Þjóðviljinn - 29.01.1983, Side 25

Þjóðviljinn - 29.01.1983, Side 25
daegurmal (sígiid?) Barry Reynolds/I scare myself: Helgin 29. - 30. janúar 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 25 Barry Reynolds er breskur git- arleikari, laga- og textahöfundur og söngvari og hefur veriö þekkt- ur sem slíkur í mörg ár meðal breskra hljómlistarmanna. Hann var um tíma gítarleikari í Blo- dwyn Pig, tók við af Mick Abra- hams, sem stofnaði þá hljómsveit eftir að hann gekk úr Jethro Tull. Barry Reynolds fór þó fyrst að fá þá athygli almennings, sem hann á skylda, eftir að hann fór að vinna með Marianne Faithfull. Sú samvinna hófst á plötu hennar Broken English, sem út kom 1979 og mér fannst þá merkilegasta plata sem ég hafði heyrt í áravís. Á Broken English er Barry Reynolds aðalgítarleikari auk þess að vera höfundur titillagsins ásamt Marianne, Mavety, York og Stannard, en hann hefur samið mörg lög og t.d. með þeim Marianne og Grace Jones. Auk þess virðist hann vera orðinn fast- ur í sessi sem gítarleikari þeirra beggja (á plötum MF auk BE: Dangerous acquaintances, BE/ Sister Morphinc - 45 snún., Run for your lives/Irony - 45 snún. og á væntanlegri plötu hennar A child’s adventure. Með GJ á Warm leatherette, Nightclubbing og hennar nýjustu, Living my life.). Það var í kringum 1970 sem Barry Reynolds gekk í Blodwyn Pig og hlýtur samkvæmt því að vera nálægt tuttugu ára taxtanum í stéttarfélagi hljómlistarmanna. Þó var það ekki fyrr en seint á síðasta ári að fyrsta sólóplata hans kom út. Hana skýrir Barry í „höfuð“ amerísks dægurlags frá 1967 (eftir Dan Hicks) og byrjar plötuna á því: I scare myself; sem útleggst: Eg hræðist sjálfan mig. Ég verð að viðurkenna að ég deildi með Barry þessari hræðslu hans í sinn eigin garð er ég sá að á plötunni flytur hann lögin Brok- en English og Guilt (eftir BR), sem bæði er að finna á plötu Mar- ianne Faithfull (BE). Ég hélt að þau yrðu alger „bömmer“ og óhugsandi í flutningi annarra en hennar, vegna hinnar sérstæðu og frábæru söngtúlkunar hennar. En viti menn! Þó að heiti plöt- unnar hljómi eins og fólk gæti með henni verið að kaupa lífvana köttinn í sekknum kemur í ljós það gagnstæða - og sem kattavin- ur leyfi ég mér að umsnúa algjör- lega þessum kattfjandsamlega málshætti: Eftir að vera búin að kynna mér innihald „sekksins" um I scare myself finnst mér, í hvert skipti sem ég tek plötuna upp til að spila hana, ég hafa höndlað dásamlega, og vel á lífi kött í stað þess sem mig grunaði nær dauða en lífi, eða vart á garð setjandi. Innihaldið ber sem sagt vitni um alla þessa merka dýrs bestu kosti: lipurð, mýkt, snerpu, sjálfsfylgni (?), marksækni og -hittni (kettir væru örugglega ós- igrandi í k(n)attspyrnu, mal- tækni, útsjónarsemi (kattandúð- lega nefnd slægð), skynsemi og óforbetranlega (tón)heyrn. Auk þessara „tæknilegu" atriða sýnir Barry sjálfstæði kattarins, sem alltaf heldur sínu tígulega og ót- emjanlega villta eðli, sem kemur manni sí og æ á óvart vegna fág- aðs yfirborðs, sem vekur með manni lotningu gagnvart þessu dulúðga, leyndardómsfulla dýri. I scare myself er plata sem stenst allar gæðakröfur að mínu mati, en þar fyrir utan er það auðvitað heyrn, smekkur og til- finning hvers og eins sem úrslit- um ræður um hljómlistarval fólks. I scare myself er hljóðrituð í Compass point stúdíói í Nassau á Bahamaeyjum, sem er í eigu Island-útgáfufyrirtækisins, sem Bretinn Chris Blackwell stofn- aði. Hann er alinn upp