Þjóðviljinn - 08.02.1983, Síða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN : Þriðjudagur 8. febrúar 1983
Diplomötum
vísað
frá íran
Tveim starfsmönnum austur-
ríska sendiráðsins í íran hefur
verið vísað úr landi fyrir að hafa
„hvatt innlendar konur til að
fremja lögbrot" eða þannig var
altént sú opinbera skýring sem
gefin var á brottvikningu þeirra.
Málavextir eru þeir, að fyrir
skömmu komu tvær íranskar
konur í sendiráð Austurríkis í fr-
an til að sækja um vegabréfs-
áritun til Ástralíu, en sendiráðs-
mennirnir móðguðu konurnar
gróflega með því að æskja þess að
þær sviptu hulunni frá andliti
sínu. Samkvæmt írönskum lögum
eiga konur að hylja andlit sitt
með andlitsblæjum og mega ekki
fyrir nokkurn mun sýna óvið-
komandi andlit sitt. Þetta ákvæði
gildir einnig um myndatökur á
vegabréf.
- hól.
Gætum
tungunnar
Sést hefur: í dag er framleiddur
mikill fjöldi atómsprengja og
eldflaugna.
Rétt væri: Nú á dögum er fram-
leiddur mikill fjöldi atóm-
sprengja og eldflauga.
Betra væri þó: Nú er framleitt
mjög mikið af atómsprengjum og
eldflaugum.
Skák
Karpov að tafli - 92
Karpov mætti Ulf Anderson í annað sinn á
skákmótinu í Madrid. Skákin var tefld í 3.
umferð og þá voru 4 ár síðan Karpov mal-
aði úlfinn í heimsmeistaramóti unglinga í
Stokkhólmi. Sjálfsagt hefur Ulf gert sér
vonir um að ná fram hefndum, en því var
nú alls ekki til að dreifa. Eftir mikla pressu
Karpovs, sem hafði hvítt, varð Anderson
að láta peð af hendi og örvæntingarfullum
tilraunum hans til að ná gagnfærum var
auðveldlega hrundið aftur:
8
7
6
5
4
3
2
1
abcdefgh
Karpov - Anderson
Siðasti leikur Anderson var 33. - h4. Hvít-
um steðjar ákveðin hætta af þessu peði
svo hann tekur það til bragðs að fjarlægja
það...
34. gxh4! Df4
35. Hgl Dxh4
36. a6! g6
37. a7 Kg7
38. Bxg6!
- Óvæntur leikur. Hvitur svarar 38. - fxg6
með 39. Db7+ ogsíðan 40. a8(D). Svartur
tapar því skiptamun ofan á aðrar hörmung-
ar og staöan verður gjörsamlega vonlaus.
Hann sá þvi ekki ástæðu til að halda barátt-
unni áfram og gafst upp.
Geimálfurinn góði fellur vel í kramið hjá Ameríkumönnum - en miður hjá Svíum. Á meðfylgjandi mynd er
E.T. bann Svía veldur
úlfúð í Bandaríkjunum
Svíþjóð og sænska þjóðin er
;kki ofarlega á vinsældalistanum
Bandaríkjunum um þessar
nundir. Ástæðan er ein lítil bíó-
nynd sem hefur fallið Ameríku-
nönnum þó einkum börnum bet-
jr í geð en flestar aðrar myndir,
E.T. í Ameríku stendur heil-
nikið apparat á bak við E.T. -
xúður, E.T. - vídeóspil, E.T. -
jskubakka o.s.frv. M.ö.o.,
jeimálfurinn góði virðist vera
einskonar Andrés önd níunda
áratugarins hjá þeim í Ameríku.
Þar hafa flest börn, sem orðin eru
meira en 3 ára, séð myndina.
Það kemur því mönnum þar í
landi því spánskt fyrir sjónir þeg-
ar Svíar taka uppá því að banna
myndina börnum innan við 11 ára
aldur. Bandarískar sjónvarps-
stöðvar hafa fjallað mikið um
þetta bann og flestir fréttaskýr-
endur leggja dæmið þannig upp,
að bannið hljóti að skaða nafn
Svíþjóðar og þá um leið hafa á-
hrif á milliríkjaviðskipi þjóð-
anna. Sumir fréttaskýrendur og ,
umsjónarmenn þátta þar sem
E.T. - bannið hefur borið á
góma, hafa endað tölu sína á því
að þegar öllu væri á botninn
hvolft, þá gætu menn verið
ánægðir með hversu Svíþjóð væri
í mikilli fjarlægð frá guðseiein-
landinu. _ héi-
Sjálfs-
morö
fátíð í
Noregi
Norðmenn virðast ekki vera
jafn lífsleiðir og nágrannar þeirra
í Svíþjóð, Danmörku og Finn-
landi. Samkvæmt opinberum töl-,
um frömdu 500 Norðmenn sjálfs-
morð á árinu 1982 sem gerir 13
sjáifsmorð á hverja 100 þús. íbúa.
