Þjóðviljinn - 08.02.1983, Page 10
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 8. febrúar 1983
Forval Alþýðubandalagsins í Norðurlandi eystra:
Þátttakendur í síðari umferð
Síðari umferð forvais Alþýðubanda-
lagsins um skipan framboðslista
flokksins í Norðurlandskjördæmi
eystra fer fram um næstu helgi - laug-
ardaginn 12. og sunnudaginn 13.
febrúar. Á kjörseðlinum standa nú
nöfn þeirra átta, er flest atkvæði hlutu í
fyrri áfanga forvalsins og gáfu kost á
sér til síðari umferðar. Kjósandi skal
merkja við fjögur nöfn á seðlinum
með tölunum 1,2,3, og 4.
Þjóðviljinn kynnir hér á opnunni þau
átta, sem taka þátt í síðari umferðinni.
Við báðum þátttakendur einnig að
svara eftirfarandi spurningu:
Hvaða mál telur þú að eigi að
hafa forgang í stefnu Alþýðu-
bandalagsins?
Dagný Marinósdóttir Sauðanesi, N-
Þingeyjarsýslu. F. 12. maí 1947. For-
eldrar: Sr. Marinó Kristinsson og Þór-
halla Gísladóttir. Dagný er fædd og
uppalin á Héraði, á Valþjófsstað og í
Vallanesi. Hún stundaði nám við Al-
þýðuskólann á Eiðum og lauk þaðan
Stöndum
vörð
um
sjálfstæðið
Landsprófi 1964. Nám í Kennaraskóla
Islands og próf þaðan 1968. Var kenn-
ari á Þórshöfn í nokkur ár en er nú
húsmóðir á Sauðanesi. Hún er gift Ág-
ústi Guðröðarsyni bónda á Sauðanesi
og 5 barna móðir.
Minnkum
Aðalverkefnin framundan eru
þessi: að lækka verðbólgu, draga
úr viðskiptahalla og minnka
launamisrétti í landinu.
Ef stjórn efnahagsmála miðaðist
við þá einföldu staðreynd að ekki
sé eytt meiru ef aflast myndi margt
færast til betri vegar í þjóðfélaginu.
Sjálfsagt leiddi slík stefna til minn-
kandi atvinnu og vissulega er margt
ógert á íslandi sem réttlætir hóf-
legar, erlendar lántökur. Hitt er al-
gjör nauðsyn að draga úr gengdar-
lausum innflutningi sem virðist
ásamt með verðbólgu og hávax-
tastefnu vera að ganga að mörgum
greinum íslensks iðnaðar dauðum.
Varðandi misrétti í launamálum
sýnist mér tímabært að fara að lög-
festa tillögu, sem einu sinni kom
fram á Alþingi, þar sem lagt var til
að enginn mætti þiggja meira en
tvöföld verkamannalaun. Mérsýn-
ist að launamisréttið hafi lamað
starfsemi launþegasamtakanna í
landinu. Mennt er máttur, segir
máltækið; það virðist ætla að sann-
ast áþreifanlega hér. Hitt er þó
staðreynd, að það er ófaglært lág-
launafólk, sem vinnur flest þau
störf, sem gera ísland að velferðar-
þjóðfélagi.
Allra síðast tel ég þó, að mál
málanna sé: ísland úr NATÓ- her-
inn burt.
Eysteinn Sigurðsson, Arnarvatni,
Mývatnssveit. Fæddur 6. okt. 1931.
Foreldrar: Sigurður Jónsson og Hólm-
fríður Pétursdóttir.
Eysteinn er fæddur og uppalinn á Arn-
arvatni. Tók landspróf frá Héraðsskól-
anum á Laugum 1950 og var einn vetur
við búnaðarnám og störf i Noregi. Hann
stundaði öll venjuleg sveitastörf í upp-
vextinum, var fjögur ár kennari og bryti
að Laugum en síðan 1959 hefur
Eysteinn verið bóndi á Arnarvatni og
auk þess haft atvinnu af vörubifreiða-
akstri.
Eysteinn var einn af stofnendum
Þjóðvarnarflokksins og starfaði þar og í
Samtökum herstöðvaandstæðinga.
Kona Eysteins er Halldóra Jónsdóttir
og eiga þau tvö börn.
Alþýðubandalagið á að berjast
fyrir jafnrétti milli einstaklinga og
þjóða, bættum kjörum láglauna-
fólks og aukinni félagslegri þjón-
ustu við þá sem minna mega sín í
þjóðfélaginu. Fækka þarf launa-
flokkum og minnka bilið á milli
þeirra. Jöfnun orkuverðs er mikið
réttlætismál og að því verður að
vinna.
