Þjóðviljinn - 23.04.1983, Qupperneq 9

Þjóðviljinn - 23.04.1983, Qupperneq 9
Helgin 23. - 24. apríl 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9 Til gamans: Um þingmenn og ráðherra Aldur þingmanna Meðalaldur núverandi þingmanna er nákvæmlega 50 ár. Meðalaldur þingmanna í einstökum þingflokkum er þessi: Alþýðuflokkur 44.7 ár, Alþýðubandalag 48.8 ár, Framsóknarflokkur 50.8 ár og Sjálfstæðisflokk- ur 53.7 ár. Elstu þingmennirnir eru Gunnar Thoroddsen 72 ára, Ólafur Jóhannes- son 70 ára og Steinþór Gestsson 69 ára. Þeir yngstu eru Vilmundur Gylfason 34 ára, Halldór Ásgrímsson 35 ára, Davíð Aðalsteinsson 36 ára, Guðmundur Bjarnason 38 ára og þeir Svavar Gestsson, Ólafur Ragnar Grímsson og Friðrik Sófusson 39 ára. Hvaða flokkar oftast í stjórn? Ef fundið er út hvaða flokkar hafa verið í stjórn frá því að núverandi flokkakerfi myndaðist í grófum dráttum árið 1924 eða frá því að stjórn íhaldsflokksins undir forystu Jóns Magnússonar var mynduð 22. mars 1924, fyrir 59 árum og einum mánuði, kemur þetta í ljós: íhaldsflokkur sent breyttist í Sjálfstæðisflokk 1929 með samruna við Frjálslynda flokkinn hefur setið í stjórn í 39 ár og3 rnánuði eðau.þ.b. 64% af tímabilinu. Framsóknarflokkur hefur síðan 1924 setið í ríkisstjórn í samtals 34 ár og 10 mánuði eða um 55% af tímabilinu. Alþýðuflokkurinn hefur á þessu tímabili setið í ríkisstjórn í 25 ár og 6 mánuði eða um 40% af tímabilinu. _ Alþýðubandalag (áður Sósíalistaflokkur) hefur setið í ríkisstjórn í 12 ár eða um 19% af tímabilinu. Samtök frjálslyndra og vinstri manna sátu í ríkisstjórn í 3 ár og 1 mánuð og utanþingsstjórn í 1 ár og 10 mánuði. Lengst ráðherrar Eftirtaldir ráðherrar hafa síðan heimastjórn var komið á 1904 setið lengst samtals í ráðherraembættum eða lengur en 10 ár: bftirAr. ÍMIEHJÖIfflALI ioAraMhs) Á Mll iAesábyrgb Á 0LLÖ ŒHI hjíl ÍSÉRPLCKKl Serverslun i meira en hálfa öld /„. Reiðhjólaverslunin r——. ORNINN Spítalasííg 8 vióÓóinstorg 510101:14661,26888 1. Eysteinn Jónsson 19 ár og 3 mánuði. 2. Bjarni Benediktsson 19 ár og 1 mánuð. 3. Emil Jónsson 17 ár og 8 mánuði. 4. Ólafur Thors 16 ár og 11 mánuði. 5. Gylfi Þ. Gíslason 15 ár. 6. Hermann Jónasson 13 ár og 8 mánuði. 7. Ingólfur Jónsson 13 ár og 6 mánuði. 8. Gunnar Thoroddsen 12 ár og 9 mánuði. 9. Ólafur Jóhannesson 11 ár og 4 mánuði. Þess skal getið að Gylfi .Þ. Gíslason hefur setið lengst allra manna samfellt í ráðherraembætti eða frá 24. júlí 1956 til 14. júlí 1971. Styst ráðherrar Eftirtaldir 7 ráðherrar náðu ekki að verma ráðherrastólana í 200 daga: 1-2. Jón Pálmason 97 dagar. 1-2. Jóhann Þ. Jósefsson 97 dagar. (Þeir sátu báðir í minnihlutastjórn Sjálfstæðisflokksins 7. des. 1949 - 14. mars 1950). 3-5. Bragi Sigurjónsson 116 dagar. 3-5. Sighatur Björgvinsson 116 dagar. 3-5. Vilmundur Gylfason 116 dagar. (Þeir sátu allir í minnihlutastjórn Alþýðuflokksins 15. okt. 1979 - 8. febr. 1980). 6. Jóhann Sæmundsson 118 dagar. (Hann var félagsmálaráðherra í utanþingsstórn 22. des. 1942 - 19. apríl 1943). 7. Sigurður Kristinsson 122 dagar. (Hann var atvinnu- og samgöngu- ráðherra í ráðuneyti Tryggva Þórhallssonar 20. apríl - 20. ágúst 1931). ÚTBOÐ \í\ Tilboð óskast í gatnagerð og lagnir í Selás, 5. áfanga. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri að Fríkirkju- vegi 3, Reykjavík, gegn 3 þús. kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 10. maí 1983 kl. 11. f.h. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvegt 3 - Simi 25800 S\NGAPOfl>f REKKJAN I FJORUM LITUM Opið í öllum deildum: mánud.-miðvikud. 9—18, fimmtud. 9—20, föstud. 9—22 og laugard. 9— ' 9—20, föstud. 9—22 og laugard. 9—4 Loftsson hf. MW Hringbraut 121 Sími 10600 Húsgagnadeild Sími 28601 ht'jsið

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.