Þjóðviljinn - 08.02.1983, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 8. febrúar 1983 ÞJÓÐVJLJINN - SÍÐA 13
Geðlæknar
og friðar-
barátta
Óttinn við að mannkynið deyi
út er kvíðafyrirbæri sem
verður æ almennara, bæði
meðal þeirra sem teljast
heilbrigðir og sjúkir á
geðsmunum. Þessi tegund
kvíða var meginviðfangsefni
ársfundar þýska sálgreiningar-
félagsins, sem nýlega var
haldinn í Berlín.
Þessi kvíði stafar af stöðugri
notkun eiturefna í landbúnaði og
matvælaiðnaði, umhverfismeng-
/
Ég kalla hana „friðarvörðinn“. En verði henni sleppt verður ekkert eftir sem er þess virði að varið sé.
Teikning eftir Vsevolod Arsenyev.
Ottiim við endalok mannkyns
á dagskrá geðlæknaþings
un, vaxandi notkun kjarnorku til
orkuframleiðslu, óleystum vand-
amálum er varða losun geislavirkra
úrgangsefna og eyðingarmætti
k j arnorku vopnanna.
Ársfundinn sóttu 900 fulltrúar
frá þýskumælandi löndum. Forseti
fundarins, prófessor Ulrich Ruger
frá Berlín, sagði við setningu fund-
arins að hvers konar kvíði gegndi
mikilvægu hlutverki við meðhöndl-
un geðrænna truflana. Sagði hann
að kvíðinn gæti bæði verið orsök
eða afleiðing líkamlegra og tilfinn-
ingalegra truflana.
En kvíðinn er ekki eingöngu
sjúklegur, sagði prófessorinn. í
hinum heilbrigðu gegnir hann því
mikilvæga hlutverki að vara við
hættu. Kvíðinn og óttinn verða þá
fyrst að sjúklegum fyrirbærum,
þegar hann beinist að hættum sem
ekki eru til staðar eða eru lítil-
vægar.
Tvenns konar
viðbrögð
Friedrich Beese, formaður
þýska sálgreiningafélagsins skil-
greindi viðbrögð manna á eftirfar-
andi hátt:
„Annars vegar höfum við þá sem
leita út fyrir okkar þjóðfélag, fylg-
ismenn friðarhreyfingarinnar, um-
hverfisverndarmenn og náttúru-
lækningafólk, - hins vegar höfum
við hinn breiða fjölda sem lifir í
nábýli við kjarnorkuvopnaforða-
búrin, þá sem vita að hundruðum
sovéskra SS-20 eldflauga er beint
að heimabæjum þeirra og þá sem
vita um afleiðingarnar af eld-
flaugauppbyggingu Nato, en halda
engu að síður áfram að lifa sínu
daglega lífi eins og þessar ógnir
væru ekki til.
Bees sagði að eitt einkenni hins
nýja kvíða væri að fólk óttaðist
ekki einungis um eigið líf, heldur
liti það á sjálft sig sem „hlekk í
mannkynskeðjunni", og það ótt-
aðist að ef hlekkurinn bresti muni
það þýða endalok mannkyns.
Bæling óttans
Karl Köning, prófessor í
geðlækningum frá Göttingen
leitaði í erindi sínu skýringa á þeirri
öflugu viðleitni sem uppi væri í þá
átt að bæla niður óttann. „Ég gæti
vel ímyndað mér að ef okkur yrðu
allar hliðar hættunnar ljósar, þá
yrði það okkur um megn að bregð-
ast við þeim, því óttinn verkar lam-
andi“, sagði hann. Því sagði hann
að manninum hefði til þessa reynst
nauðsynlegt að bæla óttann innra
með sér á meðan hættan væri að
líða hjá (til dæmis heimsendaspá
eða halastjarna). Hins vegar liði sú
hætta, sem okkur stafar af um-
hverfismengun, eiturefnum í mat
og kjarnorkuvopnabúrum stór-
veldanna ekki hjá af sjálfu sér. Því
gagni það ekki lengur að birgja ótt-
ann inni.
Geðlækningar
og stjórnmál
Hingað til hefur það verið við-
tekin regla þeirra sem leggja stund
á sálgreiningu sem lækningarað-
ferð að halda sig utan við stjórn-
mál, og er það í samræmi við skoð-
anir Freuds. Hvað hann varðaði,
þá gilti þetta sérstaklega um atriði
er vörðuðu stríð og frið.
Freud setti fram kenningu sína
um dauðahvötina árið 1920, en
samkvæmt henni hefur maðurinn
óhjákvæmilega innbyggða árásar-
hvöt og sjálfstortímingarhvöt, og
því væri stríðið eðlilegur þáttur í
mannlegri tilveru.
Þessari kenningu hefur hins veg-
ar verið hafnað á síðari árum af æ
fleiri yngri manna af Freud-
skólanum.
Talsmaður þeirra á fundinum,
Hort Petri, sagði að ekkert hefði í
rauninni staðfest kenninguna um
sjálfstortímingarhvötina. Því bæri
geðlæknum að taka opinbera af-
stöðu með allri friðarviðleitni.
Hann sagði að geðlæknunum bæri
að taka upp samstarf við friðar-
hreyfinguna og standa upp til varn-
ar henni á opinberum vettvangi.
Petri sagði að geðlæknar yrðu einn-
ig að snúa sér til þess fólks sem er
fráhverft því að taka pólitíska af-
stöðu, fólksins sem flýr frá ógnurn
kjarnorkustríðsins inn í sinn einka-
heim og segir: „Stjórnmál eru ekk-
ert fyrir mig“.