Alþýðubandalagið á að standa
vörð um iíf og sjálfstæði íslensku
þjóðarinnar, krefjast þess að við
segjum okkur úr NATÖ og að her-
inn verði látinn fara úr landi, svo að
við getum talist hlutlaust ríki. Það á
að efla friðarhreyfingar og vinna
gegn kjarnorkuvopnum hér og í
öðrum löndum. Þar er efst á blaði
að Norðurlöndin verði laus við
kjarnorkuvopn.
Alþýðubandalagið á að berjast
Erlingur Sigurðarson, Vanabyggð
10c, Akureyri. Fæddur26.6.1958. For-
eldrar: Sigurður Þórisson og Þorgerður
Benediktsdóttir.
Fæddur og uppalinn að Grænavatni í
Mývatnssveit. Stúdentspróf 1969, B.
A.. próf í íslensku og sögu frá H. í. 1976,
próf í uppeldis- og kennslufræði 1981.
fyrir íslenskri atvinnustefnu um allt
land, en gegn erlendri stóriðju, -
fyrir því að full atvinna haldist en
gegn fordómum og hvers konar
misskilningi milli stétta í þjóðfé-
laginu, eins og t.d. þeirri undarlegu
umræðu, sem iðkuð hefur verið á
síðustu árum og beinist gegn ís-
lenskum Iandbúnaði.
Vinna þarf að betri nýtingu á því
sem landið og sjórinn gefa af sér og
koma í veg fyrir þá sóun verðmæta,
sem hér viðgengst.
Meiri áherslu verður að leggja á
náttúruvernd. Við verðum að
hætta að sökkva stórum gróður-
löndum vegna stórvirkjana og
koma í veg fyrir ofbeit og ofveiði og
óhóflegan árgang erlendra sem
innlendra ferðamanna.
Við eigum ekki landið ein. Við
verðum að skila því með gögnum
og gæðuni til afkomenda okkar.
Vinnur nú að kandídaisritgerð í sögu.
Erlingur kenndi við M. A. 1969-70 og
síðan 1978. Hann hefur unniö ýmis
störf á vegum Abl. og herstöðvaand-
stæðinga. Hann á sæti í miðstjórn Abl.
og stjórn kjördæmisráðs. Giftur Sigríði
Stefánsdóttur og eiga þau þrjú börn.
Aldrei álver í Eyjafirði
Skipa ber manninum og um-
hverfi hans í öndvegi, og sókn sína
til fagurra mannlífs hlýtur Abl. að
byggja á Sósíalismanum. Vissulega
öðlumst við aldrei hið fullkomna
þjóðskipulag en hvar stæðum við
án vonarinnar um betra líf, án
draumsýnarinnar um óskalandið,
þar sem samhjálp og jöfnuður
ríkja? Á meðan við eigum mark að
stefna að hlýtur okkur að~ skila
nokkuð áleiðis, og Abl. er sóknar-
fylking okkar í þátt átt.
. Stundum blöskrar mér hin
þrönga krónuhyggja, þegar miklar
félagslegar umbætur eru einskis
metnar vegna þess að þær koma
ekki beint upp úr launaumsiögun-
um. Abl, er hinn pólitíski baráttu-
vettvangur launafólks og ber að
efla samstöðu þess í stað þeirrar
sundrungar og innbyrðis átaka,
sem nú ríkja, um hinn skarða hlut
þess af þjóðarkökunni margum-
ræddu. Pann hlut á að stækka,
m.ö.o. að breyta tekjuskiptingunni
í stað þess að slást innbyrðis um
hann.
Jafnrétti er stórt orð og að því
hlýtur Abl. að keppa. Þrátt fyrir
augljóst misrétti kynjanna má það
ekki gleymast að jafnrétti er fleira
en jöfn staða þeirra. Ég nefni efna-
hagslegt misrétti eða búsetulegt
misrétti til náms og starfa eða til
þess að njóta ávaxta menningar-
innar. Því hlýtur Abl. að stefna að
jafnrétti í víðari skilningi þess orðs
en nú tíð.kast mest að nota.
Um ömurleik erlendrár stóriðju
og arðrán af hennar völdum þarf
ekki að hugleiða, en ísl. mengun-
arvaldandi stóriðja með félagslegri
röskun er engu betri. Því ber að
gjalda varhug við hvers konar á-
formum í þá átt, og álver við Eyja-
Tryggja ber öllum fulla
Málsvari verkalýösins
Helgi Guðmundsson, Hraunholti 2,
Akureyri. Fæddur9. okt. 1943. Foreldr-
ar: Sr. Guðmundur Helgason (d. 6.7.
