Þjóðviljinn - 23.04.1983, Page 5

Þjóðviljinn - 23.04.1983, Page 5
Helgin 23. - 24. apríl 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5 Er sj ónvarpsbólan sprungin? Hugleiðingar um kapalkerfi, vídeó og sjónvarp íbreskablaöinu NEW STATESMAN birtist nýlega grein um reynslu Breta af nýrri sjónvarpsrás, Rás4, og kapalkerfum. Greinin er um margt afar athyglisverö fyrir okkur hér á Fróni, þar sem sjónvarps- og kapalmál hafa verið í deiglunni undanfarna mánuöi og ýmsar kröfur verið á lofti í þeim efnum, svo sem um afnám einkaréttar ríkisútvarpsins. Greinin í NEW STATESMAN ber heitiö „Leyfi til að tapa fé“ og veltir greinarhöfundur vöngum yfir því hvort sjónvarpsbólan sé ekki sprungin í Bretlandi. Svipað ástand virðist hafa ríkt í sjónvarpsmálum í Bretlandi og hér á landi undanfarið. Fylgjendur frelsis í fjölmiðlum hafa haldið fram þeim vörnum fyrir kapalkerf- in og fjölgun rása, að þau myndu skapa áhorfendum aukið valfrelsi, þjóna minnihlutahópum og sveitar- og bæjarfélög gætu notað þessar stöðvar til upplýsinga- miðlunar. Yfirvöld hafa staðið á móti með þau rök í hendi sér, að í raun myndi fjölgunin minnka valfrelsið og að auki færu gæðin á sjónvarps- efninu niður úr öllu valdi. Hin breska þjóð er mett Mestu umræðurnar fóru fram á fyrra ári, einkum í sambandi við Rás 4. Rás 4 hefur enga áskrift, á allt sitt undir auglýsendum og hún nær til alls þorra landsmanna. f þessari rás hefur verið boðið upp á fleiri fréttaþætti en tíðkast hjá BBC og ITV og einnig voru hafnar tilraunir með útsendingar fyrir há- degi. Þegar greinin í NEW STAT- ESMAN var rituð voru liðnar 7 vikur frá því að morgunsjónvarp fór af stað, en BBC hóf einnig út- sendingar á sama tíma um svipað leyti. Þá hefur Rás 4 einnig sent út mjög góða listaþætti - til þess að þjóna ákveðnum hópi áhorfenda. Ekkert af þessu hefur dugað. Kannanir hafa sýnt, að fyrir og um jólin síðustu minnkaði sjónvarps- notkun í Bretlandi hjá öllum stöðvum. Morgunsjónvarpið náði ekki þeim áhorfendafjölda, sem búist var við. Áhorfendur Rásar 4 eru það fáir, að þeir mælast varla í könnunum. Greinarhöfundur dregur af þessu þá ályktun, að breska þjóðin sé einfaldlega inett - það séu ekki til staðar möguleikar á því að ná til áhorfenda og áhorfendur virðist litlar eða engar kröfur gera til nýs efnis eða nýrra rása. Hún hefur einfaldlega nóg á boðstólum nú þegar. Opinbera sjón- varpið „of gott“ Greinarhöfundur bendir sömu- leiðis á, að kapalkerfi hafi þrifist best í löndum, þar sem útsendingu opinberra stöðva er ábótavant, bæði hvað snertir gæði efnisins og móttökuskilyrði. Ekki verði sagt um BBC að efnið sé lélegt eða mót- tökuskilyrðin í ólagi. Þvert á móti. BBC framleiðir gæðavöru, sem er eftirsótt um allan heim. BBC er einfaldlega „of gott“, þ.e. fáir komast með tærnar þar sem sú stöð hefur hælana. Möguleikar kapalkerfa fáir í greininni er einnig velt fram þeim möguleikum, sem kapalkerf- in gætu hugsanlega þrifist á. Einn þeirra er sá, að taka á sína arma ýmsa helstu íþróttaviðburði. í- þróttayfirvöld vilja hins vegar ekki veita kapalkerfum einkaleyfi á slík- um viðburðum og þar með er sá möguleikinn úr sögunni. Annar væri sá að sýna góðar kvikmyndir. Sá möguleiki er þó dauðadæmdur fyrirfram að áliti greinarhöfundar þar sem BBC á álitlegt kvikmynda- safn og hefur í hyggju ýmsar nýj- ungar á þessu sviði. Þá væri hægt að snúa sér að ódýrunt þáttuin - þátt- um sem ekki þarf að borga mikið fyrir, og