í Danmörku og Finnlandi
frömdu 30 sjálfsmorð á hverja
100 þús. íbúa og í Svíþjóð frömdu
20 sjálfsmorð á hverja 100 þús.
íbúa. Ef tölur frá Islandi eru
bornar saman við þessar, þá
liggja sjálfsmorðstölur ekki fyrir
þ.a.s. ekki árið 1982. í hinni ný-
útkomnu skýrslu landlæknis er
getið um að á árinu 1962-’73 hafi
261 íslendingur svipt sig lífi, þar
af 209 karlmenn og 52 konur.
Hvað varðar sjálfsmorð á hin-
um Norðurlöndunum, þá eru
sjálfsmorð tíðust í stórum borg-
um og bæjum. í Noregi virðist
dreifingin vera jöfn milli
þéttbýlissvæða og landsbyggðar-
innar. Skýringar á færri sjálf-
smorðum í Noregi eru helst tald-
ar þær, að samskipti fjólks séu
betri og nánari en í grann-
löndunum.
- hól.
Ameríka —
þýsk vinátta
í þýsku vikublaði birtist þessi »Ég vcit það elskan, að vináttan
skopteikning um Reaganvináttu við Bandaríkin er þér mjög hjart-
Kohls, kanslara Vestur- fólgin, en þurftu þeir endilega að
Þýskalands. Kanslarafrúin segir koma fyrstu Pershingeldflauginni
við mann sinn: fyrir hér?“
Hvað
skrifa
lands-
hluta-
blöðin?
Hlédrœgir
framsóknarmenn
Veistu að það hefur vakið al-
menna undrun víða að enginn úr
fjölmennasta sveitarfélaginu á
Áusturlandi, Neskaupstað, skuli
taka þátt í prófkjöri Framsóknar-
flokksins hér eystra, skrifar
Austurland blað Alþýðu-
bandalagsins á Austurlandi en
það er eins og allir vita gefið út
Neskaupstað.
Og blaðið heldur áfram: Þeir
sem til þekkja og þá sérstaklega
Norðfirðingar sjálfir eru hinsveg-
ar ekki hissa á þessari
staðreynd..
Hávaði
frá Vellinum
....Nú hefur komið í ljós að há-
vaði er yfir þeim mörkum sem
talin eru æskileg að sögn Jóhanns
Sveinssonar heilbrigðisfulltrúa
og er því von til þess að þegar
málið verður tekið upp aftur í
framhaldi af þessum niðurstöð-
um, verði reynt að haga málum
eftir þeim, er skrifa í Víkurfréttir
hið óháða blað Suðurnesja-
manna. Hérna er að sjálfsögðu
átt við þá hávaðamengun sem
stafar af flugi orrustuvéla banda-
ríska setuliðsins á Keflavíkur-
flugvelli og í þvf tilefni er birt
mynd af einni slíkri....
Frœðslustjóri
situr enn
....AII langt er nú liðið síðan
rannsóknarlögregla ríkisins hóf
rannsókn á fjárreiðum
Fræðsluskrifstofu Vestfjarða.
Hafa fjölmiðlar ætíð fengið þau
svör, að verið væri að vinna í mál-
inu, en fræðslustjóri situr enn í
embætti enda þótt rannsókn
standi yfir, skrifar Vestfirðingur
þann 17. janúar. Og blaðið held-
ur áfram... Þegar Vestfirðingur
hafði samband við Erlu Jónsdótt-
ur, deildarstjóra hjá rannsóknar-
lögreglunni, þá tjáði hún
blaðinu, að enn væri unnið að
málinu, en rannsókn mundi þó
líklega ljúka eftir miðjan mánuð.
Innt eftir hvort málið væri mjög
veigamikið, svaraði Erla, að öll
mál af þessu tagi væru sein-
unnin....
Eigi er Karvel
öruggur
....Ekki mun Karvel Pálmason
vera sérlega öruggur um sig í
næstu þingkosningum sem annar
maður á lista krata hér vestra,
skrifar Vestfirðingur. Vitnar
blaðið síðan í spá seiðskratta
Þjóðviljans frá því í fyrra þar sem
því var spáð að Karvel hefði fata-
skipti á árinu. Karvel er þó enn í
Citydressinu og á söndulum þeg-
ar hann gerði grein fyrir van-
trausti sínu á dögunum. Ekki
þykir trúlegt að hann bindi trúss
við Vimma svo gjörólíkur sem
stfll þeirra er, en þar í flokki er
það stíllinn sem skiptir máli,
skrifar blaðið.