Þjóðviljinn - 29.01.1983, Blaðsíða 32

Þjóðviljinn - 29.01.1983, Blaðsíða 32
woov/um Helgin 29. - 30. janúar 1983 Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9—20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt aö ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9—12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími 81333 Kvöldsími 81348 Helgarsími afgreiðslu 81663 Á ráðstefnu BSRB um stöðu launþegahreyfingarinnar kom fram mikill vilji fyrir auknu samstarfi. Myndin er tekin við pallborðsumræðurnar í gær, talið frá vinstri Þórir Daníelsson, Helgi Andrésson, Einar Olafsson, Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, Guðríður Þorsteinsdóttir, Vilhelm G. Kristinsson, Ásmundur Stefánsson, Kristján Thorlacius og Albert Kristinsson sem stýrði umræðum. Ljósm. eik. Samflot allra launamanna í næstu kjarasamningum ? Aukið samstarf brýnna en nokkru sinni fyrr sagði Kristján Thorlacius formaður BSRB á ráðstefnu bandalagsins í pailborðsumræðunum á ráðstefnu BSRB um stöðu laun- þegahreyfingarinnar, sem lauk í gær, lýsti Kristján Thorlacius for- maður bandalagsins þeirri skoðun sinni að samtök verkafólks ættu eindregið að hafa samstarf sín í milli við gerð næstu kjarasamn- inga. Kvaðst Kristján mundu óska eftir því formlega á allra næstu dög- um, að viðræður BSRB og ASÍ hæfust um þetta atriði. Ráöstefnu BSRB um stöðu laun- þegahreyfingarinnar og tengsl ein- stakra félaga innbyrðis hófst sl. fimmtudag og lauk í gær. Greini- legur vilji kom þar fram um að a.m.k. stóru samböndin í verka- lýðshreyfingunni tækju upp nánara samstarf og að nauðsyn væri á að eyða tortryggni þeirra í milli. Sér- staklega voru talsmenn BSRB þeirrar skoðunar að meiri nauðsyn væri á því en nokkru sinni fyrr að launamenn stæðu saman í sinni baráttu. Ásmundur Stefánsson for- seti ASÍ kvað þetta mál ekki hafa verið rætt sérstaklega í miðstjórn Alþýðusambandsins og minnti jafnframt á að hvert samband innan ASÍ réði sjálft hvernig að samstarfi væri staðið. Ekki væri einu sinni ákveðið hvort samflot yrði innan Alþýðusambandsins hvað þá að farið væri að ræða form- lega um samstarf við önnur samtök launamanna. Slíkt þyrfti að ræða betur innan félaganna. Talsmenn Sambands banka- manna, BHM og Sóknar töldu sjálfsagt að ræða aukið samstarf og Áðalheiður Bjarnfreðsdóttir for- maður Sóknar lýsti áhuga sínum á því að sérstök samstarfsnefnd yrði kosin hið allra fyrsta. Nánar segir frá ráðstefnu BSRB eftir helgi. - v. Óánægöir Sjálfstæðismenn á Vestfjörðum:_ Stefna að framboði að undangengnu prófkjöri Við hcldum mjög fjölmcnnan fund á ísafírði á fímmtudaginn, þar sem samþykkt var með 39 at- kvæðum gegn 6 að kanna gaum- gæfílega hug fólks á Vestfjörðum til sérframboðs að undangengnu próf- kjöri, en sem kunnugt er hafnaði kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins Búist er við að alþingismenn greiði á þriðjudag atkvæði um til- lögu Eiðs Guðnasonar um mótmæli við tímabundnu hvalveiðibanni við Island. Málið er nú hjá utanríkis- málanefnd og hyggst formaður hennar, Geir Hallgrímsson, af- greiða það þaðan á mánudag. Fyrr í þessum mánuði barst for- stjóra Flugleiða, Sigurði Helgasyni bréf frá Greenpeace samtökunum þar sem tilkynnt er að mótmæli ís- lendingar banninu muni samtökin efna til mótmælaaðgerða við sölu- skrifstofur Flugleiða í Evrópu og N-Ameríku. í svari Sigurðar Helg- á Vestfjörðum því að viðhafa próf- kjör við uppstillingu listans með þeim afleiðingum að mikill meiri- hluti Sjálfstæðisfólks í kjördæminu er sáróánægt, sagði Ólafur Krist- jánsson sveitarstjóri í Bolungarvík í samtali við Þjóðviljann í gær. Ólafur sagði að hann ásamt asonar er bent á að það sé ekki