Þjóðviljinn - 29.01.1983, Blaðsíða 19

Þjóðviljinn - 29.01.1983, Blaðsíða 19
Hclgin 29. - 30. janúar 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 19 áttusöng nazista). Hálfum mánuði fyrir kosn- ingar gaf Göring út skipun til prússnesku lög- reglunnar um að beita sér af hörku gegn öll- um „marxistískum samtökum“. Var því dyggilega hlýtt, enda hafði hann unnið mark- visst að því að skipa í æðri stöður innan lög- reglunnar alræmda stormsveitarmenn. Upp úr miðjum febrúar voru um 50 þús. storm- sveitarmenn vopnaðir sérstaklega og skip- aðir sem aðstoðarlögregla. Gefur þá að skilja hvílíkt skaðræðistæki lögreglan var orðin í höndum stjórnarinnar. Útifundur hjá kommúnistum; verkalýðsflokkarnir höfðu sóað kröftum í innbyrðis fjand skap. Þinghúss- bruninn Nazistar biðu nú eftir hagstæðu tækifæri til að gera út af við verkalýðshreyfinguna, en þór fyrst og fremst Kommúnistaflokkinn. Strax er líða tók á febrúarmánuð birtust ráðstafanir, sem takmörkuðu aðstöðu komm- únista til blaðaútgáfu og fundahalda, fund- um þeirra og sósíaldemókrata var hleypt upp, skotárásir, áflog, handtökur, húsrann- sóknir, símahleranir og eftirlit með mönnum voru daglegt brauð. 24. febrúar ruddust brúnstakkarnir inn í aðalstöðvar kommún- ista í Karl-Liebknecht-húsinu við Búlowtorg í Berlín og lögðu hald á skjöl flokksins. Einsk- is var látið ófreistað til að hræða menn til fylgis við stjórnina, og helzt hefðu nazistar að sjálfsögðu viljað láta banna alla starfsemi andstæðinganna. Þar sem Þjóðernisflokkur- inn þorði ekki að stíga svo afdrifaríkt skref gegn lýðræðinu í landinu og setti sig því að sögn gegn slíkum tillögum af nazista hálfu innari ríkisstjórnarinnar, bendir allt til þess, að nazistar hafi bruggað launráð í því skyni að skapa átyllu til slíkra aðgerða. Viku fyrir kosningar barst hún upp í hendur þeirra og þeir hófust handa gegn kommúnist- um. Þetta var þinghússbruninn í Berlín. Að kvöldi 27. febrúar bar logana við himin og er lögreglan kom á vettvang, greip hún hollenskan mann, Marinus van der Lubbe, sem áður fyrr hafði verið í tengslum við komm- únista, og kom nánast fram eins og fáráð- lingur; var hann sakaður um íkveikjuna að undirlagi Kommúnistaflokksins. Sögðu naz- istar þetta vera bendingu kommúnista til þjóðarinnar um að bylting væri hafin. For- ingjar nazista voru óðara komnir á vettvang þetta kvöld, - annars höfðu þeir verið á stjórnmálafundum víðsvegar í landinu næstu daga á undan og voru það næstu daga á eftir. | Hitler gaf þá yfirlýsingu á staðnum, að brun- inn væri „teikn af himnum sent“, og nú gæti ekkert hindrað nazista í að berja kommún- istana niður með harðri hendi. Daginn eftir var svo Ernst Torgler, þingflokksmaður kommúnista, handtekinn, er hann gaf sig fram af fúsum vilja við lögregluna til að tala máli sínu; auk þess voru handteknir búlgarski útlaginn Georgi Dimitrov og tveir samlandar hans. Voru þessir menn ásamt van der Lubbe sakaðir um að vera brennuvargarnir; þeir voru þó sýknaðir af Ríkisréttinum í Leipzig um haustið að undanteknum van der Lubbe, sem