Þjóðviljinn - 23.04.1983, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 23.04.1983, Blaðsíða 6
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 23. - 24. apríl 1983 WODVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyf- ingar og þjóðfrelsis Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans. Framkvæmdastióri: Guörún Guömundsdóttir Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Olafsson. Umsjónarmaöur Sunnudagsblaðs: Guöjón Friöriksson. Auglýsingastjóri: Sigríöur H. Sigurbjörnsdóttir. Afgreiöslustjóri: Baldur Jónasson. Afgreiösla: Bára Siguröardóttir, Kristín Pétursdóttir. Blaöamenn: Auöur Styrkársdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Helgi Ólafsson, Lúövík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Ólafur Gíslason, Óskar Guömundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Valþór Hlööversson. íþróttafréttaritari: Víðir Sigurðsson. Utlit og hönnun: Helga Garöarsdóttir, Guöjón Sveinbjörnsson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Atli Arason. Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Auglýsingar: Áslaug Jóhannesdóttir, Ólafur Þ. Jónsson. Skrifstofa: Guörún Guðvarðardóttir, Jóhannes Harðarson. Símavarsla: Sigriöur Kristjánsdóttir, Sæunn Óladóttir. Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir.. Bílstjóri: Sigrún Bárðardóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigurmundsson. Ólafur Björnsson. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir. Karen Jónsdóttir Útkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar: Siöumúla 6, Reykjavik, sími 81333. Umbrot og setning: Prent. Prentun: Blaöaprent h.f. ritstjórnararcm Lokum fyrir leiftursókn • Sjálfstæðisflokkurinn hefur á síðustu dögum tekið kosningasigursinn útfyrirfram. Væntanlegþingmanns- efni hans gefa út yfirlýsingar sem eru hver annarri hrokafyllri eins og það sé svo sem óþarfi að kjósa, þeirra verði valdið eftir helgina. En kjördagur er nú runninn upp og kjósendur láta ekki segja sér fyrir verk- um. Þeir kunna að lækka rostann í forystu Sjálfstæðis- flokksins • Varaformaður Sjálfstæðisflokksins hefur lýst yfir því að samstarfsflokkur hans eftir kosningar verði að „undirgangast stefnu“ íhaldsins. Eetta mælir hann í ljósi þess að Alþýðuflokkurinn og Framsóknarflokkur- inn hafa biðlað til íhaldsins alla kosningabaráttuna, Framsóknarflokkurinn og Alþýðuflokkurinn hafa boð- að íhaldssamvinnu og munu vera reiðubúnir að „undir- gangast stefnu“ Sjálfstæðisflokksins. • Matthías Á. Mathiesen hefur boðað minnihluta- stjórn Sjálfstæðisflokksins nái hann ekki meirihluta í kosningunum. Þetta mælir hann í krafti þess að skoðan- akannanir hafa bent til þess að 9-10 þingmenn á Alþingi munu ekki hafæ neina afstöðu til mála sem verða til ákvörðunar eftir kosningar. Bandalag Vil- mundar hefur dæmt sig úr leik og kvennalistinn skilar auðu. Fessi framboð opna því Sjálfstæðisflokknum leið til minnihlutastjórnar sem gæti orðið eins illskeytt og meirihlutastjórn eða afturhaldsstjórn með milliflokk- unum. Stráksskapur á kosninganótt • Valdhrokinn skín út úr þessum ummælum forystu- manna Sjálfstæðisflokksins fyrir kosningar. Hann mun ekki fara dvínandi ef íhaldið nær góðri kosningu. Við þekkjum hvað við tekur ef Sjálfstæðisflokkurinn nær þeim völdum í Iandsstjórninni