Þjóðviljinn - 29.03.1983, Side 7
Þriðjudagur 29. mars 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7
Hristari fyrir loðnu
Bátasmíði í ráðherratíð Áka Jakobssonar
ið er soðið í vatnssjóðara, sem not-
ar kondensvatn frá þurrrkara og
soðkjarnatækinu sem upphitun-
armiðil. Eftir að hráefnið hefur
verið soðið þá er það skilið í lýsi,
þurrefni og vökva á hefðbundinn
hátt. Vökvafasinn er settur í
soðkjarnatæki og soðkjarni og fast
efni fer í gufuþurrkara. Hráefnis-
rými þurrkarans er loftþétt og ekk-
ert loft er dregið yfir hráefnið við
þurrkun. Gufa er tekin frá hráefn-
ishlið þurrkara og sjóðara við 100
gr. C, henni þjappað saman með
gufuþjöppu upp í 2,4 bar „abso-
lute“ þrýsting og hún síðan kæld
niður í mettunarhitastig.
Þessi gufa 2,4 bar mettuð er not-
uð á gufuhlið soðkjarnatækisins,
auk þess er hluta af gufunni þjapp-
að saman með annarri gufuþjöppu
úr 2,4 bar „absolute" í 6 bar. Síðan
kæld í mettunarhitastig og notuð á
gufuhlið þurrkara. Kondensvatnið
frá þurrkara og sjóðara er síðan
notað til upphitunar á hráefninu í
sjóðaranum.
1000 kg
á klukkustund
Verksmiðjan er hönnuð fyrir af-
köstin 1000 kg á klst..Smíði verk-
smiðjunnar er langt komið en ekki
lokið. Áður en smíði hófst var
tvennt, sem við héldum að e.t.v.
gæti komið í veg fyrir að þétta væri
hægt. Annað var, að það mynd-
aðist svo mikið af óþéttanlegum
lofttegundum við þurrkunina, að
ógerlegt yrði að nota gufuna frá
þurrkaranum. Hitt var, að þurrk-
unin næðist ekki nema loft væri
dregið yfir efnið í þurrkaranum,
vegna þess að rakajafnvægi mynd-
aðist milli gufunnar og mjölsins.
Til þess að komast að raun um
hvort þessi atriði myndu valda erf-
iðleikum, var smíðaður tilrauna-
þurrkari, sem tók 1-2 kg. af hráefni
og í honum var framleitt mjöl án
þess að nokkurt loft væri dregið
yfir hráefnið, auk þess voru mæld-
ar óþéttanlegar lofttegundir, sem
mynduðust við þurrkunina.
Þessar tilraunir lofuðu mjög
góðu. Mjölið þornaði ágætlega og
óþéttanlegu lofttegundirnar
reyndust ekki vera það miklar, að
við þyrftum að búast við vandamál-
um þessvegna.
110 kwst. pr.-
1 tonn hráefnis
Fræðileg orkuþörf í báðum gufu-
þjöppurum er 49,7 kw. Við höf-
um gert ráð fyrir 45% nýtni í press-
un og þá er orkuþörfin 110 kw,
þ.e.a.s. orkunotkun verk-
smiðjunnar yrði þá 110 kwst. pr. 1
tonn hráefnis. Þetta samsvarar í
orkumagni sama og 10 kg. af oiíu
pr. 1 tonn hráefnis. Ef gufuþjöpp-
unni er snúið með díselvél með
38% nýtni þarf 26 kg. af olíu pr. 1
tonn hráefnis.Þessar tölur byggj-
ast á áætlaðri nýtni, og 'ef þessi
aðferð verður notuð þá lækka þær,
þegar búnaðurinn þróast með
tímanum.
Þar sem loft er ekki dregið gegn-
um þurrkarann verður ekki um
loftmengun að ræða. Öll gufan,
sem tekin er úr hráefninu, er þétt
og kemur í vökvaformi úr verk-
smiðjunni.
Ef hefðbundnum verksmiðjum á
íslandi væri breytt í verksmiðju
eftir þessari aðferð, þarf að kaupa
nýja sjóðara og nýja þurrkara og í
staðinn fyrir gufuketil kemur gufu-
þjappa. Önnur tæki í verksmiðj-
unni nýtast eftir sem áður.
Njótum engra
forréttinda
- Nú er stundum verið að hnýta í
Landsmiðjuna, Ágúst, og hún talin
lítið erindi eiga í íslensku atvinnu-
lífi. Hvað viltu segja um þá kenn-
ingu?
