Þjóðviljinn - 23.04.1983, Síða 20

Þjóðviljinn - 23.04.1983, Síða 20
20 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 23. - 24. apríl 1983 dæaurmál (sígiid?) Þá eru þjóðarleiðtogar teknir til bæna: Brezhnev took Afghanistan Begin took Beirut Gallieri took the Union Jack And Maggie over lunch one day Took a cruiser with all hands Apparenlly to make him give il back (Get yourfitíhy hands of my desert) The Final Cut er' tileinkuð föður Rogers Waters, Eric Flet- cher Waters, sem varð síðari heimsstyrjöldinni að bráð, aðeins 31 árs gamail. í laginu The Flet- cher Memorial Home (Minning- arhæli Fletchers) eru þjóðar- leiðtogarnir lokaðir inni á þessii hæli fyrir „ólæknandi harðstjóra og kónga“. í þeim hópi eru talin Reagan, Haig, Begin, Thatcher, Paisle.y, ■ Brezhnev, McCarthy, Nixon og „hópur ónafngreindra manna sem stunda pökkun á latín-amerísku kjöti“.. og Waters kemur inn á algjört bjargarleysi almennings gagnvart yfirvöldum Pink Floyd þegar Syd Barrett var með þeim og áður en David Gilmour gekk til iiðs við þá: Rick Wright, Syd Barrett, Roger Waters og Nick Mason. Pink Floyd/Roger Waters - Roger Waters/Pink Floyd: The Final Cut Sálumessa til viðvörunar Nafn nýjustu plötu Pink Floyd hafa margir túlkað sem svo að hér væri sú síðasta frá hljómsveitinni, og benda á að hljómborðsleikar- inn Richard Wright sé hættur og að Andy Newmark trommu- leikari spili sem gestur í einu laga á The Final Cut. Heiti þátta má skilja á fleiri en einn veg, t.d. síð- asta platan sem gerð (skorin=cut) er, síðasta hníf- stungan, banastungan. Það síð- asta hæfir best þema plötunnar, sem hefur undirtitilinn a requiem for the post war dream (sálu- messa fyrir draum eftirstríðsár- anna). Öll lög og textar á The Final Cut eru eftir bassaleikara og söngvara Pink Floyd, Roger Wat- ers, og eru það lítii tíðindi þar sem hann hefur skrifað mest allt efni hljómsveitarinnar eftir að Syd Barrett var Iátinn hætta vegna geðveiki sinnar (afleiðinga eiturlyfjaneyslu ýmisskonar) á Það gerist alltaf annað slagið að maður færi tækifæri til að rifja upp þá „góðu gömlu daga“. Eitt slíkt gafst þegar ég fékk safnplötu með Doors í hendurnar nú ekki alls fyrir löngu, Doors Greatest Hits, ená plötunni eru mörgaf vinsælustu lögum hljómsveitar- innar. Doors hefur verið sú hljómsveit sem ég hef haft í önd- vegi alveg frá því að ég byrjaði að hlusta á tónlist að einhverju ráði. Doors var starfandi á blóma- tímanum og var sennilega sú hljómsveit sem nauð hvað mestr- ar hylli. Hún sló fyrst í gegn árið 1967 með laginu „Light my Fire“ en það var á fyrstu breiðskífu hljómsveitarinnar sem hét ein- faldlega Doors. Með þessari plötu skipaði hljómsveitin sér í hóp fremstu hljómsveita hippa- tímabilsins og í hópi þeirra var hún uns yfir lauk. Hljómsveitin sendi frá sér nokkrar hljómplötur sem allar upphafsdögum frægðarferils hljómsveitarinnar (1968, en PF var siofnuð 1965). Roger Waters hefur hins vegar í viðtali hvorki viljað segja af eða á um það hvort Pink Floyd sé hætt eður ei. Tím- inn leiðir því í ljós, hvort hann, Nick Mason trommari og David Gilmour gítarleikari „ganga aftur" eftir „Banastunguna". Hljómlistin á The Final Cut kemur engum á óvart sem þekkir Pink Floyd: tilkomumiklar út- setningar, blíða og angurværð springa út í rokköskri og allt þar á milli. En svo er líka hægt að vera svo hrokafullur að gagnrýna þessi seigu rokkgoð og segja að hér sé lítið (kannski 2) af sterkum meló- díum, músikin væri ekkert án textanna. Og þeir held ég að séu mergurinn málsins á þessari plötu, sem er sú ákveðnasta póli- tískt séð sem komið hefur frá Pink Floyd (eða Roger Waters réttara sagt): nutu mikillar hylli. Það var fyrst og fremst söngvari hljómsveitar- innar Jim Morrison sem skapaði þessar vinsældir. Hann var stór- brotinn persónuleiki og naut ó- trúlega mikilla vinsælda á þessum árum. Hann var einn best lesni tónlistarmaður þessara ára og sökkti sé djúpt í heimspekilegar vangaveltur. Einkum las hann fræði þýska heimspekingsins Fri- edrichs Nietzche og svo segir sagan að þau hafi orðið honum leiðarljós á lífsgöngunni. Hinir meðlimir hljómsveitar- innar féllu í skuggann af vinsæld- um Morrison og þegar Morrison dó 1971 var ferill hljómsveitar- innar á enda, eða svo gott sem. Þeir þrír sem eftir voru störfuðu þó áfram og gáfu út tvær plötur sem náðu varla að standa undir nafni. Eftir þessar plötur rofnaði