1952) og Hulda Sveinsdóttir.
Fæddur á Staðastað á Snæfellsnesi en
fluttist með foreldrum sínum til Nesk-
aupstaðar 1943 og ólst þar upp.
Sveinsþréf í húsasmíði 1967. Hefur
tekið virkan þátt í störfum verkalýðs-
hreyfingarinnar og sömuleiðis gegnt
fjölda trúnaðarstarfa fyrir Ab. Er nú for-
maður MFA. Gegnir starfi formanns
stjórnar verkamannabústaða á Akur:
eyri og jafnframt starfsmaöur hennar. í
bæjarstjórn Akureyrar fyrir Ab. frá 1978
og í bæjarráði frá 1982. Helgi er kvænt-
ur Ragnheiði Benediktsdóttur og eiga
þau tvö börn.
Alþýðubandalagið er og verður
að vera málsvari verkalýðsins í
landinu til sóknar og varnar í Iífs-
kjarabaráttu hans í víðustu merk-
ingu. Einn málaflokkur verður
ekki tekinn út úr umræðunni um
stefnu Alþýðubandalagsins án
samhengis við þá baráttu.
Alþýðubandalagið berst fyrir
jöfnuði, ekki aðeins efnahags-
legum, heldur og jöfnuði í mennta-
málum, menningarmálum og öll-
um þeim málaflokkum, sem
mynda stjórnmálastarfið í einu
þjóðfélagi.
Ég hef sjálfur starfað það lengi í
verkalýðshreyfingunni, að ýmis
réttindamál verkafólks eru mér
efst í huga. Ég tel brýna nauðsyn á
því að verkalýðshreyfingin eflist á
pólitíska sviðinu. Þannig getur hún
best fylgt þeim málum eftir sem
hún berst fyrir.
Auk þess að vera þetta baráttu-
tæki verkafólks verður Abl. einnig,
og ekki síður, að leggja áherslu á
sjálfstæðisbaráttu í samfélagi þjóð-
anna. Þar skipta utanríkismál höf-
uðmáli, bæði mál er varða sam-
skipti Islands við umheiminn og
ekki síður mál þar sem íslendingar
geta lagt lóð sín á vogarskálar
smælingjanna í baráttu þeirra fyrir
betra lífi.
Alþýðubandalagið berst fyrir
friði, fyrir úrsögn íslands úr Atl-
antshafsbandalaginu og brottför
bandaríska hersins. Á þessi mál vil
ég leggja áherslu, og ekki aðeins
sem áhugamál mitt, heldur tel ég
að hver einasti vinstri sinni í
landinu verði að gera sér ljóst, að
það er aðeins með eflingu Alþýðu-
bandalagsins sem þessi mál komast
í þann brennidepil, sem þau þurfa
sífellt að vera í.
fjörð, eins og æ heyrist klifað um,
kemur ekki til greina að reisa.
Atvinnu okkar hljótum við að
byggja á innlendum hráefnum og
gæðum lands og sjávar.
Öll viljum við frið, en látum ekki
umræðuna um þau mál byrgja okk-
ur svo sýn að við sjáum ekki bjálk-
ann í eigin auga. Okkar lóð á vog-
arskálina til friðar í heiminum er að
kippa honum á brott.
ísland úr NATÓ - herinn burt.
Kristján Ásgeirsson, Álfhóli 1, Húsa-
vík. Fæddur 26. júlí 1932. Foreldrar:
Ásgeir Kristjánsson og Sigríður Þórðar-
dóttir.
Kristján er fæddur og uppalinn á Húsa-
vík og lauk þar gagnfræðaprófi 1949.
Stundaði sjómennsku frá unglingsár-
um og vann við eigin útgerð á Húsavík
frá 1953-1976 að hann gerðist út-
gerðarstjóri Höfða hf.
Kristján hefur lengi setið í stjórn Verka-
lýðsfélags Húsavíkur og I stjórn Sam-
vinnufélags útgerðarmanna og sjó-
manna. Stjórnarformaður saumastof-
unnar Prýði hf. á Húsavík. Á sæti í sam-
bandsstjórn ASÍ og VMSÍ og hefur unn-
ið fleiri félagsstörf á vegum sjómanna
og verkamanna.
Kristján hefur setið í bæjarstjórn Húsa-
víkur frá 1974 og í bæjarráði frá sama
tíma. Hann er giftur Erlu Helgadóttur og
er þriggja barna faðir.