er þá einkum mænt vestur um haf í því efni. Gallinn er bara sá, að fyrir vestan eru gæðin á ódýru þáttunum hreint ótrúlega lítil - DALLAS er toppurinn og þarf þá vart að leiða getum að því hvernig afgangurinn er. Kapalkerfin geta ekki heldur reitt sig á framleiðslu ódýrra, inn- lendra þátta, því leikarar standa fastir á launagreiðslum og fram- leiðslan yrði kerfunum því um megn. Og þá er víst fátt eftir annað en „Video nasties", sem greinarhöf- undur kallar svo, en þar er átt við alls kyns ofbeldis- og klámmyndir, sem framleiddar eru í tonnatali fyrir vídeóin og kosta lítið. Grein- arhöfundur bendir á, að yfirvöld myndu fljótlega taka í taumana ef slíkt efni kæmi fyrir augu virðu- legra, breskra borgara - og þar með er síðasti draumurinn einnig úr sögunni. „Vídeósónin“ að gefast upp Þrettán kapalkerfum hefur verið komið upp í Bretlandi undanfarið og þau eiga það öll sammerkt að vera komin á síðasta snúning. Eitt kapalkerfanna náði til 20 prósent íbúa í borginni Hull og er það um- talsverð tala. Það kerfi gengur með bullandi tapi og forráðamenn þess fást ekki til að segja hvertsu margir hinna 20 prósenta hafa sagt upp áskriftinni. í grein NEW STAT- ESMAN er bent á, að þessi 20 prósent séu að 96 prósentum íbúar bæjaríbúða, þar sem atvinnuleysi og önnur óáran efnahagskreppunn- ar hafi sett mark sitt á pyngjurnar. Ibúarnir hafi ekki efni á að standa skil á leigunni, hvað þá að greiða fyrir kapalinn. Niðurstaða: efling ríkisútvarpsins? Nú má auðvitað spyrja hvernig þessi reynsla komi okkur að gagni. Auðvitað heilmiklu, því margir drættir þessarar sögu eru nokkuð kunnugir hér á landi. Vídeósón, sem náði til um 2.000 manna á Reykjavíkursvæðinu. hefur nýlega lagt upp laupana. Getum hefur verið að því leitt, að fyrirtækið hafi gripið fegins hendi tækifærið, sem ríkissaksóknari veitti þeim til að hætta starfsemi, því peningarnir hafi verið hættir að streyma inn. Undirrituð getur vottað, að erfið-' lega gekk að innheimta hjá þeirn, sem aðgang höfðu að kerfinu, a.m.k. í Breiðholti, og var tekin upp sú regla að ef 'h hluti stiga- angs greiddi fyrir kerfið væri ekki lokaðí þeim gangi. Efnið, sem á boðstólum var, gerðist einnig æ þynnra, og þar sem fólk varð að hafa talsverða enskuþekkingu til að geta nýtt sér það, var von að svo færi sem fór. Þá mætti einnig leiða hugann að því sem segir í greininni, að kapal- kerfin þrífist einkum í þeim löndum, þar sem útsendingu ríkissjónvarps er ábótavant. Þótt það sé lenska hér á landi að bölva öllu í sjónvarp- inu er það þó staðreynd, að efnið sem hér er boðið uppá er með því skásta sem gerist í heiminum. Og nú þegar sumarfrí sjónvarps hefur verið afnumið mun þörf lands- manna fyrir kapalkerfi og vídeó á- reiðanlega minnka. Hver veit hvað myndi gerast ef einnig yrði sent út á fimmtudögum? Og móttökuskil- yrðin á landsbyggðinni yrðu bætt? Reynslan frá Bretlandi sýnir, að þá mættu nú Vídeósónar landsins fara að vara sig. _ast Meltaway Snjóbræðslukerfi í bílastæði, tröppur, götur, gangstíga, torg og íþróttavelli. Síminn er: 77400 Þú nærð sambandi hvort sem er að nóttu eða degi. PÍPULAGNIR Sf Smiðjuvegur 28 - Box 116 - 202 Kópavogur •• SÁÁ menn munu verða við alla kjörstaði á landinu á kjördag. Þar munu þeir taka við gjafabréfum til SÁÁ og veita upplýsingar um yfirstandandi landssöfnun sé þess óskað. Enn er tækifæri til að vera með. Reisum saman sjúkrastöð sM

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.