Þjóðviljinn - 06.05.1983, Qupperneq 8
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9
Kjarnorku-
vopnalaus
Norðurlönd
Á sameiginlegum fundi friðarhreyfinganna á
Norðurlöndum í Norræna húsinu sunnudaginn 24.
aprílsl. gerðistsá sögulegiatburðurað fulltrúar
hreyfinganna samþykktu sameiginlega álitsgerð um
kjarnorkuvopnalaustsvæði á Norðurlöndum, sem
nær til lands, landhelgi og lofthelgi Noregs,
Svíþjóðar, Finnlands, Færeyja, Danmerkurog
íslands. Hafa hreyfingarnarsettsérþað markmið að
vinna að framgangi þessa máls á næstu mlsserum
og skapa þannig nýjan valkost til öryggismála á
Norðurlöndum ermiði að gagnkvæmtu trausti í stað
ógnarjafnvægis.
Hreyfingarnarsem undirrituðu hina sameiginlegu
álitsgerð voru Nej tilatomváben frá Danmörku,
Finlands Fredsförbund og De hundras komitte
frá Finnlandi, Fóik fyri frið í Færeyjum, Nej til
atomvápen íNoregi, Svenska freds och
skiljedomsföreningen í Svíþjóð og Samtök
herstöðvaandstæðinga frá Islandi.
Þjóðviljinn birtirhérinnganginn að hinni
sameiginlegu álitsgerð friðarhreyfinganna og ræðir
við þáAtla Gfslason og Árna Hjartarson frá
Samtökum herstöðvaandstæðinga um það skref
sem hér hefur verið stigið.
Valkostur við
ógnarj afnvægi
Með þessari sameiginlegu álitsgerð
friðarhreyfinganna á Norðurlöndum
um kjarnorkuvopnalaust svæði er
verið að benda á nýja leið í
öryggismálum sem svar við
ógnarjafnvæginu, sögðu þeir Árni
Hjartarson og Atli Gíslason frá
Samtökum herstöðvaandstæðinga
í viðtali við Þjóðviljann.
Það er orðið Ijóst að hið svokallaða
ógnarjafnvægi er í rauninni ekkert
jafnvægi, heldurstjórnlaust
vígbúnaðarkapphlaup, sem stefnir í
átttil tortímingar. Ógnarjafnvægið
hefur fætt af sér slíkt magn
kjarnorkuvopna í heiminum að
tilveru okkar stafar ógn af á
friðartímum. Það þarf ekkert stríð til.
Þá er frestur til að leiðrétta tæknileg
eða mannleg mistök orðinn svo
skammur að segja má að við lifum á
heljarþröm. Með tilkomu hinna nýju
Pershing-eldflauga í V-Þýskalandi
styttist þessi frestur úr hálfri klst.
niður í 6 mínútur. Það gefur því auga
leið að þessar tillögur
friðarhreyfinganna um norrænt
frumkvæði í friðar- og
öryggismálum eru tilkomnar af
brýnni lífsnauðsyn um leið og
skilningur almennings í þessum
löndum hef ur vaxið fyrir nauðsyn
stefnubreytingar.
- Hvenær komu Samtök
herstöðvaandstæðinga inn í þessa umræðu?
- Upphaflegahugmyndinaðslíkri
sameiginlegri stefnumörkun
friðarhreyfinganna á Norðurlöndum var
mótuð á fundi hreyfinganna Nej til
atomváben í febrúar 1982. Samkvæmt
þessum upphaflegu hugmyndum voru
Færeyjar og ísland ekki með í dæminu. í
júní 1982 áttu Samtök
herstöðvaandstæðinga fulltrúa á fundi í
Osló, þar sem lögð var rík áhersla á
þátttöku íslands, og síðastliðið haust var
síðan formlega gengið frá því að ísland og
Færeyjar yrðu aðilar að svæðinu í hinni
sameiginlegu stefnumótun. Síðan hafa
Samtök herstöðvaandstæðinga tekið fullan
og virkan þátt í mótun þeirra hugmynda
sem settar eru fram í hinni endanlegu
álitsgerð sem samþykkt var í Reykjavík 24.
apríls.l.
- Hvert er umfang þess svæðis sem
hugsað er Sem kjarnorkuvopnalaust?
- Svæðið er hugsað þannig að það nái til
allra Norðurlandanna nema Grænlands og
taki til 4 mílna tollalandhelgi og Iofthelgi.
