Þjóðviljinn - 29.01.1983, Síða 10
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 29. - 30. janúar 1983
busyslan
í dyragœttinni
Öðru vísi kojur
Til þess aö stofna
brúðuleikhús þarf ekki annað
enþettatil:dúkureða
efni af hæfilegri stærð
gardínustöngogdyr.
Klippið efnið þannig
hyljiu.þ.b. helmingdyranna.
Faldið það þannig að hægt sé
að stinga gardínustönginni inn
í. Biddu barnið að sitja á
gólfinu og klipptu op í réttri
hæð. Klipptu gluggann út og
límdu breitt límband á
brúnirnar. Láttusíðan lítið
tjaldfyriropið(á
teikningunni er sýnt hvernig
hneppa má tjaldinu).
Þræddu efnið upp á
gardínustöngina, stingdu
henni í dyrakarmana - og
gamanið byrjar! -ast
Kojur hafa alltaf sterkt aðdráttarafl á krakka. Þau geta ólmast í
þeim daglangt við allskyns leiki og svo er spennandi að sofa í
þeim. Kojur búa yfir góðri lausn þar sem húsakynni eru þröng en
börnin mörg.
Flestar kojur eru þannig úr garði gerðar, að vera eins og tveggja
hæða rúm. Auðvitað skapast við það stærri gólff lötur, en ekki er
þar með sagt að ekki megi bregða frá hefðinni. Hér má sjá þrjár
stórgóðar hugmyndir um kojusystem, þar af eru tvær þeirra
byggðar á hugmyndinni um tveggja hæða rúmið. En sjáið bara
hvað þetta eru notalegar kojur! - ast
Völundarhús
fyrir börn
Ekki er amalegt að eiga leikfang sem breyta má úr
völundarhúsi í leikhús og síðan skerm til að afþilja horn í
herberginu - eða hvað annað sem vera skal.
Þetta er tiltölulega auðvelt í tilbúningi. Það má annaðhvort búa til úr
sterkum pappaspjöldum eða froðuplasti. Stærðinni ræður fólks sjálft.
Opin eru skorin út, sterkt límband límt á aliar brúnir til styrktar og
síðan eru límdar saman tvær plötur. Teikningin sýnir nokkuð margar
plötur, sem leggja má saman eins og harmonikku.
Leyfið börnunum að mála á plöturnar eða líma á þær myndir til skrauts
(sé frauðplast notað þarf að bursta yfir plöturnar með klút til þess að
límist við þær). -ast