tekinn var af lífi. Það varð hægur leikur fyrir nazistana í öllu því uppnámi, sem þinghússbruninn olli og nteð stærstu fjölmiðlana í sínum höndum, að blekkja almenning enn frekar til fylgis við sig með því að láta hann standa í þeirri trú, að hér væri hryðjuverk bolsévismans lýðum ljóst. fylgi. Þeir bættu við sig 5 72 milj. atkvæða, hlutu 17,3 milj. (43,9%) og komust upp í 288 þingmenn, en þrátt fyrir allt ekki hreinan meirihluta. Samstarfsflokkur nazista, Þýzki þjóðernisflokkurinn, jók litlu einu við sig, fékk 3,1 milj. atkvæða (8,0%) og sömu þing- mannatölu, 52. Loks skapaðist því starfhæfur meirihluti á ríkisþinginu eftir langvinna þing- ræðiskreppu. Þýzki miðflokkurinn hlaut örlitla viðbót eða samtals 4,4 milj. atkvæða (11,2%) og 74 þingmenn; Bæverski þjóðarflokkurinn stóð svo til í stað með 1,1 milj. atkvæða (2,7%) og 18 þingmenn. Sósíaldemókrataflokkurinn hélt sínu fylgi að mestu, 7,2 milj. atkvæða (18,3%) og 120 þingmenn. Kommúnista- flokkurinn hafði ekki enn verið formlega | bannaður og fékk að taka þátt í kosningun- um; þrátt fyrir hinar miklu ofsóknir og of- beldisaðgerðir gegn honum, náði hann 4,8 milj. atkvæða (12,3%, tapaði rúmlega 1 milj.) og 81 þingmanni. Aðrir flokkar fengu ekki umtalsvert fylgi. Þar sem þingkosningar þessar voru langt frá því að mega kallast frjálsar, enda haldnar í skugga ógnarstjórnar, má þó furðulegt kall- ast, hversu mikið fylgi komst til skila hjá verkalýðsflokknum eins og raun bar vitni. Og vert er að leggja áherzlu á þýzku þjóðinni til málsbóta, að meirihluti hennar hafði hafnað Nazistaflokknum. En hvernig sem á málin var litið, höfðu nazistar styrkt aðstöðu sína stórlega frá valdatöku Hitlers 30. janúar, enda neyttu þeir óðara færis, er kosningarnar voru um garð gengnar. Samstarfsmenn þeirra misstu gersamlega tökin á „bandingja" sínum, sem þeir höfðu talið vera. Ófreskjan, sem þeir leystu úr búrinu 30. janúar, lék nú lausum hala. Kommúnistaflokkurinn var formlega bannaður 7. marz, eignir hans gerðar upp- tækar, flokksmenn hans ýmsir og foringjar handteknir eða fóru landflótta. Þar með var þingmönnum hans óheimil seta í ríkisþing- inu, og áhrif flokksins voru gersamlega þurrkuð út í hinu þýzka þjóðfélagi. Enn um skeið fékk Sósíaldemókrataflokkurinn að starfa með brandinn hangandi yfir höfði sér,' en þó voru öll blöð hans bönnuð 14. marz. A kosningafundum víða í Þýzkalandi kosmt Hitler m.a. svo að orði: „Ég bið þig þess þýzka þjóð, að þú eftir að hafa veitt hinum tækifærið í 14 ár, veitir okkur 4 ... Það sem ég krefst er eðlilegt og sanngjarnt, aðeins 4 ár fyrir okkur, síðan má draga ályktanir og kveða upp dóminn. Ég mun ekki flýja til útlanda, ég mun aldrei reyna að komast undan dómnum." Síðustu kosningarnar Daginn eftir þinghússbrunann, 28. febrú- ar, fékk ríkisstjórnin Hindenburg forseta til að rita nafn sitt undir „Tilskipun um ráðstaf- anir til verndar þjóð og ríki“ - „varnarráð- stöfum gegn ofbeldisverkum kommúnista“, eins og það var orðað. Á grundvelli 48. grein- ar stjórnarskrár voru numin úr gildi ýmis rétt- indi, sem stjórnarskráin tryggði þegnunum: Takmörkun persónufrelsis og frjálsrar skoðanamyndunar, þ.