sem hann hefur nú tekið út fyrirfram. Gunnar Thoroddsen hefur varað við þeim öflum í Sjálfstæðisflokknum sem hafa það á stefnuskrá sinni að viðhalda verulegu atvinnuleysi sem aðferð í stjórnun efnahagsmála. Og við vitum hvað loforð Sjálf- stæðisflokksins um betri tíð þýða í reynd. Davíð Odds- son og Reykjavíkuríhaldið hafa sýnt það. Ekkert dag- heimili er nú í byggingu í Reykjavík, ekkert hjúkrunar- heimili fyrir aldraða, og lagðir hafa verið á barna- og þjónustuskattar þannig að það er orðið 10 til 15 þúsund krónum dýrara fyrir barnafjölskyldu að lifa í Reykjavík en ella hefði verið. • Alþýðubandalagið er eina andsvarið sem dugar til þess að hefta sókn íhaldsins. í kosningabaráttunni hef- ur það lagt fram samstarfsgrundvöll, þar sem skýrt er kveðið á hvaða málum það muni fylgja eftir ef það fær styrk til þess að hafa áhrif á stjórnarmyndun. Atkvæði greitt G-listanum er krafa um að þjóðleg viðhorf og félagsleg sjónarmið verði í heiðri höfð við stjórnar- myndun. Atkvæði greitt G-Iistanum er trygging fyrir því að til staðar verði á Alþingi sterk stjórnarandstaða til sóknar og varnar gegn hægri öflunum. Alþýðu- bandalagið eitt getur veitt nægilega mótspyrnu gegn framsókn hægri aflanna í stjórn eða stjórnarandstöðu. • Hvorki milliflokkarnir né framboð Vilmundar og kvennalistans munu duga til þess að verja ísland gegn atvinnuleysisstefnu Sjálfstæðisflokksins. Enginn flokkur annar en Alþýðubandalagið mun fylgja álmál- inu fram til sigurs, eða stöðva stóraukningu hernaðar- framkvæmda í landinu. Þau málefni sem vinstri hreyf- ingin á íslandi hefur borið fyrir brjósti eru öll í mikilli hættu nema að kjósendur tryggi traust afl til vinstri í kosningunum í dag. • X G - ekh í alþingiskosningunum 1974 var ég viðstaddur talningu á ísafirði og það var ógleymanleg nótt. Kjör- stjómin ásamt fulltrúum listanna lok- aði sig inni í Alþýðuhúsinu og þar var mikil stemmning. I þessum kosningum stóð öll þjóðin á önd- inni út af úrslitunum á Vestfjörðum því að engar tölur höfðu birst úr kjördæminu þegar úrslitin voru orðin ljós í flestum hinna. Ástæðan fyrir því að Vestfirðir voru svo seinir þessa talninganótt var sú að ekki tókst að láta at- kvæðin sem komu upp úr einum kjörkassanum stemma við kjör- gögnin sem fylgdu honum og kjör- stjórnin neitaði að birta nokkrar tölur fyrr en komist hefði verið fyr- ir þessa villu. Við sem vorum inni vissum upp á hár hver úrslitin voru því við vorum löngu búnir að telja þorra atkvæðanna. Það sem gerði það líka að beðið var með óþreyju eftir úrsiitunum frá Vestfjörðum var það að framtíð Samtaka frjálslyndra og vinstri manna hékk á spýtunni. Magnús Torfi var fallinn í Reykjavík og til- vera flokksins valt því á hvort Karvel Pálmasyni tækist að ná kjöri fyrir vestan. Kjörstjórnin neitaði líka að opna talningastaðinn fyrir almenningi fyrr en allt stemmdi og okkur var bannað að yfirgefa húsið eða hringja út úr því. Að vísu tókst full- trúa Alþýðuflokksins að leka út upplýsingum og þær flugu einsog eldur í sinu um allan bæ. Tveir frambjóðendur reyndu að komast í húsið, þau Karvel og Sigurlaug Bjarnadóttir, en var umsvifalaust vísað til baka með meinfýsnu glotti. Klukkan var orðin 6 eða 7 um morguninn og sjónvarpið hætti út- sendingum en útvarpið hélt áfram að velta fyrir sér hvað væri