir á máli auðhringsins, „að gefa og taka“ og felur í sér, að undir öllum kringumstæðum skuli hring- urinn sleppa a.m.k. skaðlaus frá nýjum samningum. Það er ekki síst af þessum ástæð- um, sem gömlu samningarnir frá „viðreisnarárunum" hafa reynst slíkt ok um háls okkar íslendinga sem raun ber vitni. Þar höfum við vítin til að varast. Peir heimta sitthvað í forgjöf Því sést haldið fram að núver- andi iðnaðarráðherra beri sök á því, að ekki skuli hafa tekist að knýja fram verulega hækkun orku- verðs í samningum við Alusuisse. Satt að segja er vart hægt að hugsa sér fjarstæðukenndari fullyrðingu. Þvert á móti hefur allt verið reynt sem unnt er af hálfu iðnaðarráð- herra til að fá fram lagfæringar með friðsamlegu móti. - En Alusuisse hefur aldrei fengist til að sam- þykkja einn einasta eyri í hækkun á orkuverði. Þeir hafa að vísu látið að því liggja, að athuga mætti möguleika á einhverri hækkun (máske sem svarar hálfum eyri?), ef íslensk stjórnvöld féllust fyrir- fram á nokkrar kröfur þeirra, svona í eins konar forgjöf í væntan- legum samningum!! 1 þeim efnum hefur Alusuisse ekki aðeins verið farið fram á stækkun verksmiðjunnar og meiri aðgang að þeim orkulindum, held- ur hefur þess líka verið krafist að Alusuisse fengi rétt til að kaupa bara helming umsamins orku- magns, þegar auðhringnum kynni að henta að reka verksmiðjuna á hálfum afköstum. Svo átti auðhring- urinn að geta kallað eftir hinum helming orkunnar á ný hvenær sem ráðamönnum hans þóknaðist. Hvernig halda menn að orkubú- skapurinn gengi nú til í okkar landskerfi, ef á þetta yrði fallist? Skyldi ekki verða að hækka enn verðið til almenningsrafveitna til að mæta tekjutapi af þessum ástæðum? Lœgsta verð á norðurhveli jarðar Raforkuverð til álvera í Vestur- Evrópu er að meðaltali um 40 aurar á kílówattstund. Raforku- verð til álvera í Bandaríkjunum er að meðaltali yfir 40 aura á kílówatt- stund. Alusuisse á eignaraðild að 13 álverksmiðjum í 8 löndum. Meðalorkuverð til þessara verk- smiðja er 37 til 38 aurar á kílówatt- stund. Fyrir skömmu var meðal- orkuverð til álvera í hciminum lið- lega 40 aurar á kílówattstund. All- ar þessar upplýsingar er að finna í niðurstöðum af vandlega unninni skýrslu, sem hópur færustu sér- fræðinga okkar á þessu sviði sendi frá sér á síðasta ári. Ragnar Halldórsson, forstjóri álversins í Straumsvík hefur haldið því fram, sem vel má vera rétt, að meðalorkuverðið hafi lækkað nokkuð síðustu mánuði vegna erf- iðleika á álmörkuðum. í plaggi sem forstjórinn sendi fjölmiðlum um síðustu áramót viðurkennir hann Kjartan Ólafsson skrifar þó, að meðalverð á orku til álvera í heiminum sé yfir 30 aurar. Hér er verðið hins vegar 12 aurar! Allir frestir runnir út Það er með öllu óþolandi fyrir okkur íslendinga að sæta lengur þeim afarkjörum sem felast í þess- um gömlu samningum. Þeim verð- ur að breyta með einhliða aðgerðum fyrst friðsamlegt sam- komulag er ekki í boði. Við höfum áður tekið mál í okkar eigin hendur í viðskiptum við erlent vald og er þar skemmst að minnast útfærslu landhelginnar. Allir frestir eru runnir út. Það er ekki hægt að horfa upp á það, að orkuverð til almenningsraf- veitna, og þar með til almennra notenda sé hækkað upp úr öllu valdi, nær nífaldað á rösklega þremur árum svo Alusuisse geti fengið nær helming allrar orku- framleiðslu okkar fslendinga á lægra verði en nokkurs