á.m. prentfrelsis, fundafrelsis, heimild til eftirlits með pósti og síma, húsrannsókna og eignaupptöku, enn- fremur heimild til að yfirtaka allt vald f ein- stökum fylkjum (,,lánder“) ríkisins og inn- leidd dauðarefsing fyrir landráð, morð í- kveikjur og skemmdarverk, sömuleiðis dauðarefsing eða ævilöng þrælkunarvinna fyrir samsæri um að myrða ráðherra og til- raunir til að rjúfa frið. Með þessari aðför að öryggi þegna ríkisins hafði Hitler skapað sér frjálsa leið til hvers konar aðgerða gegn andstæðingum sínum, sem nazistum þótti henta, enda skammt til þess að bíða, að ógnaröld ríkti í landinu. Gífurlegar ofsóknir hófust gegn báðum verkalýðsflokkunum, fyrst og fremst komm- únistum, blöð flokksins og fundahöld bönnuð og þúsundir manna handteknar og settar í fangabúðir. Við þessi skilyrði, sem hér hefur verið lýst, fóru þingkosningar fram 5. marz, hinar síð- ustu kosningar á borgaralega vísu í Þýzka- landi um langt skeið. Að sjálfsögðu voru hæg heimatökin hjá nazistum í skjóli ríkisvalds og yfirburðaaðstöðu til áróðurs að vinna aukið Á örfáum árum hafði Hitler brotið allar stofnanir og samtök undir flokk sinn: hér ekur hann til flokksþings 1935. Hér var Hitler að víkja að næsta skrefi sínu: Að tryggja nazistum einræðisvald í 4 ár með því að heimila ríkisstjórninni vald til lagasetningar, án þess ríkisþingið ætti þar hlut að máli, sem sagt lokaáfanginn á þeirri leið að nema Weimarstjórnarskrána frá 1919 úr gildi. En ef lagalegri hulu ætti að sveipa um slíka stjórnarskrárbreytingu var það áskilið, að samþykkt hennar krefðist 2/3 hluta þing- manna ríkisþings, eða a.m.k. 432 þingmanna af 647 alls, sem þar áttu nú sæti. Þar sem stjórnarflokkarnir, nazistar og Þjóðernis- flokkurinn, réðu ekki yfir fleiri sætum en 340, þurfti að koma til stuðningur frá öðrum flokkum. Alrœðisstjórn Lagafrumvarp Hitlers um alræðisvald ríkisstjórnar hans næstu 4 ár var samþykkt á fundi ríkisþingsins í Krollóperunni í Berlín 23. rnarz með 441 atkv. gegn 94. Úrslitin réðust með þeim hætti, að borgaralegu flokk- arnir treystu sér ekki til annars en styðja lögin og munaði þar mest um fylgi kaþólsku flokk- ana, Miðflokksins og Bæverska þjóðarflokks- ins. Þannig var frumvarpinu tryggður til- skilinn meirihluti. í vanmætti sínum afhentu þeir Hitler þegjandi og hljóðalaust allt vald hinnar Iýðræðislegu löggjafarsamkomu Weimarlýðveldisins.e.t.v. íþví trausti, að lífi forystumannanna og samtakanna yrði þyrmt. Sósíaldemókratar, sem til þings komust (margir voru fangelsaðir eða flúnir land), greiddu einar atkvæði á móti, þar sem þing- menn kommúnista mættu ekki til leiks, enda flokkur þeirra bannaður. Með samþykkt frumvarpsins var alræði nazista komið á undir lagalegu yfirskyni að því er menn töldu sér trú um. Þýzka ríkis- þingið var knúið til að gera sig að óvirkri stofnun, og á næstu árum var það sjaldan kvatt til funda og þá einvörðungu til að hlýða á boðskap foringjans og syngja baráttusöng nazista, svo að í