Samtök herstöðvaandstæðinga lögðu
áherslu á að fá Grænland með inn í þessa
mynd, því Grænlendingar hafa svipaða
aðstöðu og við íslendingar hvað varðar
erlendar herstöðvar. Slíkt myndi að okkar
mati auka gildi svæðisins til varðveislu
friðar. Friðarhreyfing hefur hins vegar ekki
enn verið stofnuð á Grænlandi, og þeir hafa
ekki tekið þátt í þessum umræðum. Það
þótti ekki stætt að taka Grænland inn í
myndina sem hluta af Danmörku, en
hugsanleg útvíkkun svæðisins í framtíðinni
mun fyrst og fremst beinast að Grænlandi.
Við lítum ekki á svæðið sem einangrað
fy rirbæri, heldur sem áfanga á leið til
kj arnorkuvopnalausrar Evrópu, þar sem
öryggi verði tryggt með öðrum hætti.
- Nú er því haldið i'ram, að
kjarnorkuvopn séu ekki geymd á
Norðurlöndum. Hefur samþykkt sem þessi
þá einhver áhrif, t.d. varðandi þann
herbúnað sem fyrir er á svæðinu?
- Skilgreiningokkará
kj arnorkuvopnum í þessu sambandi er
þröng. Þar er einungis átt við
sprengjuvirkar hleðslur. Því stöndum við
frammi fyrir þeirri þversögn, að jafnvel
þótt við höfum hér yfirlýst
kjarnorkuvopnalaus svæði, þá sitjum við
uppi með herstöðvar sem eru jafnframt
stjórnstöðvar þegar til kjarnorkustyrjaldar
kemur. Samkomulag sem þetta kemur hins
Kjamorkuvopnalaust
svæöiá
Norðurlöndum er
fyrsta skrefíð í átt til
nýrra viðhorfa og
nýrrar skipunar
öryggis og varnarmála
í Evrópu og heiminum,
þarsem öryggið verði
tryggtmeð
gagnkvæmum trúnaði
í stað ógnarjafnvægis.
Norður-Atlantshafið og Ishafið eru orðin eitt hættulegasta svæðið í Evrópu í hernaðarlegu
tilliti vegna kjarnorkuvígbúnaðar stórveldanna. Næsta skrefið yrði að innlima Grænland í
hið kjarnorkuvopnalausa svæði.
vegar í veg fyrir tímabundna geymslu og
flutninga á kjarnorkuvopnum á svæðinu,
og það má einnig minna á, að bandarísk
stjórnvöld hafa aldrei viljað sverja fyrir að
hér væru geymd kj arnorkuvopn. Þá er ekki
neitt ákvæði í íslenskum lögum sem kemur í
veg fyrir að íslensk stjórnvöld geti
hugsanlega í framtíðinni veitt leyfi fyrir
slíkri geymslu, og reynsla okkar af
hersetunni sýnir, að vart er að treysta því að
slíkt leyfi verði ekki gefið einn góðarf
veðurdag.
Þá má einnig benda á að öll uppbygging
herstöðvarinnar í Keflavík er beinlínis slík,
að hún kallar á kjarnorkuvopn sem
stjórnstöð í kjarnorkustyrjöld.
- Hvernig yrði formlega gengið frá
yfirlýsingu um kjarnorkuvopnalaus
Norðurlönd?
- Tillaga okkar gengur út frá því að
gerður verði innbyrðis sáttmáli á milli allra
Norðurlandanna, sem staðfestur verði af
Sameinuðu þjóðunum. Þetta yrði einhliða
ákvörðun Norðurlandanna, sem ekki væri
bundin neinum þeim skilmálum sem
stórveldin gætu sett. Síðan verður
kjarnorkuveldunum gert að skuldbinda sig
til að viðurkenna svæðið sem
kjarnorkuvopnalaust í samræmi við
ályktun 1. sérnefndarSameinuðuþjóðanna
frá 1978 þar sem stórveldin eru hvött til að
veita slíkum svæðum viðurkenningu.
Dæmi um hliðstæðan samning er
samningur sá sem þjóðir S-Ameríku hafa
gert innbyrðis um kjarnorkuvopnalaust
svæði, en stórveldin hafa viðurkennt hann
með sérstökum yfirlýsingum.
- Hvernig á að tryggja eftirlit með því að
við yfirlýsingar þessar verði staðið?
- I tillögunni er gert ráð fyrir því að
Norðurlöndin komi á fót sjálfstæðri stofnun
er hafi þetta verkefni með höndum. Síðan
eru Norðurlöndin bundin eftirliti Alþjóða
kj arnorkumálastofnunarinnar í Vín í
samræmi við alþjóðasamninginn um bann
við útbreiðslu kjarnorkuvopna frá 1968. Þá
er með skuldbindingum stórveldanna gert
ráð fyrir gagnkvæmu eftirliti frá þeirra
hendiásvæðinu.
- Hvernig myndi kjarnorkuvopnalaust
svæði á Norðurlöndum breyta stöðu
öryggismála á svæðinu og í Evrópu?
