Þjóðviljinn - 29.01.1983, Side 21

Þjóðviljinn - 29.01.1983, Side 21
_____________________ Helgin 29. - 30. janúar 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 21 sliák Áskorendaeinvígin — V grein: Smyslov að tafli árið 1956. Enski skákmeistarinn Golomberk er í baksýn. V asily Smyslov Meira en 25 ár eru síðan hann varð heimsmeistari Þegar Vasily Smyslov tryggöi sérþátttökuréttí Áskorendakeppninni sem senn fer aö hefjast, með því að ná 2. sæti á millisvæðamótinu í Las Palmas á liðnu sumri, þá voru um 25 ár síðan hann'vann Mikhael Botvinnik í einvígi og öðlaðistviðþað titilinn „Heimsmeistari í skák“. Smyslov hefur því öll þau metorð sem þátttakendurnir í Áskorendakeppninni sækjast eftir, að heimsmeistara Karpov meðtöldum. Nafn hans verður skráð á spjöld skáksögunnar. Þegar möguleikar hans í einvígj- unum eru vegnir og metnir, er ekki einasta óhjákvæmilegt að gera samanburð við afrek hans á 6ta ár- atugnum, heldur einnig að skoða þátttöku hans í allt öðru ljósi en annarra keppenda. Þannig hvarflar það ekki að undirrituðum að Smyslov sé að gera sér alltof háar hugmyndir um eigin möguleika. Tap eða sigur skiptir hann ekki öllu máli, og því kann að virðast mót- sagnakennd sú fullyrðing, að ein- mitt það atriði geri hann hættulegri en velflesta aðra keppendur, ef Kasparov og Beljavskí eru undan- skildir. Smyslov sem verður 62 ára á þessu ári getur gengið til leiks í fulkominni ró, í hjarta sínu fagnað og undrast yfir því að vera kominn svona langt (það var nú aldrei meiningin) og teflt án þess að eiga það á hættu að ofbjóða taugakerfi sínu. Slíkt hið sama verður ekki sagt um suma kandídatana. Robert Hiibner hefur tvívegis hætt keppni í einvígi vegna ofreynslu á taugum. Zoltan Ribli er heldur ekki alltof sterkur á taugum. Undirritaður minnist t.d. síðustu umferðar Ol- ympíumótsins á Möltu, þegar ís- lendingar mættu Ungverjum í geysilega þýðingarmikilli viður- eign hvað varðaði efsta sætið. Ribli tefldi við Jón L. Árnason og hrein- lega nötraði allur á meðan á skák- inni stóð, þó einkum á síðustu mín- útum hennar. Harry Kasparov er oft afar taugaspenntur og hefur ólíkt mörgum sovéskum stórmeist- urum ekki fundið aðferð til þess að fela óstyrk sinn. Portisch er ró- legur og yfirvegaður á yfirborðinu, og það sama má segja um Kort- snoj, Beljavskí og Torre. Einvígin þrjú við Botvinnik Það er ýmislegt sem bendir til þess, að á árunum 1950-1958 hafi Smyslov verið sterkasti skákmaður heims, og þó hélt hann heimsmeistaratitlinum í aðeins eitt ár. Smyslov hafði orðið í 2. sæti í heimsmeistarakeppninni 1958, en keppni sú var haldin tveim árum eftir að Aljékín andaðist. Á þess- um tíma efaðist enginn um yfir- burði Botvinniks yfir aðra skák- menn; en skákin þróast hratt, og á meðan Botvinnik varði næstu árum í verkefni óskyld skáklistinni, tefldi Smyslov, og reyndar flestir af sterkustu skákmönnum Sovétríkj- anna, s.s. Keres, Bronstein, Bol- elsavskí og Kotov, í hverju skák- mótinu á fætur öðru. Botvinnik fékk að vísu frí frá vinnu einn dag í viku hverri, miðvikudag, til að helga sig skákrannsóknum, en það sýndi sig þegar hann sneri að skák- borðinu aftur að honum hafði hrakað talsvert. í Áhorfendakeppn- inni 1951 kom fyrsta tækifæri Smyslovs til að öðlast réttindi til að heyja einvígi við Botvinnik. Hann hafði ekki erindi sem erfiði. 