á Jamaica, og kynntist þar hljómlist inn- fæddra, sem reggei er runnið frá, og hefur æ síðan verið í góðu sam- bandi við músikanta á Jamaica. Aðalpostularnir í þeim efnum eru þar engin undantekning: „ryþma“parið fræga Sly Dunbar og Robbie Shakespeare, Wally Badarou á hljómborð, Mickey Chung á gítar, en þessir menn mynda með Barry Reynolds sem sólógítarista hina frægu The Compass point all stars, þ.e.a.s. hljómsveit stúdíósins, og hafa þeir leikið inn á aragrúa, ef ekki flestar, þeirra reggei- hljómplatna sem út hafa komið hjá Island. Má af þeim nefna plötur Black uhuru, en áður eru nefndar vinkonur okkar Grace og Marianne. Barry Reynolds er auðvitað með þessa stjörnu- hljómsveitarvini sína á þessari fyrstu skífu sem hann sendir út undir eigin nafni. Ef lýsa ætti hljómlistinni, öðru- vísi en með skýrskotun til eigin- leika kattarins, þá mætti kannski segja að þarna væri örlítið af Grace Jones, aðeins meira af reggei, rúmlega það „aðeins" af Marianne Faithfull (þó er rétt að geta þess að Barry hefur mun hærri söngrödd og mýkri, þó töl- uvert lægri en algengasta katt- armjálm og öllum mun þýðari en -breim), og svo hefur maðurinn alist upp og lifað með bresku rokki, þar sem þjóðlagatónlist hefur alltaf verið nálæg. Barry hefur spilað í gegnum hinar ýmsu tískustefnur rokksins, með mörg- um og þeim til hæfis, en varðveitt eigið „orgínalítet" (frumleika), og beitir sér eins og honum hent- ar þegar hann er „sóló“, rétt eins og kötturinn, sem í flestu hlýðir þegar umvandandi heimilisfólk er í nánd, en fer nokk sínu fram jafnskjótt og hann losnar undan geðþótta annarra. Ég mun ekki verða hrædd um að Barry Reynolds spjari sig ekki á öðrum sólóplötum sínum, sem vonandi verða fleiri og ég á eftir að bera heim, líklega í algengasta sekk nútímans, hinni eilífu fylgju nútímamannsins, plastpokanum. A Rod veit hvað hann syngur ...og aðdáendumir með! Rcxl Stewart/Absolutely live Rod Stewart er heldur betur búinn að halda vel út sem rokk- stjarna. Hann er fæddur 10. jan. 1945 og hefur verið í rokkhljóm- sveitum a.m.k "íðan 1964, en þá kom út hans fyrsta plata, tveggja laga (Good morning little school- girl). Nafntoguðustu hljómsveitir sem hann hefur verið í eru Jeff Beck group og Faces. Sólóferil sinn hóf hann á meðan hann var í Faces en hætti með þeim 1973 og hefur notið gífurlegra vinsælda síðan sem 'söngvari, bæði á plötum sínum og ekki síður á^ hljómleikum, þar sem hann nær upp hreint ótrúlegri stemmningu. Nýjasta platan frá Rod Stewart Jón Viftar Andrea er einmitt tekin upp á hljómleika- ferðalagi hans um Bretland og Bandaríkin á nýliðnu ári og flytur hann þar, með stórgóðu rokk- bandi, mörg sín vinsælustu lög; sígilda „rokkara" og tvö lög sem hann hefur ekki sungið á plötu áður, Guess I’ll always love you og Platters-lagið gamla The great pretender. Rod er mjög góður rokksöngvari, með „viskírödd", og eins eru bassa- og trommu- leikari sveitar hans áberandi góðir. Eins og áður sagði er Rod Stewart einkar lagið að hrífa hljómleikagesti, og samkvæmt þessari plötu hefur honum frekar farið fram en aftur í þeim efnum. Ég hef ekki heyrt á hljómleikap- lötu aðra eins partýstemmningu og á Absolutely live, þar sem „þingheimur" allur, sem þarna hefur sjálfsagt skipt þúsundum, tekur undir með Rod og líka án hans og syngur fullum hálsi heilu lagakaflana, og kann reiprenn- andi utanað textana. Áheyrend- ur eru ekki bara þiggjendur, heldur taka þátt í skemmtuninni af lífi og