Verksvið
geðlækninga
Hann sagði að almenningur
mætti ekki breiða yfir þær hættur
sem að honum stafa, því augljóst
væri að andspyrna almennings væri
það eina sem komið gæti í veg fyrir
helför mannkyns.
Þá sagði Hort Petri að það væri í
verkahring þeirra er legðu stund á
sálgreiningu að upplýsa almenning
um fyrirbæri kvíðans og óttans og
þau varnarviðbrögð sem maðurinn
býr yfir gagnvart honum, og verða
virk um leið og fólki verður ljóst í
hverju ógnin er fólgin.
Það er í senn eðlilegt og'athyglis-
vert að hugmyndir sem þessar
innan geðlæknisfræðinnar skuli
koma upp í Þýskalandi, sem er
klofið í tvennt og pakkað með
vopnum beggja vegna landamær-
anna í slíku mæli, að augljóst er
að Þjóðverjar munu ekki lifa ann-
að stríð. Umræðan um vígbúnaðar-
kapphlaupið í Þýskalandi hefur
líka gert það að verkum að líklega
er almenningur hvergi betur upp-
lýstur um þessi mál en einmitt þar.
ólg./Hannoversche Allgemeine
Heimilisbölið
þyngra en tárin
Ewing-fjölskyldan afar slæmt
fordæmi fyrir hina þýsku fjölskyldu
Mala domestica majora sunt
lacrimis, - heimilisbölið er þyngra
en tárin - er haft eftir Bryi\jólfi
biskupi.
Nú hefur þetta máltæki enn einu
sinni sannast á hinni margmæddu
Ewing-fjölskyldu, sem flestum ís-
lendingum er nú kunn úr sjón-
varpsþáttunum Dallas. í þetta sinn
kom áfallið þó úr óvæntri átt, eða
frá ríkisstjórn Helmut Kohl í
Bonn. Það var flokkssystir kansla-
rans og ráðherra fjölskyldumála í
Sambandslýðveldinu, Irmgard
Karwatzki, sem lýsti því yfir úr
ræðustól sambandsþingsins í
Bonn, að Ewing-fjölskyldan væri
afar slæmt fordæmi fyrir hina
þýsku fjölskyldu.
Tilefni yfirlýsingarinnar var
fyrirspurn frá jafnaðarmanninum
Hans Wallow á þinginu, en hann
hafði spurt ráðherrann hvernig
hægt væri að boða fornar dyggðir
eins og ást, trygglyndi, trúnaðar-
traust, umburðarlyndi og ábyrgð-
artilfinningu á meðan 92 Dallas-
þáttum um Ewing-fjölskylduna
væii troðið inná hvers manns heim-
ili í Þýskalandi. Hvers eiga Ew-
ingarnir að gjalda?
ólg
Dallas-fjölskyldan - að henni er nú vegið á sambandsþinginu í Bonn.
Afstaða
Kvennaframboðs til
Leig j endasamtakanna
í borgarráði:
Hroðaleg
mistök
sagði Magdalena
Schram
um mótatkvæði sitt
Það verður að viðurkennast að
ég gerði hroðaleg mistök, sagði
Magdalena Schram m.a. á borgar-
stjómarfundi sl. fimmtudag við um-
ræðu um tillögu frá Sigurjóni Pét-
urssyni um að Leigjendasamtökun-
um yrði veittur styrkur til að koma
upp húsaleigumiðlun. Þegar erindi
Leigjendasamtakanna var til af-
greiðslu í borgarráði fyrir viku síð-
an, greiddi hún atkvæði gegn því og
hlaut það aðeins atkvæði Sigurjóns
Péturssonar.
Orðum sínum til áréttingar flutti
Magdalena svofellda bókun frá
Kvennaframboðinu: „Kvennafram-
boðið hefur tvisvar flutt tillögur
í borgarstjórn um að komið verði á
fót leigumiðlun í Reykjavík. Báðar
þær tillögur voru felldar. Kvenn-
aframboðið stendur eftir sem áður
einhuga að þessu máli og mun
halda áfram að vinna samhuga að
því marki að leigumiðlun verði
stofnsett í höfuðborginni".
Tillagan um styrkinn hlaut
aðeins 8 atkvæði; Kristján Bene-
diktsson og allir borgarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins sátu hjá.
-ÁI
Stjórn Starfsmanna-
félags BÚR:
Harmar
blaðaskrif
um fyrir-
tækið
Starfsmannafélag Bæjarútgerð-
ar Reykjavíkur hefur nú sent frá
sér ályktun þar sem hörmuð er sú
umfjöllun sem átt hefur sér stað í
dagblöðum að undanförnu. Telur
stjórn Starfsmannafélagsins að
skrifin skaði fyrirtækið inn á við
sem út á við og gefi ekki rétta mynd
af starfsemi BUR
Björn Guðbjörnsson, sem sæti á í
stjórninni sagði að áberandi mikið
hefði að undanförnu verið skrifað
um taprekstur á Bæjarútgerðinni.
Aldrei væri í þeim skrifum minnst á
að hagnaður væri af fiskvinnslunni
og skreiðarverkuninni. Sagði hann
að sú mynd sem með þessu væri
dregin upp af BÚR væri röng og
hefðu starfsmenn fyrirtækisins
greinilega orðið þess varir að þessi
skrif hefðu áhrif á almenning. Væri
tæpast að menn þyrðu að viður-
kenna að þeir ynnu hjá BÚR!
húsbysgjendur
ylurmn er
~ göður
Afgreiðum einangrunarplasl á
Stór-ReykjavikursvsðiA frá
mánudegi — föstudags.
Afhendum vóruna á byygingarstað,
viðskiptamonnum að kostnaðar
lausu. Hagkvaemt verð og
greiðsluskilmalar
vtð flestra haefi.
Borgarptatt hl
TWÓ
mt