10 stórmeistarar tefldu tvöfalda um- ferð og eftir urðu Bronstein og Bol- eslavskí, en Smyslov varð að gera sér 3. sætið að góðu. Bronstein vann svo Boleslavskí í einvígi sem ákvarðaði áskoranda Botvinniks, en tókst þó ekki að hrinda Botvinn- ik af stóíi. Þeir tefldu 24 skákir og skildu jafnir, 12:12. í Áskorendamótinu í Zurich 1953 var tími Smyslovs kominn. Rólegur og yfirvegaður stfll hans braut allt undir sig, og á endanum varð hann efstur með tveggja vinn- inga forskot á næstu menn. Hann settist svo að tafli and- spænis Botvinnik snemma árs 1954. Þeir tefldu um heimsmeistaratit- ilinn. Botvinnik hafði undirbúið sig af miklu kappi, leit á titilinn sem sinn eigin, og í raun var honum langtífrá hlýtt til Smyslovs. Ástæð- ur þess má rekja til ársins 1951 þeg- ar Sovétmenn tóku í fyrsta sinn þátt í Olympíuskákmóti. Þótti mönnum Botvinnik lítið hafa sinnt skáklist- inni, og í refsingar- og aðvörunar- skyni var hann ekki valinn til þátt- töku. Fannst Botvinnik sem sterk- ustu skákmennirnir hefðu gert samsæri gegn sér, enda einkenndist öll framkoma hans þaðan í frá af mikilli tortryggni. Þannig heimtaði hann að blindleikur svokallaður, þ.e. sá leikur sem menn stinga í umslag þegar skák fer í bið, yrði í tvíriti og varð úr þeirri kröfu hans mikið fjaðrafok þegar hann tefldi við Bronstein 1951. Smyslov á hinn bóginn lét sér fátt um finnast, ólíkt Bronstein sem hafði yndi af því að finna nýja fleti á hverju vandamáli. T.a.m. komst Bronstein að því að Botvinnik tók út við að horfa á sig drekkandi te - sem auðvitað varð til þess, að tedrykkjan sú var hafin upp í æðra veldi; fór fram með heilmiklum kúnstum, innsogi, ræskingum og búkhljóðum. Nóg um það. Þegar einvígi þeirra Botvinniks og Smyslovs hófst reyndust öll vandamál auð- leyst, þökk sé lipurð Smyslovs. E.t.v. hefur Botvinnik talið sig hafa sálfræðilegt tak á Smyslov út á þetta atriði og einnig hitt, að staða þeirra í innbyrðis skákum var Smyslov mjög í óhag. Það tók Sinyslov a.m.k. fjórar skákir að komast yfir slíkar tilfinningar og þá hafði Botvinnik náð miklu for- skoti, yh:'h. Sveiflukennt varð þetta einvígi, því eftir 11 skákir höfðu undur og stórmerki gerst, Smyslov var kominn yfir6:5. Senn- ilega segja þessar tölur meira en mörg orð um skapfestu og keppnis- hörku þessa prúða manns, og ekki verður það af Botvinnik heldur skafið: hann hafði til að bera flesta kosti keppnismannsins, því að að 2/3 hluta einvígisins loknum, þ.e. 16 skákum, var hann aftur kominn yfir, 9:7! Smyslov náði sér vel á strik í lokin. Hann jafnaði metin og átti enn möguleika á heimsmeistar- atitlinum þegar tefldar höfðu verið 23 skákir. 24. skák stóð aðeins í 22 leiki. Þá hafði Botvinnik náð yfir- jburðastöðu og gerði Smyslov til-. boð sem hann gat ekki hafnað. Lokaniðurstaðan 12:12. Smyslov lagði þó ekki árar í bát. Hann hélt í Áskorendamótið 1956 í Amster- dam að loknum ýtarlegum undir- búningi. Eistlendingurinn Paul Keres veitti honum harðasta keppni í móti þessu, en undir lokin gaf hann eftir. Smyslov vann annað áskorendamótið í röð og ávann sér rétt til að tefla við Botvinnik. í því einvígi hafði Smyslov alla yfir- burði. Lokaniðurstaðan varð I2V2 :9'h. Smyslov átti marga aðdáendur á þessum tíma. Hann hafði lagt mikla vinnu til þess að ná markmiði sínu og var án efa sterkasti skák- maður heims þetta árið. Hann varð hinsvegar að virða þær reglur sem Botvinnik hafði laumað inn í laga- bálk FIDE, alþjðasambands- ins. Þær reglur kváðu á um að heimsmeistari fengi rétt á öðru ein- vígi. Reglur þessar giltu í raun aðeins fyrir Botvinnik, því tækist honum að endurheimta titilinn, þá fengi Smyslov ekki tækifæri aftur! Ósanngjarnar reglur sem voru lagðar niður 1963 þegar Petrosjan lagði Botvinnik að velli, en það merkilega er, að nú hefur Karpov heimsmeistara tekist að lauma svo til nákvæmlega sömu klásúlu inn í FIDE-lögin. Smyslov hafði því ekki mikinn tíma til að fagna sigri. Hann varð að vera undirbúinn undir titilvörn sínasem hófstvorið 