Þjóðviljinn - 08.02.1983, Side 1
MÚÐVHMN
Ríkisstjórn
Gunnars
Thoroddsens á
þriggja ára afmæli í
dagogermeðelstu
rikisstjórnum í
álfunni.
Sjá 5
febrú&r 1983
þriðjudagur
31. tölublað
48. árgangur
Guðmundur Ólafsson fornleifafræðingur:
„Foriunin jar
í stórhættu
vegna gróða-
siónarmiða”
Deilur hafa risið milli forn-
Ieifafræðinga á Þjóðminjasafni
og aðstandenda björgunarfél-
agsins „Gullskipið“ h/f hvernig
standa beri að uppgreftri á flaki
Gullskipsins á Skeiðarársandi.
Gullskipsmenn telja víst að
skipið sé svo til óskemmt djúpt í
sandinum og varningur þess sé enn
að mestu óhreyfður í skips-
skrokknum.
Fornleifafræðingar telja hins
vegar að verðmæti liggi eingöngu í
skrokknum sjálfum en ekki varn-
ingnum, honum hafi verið bjargað
úr skipinu á strandstað á sínum
tíma.
Fornleifafræðingar telja að
merkar fornminjar séu í stórhættu,
þar sem gróðasjónarmið björgun-
armanna virðist ein ráða ferðinni í
áætlun þeirra varðandi uppgrcft
„Gullskipsins".
-Ig-
Sjá 20
Kvennaframboðið í Reykjavík:
Býður ekki fram
Nýting íslenskra
auðlinda í fortíð og
framtíð voru
meginumræðuefni í
pallborðsumræðum
sem
Alþýðubandalagið
gekkst fyrir í
desember.
Braut Byggung í Reykjavík útboðsskilmála?
Frestaði opnun tilboða
Á fundi sem haldinn var í
Kvennaframboðinu í Reykjavík á
laugardag var samþykkt með
aðeins 2ja atkvæða mun að fara
ekki í framboð til Alþingis nú. 60-
70 manns voru á fundinum.
Miklar umræður hafa staðið yfir
undanfarnar vikur á meðal
Kvennaframboðsfélaga um það
hvort ástæða væri til að bjóða fram
til Alþingis. M.a. var efnt til um-
ræðuhópa sem tóku málið fyrir og
það rætt ofan í kjölinn. Strax fyrir
síðustu áramót kom fram á-
greiningur um hvort efna skyldi til
framboðs og hafa málin verið í um-
ræðu síðan.
Fundurinn á laugardag var lok-
aður og var að honum loknum
gengið til leynilegrar atkvæða-
greiðslu þar sem úrslit urðu eins og
að framan greinir.
„Það eina sem liggur fyrir eftir
þennan fund er að félagsfundur
Kvennaframboðsins í Reykjavík
hefur samþykkt að efna ekki til
Alþingisframboðs. Hvað svo á eftir
að gerast verður tíminn að leiða í
ljós“, sagði Kristín Astgeirsdóttir
starfsmaður samtakanna í samtali
við Þjóðviljann í gær.
-v.
í þessari holu, - sem er milli húss Kristjáns augnlæknis Sveinssonar og Hótel Borgar, verða
umdeild bílastæði. Hvert þeirra kostar borgina nær 500 þúsund krónur, en Reykjavíkurborg fær
til afnota 13 stæði í kjallara hússins sem þarna á að rísa. - Ljósm -eik.
900 sálfræðingar
þinguðu um „óttann
við endalok
mannkyns“ i Berlín
ídesember s.l.
svo 5 innflutningsaðilar gætu gert
tilboð í innréttingar í 215 íbúðir
Á föstudag voru opnuð tilboð
í smíði eldhúsinnréttinga og
skápasamstæða í 215 íbúðir
sem Byggingasamvinnufélag
ungs fólks í Reykjavík, Bygg-
ung, er að reisa á Eiðsgranda
og Seltjarnarnesi. 4 íslensk
fyrirtæki gerðu tilboð í verkið
og 5 innflutningsaðiiar. Upp-
haflega átti að opna tilboðin 1.
febrúar sl. en þá höfðu einungis
íslensku aðilarnir sent inn til-
boð. Ákvað þá framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins, Þorvaldur
Mawby að verða við óskum
nokkurra innflutningsaðila um
að framlengja tilboðsfrestinn til
4. febrúar svo þeir gætu boðið í
verkið. Hafa tvö íslensku fyrir-
tækjanna mótmælt þeirri máls-
meðferð.
íslensku fyrirtækin sem gerðu
tilboð eru þessi: Trésmiðjan Víðir,
Axel Eyjólfsson, 3-K og Hagi hf.
Þessir aðilar voru sem áður segir
tiibúnir með sín tilboð 1. febrúar
eins og kvað á um í útboðsgögnum.
Þegar tilboðin voru svo opnuð á
föstudag höfðu 5 innflutningsfyrir-
tæki bæst í hópinn þ.e. IKEA, Inn-
réttingaval, Þýsk-íslenska verslun-
arfélagið, Penninn og Kalmar-
innréttingar. Samkvæmt heimild-
um Þjóðviljans var Hagi hf. með
lægsta tilboðið í krónutölu en síðan
á eftir að taka tillit til margvíslegra
fyrirvara áður en hægt er að meta
endanlega hvaða aðili hefur verið
með hagstæðasta tilboðið.
Samkvæmt almennum útboðs-
og samningsskilmálum um verk-
framkvæmdir frá Iðntæknistofnun
íslands skal opna tilboð samtímis á
þeim stað og tíma sem til var tekinn
í útboðslýsingu. Er jafnframt tekið
fram að verkkaupa er óheimilt að
semja við aðra aðila en þá sem
skiluðu fullgildu tilboði á til-
skyldum tíma, nema öllum sem til-
boð gerðu á réttum tíma sé tilkynnt
að útboðið sé úr gildi fellt. íslensu
aðilunum sem mættir voru til leiks
1. febrúar hafði ekki verið tilkynnt
um að útlendum aðilum hefði verið
gefinn lengri frestur en þeim til að
skila inn tilboðum eins og þó kom í
ljós síðar.
Ekki mun langt að bíða þess
hvaða tilboði Byggung tekur í
smíði og uppsetningar á innrétting-
um í hinar 215 íbúðir sínar.
-v.