Þjóðviljinn - 23.04.1983, Side 18
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 23. - 24. apríl 1983
G-listinn A-listinn B-listinn D-listinn C-listinn
Baldur Kristín Haukur Kjartan Frosti
Óskarsson Guðmundsdóttir Ingibergsson Gunnarsson Bergsson
Hvað segja stjórarnir?
Létt yfír Erum alltaf Úrslitin
vinnuliðinu bjartsýn okkur í hag
- Við finnum fyrir jákvæðri byl-
gju frá kjósendum, sagði Baldur
Oskarsson kosningastjóri Alþýðu-
bandalagsins er blaðið hafði
samband við hann í gær. Það hefur
verið ákaflega létt yfir vinnuliðinu
hér í aðalstöðvunum. Það er enda
ánægjulegt að vinna í nýju flokks-
miðstöðinni, þrátt fyrir að húsnæð-
ið sé ófullgert, svífa hér góðir
andar um ganga. Okkur finnst það
einnig athyglisvert að á síðustu
dögum hefur ungt fólk fjölmennt
hingað til vinnu að kosningaundir-
búningi og starfað af miklum
þrótti, sagði Baldur.
- Það er ágæt stemmning hjá
okkur sagði Kristín Guðmunds-
dóttir hjá Alþýðuflokknum. - Við
eru alltaf bjartsýn í Alþýðuflokkn-
um enda höfum við réttustu stefn-
una. Skoðanakannanir? Við
tökum rétt mátulega mikið mark á
þeim, sagði Kristín.
V-listinn
Þórhildur
Þorleifsdóttir
Finmim
meðbyr
„Að sjálfsögðu finnum við fyrir
meðbyr", sagði Þórhildur Þorleifs-
dóttir hjá Kvennalistanum í
Reykjavík þegar Þjóðviljinn kom
að máli við hana í gær. Kosninga-
baráttan var á lokastigi en þó áttu
fulltrúar framboðsins eftir að fara á
nokkra vinnustaði. Kvennalistinn
hefur enga kosningastjóra, en í
Reykjavík skiptast þær Þórhildur,
- Úrslitin verða okkur í hag,
sagði Haukur Ingibergsson kosn-
ingastjóri Framsóknarflokksins.
Landið liggur mjög vel nú orðið.
Við vorum dálítið seinir af stað í
þessari kosningabaráttu, en það er
ekki nokkur vafi á því að byrinn
hefur staðið í seglin síðustu tíu
daga eða svo.
-óg
Kristín Ástgeirsdóttir og Margrét
Rún Guðmundsdóttir á þeim störf-
um sem flestir myndu kalla kosn-
ingastjórástörf.
„Það er dálítið erfitt að segja til
hverra við höfðum mest, en þó tel
ég að meirihluti þeirra sem kjósa
Bráðabirgðalög gefin út í gær
Bjartsýn
og ákveðin
- Við erum mjög ánægðir og
bjartsýnir á mikinn sigur Sjálfstæð-
isflokksins, sagði Kjartan Gunn-
arsson kosningastjóri Sjálfstæðis-
flokksins er Þjv. sló á jDráðinn til
hans í gær. - Sjálfstæðisflokkurinn
finnur góðar undirtektir alls staðar
í landinu, og nýtur flokkurinn þar
fastrar og ákveðinnar efnahags-
stefnu sinnar. - óg
okkur séu konur. Ég held líka að
það sé stigsmunur á fylgi nýju
framboðanna, þ.e. Bandalags jafn-
aðarmanna og Kvennalistans, að
Vilmundur og hans menn höfða
meira til óánægjuhópa.
— Vilt þú einhverju spá um úrslit-
in?