sál. Sérstaklega er þetta áhrifaríkt í You’re in my heart, stoðar þær Kim Carnes og Tinu Turner, en alls eru á plötunum 20 lög. Absolutely live er sögð skila okkurþessum hljómleikum alveg eins og þeir komu fyrir af skepn- unni, eins og reyndar nafnið gef- ur til kynna. Það mun hinsvegar vera algengara að slíkar upp- tökur séu lagfærðar, og stundum hreinlega heilu hljóðfærin tekin upp á nýtt í stúdíói og bætt fyrir það sem miður þykir fara. En Absolutely live er semsagt alveg ekta, engin brögð í tafli, og m.a.s. eitt ömurlegt saxófónsóló látið flakka, en hljóðfæraleikar- inn beðinn afsökunar fyrir til- tækið á „nærbuxum" annarrar plötunnar. Fyrir bragðið er hér komin á markað plata, sem nær að vekja, hvar sem hún er spiluð, samkennd við yfir sig hrifna áheyrendur á hljómleikum sem heyra sögunni til. En Rod Stewart segist síður en svo vera sestur í helgan stein, og á því eflaust oftar eftir að leiða margar þúsundir mannsradda í einu í samstilltum og hrífandi fjöldasöng. Lifandi tónlist á sterkan miðil þar sem Rod Stew- art er. A Sailing og I don’t want to talk about it. Svo eru þarna auðvitað Gasoline alley, Maggie May og Da you think I’m sexy. Enda- hnúturinn á þessu tveggja platna albúmi er Faces-lagið Stay with me, þar sem Rod fær sér til að- Stefán Jón Hafstein var rögg- samur kynnir á Músiktilraunum. Mynd ísmynd. íslenskt rokk í sjónvarpið Satt gekkst fyrir því að úrslit úr Músiktilraunum ’82 voru tekin upp á vídeó og mun nú nokkuð víst að sjónvarpið kaupi þann þátt. Er ekki að efa að margur mun hafa gaman af að sjá og heyra hversu fjölskrúðug íslensk dægurtónlist er og af nógu að taka. Misgott er það að vísu, en engu að síður voru blaðamenn ánægðir með framtakið og út- komuna að flestu leyti, en Satt og ísmynd, sem sáu um upptöku hljómleikanna, buðu nokkrum þeirra að skoða filmuna. Auk úrslitanna úr Músiktil- raunum tóku ísmyndarmenn upp konsert Egósins í Tónabæ þetta sama kvöld. Ekki er vitað hvort sjónvarpið kaupir þann þátt, en ég verð nú að segja eins og er, að ekki finnst mér rokkáhugamenn síður eiga skilið að sjá Bubba Morthens og hans þrælsterka tríó á skjánum, en á þessari upptöku eru þeir í alveg geysigóðu formi, og Bubbi dregur svo sannarlega ekki af sér, hvorki af sál né lík- ama... svitinn rennur í stríðum straumum. Rokkáhugafólk, og þá sérstak- lega í dreifbýlinu sem sárafá tæki- færi hefur til að fylgjast með því sem er að gerast hér á landi í rokkinu, það yrði örugglega himinlifandi ef sjónvarpið tæki þætti þessa báða til sýningar. Þar að auki er sennilegt að þátt með Egóinu, og t.d. Þey og Grýlun- um, mætti selja erlendum sjón- varpsstöðvum. Úr skúrnum í stúdíóið Sagt var frá því um síðustu helgi að 3. hæðin ætlaði sér ekki að draga uppi í bílskúrnum og síður en svo er útlit fyrir það. Hljóm- sveitin fer á morgun, sunnudag, austur í Glóru, í stúdíó Nema þar á bæ, í hljómplötuupptöku. Fyrir þá sem ekki lásu síðasta Sunnu- dagsblað: 3. hæð er vímulaust rokkband, stofnað af Rúnari Þór Péturssyni, og þeir sem áhuga hafa á 3. hæðinni geta hringt í síma 12019, 36224 eða 13415. Rokkhátíð í Hamra- htíðinni í ráði er að halda hátíð fyrir Belgi og aðra Frakka í norður- kjallara Menntaskólans við Hamrahlíð laugardaginn 5. fe- brúar. Stefnt er að því að sem flestar rokksveitir láti þar til sín heyra og er lysthafendum vin- samlegast bent á að skrá sig til þátttöku í GRAMMINU Hverf- isgötu 50.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.