í valdi Flugleiða hvort banninu verði mótmælt eða ekki og ennfremur að slíkar mótmælaaðgerðir geti valdið félaginu tjóni. í svari Greenpeace við því bréfi segir að ekki sé ætlun- in að valda Flugleiðum tjóni, en Greenpeace muni nota sérhvert tækifæri þar sem nafn íslands og fáni sé, til þess að vekja athygli heimsins á hvalveiðistefnu íslend- inga. Afrit af þessum bréfaskiptum var sent til forsætisráðherra, samgöngu- og sjávarútvegsráð- herra og utanríkisráðherra. Sigurlaugu Bjarnadóttur, Guð- mundi H. Ingólfssyni og Halldóri Hermannssyni hefðu rætt saman, þegar svo var komið málum að þau höfðu ekki vinnufrið fyrir fólki sem vildi að eitthvað væri aðhafst í mál- inu. Ólafur sagði að svo langt hefði gengið að hann hefði orðið að taka síma sinn úr sambandi til að geta lokið skylduverkum. Það var hluti þessa fólks, sem kom á fundinn á ísafirði, sem var ekki einu sinni auglýstur, en samt svona fjölmennur. Nú stendur fyrir dyrum að kanna hug manna til sér- framboðs, en að sögn Ólafs er erfitt um vik með fundarhöld, þar sem samgönguerfiðleikar eru með allra versta móti á Vestfjörðum um þessar mundir. Ólafur sagði ennfremur að hann teldi að um 80% kjósenda Sjálf- stæðisflokksins á Vestfjörðum væri sáróánægður með vinnubrögð kjördæmisráðsins. Nú væru 12 ár síðan prófkjör var viðhaft hér og við unum þessu ekki. Ég er svo ákveðinn stuðningsmaður próf- kjörs að ég hafnaði boði um 3ja sæti á listanum nú, vegna þess að það stríddi gegn sannfæringu minni um að það eina rétta væri prófkjör. Og það get ég fullyrt að menn leggja ekki út í svona sérframboð fyrr en gengið hefur verið framaf þeim alveg gersamlega, sagði Ólaf- ur Kristjánsson að lokum. - S.dór. Mótmæli gegn hvalveiðibanni: Atkvæðagreiðsla á þriðjudaginn Greenpeacemenn hyggjast mótmæla við söluskrifstofu Flugleiða Leigumiðlun enn til umræðu í borgarráði: Kvennafram- boðið á móti! Fulltrúi kvennaframboðsins í borgarráði, Magdalena Schram greiddi í gær atkvæði gegn beiðni Leigjendasaintakanna um styrk úr borgarsjóði til þess að starfrækja leigumiðlun einir sér eða með Hús- eigendafélaginu. Leigumiðlun hefur hingað til verið eitt helsta baráttumál Kvenn- aframboðsins og hefur Guðrún Jónsdóttir m.a. flutt tillögu um stuðning borgarinnar við hana. Magdalena sat fundinn fyrir Guðrúnu Jónsdóttur og greiddi sem fyrr segir atkvæði gegn erind- inu. Það hlaut því aðeins eitt at- kvæði, Sigurjóns Péturssonar, Sjálfstæðisflokkurinn sat hjá og því var beiðninni hafnað. Við af- greiðslu fjárhagsáætlunar borgar- innar fyrir þremur vikum var felld tillaga frá Álþýðubandalaginu um hækkun styrks til Leigjendasam- takanna og fengu þau sömu upp- hæð og árið 1982. -ÁI Borghildur Jósúadóttir var með þeim fyrstu sem kusu í síðari umferðinni í gær. Ljósm. - eik. Forval ABR lýkur á sunnudaginn: Mikil aðsókn í gær Meiri þátttaka var á fyrsta for- valsdegi Alþýðubandalagsins í Reykjavík en verið hefur f síðari umferð forvals áður. Opið var milli 17 og 19 í gær og höfðu þá tvöfalt fleiri kosið en á sama tfma í fyrri umferð. í dag laugardag verður kosið milli kl. 10 og 19 og á morgun sunn- udag, milli kl. 14 og 19. Stjórn ABR hefur hvatt alla félagsmenn til þess að notfæra sér kosninga- réttinn og hafa áhrif á skipan G- listans við alþingiskosningarnar í vör. Nýir félagsmenn eru einnig velkomnir. 16 taka þátt í síðari umferðinni en hún fer þannig fram að kjósandi setur tölurnar 1, 2, 3, 4, 5 og 6 framan við nöfn eins og hann vill að framboðslistinn verði skipaður. Ekki má kjósa fleiri en 6 og ekki færri, þá telst seðillinn ógildur. Kosið er á Grettisgötu 3, á skrif- stofu Alþýðubandalagsins.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.