Þjóðviljinn - 29.03.1983, Síða 16
MOÐVIUINN
Þriðjudagur 29. mars 1983
Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
Þurfum að breyta viðhorfí og áherslum jafnt karla sem kvenna til kosningamálanna, var niðurstaða
frummælanda á fjölmennum vinnufundi kvenna í flokksmiðstöðinni. Ljósm. Ari.
Bjargey Elíasdóttir úr kosningastjórn fjallaði um kosningastarfið. Kristín
Oiafsdóttir stjórnaði fundi. Ljósm. Ari.
Fjölsóttur vinnufundur kvenna í AB:
Mildð starf framundan
í þcssum kosningum er tekist á
um varnir gegn kreppu og atvinnu-
leysi og ekki síður um sjáifstæði
þjóðarinnar, sagði Guðrún Hall-
grímsdóttir, 6. maður á G-listanum
í Reykjavík m.a. á fjölmennum
vinnufundi kvenna í AB s.l. sunnu-
dag. Þetta er ekki mál sem varðar
konur einar. Vilborg Harðardóttir
benti á að svokölluð kvennamál
væru þau mál sem karlar vanrækja
og hcfðu vanrækt. Spurning er sú
hvort við eigum einar að leysa þau
mál eða hvort við eigum að gera þá
sjálfsögðu kröfu, að þeir taki þátt í
að leysa þau. Mín skoðun er sú,
sagði Vilborg, að við hljótum að
verða að leysa þau sameiginlega og
vinna að því að brcyta viðhorfi og
áherslum karla jafnt sem kvenna.
Á fundinum var í þremur starfs-
hópum fjallað um kosningastarfið,
stefnuskrá Alþýðubandalagsins og
afstöðuna til kvennaframboðs. Var
m.a. ákveðið á fundinum að vinna
sérstakt dreifirit þar sem afstöðu
Alþýðubandalagsins til „sérmála“
kvenna verða gerð skil svo sem til
dagvistarmála, tekjutryggingar
fyrir einstæða foreldra, lengingu
fæðingarorlofs, launajafnréttis og
fleira mætti telja.
Framsögumenn á fundinum
voru Bjargey Elíasdóttir, sem sæti
á í kosningastjórn• og fjallaði um
kosningastarfið, Guðrún Hall-
grímsdóttir, sem skipar 6. sæti list-
ans fjallaði um stefnuskrá AB og
samstarfsgrundvöllur sem kynnt-
ur hefur verið, Vilborg Harðar-
dóttir fjallaði um afstöðuna til
kvennaframboðs og Margrét S.
Björnsdóttir, sem skipar 7. sæti G-
listans fjallaði um friðarhreyfingu
kvenna. Fundurinn var undirbúinn
af miðstöð kvenna í AB og er von á
öðrum slíkum svo og smærri vinnu-
fundum á næstunni.
Allar konur sem vilja taka þátt í
þessu starfi geta skráð sig til vinnu í
flokksmiðstöðinni, Hverfisgötu
105, síma 17500. _ át
Alþjóðleg
ráðstefna haldin
að tillögu Ólafs
Ragnars
Grímssonar
í Glasgow
jyI %r”at'ona/
NoR&ef*Wéí
Gronce
Thur
?th
Hall,
lOth
^"eStr,
»eí.
April
G/o
,/c
'983
s9o W3
Kjamorkuvopnalaust
N or ður-Atlantshaf
Dagana 7.-10. næsta mánaðar
verður haldin í Glasgow alþjóðleg
ráðstefna um kjarnorkuvopnalaust
Norður-Atlantshaf. Það er friðar-
hreyfingin í Glasgow sem býður til
ráðstcfnunnar, en hún hefur áður
haft frumkvæði að því að tengja
saman störf friðarhreyfinga í Evr-
ópulöndum. Það var Olafur Ragn-
ar Gímsson alþingismaður sem
flutti tillögu um sérstaka ráðstefnu
um kjarnorkuafvopnun á Norður-
Atlantshafi, er hann var fyrirlesari
á fundi í Glasgow fyrir einu ári, eins
og Þjóðviljinn greindi þá frá. Til-
lagan var samþykkt og er þetta í
fyrsta sinn sem krafan um kjarn-
orkuvopnaleysi á Norður-
Atlantshafi er sett upp sem yfir-
skrift alþjóðlegrar ráðstefnu.
f Glasgow munu koma saman 7.
ti 10. apríl fulltrúar frá Svíþjóð,
Finnlandi, Noregi, Danmörku,
Færeyjum, íslandi, Kanada, Sov-
étríkjunum, Bandaríkjunum, ír-
landi, Wales, Skotlandi og Eng-
landi - alls um 80 manns. A
ráðstefnunni verður bæði rætt um
kjarnorkuvopn á því svæði sem um
er fjallað og um sameiginlegar að-
gerðir.