„Nei, ég vil engu spá. Ég virði
kosningarétt kjósenda og minni á
að við á Kvennalistanum höfum
ekki verið með neinar áskoranir á
fólk um að kjósa okkur. Þá munum
við ekki merkja við á kjörstað eins
og tíðkast hefur í íslenskum stjórn-
málum. Þá vil ég að endingu koma
þeirri skoðun minni á framfæri að
ég er algerlega á móti þeim skoðan-
akönnunum sem nú- ryðja sér til
rúms hér á landi. Mér finnst að það
ætti að setja hömlur við þessar
kannanir með einhverjum hætti.“
- hól.
Staðan
er traust
- Ef ég líki þessu við skák, sagði
Frosti Bergsson hjá Bandalagi jafn-
aðarmanna, þá tel ég að við höfum
náð snemma að byggja upp góða
stöðu. Þeirri stöðu höfum við hald-
ið fram að þessu. Hún er mun
traustari heldur en við héldum, því
það eru margir að skipta um skoð-
un alveg þangað til komið er í kjör-
klefann. Hvað þar gerist veit nú
enginn. Ég held að staðan sé mjög
góð í Reykjavík og á Reykjanesi, en
við stöndum lakar að vígi úti á
landi.
Ég tippaði sjálfur persónulega
þannig að A-listinn fengi 4 þing-
menn, B-listinn 13 C-listinn 6, D-
listinn 24, G-listinn 9 og V-listinn 4
þingmenn. - óg
HÆKKUN HÚSALEIGU
FYLGI MEÐALLAUNUM
í gær voru gefín út bráðabirgðalög um að
hækkun húsaleigu sem bundin er vísitölu
húsnæðiskostnaðar megi ekki fara fram úr
hlutfallslegum breytingum meðallauna. Skal
húsaleiga breytast ársfjórðungslega frá byrj-
un mánaðanna júií, október, janúar og apríl.
Hagstofa íslands tilkynnir opinberlega hver
þessi breyting sé hverju sinni. Frjálst er að
ákveða í leigusamningum um íbúðarhúsnæði
gerðum eftir marslok 1983, að leiga skuli
fylgja breytingum meðallauna.
„Forsætisráðherra hefur tjáð mér, að brýna nauðsyn beri til
að setja lög, sem komi í veg fyrir, að ójöfn dreifing hækkunar
vísitölu húsnæðiskostnaðar á greiðslutímabil frá apríl 1982
til jafnlengdar 1983 leiði til óeðlilega mikillar hækkunar á
húsaleigu frá 1. apríl 1983 að því er varðar leigusamninga
sem tengdir eru þessari vísitölu og gerðir voru á nefndu
tímabili", segir í upphafi laganna sem forseti íslands undir-
ritaði í gær.
I. grein bráðabirgðalaganna, sem eru í 6 greinum og taka
þegar gildi er svohljóðandi:
Mánaðarleiga fyrir íbúðarhúsnæði samkvæmt nýjum eða
endurnýjuðum samningi gerðum á 12'mánaða tímabilinu
apríl 1982 til mars 1983 má frá 1. maí 1983 ekki hækka meira
en hér segir frá þeirri mánaðarleigu, er gilti í mars 1983:
Samningur gerður eða endur- Hámark hækkunar
nýjaður í tímabilinu: 1. maí 1983 frá marshúsaleigu 1983.
Apríl-júní 1982......................................45%
Júlí-september 1982..................................32%
Október-desember 1982 ...............................21%
Janúar-mars 1983.....................................10%
Húsaleiga, sem greidd er leigusala fyrir maímánuð 1983
samkvæmt ákvæðum 1. málsgr., skal haldast óbreytt í júní
1983, enda sé viðkomandi húsaleigusamningur þá enn í
gildi.
Húsaleiga, er samkvæmt samningi gerðum fyrir 1. apríl
1982 fylgir vísitölu húsnæðiskostnaðar fýrir íbúðarhúsnæði,
hækkar frá 1. apríl 1983 um 51,04% samkvæmt henni.
Ákvæði þessar gr. taka einvörðungu til húsaleigu sam-
kvæmt samningum, þar sem ákveðið er, að hún skuli fylgja
breytingum vísitölu húsnæðiskostnaðar.