eigin- lega að gerast fyrir vestan. Frétta- menn vorú stöðugt að hringja í Alþýðuhúsið. Pressan var orðin mikil á formann kjörstjórnar og hann hafði aldrei fyrr verið í kjör- stjórn né hinir og þeir virtust vera að fara á taugum. Við fulltrúar flokkanna tókum þessu af meiri léttúð og göntuðumst hver við annan. Svo kom að því. Formaður kjörstjórnar lét undan þrýstingi og Guöjón Frióriksson skrifar ákvað að senda út fyrstu tölur þó að ekki væri enn komist fyrir skekkjuna. Mér og öðrum tveggja fulltrúa Samtaka frjálslyndra og vinstri manna var falið að áætla at- kvæðabunkana og senda tölur til ríkisútvarpsins í samræmi við þá. Og þá kom strákurinn upp í okkur. Það var kominn þreytugalsi í okkur og við möndluðum það með okkur að senda kolvitlausar tölur. Við á- kváðum að fella Karvel, koma Kjartani inn og láta Sjálfstæðis- flokkinn bíða afhroð. Síðan hringdum við ábúðarmikl- ir suður og tilkynntum þessar tölur. Síðan rukum við í útvarp og þuln- um var mikið niðri fyrir þegar hann tilkynnti fyrstu tölur frá Vest- fjörðum. Einhverjir spekingar voru í útvarpssal og ræddu þessar fyrstu tölur fram og til baka af mikilli spekt og sfðan kom ný tölvu- spá fyrir allt landið sem var gjöró- lík fyrri spám. Við sátum við tækið og' veltumst um af hlátri en allt landið stóð á öndinni yfir þessum óvæntu tíðindum frá Vestfjörðum. Við bókstaflega gátum heyrt spennunasemstafaði afhúsunum á ísafirði. Það var ekki mjög frýnilegt and- litið á kjörstjórninni og öðrum viðstöddum þegar þeir uppgötv- uðu hvað við höfðum gert af okk- ur. Við vorum teknir í karphúsið og hundskammaðir fyrir algjört ábyrgðarleysi og fíflalega léttúð. Það væri grátt gaman að fíflast með heila þjóð. Okkur var skipað að búa þegar í stað nýjar tölur og senda þær umsvifalaust suður. Gengið var úr skugga um að þær væru í einhverju samræmi við veru- leikann áður en hringt var. Og enn á ný var dagskrá ríkisút- varpsins rofin og enn á ný stóð þjóðin á öndinni. Nýjar tölur frá Vestfjörðum. Karvel inni, Kjartan náði ekki kjöri og Sjálfstæðisflokk- urinn í sókn. Spekingar tóku enn til máls í útvarpssal og furðuðu sig á þessum miklu sviptingum í tölum frá Vestfjörðum og ræddu fram og til baka um þetta. Síðan kom ný tölvuspá fyrir allt landið og enn var hún gjörbreytt en nú í nokkru sam- ræmi við veruleikann. Við tveir hinir ábyrgðarlausu hlustuðum með andagt og enn ískraði púkinn í okkur en hinir litu okkur hornauga og höfðu greinilega engan húmor fyrir þessu. Við komumst ekki heim til okk- ar eftir þessa vökunótt fyrr en langt var liðið á dag og köstuðum okkur örþreyttir í rúmið. Raunar er það dálítið ábyrgðar- leysi að vera að segja frá þessu nú þó að langt sé um liðið. Það er svo sem ekkert hrósvert að hafa gabb- að ótal spekinga, tölvur og heila þjóð. Vona ég að fólk virði okkur þetta til vorkunnar. Við vorum svo ungir og skemmtilegir þá og löngu kominn kvöldúlfur í okkur þarna í morgunsárið. Ég vona líka að þessi gráa saga verði engum til eftirbreytni viö talninguna í nótt en Vestfirðingar eru svo sem til alls vísir. Og von- andi verða líka úrslitin í nótt með ólíkum hætti. Kannski snúast hlut- irnir við. Nú verði Karvel úti en Kjartan inni. Hver veit? En takið samt fyrstu tölum frá Vestfjörðum með gát. D

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.