samstarfið. Ray Monzarck hóf sólóferil sem ekkert varð úr en þeir Robby Krieger og John They flutter behind you your possible pasts Some brighteyed and cracy some frightened and lost A warning to unyone stiil in command Of their possible future to lake care Do you remember me how we used to be Do you think we should be closer? Aðalþema plötunnar kemur fram í þessum texta, sem sagt að hver og einn eigi að hafa í huga að örlög horfinna kynslóða, fyrrum og núverandi samferðamanna, bæði vina og vandalausra, heima jafnt sem erlendis, gætu hafa ver- ið, eða orðið, hans/hennar eigin: viðvörun til allra sem enn eru í aðstöðu til að ráða framtíð sinni. og útsendurum þeirra í þarlend- um ríkjum harðstjóranna: Yoit have no recourse to the law an- ymore. The Final Cut er svartsýn plata, en þó er betri tíð ekki úti- lokuð. Hún er í okkar höndum og ef við lærum af fortíðinni ætti okkur að vera borgið. Tónlistin er í heild mjög Ijúf og falleg, myndar „kontrast“ (and- stæðu) við textana, sem kemur þannig út að þeir verða enn beittari fyrir bragðið: Kröftug sálumessa yfir draumi eftir- stríðsáranna, og viðvörun um áð ekki þurfi að semja aðra enn kröftugri um draum okkar nú- i'mamanna um betri daga. Við eigum að gera allt sem við getum, hvert og eitt, til að koma í veg fyrir það. Við ættum að hugsa um það við kjörborðið í dag...og reyndar alla daga. Það kemst enginn langt í lífinu með því að skila auðu. A Densmore stofnuðu hljómsveit sem ekkert heyrðist frá. Ray Monzarck hefur látið til sín taka sem upptökustjóri og er hann upptökustjóri á vel flestum hljómplötum bandarísku pönk- hljómsveitarinnar X. Um dauða Morrison spunnust miklar sagnir, hann dó í París og var jarðaður þar í kyrrþey. Eng- inn aðstandenda sá líkið áður en það var jarðað og dánarvottorð var ekki undirritað af lækni. Því neita sumir hörðustu Morrison aðdáendur að trúa því að Morri- son sé dáinn. Og annað slagið sér maður greinar í enskum tónlistar- blöðum þar sem skorað er á Morrison að láta sjá sig aftur og sýna hver sé konungur rokksins. Á þessari safnplötu sem hefur að geyma mörg af vinsælustu lögum hljómsveitarinnar er að finna einhverjar bestu perlur hippatímabilsins. En ef vel ætti að vera hefði platan allavega þurft að vera fjórföld því að flest lög hljómsveitarinnar eru í hæsta gæðaflokki. En ekki verður á allt kosið og ég hvet alla sem unna góðri tónlist að hlusta á Doors og heyra þar með í sönnurn meist- urum. JVS By the cold and religious we were taken in hand Shown how to feel good and told to feel bad Tounge tied and terrified we learned how to pray Now our feelings run deep and cold as the clay And strung out behind us tlte banners and flags Of our possible pasts lie in tatters and rags (Your possible pasts) Umsjón Sif Jón Viðar Andrea Blómasending Doors eiga enn erindi til allra: Jim Morrison, Robbie Krieger, John Densmore og Ray Mangarek (fremstur). Jólaandrúmsloft í Klúbbnum á sumardaginn fyrsta: CJrý/nrnar aldrci betri Það ríkti jólastemmning frem- ur en sumars í Klúbbnum sl. fimmtudag, þrátt fyrir þá staðreynd að sjáifur sumardagur- inn fyrsti væri genginn í garð. Rauðdúkuð borðin og stór, rauð (Grýlu)kertin sem stóðu á þeim á hvítum skálum voru meira í stíl við jóladag en sumardaginn fyrsta sem heilsaði okkur með skítakulda, roki og snjófjúk- i...brrrrrr! Það var notalegt að koma inn úr kuldanum í veislu til Grýlanna, sem voru að fagna Mávastellinu, sinni fyrstu breið- skífu, á útgáfudegi og í hina rönd- ina síðbúinni afmælisveislu. Þær urðu tveggja ára 1. apríl. Hápunktur veislunnar var leikur Grýlanna, sem komu fram tvisvar um kvöldið. Er skemmst frá því að segja að þær hafa aldrei verið betri. Þær fluttu lög af Mávastellinu og auk þess Gullúr- ið af „hinni“ plötunni og nokkur erlend lög af dansleikjaprógram- mi sínu. í fyrri „framkomunni" var þrælgaman og flott að hlusta á Röggu spila á flygilinn og syngja á frönsku (eða „röggsku"?) gull- fallegt ástarljóð, og eins komu þær stöllur á óvart eftir upphlaup í síðara „settinu" þegar þær sungu allar fjórar án undirleiks í kabarett stíl textann um „grýlu- gagnið“ (Mér er alveg sama hvar hann er/því nýja grýlugagnið er hjá mér). Grýlurnar sýndu þarna á sér nýjar hliðar fyrir utan sína skotheldu rokkhlið. Takk fyrir mig. A E.s.: Spáð verður í „Stellið“ í næsta Sunnudagsblaði. HS&í**

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.