- Já, þetta mun nú stafa af því að
Landsmiðjan er ríkisfyrirtæki. En
sannleikurinn er sá, að við störfum
alveg eins og um einkafyrirtæki
væri að ræða. Við borgum alla
skatta og skyldur rétt eins og þau
og fáum enga fyrirgreiðslu frá rík-
inu. Og því skyldu ríkisfyrirtæki
ekki mega starfa við hlið einkafyr-
irtækja ef þau búa við sömu að-
stæður?
Ég tel að allar gerðir fyrirtækja
eigi rétt á sér á íslandi ef þeim er
búinn sami starfsgrundvöllur. Þótt
Landsmiðjan sé ríkisfyrirtæki er
ríkið minnsti viðskiptavinur. Það
eru í mun meira mæli ýmsir einka-
aðilar. Og ég geri ráð fyrir að svo sé
af því að þeir telji viðskiptin við
okkur hagkvæm. Mér finnst furðu-
legt að agnúast skuli út í fyrirtæki,
sem ganga vel og vera að tala um að
leggja þau niður. Fremur ætti að
aðstoða þau til þess að gera enn
betur því lengi er hægt að bæta um
og á það við alla.
- Hvað lengi hefur þú veitt Land-
smiðjunni forstöðu, Ágúst?
- Eg hef gert það í sjö ár.
- Og hvað vinna margir hér?
- Síðustu árin hafa unnið hér um
80-100 manns, dálítið breytilegt
eftir verkefnum.
- Framtíðin?
- Framtíðin, já. Þegar Áki Jak-
obsson var ráðherra þá gekkst
hann fyrir því, að hafin var
raðsmíði fiskibáta. Hún gekk vel
en svo fór samt, að þegar Áki yfir-
gaf ráðherrastólinn var fótunum
kippt undan þessari starfsemi. Því
minnist ég á þetta nú, að á seinni
árum hefur Reykjavík dregist aftur
úr í þjónustu við skipaiðnaðinn.
Með ekki svo mjög miklu átaki
væri hægt að vinna þetta upp og
skapa þannig 350 manns atvinnu
við þennan iðnað, án þess að taka
nokkuð frá innlendum samkeppn-
isaðilum. Væri ekki vert að gefa
þessu gaum þegar litið er til fram-
tíðarinnar?
-mhg
Framboðs-
listar
í Reykjaneskjördæmi til
alþingiskosninga 23. apríl 1983
A-listi Alþýðuflokksins.
1. Kjartan Jóhannsson, alþm., Jófríðarstaðavegi 11, Hf.
2. Karl Steinar Guðnason, alþm., Heiðarbrún 8, Keflavík.
3. Kristín H. Tryggvad., fræðsluf.tr., Hraunhólum 10,
Garðabæ.
4. Hauður Helga Stefánsdóttir, gjald., Hlíðarvegi 31, Kóp.
5. Ólafur Bjömsson, út.gm., Austurgötu 11, Keflavík.
6. Ólafur H. Einarsson, trésmm. Arkarholti 8, Mosfellssveit.
7. Ásthildur Ólafsdóttir, ritari, Tjarnarbraut 13, Hafnarfirði.
8. Kolbrún Tóbíasdóttir, húsmóðir, Leynisbrún 3, Grindavík.
9. Gunnlaugur Stefánsson, guðfr., Arnarhrauni 42, Hf.
10. Emil Jónsson, fyrrv.ráðherra, Hrafnistu, Hafnarfirði.
B-listi Framsóknarflokksins.
1. Jóhann Einvarðsson, alþm., Norðurtúni 4, Keflavík.
2. Helgi H. Jónsson, fréttamaður, Engihjalla 9, Kópavogi.
3. Arnþrúður Karlsdóttir, útv.m., Hjallabraut 17, Hafnarfirði.
4. Inga Þyri Kjartansdóttir, snyrtifr., Fögrubrekku 25, Kóp.
.5. Ólafur í. Hannesson, aðalfulltrúi, Hlíðarvegi 76, Njarðvík.
6. Þrúður Helgadóttir, verkstj., Grundartanga 46, Mosf.
7. Arnþór Helgason, kennari, Tjarnarbóli 14, Seltjarnarnesi.
8. Guðmundur Karl Tómasson, rafv.m., Efstahr. 5, Grindav.
9. Magnús Sæmundsson, bóndi, Eyjum, Kjósarhreppi.
10. Örnólfur Örnólfsson, sölumaður, Hofslundi 15, Garðabæ.