- Það er ekki gert ráð fyrir því með
Íiessari samþykkt að Noregur, Danmörk og
sland segi sig úr Atlantshafsbandalaginu.
Árni Hjartarson og Atli Gíslason frá Samtökum herstöðvaandstæðinga.
Hins vegar stangast þessar hugmyndir í
veigamiklum atriðum á við þá stefnu, sem
nú er ríkjandi innan Nato, og slíkt svæði
myndi væntanlega knýja á um
stefnubreytingu innan bandalagsins. Nato
hefur hingað til byggt stefnu sína á
ógnarjafnvæginu, en hér er verið að benda
á annan valkost, og stofnun slíks svæðis yrði
sjálfstætt frumkvæði Norðurlandanna til
þess að vinna honum fylgis. Þá myndi slíkt
kjarnorkuvopnalaust svæði koma í veg fyrir
hugsanleg áform Nato í framtíðinni um að
koma sér upp kjarnorkuvopnum á svæðinu
við breyttar aðstæður. Svæðið myndi koma
í veg fyrir að kafbátar með kjarnorkuvopn
innbyrðis gætu leitað vars eða þjónustu á
íslandi, og þannig mætti lengi telja.
Mikilvægasta atriðið í þessu sambandi er
þó að okkar mati að svæðið er fyrsta skrefið
í átt til nýrra viðhorfa og nýrrar skipunar
öryggis- og varnarmála í Evrópu og í
heiminum, þar sem öryggið verður tryggt
með gagnkvæmum trúnaði í stað
ógnarjafnvægisins.
- Hvernig ætla Samtök
herstöðvaandstæðinga að vinna að
framgangi þessa máls hér á íslandi?
- Við ætlum okkur að kynna málið fyrir
stjórnvöldum, þingi,
stjórnmálasamtökum,
verkalýðshreyfingunni og ekki síst
almenningi.
Við munum þrýsta á íslensk stjórnvöld
um að taka þetta mál á dagskrá á norrænum
vettvangi og við munum leggja áherslu á að
málið verði tekið fyrir á Alþingi íslendinga
og að stjórnmálaflokkarnir lýsi þár afstöðu
sinni til þessara mála.
Mikilvægast er þó að kynna málið fyrir
almenningi, því friðarhreyfingin hér í V-
Evrópu er fyrst og fremst grasrótarhreyfing
sem á styrk sinn undir vaxandi skilningi
almennings á nauðsyn þess að breytt verði
um stefnu í öryggis- og varnarmálum í
heiminum í dag, áður en það verður um
seinan.
ólg.
„Að enginn
hafí ástæðu
tilað
óttast...“
Úrformála sameiginlegrar
yfirlýsingarfriðarhreyfinga
á Norðurlöndum um
kjarnorkuvopnalaus
Norðurlönd, sem samþykkt
varáfundi í Norrœna
húsinu24. aprílsl.
Tvö meginsjónarmið eru ráðandi í þeirri
viðleitni að korna í vegfyrir
kjarnorkustyrjöld. Annað byggir á
ógnarjafnvæginu, þ.e.a.s. aðstöðug
hervæðing á að hindra mótaðilann í að
reyna árás. Hitt sjónarmiðið byggir á
gagnkvæmu trausti, þ.e.a.s. þeirri skoðun
að með alþjóðlegum samningum og nýjum
samstarfsformum megi skipa svo málum að
ríki leysi ágreiningsmál sín án þess að beita
vopnavaldi.
Allt frá síðari heimsstyrjöldinni hefur
hugmyndin urn ógnarjafnvægið verið
ríkjandi. Þetta hefur haft í för með sér
síaukinn vígbúnað og grafið undan efnahag
þjóða heimsins. Núersvo konrið málum að
einungis tilvist vopnanna ógnar öryggi
okkar. Þess vegna gerast þær raddir nú æ
háværari sein krefjast breyttrar stefnu í
öryggismálum.
Ríkjandi stefna í öryggismálum, sem nú
er framfylgt af þjóðríkjum og
valdablokkum leiðir til stöðugt aukins
vígbúnaðar. Það er því nauðsynlegt að
frumkvæði annarra, heldur leggi hverfram
sinn skerf og hvetji aðra til hins sama.
Sjálfstætt frumkvæði verður að koma til. Ef
við samþykkj um öryggismálastefnu, sem
byggir á tilvist kjarnorkuvopna og
hugsanlegri notkun þeirra þá höfum við um
leið gefið samþykki okkar fyrir vitfirringu
kjarnorkuvopnakapphlaupsins.