almenningsmunni var það oft nefnt „dýrasti karlakór í heimi“! Þótt vald Hindenburgs ríkisforseta ætti að heita óskert, lét hinn aldni prússneski junkari lítt átalið, að troðið væri á mannréttindum og lýðræði og að stjórnarskráin, sem hann hafði svarið þess eið að halda, væri numin úr gildi, enda elliær að kalla og helztu trúnaðarmenn hans leikbrúður í höndum nazista. Mikilsverðum hindrunum hafði verið rutt úr vegi Adolfs Hitlers til þess að móta þýzka ríkið í sínum anda og að því marki stefndi hann sigurviss jafnskjótt og dyrum Kroll- óperunnar hafði verið lokað að kvöldi 23. marz. Næstu vikur voru ofsóknir gegn andstæðing- uin í fullum gangi, þúsundum saman voru Gyðingar og kaþólskir menn, sósíaldemó- kratar og kommúnistar, friðarsinnar og borg- aralegir lýðræðissinar handteknir og lok- aðir bak við lás og slá í hinum alræmdu fanga- búðum („Konzentrationslager"), sem stofn- settar voru víðs vegar unt Þýzkaland og í þernumdum löndum síðar; nöfn þeirra vekja upp hrylling í huga mannkyns: Belsen, Buch- enwald, Dachau, Ravensbrúck, Sachsen- hausen, Auschwitz, - og er þá ekki allt upp talið af útrýmingarbúðum nazista. Hinn 14. júlí birti ríkisstjórnin lög um það, að Nazistaflokkurinn væri eini löglegi flokk- urinn í Þýzkalandi og tilraun til að skipu- leggja starfsemi annarra flokka eða mynda nýja varðaði a.m.k. þriggja ára fangelsi eða þrælkunarvinnu. Þannig hafði Hitler komið allri andstöðu endanlega á kné, og mennirn- ir, sem þóttust ætla að beita honum fyrir vagn sinn urðu sjálfir dráttardýrin, sem hann- pískaði áfram. Og þessi flokkur, sem skreytti sig nafninu „þjóðlegi, sósíalistíski, þýzki verkamannaflokkurinn", brást ekki auðjöfr- unum, sem höfóu reytt í hann fjármagnið á úrslitastundum, því að kapítalistískt hagkerfi varð sú undirstaða, sem þýzka ríkið byggði á í atvinnu- og efnahagsmálum. Atvinnuleysið var að vísu leyst að miklu leyti með miðstýrðum stjórnaraðgerðum, en drjúgur hluti vinnuaflsins fór í hergagnaverksmiðjur Krupps og herinn til að undirbúa kross- ferðina gegn kommúnismanum og hinum borgaralegu lýðræðisríkjum, þar sem tug- miljónum Þjóðverja var fómað á altari hug- sjónar Hitlers um athafnasvið handa hinum göfuga kynstofni (,,Lebensraum“). 1 öllum greinum, efnalegum sem andlegum, varð ríkjandi sú samræmingar- eða einstefna naz- ista, sem kölluð var „Gleichschaltung“, þ.e. allt þjóðlíf, samtök og stofnanir, sveigt undir yfirstjórn nazista. Hinn 10. maí 1933 héldu nazistar opinbera bókabrennu í Berlín, þar sem ritverkum helztu skálda Þýskalands var varpað á bálið. Fjöldi þessara höfunda hafði þá þegar flúið land og í kjölfarið fylgdi síðan svipting borg- araréttar fjölmargra manna, sem lengi höfðu borið hátt hróður þýzkrar menningar, þ.á m. Nóbelsverðlaunahafimna Alberts Einsteins og Thomasar Manns. Algert svartnætti grúfði yfir þýzku þjóðinni, - leið Hitlers til tortímingar var orðin greiðfær. En miljónum saman hrópaði múgurinn til foringja síns: „Leiðtogi, skipaðu fyrir, - við fylgjum þér!“

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.