C-listi Bandalags jafnaðarmanna
1. Guðmundur Einarsson, lektor, Kópavogsbraut 18, Kóp.
2. Þórður H. Ólafsson, tæknifr., Hæðargarði 7C, Reykjavík.
3. Ragnheiður Ríkharðsdóttir, kennari, Byggðaholti 49, Mosf.
4. Pétur Hreinsson, starfsm. ísal, Borgarhrauni 5, Grindavík.
5. Þorsteinn V. Baldvinsson, verktaki, Vallargötu 16, Keflavík.
6. Auður G. Magnúsdóttir, nemi, Nesvegi 64, Reykjavík.
7. Kolbrún S. Ingólfsdóttir, húsm., Barðaströnd 29, Seltj.
8. Stefán Baldvin Sigurðsson, lífeðlisfr., Birkigrund 66, Kóp.
9. Bragi Bragason, starfsm. ísal, Bröttukinn 33, Hafnarf.
10. Páll Hannesson, verkfræðingur, Grænutungu 3, Kópavogi.
D-listi Sjálfstæðisflokksins
1. Matthías Á. Mathiesen, alþm., Hringbraut 59, Hafnarf.
2. Gunnar G. Schram, prófessor, Frostaskjóli 5, Reykjavík.
3. Salome Þorkelsdóttir, alþm., Reykjahlíð, Mosfellssveit.
4. Ólafur G. Einarsson, alþm., Stekkjarflöt 14, Garðabæ.
5. Kristjana Milla Thorsteinss., viðsk.fr., Haukan. 28,
Garðabæ.
6. Bragi Michaelsson, framkv.st., Birkigrund 46, Kópavogi.
7. Ellert Eiríksson, sveitarstjóri, Melbraut 3, Gerðahreppi.
8. Helgi Jónsson, bóndi, Felli, Kjósarhreppi.
9. Dagbjartur Einarsson, út.gm., Ásabraut 17, Grindavík.
10. Sigurgeir Sigurðsson, bæjarstj., Miðbraut 29, Seltj.
G-listi Alþýðubandalagsins
1. Geir Gunnarsson, alþm., Þúfubarði 11, Hafnarfirði.
2. Elsa Kristjánsdóttir, bókari, Holtsgötu 4, Sandgerði.
3. Guðmundur Árnason, kennari, Holtagerði 14, Kópavogi.
4. Þorbjörg Samúelsdóttir, verkak., Skúlaskeiði 26, Hf.
5. Gylfi Guðmundsson, skólastj., Hamragörðum 11, Keflavík.
6. Ágústa ísafold Sigurðardóttir, gjaldk., Digranesv. 97, Kóp.
7. Aðalheiður Magnúsdóttir, kennari, Dvergholti 12, Mosf.
8. Jón Rúnar Bachmann, húsasmiður, Ásbúð 71, Garðabæ.
9. Stefán Bergmann, aðst.rektor, Selbraut 34, Seltj.
I0. Guðsteinn Þengilsson, yfirl., Álfhólsvegi 95, Kópavogi.
V-listi Samtaka um kvennalista.
1. Kristín Halldórsdóttir, húsm., Fornuströnd 2, Seltj.
2. Sigríður Þorvaldsdóttir, húsm. og leikari, Lágh. 21, Mosf.
3. Sigríður H. Sveinsdóttir, húsm. og fóstra, Melgerði 3, Kóp.
4. Þórunn Friðriksdóttir, húsm. og kennari, Eskihlíð 8, Rvík.
5. Gyða Gunnarsd., húsm. og þjóðfi., Ásbúðartröð 9, Hf.
6. Sigrún Jónsdóttir, húsm. og nemi, Kjarrhólma 18, Kóp.
7. Ingibjörg Guðmundsdóttir, húsm., Vesturvangi 2, Hf.
8. Guðrún S. Gíslad., húsm. og nemi, Reynigr. 13, Garðabæ.
9. Kristín Aðalsteinsd., húsm. og hjúkr.fr., Hjallabraut 19, Hf.
10. Þórunn G. Þórarinsd., húsm. og verkak.,
Heiðarbr. 14, Keflav.
Yfirkjörstjórn Reykjaneskjördæmis
Guðjón Steingrímsson,
Björn Ingvarsson,
Þormóður Pálsson,
Páil Ólafsson,
Vilhjálmur Þórhallsson.