Þjóðviljinn - 06.05.1983, Page 16

Þjóðviljinn - 06.05.1983, Page 16
DJÚÐVIUINN Föstudagur 6. maí 1983 Aöalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudags. Utan þess tima er hægt aö ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663 Alþjóðleg ráðstefna um fíkniefnamál Breyttar f orsendur sagði Pétur Sigurðsson alþingismaður um skerðingu vísitölubóta í haust er leið skrifaði Jón G. Sólnes fyrrum þingmaður grein um efnahagsmál í Moggann, þar sem hann sagði m.a. að afnema eða skerða þyrfti vísitölubætur á laun. Pétur Sigurðsson alþingismaður svaraði Jóni í sama blaði og sagði þá að krukk í vísitölubæturnar kæmi ekki til grcina af sinni hálfu. Pétur var í gær inntur eftir því hvort hann væri enn sama sinnis eða hvort hann myndi taka þátt í því að skerða eða afnema vísitölu- bætur á laun 1. júní nk.? Það eru gerbreyttar forsendur nú. Þegar ég svaraði Jóni Sólnes sagðist ríkisstjórnin stíla uppá að ná vísitölunni niður í 10%. Nú stefnir hún í 100%, þannig að það er ekkert sambærilegt, sagði Pétur Sigurðsson. -S.dór Slökkviliðið í Reykjavík kveikti í gær í þessu gamla húsi, sem stendur við Hlíðarveg í Kópavogi, og æfði sig síðan í hinum ýmsu galdrabrögðum slökkvistarfsins. Ljósm. -eik- * Skreiðarverkun fyrir Italíumarkað heimiluð á ný með skilyrðum F ramleiðslueftirlitið fylgist með verkuninni Seðlabanki íslands hcfur ákveð- ið að endurkaupa á ný afurðalán fyrir framleiðslu á skreið fyrir Ital- íumarkað með því skilyrði að lán- beiðni til fylgi vottorði frá Fram- leiðslueftirliti sjávarafurða um að fiskurinn standist gæðamat. Þessi ákvöröun er tekin til að greiða fyrir framleiðslu á skreið fyrir Ítalíumarkað og nær heimild- in til fisks sem hengdur verður upp á tímabilinu 6. mai til 5. júní, en þó ekki að meira magni en talið er sennilegt að seljist á Ítalíumarkað á þessu ári. Framleiðslueftirlitið hefur sett þær reglur að einungis verði hengd- ur upp ferskur þorskur af I. eða II. gæðaflokki og ekki minni en 40 cm. Þá er skréiðarframleiðendum gert að greiða matsmönnum laun fyrir matsstörfin. -Ig- 1 gær fór fram almannavarnaræfing í björgunarstörfum og var meiriháttar flugslys sett á svið í Vestmanna- eyjum. Myndin var tekin þegar komið var með þá „slösuðu“ til Reykjavíkur. Veruleg hækkun á kísilmálmi Fvrirhvggiandi starf gegn fíkniefnaneyslu Áfengisvarnaráð og heilbrigðis ráðuneytið standa fyrir nýmælum Alþjóðleg ráðstefna verður hald- in á Islandi 26.-30. septembcr í haust á vegum Áfcngisvarnaráðs um fyrirbyggjandi starf og rann- sóknir í áfengis og fíknicfnamálum. Áfengisvarnaráð stendur fyrir ráðstefnunni í umboði heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins og hefur verið hötð samvinna við Al- þjóðaráð um áfengis og fíknicfna- mál um skipulag ráðstefnunnar, en alþjóðaráðið er starfandi undir umsjón Who, alþjóðaheilbrigðis- stofnunarinnar. A meðan þessi alþjóðlega ráð- stefna verður haldin verður einnig haldið sérstakt tveggja daga nám- skeið um fyrirbyggjandi starf í upp- eldis og fræðslustarfi. Fjölmörgum aðilum innanlands og utan er boðið til þessarar ráðstefnu. Framkvæmdanefnd hennar skipa þeir Jón Ormur Hall- dórsson, Guðmundur Einarsson, Stefán Jóhannsson og Árni Einars- son. í faglegri nefnd eiga sæti m.a. Jóhannes Bergsveinsson, Hildi- gunnur Ólafsdóttir og Tómas Helgason. Ráðstefnan og námskeiðið voru kynnt á blaðamannafundi hjá Á- fengisvarnaráði í gær - og verður nánar sagt frá þeim fundi síðar. -óg Samkvæmt upplýsingum í breska sérfræðiritinu Metal Bul- letin nýlega hefur að undanförnu verið vaxandi eftirspurn og hækk- andi verð á kísilmálmi, og helst það nokkuð í hendur við bata í ál- iðnaði. Kemur það fram i mikilli lægð á 'báðurn þessum mörkuðum á síðasta ári, en þá fór verð á kísil- málmi lægst niður í 850-900$ á tonn, en er nú komið í allt að 1200$ á tonn og virðist sæmilega stöðugt og spáð áframhaldandi hægfara bata. Þetta eru jákvæðar fréttir fyrir þá sem eru að vinna að undirbún- ingi kísilmálmverksmiðju hér- lendis. Hins vegar mun verð á kísiljárni ekki hafa hækkað að marki að undanförnu. Eigandi Nausts brýtur samninga á framreiðslumönnum Þiónar mæta ekki til kvöldvinnu Félag framreiðslumanna hefur ákveðið að kæra til félagsdóms Deilur hafa sprottið upp milli þjóna í Nausti og ciganda staðarins sem hafa leitt til þess að þjónarnir gengu af vinnustað og hafa ekki mætt til kvöldvinnu síðustu daga. Forsaga málsins er sú að fyrr í vikunni ákvað eigandi Nausts Óm- ar Hallsson veitingamaður upp á sitt eindæmi að breyta fyrirkomu- lagi vínveitingarekstursins þannig > að brýtur skýlaust í bága við kjara- samninga þjóna. I stað þess að þjónar kaupi áfengisflöskur í heilu lagi af veitingamanni og selji síðan gestum drykki hyggst Ómar nú selja þjónunum hvern sjúss fyrir sig og að þjónar komi hvergi nálægt blöndun drykkja heldur sjái ein- göngu um pantanir og afgreiðslu. Þið megið þá fara Þjónar í Nausti neituðu að vinna samkvæmt þessu fyrirkomulagi, og fengu þá þau Svör frá eiganda staðarins að þeir gætu þá farið fyrst svo væri. Fulltrúar Félags framreiðslu- manna og lögfræðingur þess hafa reynt að taka upp viðræður við Ómar Hallsson en hann stendur fastur á sinni ákvörðun, þrátt fyrir að í kjarasamningum framreiðslu- manna standi skýrum stöfum að fé- lagsmönnum sé óheimilt að taka upp nýja starfshætti á samnings- tímanum. Mikið hagsmunamál Stjórn Félags framreiðslumanna hefur ákveðið að vísa þessu deilu- máli til félagsdóms. Ólafur Sveins- son framreiðslumaður sem m.a. hefur haft með málið að gera fyrir hönd félagsins sagði í samtali við Þjóðviljann, að hér væri um mikið hagsmunamál að ræða fyrir fram- reiðslumenn. „Veitingamenn hafa barist fyrir breytingum sem þessum í yfír 30 ár, en félagið ávallt staðið gegn þeim, því þær skerða tvímæla- laust okkar kjör. Þessi vinnubrögð Ómars Hallssonar að grípa til ein- hliða aðgerða í Naustinu, öllum að óvörum eru óforskömmuð og framkoma hans gagnvart starfs- mönnum fyrir neðan allar hellur." -lg-

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.