Þjóðviljinn - 08.02.1983, Qupperneq 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 8. febrúar 1983
Öflug
samvinna
MFA og
verkalýðs-
félaganna
„Á vegum Menningar- og
fræöslusambands alþýöu hafa
nú verið haldin 58 trúnaðar-
mannanámskeiö frá því
trúnaðarmennfengu þau
réttindi eftir sólstööu-
samningana 1977 að sækja
viku námskeið einu sinni á ári á
dagvinnulaunum", sagði Lárus
S. Guðjónsson tilsjónarmaður
trúnaðarmannanámskeiðanna
fyrir MFA í samtali við Þjóð-
viljann.
Hafa
skeið
í síðustu viku var haldið 58.
námskeið fyrir trúnaðarmenn á
vegum MFA, og var það haldið í
Vestmannaeyjum. StóðMFA fyrir
námskeiðinu í samvinnu við verka-
kvennafélagið Snót og verkalýðs-
félag Vestmannaeyja. Við
spurðum Lárus hvað hafi helst ver-
ið rætt á þessu námskeiði:
„Við tókum að vanda fyrir hið
fjölbreyttasta efni tengt starfi trún-
aðarmannsins. Auk þess að fjalla
beint um hans starf og stöðu á
vinnustaðnum, ræddum við rétt-
indi verkafólks samkvæmt lögum
og samningum, heilbrigðis- og
öryggismál á vinnustöðum,
lífeyrissjóðsmálin, starfsemi
verkalýðsfélaganna í Eyjum, vinn-
ustaðafundi og fleira. Þá ræddum
við einnig starfsemi og skipulag
samtaka atvinnurekenda í
7 I "W ' , . M \Æm „ |i| : .Mi % W»S
— * m y wk‘Jk.~ IfSfl y f|l jSptr-H
Þátttakendur á trúnaðarmannanámskeiði verkalýðsfélaganna í Eyjum og MFA voru margir og áhuginn fyrir viðfangsefninu mikiil eins og sjá má.
Ljósm. Oli Pétur.
haldið 58 nám
á sl. 6 árum!
Vestmannaeyjum svo og skipulag
og starf okkar eigin samtaka".
Og fyrirlesarar hafa verið marg-
ir að vanda?
„Já, þarna héldu fyrirlestra um
lífeyrismálin þeir Hrafn Magnús-
son, Gísli Engilbertsson og Hörður
Óskarsson. Arnar Sigmundsson
kynnti Vinnuveitendafélag Vest-
mannaeyja eins og það heitir.
Tryggvi Þór Aðalsteinsson fjallaði
um ASÍ og fræðslustarf MFA og ég
tók fyrir m.a. starf trúnaðarmanns
ins, heilbrigðis- og öryggismál
vinnustaða auk þess sem ég hafði
stjórn námskeiðsins fyrir hönd
MFA á minni könnu“.
En hvernig er kostnaðar-
skiptingin vegna námskeiða?
„Eins og ég sagði áðan kveða
kjarasamningar svo á að þátttak-
endur halda sínum dagvinnu-
launum í þann vikutíma sem nám-
skeiðið stendur. Þegar námskeiðin
eru haldin úti á landi greiða við-
komandi verkalýðsfélög helming
ferðakostnaðar, námsgögn og upp-
ihald allra þátttakenda og leiðbein-
endanna svo og kostnað allan við
undirbúning námskeiðsins á okkar
skrifstofu. Ef námskeiðin eru hald-
in hér á Reykjavíkursvæðinu
greiða hins vegar verkalýðsfélögin
laun leiðbeinenda og námsgögn.“
Og þið hjá MFA hafið og haldið
annars konar námskeið?
„Þátttakendur á þessum 58
trúnaðarmannanámskeiðum okk-
ar eru nú komnir yfir fyrsta þús-
undið í fjölda en auk þess hefur jú
MFA haldið um 60 önnur nám-
skeið af ýmsu tagi í samvinnu við
Alþýðusambandið síðustu 5 árin.
Flest hafa þessi námskeið verið sk.
félagsmálanámskeið, eða 40, og
hafa þátttakendur á þessum nám-
skeiðum verið rúmlega 1100 tals-
ins. Á þessum námskeiðum hefur
verið fjallað um hin margvíslegustu
mál eins og stjórnun stéttarfélaga,
fjármá! og bókhald stéttarfélaga,
útgáfumál og fjölmiðlun, vinnu-
vernd, neytendavernd og verðlags-
mál, húsnæðismál, námskeið fyrir
leiðbeinendur á sviði félagsmála-
kennslu svo og fyrir leiðbeinendur
um vinnuvernd. Og auk þessa hafa
svo verið haldin um 40 félagsmála-
námskeið eins og ég sagði áðan“.
Hyggist þið gefa fóiki kost á
framhaldsmenntun?
„Það er einmitt á döfinni núna
að halda fyrsta framhaldsnám-
skeiðið á Akureyri innan skamms.
Þar verða þátttakendur þeir einir
sem hafa lokið því námskeiði sem
hingað til hefur verið boðið upp á.
Á þessu fyrirhugaða framhalds-
námskeiði verður farið dýpra í
Stefnum
á framhalds-
námskeið
segir
Lárus S.
Guðjónsson
starfsmaður
MFA
saumana á einstökum þáttum og
nemendum gert að starfa mun
sjálfstæðar en hingað til. Við ætl-
um að leggja áherslu á launamálin
svo og heilbrigðis- og öryggismál
vinnustaða, atvinnulýðræði og
fleira. Allt eru þetta þó hugmyndir
en nánara verður síðar ákveðið um
námskeiðin", sagði Lárus S. Guð-
jónsson hjá MFA.
í samningunum 1977 fengust þau réttindi að trúnaðarmönnum var gert kleift að sækja
námskeið einu sinni á ári á dagvinnulaunum.
Lárus Guðjónsson fræðslufulltrúi MFA afhendir einum nemanda „prófskírteinið“. Jón
Kjartansson formaður Verkalýðsfélags Vestmannaeyja í forgrunni.