Við lítum á*,varnir“ með
kjarnorkuvopnum sem ögrun við okkar
eigin tilveru og siðlausa aðferð í baráttu
gegn óvini. Stofnun svæðisins er því hugsuð
sem sjálfstætt frumkvæði Norðurlandanna.
Hún á að útrýma hugsanlegum ástæðum
fyrir beitingu kjarnorkuvopna gegn
löndunum sem rnynda svæðið, og jafnframt
á hún að standa sem fyrsta varðan á leiðinni
að frekari afvopnun og slökun spennu.
Stofnun svæðisins á einnig að geta komið af
stað auknum umræðum um
kjarnorkuvígbúnaðinn og
valdbeitingarpólitík stórveldanna.
Það er í þágu alls mannkyns að einhver
taki fyrsta skrefið á leiðinni til nýrrar
alþjóðlegrar stefnu íöryggismálum, er
byggi á samstarfi á milli allra þjóða
heimsins. En út fráhefðbundnum
viðhorfum í þessum málum krefst slíkt
frumkvæði þess að við höfum hugrekki til
að varða nýjar leiðir, sem enginn getur sagt
fyrir um hvert liggja. Margir draga sig í hlé
af þessum sökum. Þeir viðurkenna þær
hættur sem okkur stafa af
kjarnorkuvígbúnaði og kjarnorkuvörnum,
en eru engu að síður hræddir við að gefa
upp á bátinn hefðbundnar varnir, vegna
þess að hið hefðbundna skapar í sjálfu sér
ákveðna öryggiskennd. í heimi nútímans er
þetta raunverulegt vandamál, sem takast
verður á við í alvöru. Flest þjóðríki mæla
öryggi sitt í hernaðarstyrknum.
Stjórnmálamennirnir verða að taka á sig þá
ábyrgð að rísa gegn þessum hefðbundna
skilningiáöryggi.
Andstæðan við hernaðarlegar lausnir er
friðsamlegar lausnir. Andstæðan við
hernaðarbandalög er friðarbandalög er
leiði til myndunar öryggisbandalaga þar
sem líkur á valdbeitingu til lausnar deilna
verði nánast engar.
Flest deilumál í heiminum í dag ei u nú
Bandaríski friðarsinninn Daniel Ellsberg og norska leikkonan Liv Ullman í broddi fylkingar
friðargöngunnar sem farin var í Svíþjóð á sl. sumri.
nýjar lausnir í öryggismálum byggi á
alþjóðlegum forsendum. Það eru
hagsmunir alls mannkynsins að unnt verði
að koma af stað afvopnun sem nái til
heimsins alls. Þar geta bæði stór ríki og smá
átt hlut að máli með því að koma á fót
friðarsvæðum, þar sem samskipti á milli
ríkjanna innbyrðis og milli ríkjanna og
umheimsins byggja á gagnkvæmu trausti og
samvinnu.
Því er haldið fram að baráttuna fyrir
kjarnorkuvopnalausu svæði á
Norðurlöndum verði að skoða í víðara
evrópsku eðaalþjóðlegu samhengi. Við
erum einnigþessararskoðunar: Ef stofnun
slíks svæðis verður ekki annað en einangrað
frumkvæði landa okkar í heimi þar sem
vígbúnaðarkapphlaupið heldur áfram
óhindrað, mun það brátt glatagildi sínu. En
það er jafnframt skoðun okkar að víðtæk
afvopnun verði aðeins að veruleika með
viðvarandi þróun, þar sem enginn setji
fyrirfram gefin skilyrði eða bíði eftir
þegar leyst á friðsamlegan hátt. Annars
myndum við búa við órofa styrjaldarástand
um heim allan. Friðsamlegar lausnir
deilumála á síðari árum verða vart raktar til
þess að við höfum hættuna af
kjarnorkuvopnunum hangandi yfir höfðum
okkar.
Stofnun kjarnorkuvopnalauss svæðis á
Norðurlöndum mun vekja athygli og áhuga
langt út fyrir Norðurlöndin. Hún felur í sér
nýja lausn á öryggismálum, byggða á
samstarfi um sameiginlega
öryggishagsmuni. Kenningin um
ógnarjafnvægið y.rði leyst af hólmi með
þeirri grundvallarreglu, að enginn eigi að
hafa ástæðu til að óttast. Það verður að nýta
það gagnkvæma traust sem ríkir í okkar
heimshluta til þess að hrinda af stað þróun í
j ák væða átt, sem með tíð og tíma gæti leitt
til breyttra samskiptahátta á
alþjóðavettvangi. Sameiginlegt markmið
okkar er samfélag manna sem lifir við
varanlegan frið, þar sem hættunni af
gjöreyðingu kjarnorkustyrjaldarinnar
hefur verið útrýmt.