staðar þekkist £ þróuðum löndum í við- skiptum óskyldra aðila. Og að sjálfsögðu fer ástandið alltaf versnandi verði samningun- um ekki breytt. Meira en fimmfaldur verðmunur Fyrir rösklega þremur árum, í ársbyrjun 1980, þá var orkuverð til almenningsrafveitnanna þrisvar sinnum hærra en verðið til álvers- ins. Nú verður það meira en fimm- falt hærra. Allur nýr kostnaður hleðst á orkusöluna til innlendra aðila, en Alusuisse býr að samn- ingnum við „viðreisnarstjórnina". Frá 1. janúar til 1. febrúar 1983 hækkar orkuverð til almennings- rafveitna um 774%, en orkuverð til álversins hækkar helmingi minna á sama tíma, og aðeins vegna gengis- breytinga. Eins og áður sagði, þá verða almenningsrafveiturnar nú (frá 1. febrúar n.k) að greiða 850 miljónir króna á ári fyrir_1300 gígawatt- stundir af raforku frá Landsvirkj un, en álverið greiðir hins vegar aðeins 157 miljónir króna fyrir sama orkumagn. - Með þessu móti fær Landsvirkjun Iiðlega 1000 milj- ónir króna samtals fyrir þessar 2600 gígawattstundir á ári. Af þessum liðlega 1000 miljónum króna gefur orkusalan til Alusuisse aðeins tæp 16%, en orkusalan til almenningsveitnanna hins vegar 84%, þótt orkumagnið sé hið sama. Að dómi allra óvilhallra og sér- fróðra manna, þá er þessi skipting með öllu fráleit, og samkvæmt niðurstöðum sérfræðingahóps frá iðnaðarráðuneyti, Landsvirkjun, Orkustofnun og Rafmagnsveitum ríkisins þá ætti orkuverð til stóriðju að veraa.m.k. 65% aforkuverði til almenningsveitna, og hefur þá fullt tillit verið tekið til mismunandi nýtingartfma og mismunandi spennu. Miðað við þessa viðmiðun ætti Alusuisse að borga rösklega 400 miljónir króna fyrir sínar 1300 gígawattstundir á ári í stað 157 miljóna sem nú eru greiddar. Og almenningsrafveiturnar ættu þá að borga um 600 miljónir króna á ári fyrir sínar 1300 gígawattstundir í stað 850 miljóna króna nú. Erum við nýlenda eða sjálfstœtt ríki? Það eru því að minnsta kosti 250 miljónir króna á ári, sem Alusuisse eru færðar á silfurbakka úr vösum almennings á íslandi, enda svo komið að hér er orðið jafn dýrt að hita upp húsnæði með rafmagni eins og olíu. Við okrum á sjálfum okkur til að geta reitt fram 250 miljónir króna á ári (vægt reiknað) í beinan skatt til Alusuisse. Það er andvirði 250 Framhald ál3. siöu. Við borgum nú Alusuisse í skatt andvirði 1000 Ibúða á 4 árum 65,40 aurar Myndritið sýnig hvernig skattgreiðslan frá íslenskum almenningi til Alusuisse hefur þyngst ár frá ári. 23,70 aurar 14,27 aurar 7,48 aurar 2,45 aurar 4,05 aurar 1980 1981 50,70 aurar 11,77 aurar 12,13 aurar 1983 1983 Þetta súlurit sýnir hvernig verðið á raforku frá Lands- virkjun hefur hækkað frá 1. janúar 1980 til 1. febrúar 1983. Neðri hluti súluraðarinnar er litaður og sýnir hvernig orkuverðið sem álverið í Straumsvík greiðir hefur breyst. Til samanburðar sjá menn svo hvernig orku- verð til almenningsrafveitna í landinu hefur hækkað á sama tíma. Á þessum rösklega þremur árum hefur orkuverð til almenningsrafveitnanna nær nífaldast, en orkuverð til álversins hefur á sama tíma hækkað nær helmingi minna. Fyrir þremur árum greiddu almenningsraf- veiturnar þrefalt hærra verð en álverið, - nú um næstu mánaðarmót verður verðmunurinn meira en fimmfaldur. Þannig þyngist stöðugt sá skattur, sem íslenskur al- menningur greiðir til Aiusuisse

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.