„Ný kjarnorkuvopnaógn steðjar
nú að þjóðum við Norður-
Atlantshaf. Bandaríski flotinn er
að vopna herskip og kafbáta með
þúsundum nýrra stýriflauga sem
eiga að geta hitt skotmörk í
Austur-Evrópu frá gæslusvæðum á
Atlantsháfi. Þessi vopn eru hluti af
gífurlegri flotastækkun Bandaríkj-
anna - um 450 til 600 skip - sem á
að tryggja drottnun Norður-
Ameríkumanna yfir heimshöfun-
um. Á sama tíma þenja Sovétmenn
út flota sinn. Bagði stórveldin líta á
Norður Atlantshafið sem mögulegt
átakasvæði í kjarnorkustríði.“ -
Þannig segir m.a. um bakgrunn
ráðstefnunnar í boðsbréfi, þar sem
lögð er áhersla að ásælni stórveld-
anna í aðstöðu fyrir kjamorkuvíg-
vélar í löndum við Norður-
Atlantshaf ógni tilveru þeirra ,og
sjálfstæði. Friðarhreyfingar í ein-
stökum löndum hafi náð nokkrum
árangri með andófi gegn hernaðar-
uppbyggingu, en nú sé kominn tími
til þess að samræma alþjóðlega
andstöðu gegn kjamorkuvíg-
væðingu' hafsins. Aprílráðstefnan í
Glasgow sémikilvægtskref í þá átt.
- ekh.
Útifundur við alþingi
á morgun, 30. mars
Á morgun, miðvikudaginn 30. mars, halda her-
stöðvaandstæðingar útifund við Alþingishúsið. Hefst
fundurinn klukkan hálf-sex. Þennan dag verða ein-
mitt liðin 34 ár frá því Alþingi íslendinga samþykkti
aðild íslands að hernaðarbandalaginu NATÓ.
Fundarstjóri á fundinum verður Kvennalistanum í Reykjavík hefur
Njörður P. Njarðvík. Ingibjörg gefið vilyrði sitt fyrir því að halda
Haraldsdóttir mun flytja ljóð og ræðu á fundinum, eins og skýrt var
stuttar ræður flytja þeir Arnþór frá í helgarblaði Þjóðviljans, en
Helgason og Olafur Ragnar fundur Kvennalistans lýsti sig því
Grímsson. andvígan og mun því Þórhildur
Þórhildur Þorleifsdóttir hjá ekki tala. - óg.
Oll kjördæmi
í sjonvarp
Kosningabaráttan í sjónvarpi
afgreidd af útvarpsráði
Kosningabaráttan í sjónvarpinu
fer nú senn að hefjast. A fundi sín-
um í gær ákvað útvarpsráð, að
framboðskynning stjórnmála-
flokkanna skyldi hefjast mánudag-
inn 11. apríl og standa í þrjú kvöld,
þann 11., 12. og 13. apríl.
Hver stjórnmálaflokkur verður
þar með 20 mín. þátt til kynningar
á stefnu sinni. Dregið hefur verið
um röðina og er hún þessi: mánu-
daginn 11. verða Alþýðubandalag
og Sjálfstæðisflokkur, þriðjudag-
inn 12. Kvennaframboð og Fram-
sóknarflokkur og miðvikudaginn
13. Alþýðuflokkur og Bandalag
jafnaðarmanna.
Sú nýbreytni verður upp tekin að
hvert kjördæmi verður með klukku-
stundarþátt, þar sem fram-
bjóðendur þess kjördæmis leiða
saman hesta sína.
Verður það með hringborðssniði
og einn þátttakandi frá hverjum
framboðslista. Röð kjördæmanna
verður þessi. Laugardag 16. apríl
kl. 15 Norðurland vestra og kl. 16
Norðurland eystra. Sunnudag 17.
kl. 16 Vestfirðir og kl. 17 Austur-
land. Mánudag 18. kl. 21.35 Suður-
land og kl. 22.35 Vesturland.
Þriðjudag 19. kl. 21.35 Reykjavík
og miðvikudag 20. kl. 21.35
Reykjanes.
Föstudagskvöldið 22. apríl þ.e.
kvöldið fyrir kosningarnar verða
síðan hringborðsumræður, þar sem
formenn flokkanna ræðast við.
Hefst það kl. 21.15. eng.
jEsa
Bannað verði með lögum
Sveitarfélögin hætti atvinnurekstri
- Það væsir ekki um peningamennina fyrir sunnan, ef stefna Versl-
unarráðsins gengur eftir. í áformum þeirra er gert ráð fyrir að sveitar-
félög verði að selja einkaaðilum eignarhluta sína í hvers konar atvinnu-
rekstri. Þetta útibú Sjálfstæðisflokksins gefur sveitarfélögunum frest til
ársloka 1985 til að ganga frá sölu fyrirtækja sinna. Þýddi það ekki
atvinnuleysi í mörgum kauptúnum þessa lands?
8.3.2. Sveitarfélögum verði bannað með lögum að eiga eða taka
þátt í áhættusömum atvinnurekstri. Sveitarfélög verða þar með
skuldbundin að selja útgerðarfyrirtæki sín og fiskvinnslustöðvar til
einkaaðila. Frestur til að ganga frá sölu þessara fyrirtækja renni út í
árslok 1985. Ef sveitarfélög vilja örva atvinnurekstur, verður að
lækka skatta til sveitarfélagsins á fyrirtæki.
„Skattheimtan eykst sífellt og nálgast nú, að við vinnum hálft árið til að
standa skil á sköttum til ríkis og sveitarfélaga“.
(Ragnar S. Halldórsson í setningarræðu Viðskiptaþings 1983, Ragnar
er forstjóri ísal og formaður Verslunarráðsins).