1958. Botvinn- ik mætti einbeittur til leiks, staðráðinn í að ná titlinum til baka - og það tókst. Eftir 23 skákir hafði hann hlotið I2V2 vinning. Smyslov fékk ekki tækifæri eftir - þetta. Hann gerði tilraun á Áskor- endamótinu 1959, en þá var tími Tals kominn. Eftir að Tal varð heimsmeistari og síðar Petrosjan gerði Smyslov ekki alvarlega tilraun til þess að verða heimsmeistari. Hann tók þátt í Áskorendakeppninni 1964, en henni hafði þá verið breytt í ein- vígi og fyrsti andstæðingur hans var Efim Geller. Smyslov hafði ætíð gengið illa gegn Geller og engin breyting varð á. Lokatölur urðu 5V z:2'h. Geller í hag Eftir þetta dró Smyslov sig í hlé frá skarkala þeim sem löngum hef- ur fylgt heimsmeistarakeppninni. Fram á sjónarsviðið voru komnir meistarar á borð við Fischer og Larsen sem unnu nánast hvert ein- asta mót sem þeir tóku þátt í. Smyslov var búinn að kveða sér hljóðs löngu áður en flestir þátttak- endurnir í Áskorendakeppninni voru fæddir. 1938 vakti hann fyrst verulega athygli þegar hann varð í 1.-2. sæti á Moskvu- meistaramótinu ásamt þekktum stórmeistara þess tíma, Lilienthal. Þegar kemur að því að velja skák sem Smyslov hefur teflt, er tilvalið að draga fram löngu gleymda viðureign Smyslovs og Botvinniks teflda í einvíginu um heimsmeistar- atitilinn 1954: Hvítt: Vasily Smyslov Svart: Mikhael Botvinnik Frönsk vörn 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Bb4 4. e5c5 5. a3 Ba5 (Botvinnik beitt þessum leik af og til á skákferli sínum. Hvítur verður að bregðast hart við, vegna hinnar miklu spennu á miðborðinu.) 6. b4! cxd4 (6. - cxd4 7. Rb5! gefur hvítum sterkt frumkvæði fyrir peðið.) 7. Dg4 (Skarpasti leikurinn. Einnig kom til greina 7. bxa5 dxc3 8. Dg4.) 7. .. Re7 (Eftir 7. - Kf8 8. bxa5 dxc3 9. a4! er svartur illa beygður.). 8. bxa5 dxc3 9. Dxg7 Hg8 10. Dxh7 Rd7 (Tal lék 10. - Rc6 í frægri skák gegn Fischer. Hún var tefld á Olympí- uskákmótinu í Leipzig 1960.) 11. RO Rf8 12. Dd3 Dxa5 13. h4! (Einfalt og áhrifaríkt. H-peðið er mikill ógnarvaldur svörtum stöðunnar.) 13. .. Bd7 14. Bg5! Hc8 15. Rd4! Rf5 (15. - Hc4 má svara með 16. De3! og ef 16. - Ha4 þá 17. Hbl! Svartur þegar illa beygður.) 16. Hbl Hc4 (Eða 16. - Dxa3 17. Rxf5 exf5 18. Hxb7 Hxg5 19. hxg5 Dcl - 20. Ddl Dxg5 21. Dxd5 Dcl+ 22. Ddl Df4 23. Hh3 og vinnur. Þá má geta þess að 16. - b6 strandar á 17. Rb5 með hótuninni 18. Dxf5!) 17. Rxf5 exf5 18. Hxb7! He4+ 19. Dxe4! dxe4 20. Hb8+ Bc8 21. Bb5+ Dxb5 22. Hxb5 Re6 23. Bf6 Hxg2 24. h5 Ba6 25. h6! - Svartur gafst upp. Þegar þetta er ritað eru þrjár umferðir eftir af Skákþingi Reykjavíkur. Elvar Guðmundsson byrjaði með fádæma hörku; hann vann fyrstu 7 skákirnar. Nú er það svo, að slíkur sprettur ætti að duga til nær ævarandi forskots, en því var alls ekki að heilsa. Dan Hans- son mætti Elvari í 8. umferð og vann og komst við það í deilt efsta sætið. Gamla kempan Sveinn Kri- stinsson er í 3. - 5. sæti með 6V2 vinning ásamt Halldóri G. Einars- syni og Guðlaugu Þorsteinsdóttur. Þau eru öll með 6V2 vinning. Eins og fram hefur komið, hóf 91 skák- maður keppni á mótinu, en þvílýk- ur næsta fimmtudagskvöld. -hól. Hef opnað lækna- stofu í Læknastöðinni hf., Glæsibæ. Tímapantanir í síma 86311 eftir kl. 10 f.h. Ellen Mooney Sérgr.: Húðsjúkdómar Kennara vantar íþróttakennara vantar strax að grunnskóla Fáskrúðsfjarðar. Gott húsnæði fyrir hendi. Upplýsingar gefur skólastjóri, sími 5224 í skólanum og 5159 heimasími. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall og útför Guðmundar Vigfússonar fyrrv. borgarfulltrúa Heiðargerði 6 Marta Kristmundsdóttir og fjölskylda

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.