Þjóðviljinn - 12.05.1983, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 12.05.1983, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 12. maí 1983 ÍÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5 Plastfilma á stálklæðningum Rafmagnsveitum Reykjavíkur Gjörónýt eftir 8 ára notkun „Þessi stálklæðning með plastfilmu, sem sett var utan á hús Rafmagnsveitur Reykjavík- ur við Ármúla fyrir 10-12 árum hefur því miður reynst afar illa og það iiggur fyrir að við verðum að fletta plastfilmunni af öllu húsinu og hafa náðst samningar við framleiðandann um að greiða þann kostnað“, sagði Haukur Pálmason hjá Rafmagnsveitum Reykjavíkur í samtali við Þjóðviljann í gær. „Þegar við keyptum þetta efni var okkur gefið fyrirheit um 15 ára viðhaldslausa endingu. Það var hins vegar eftir 8 ár sem fyrstu skemmdir fóru að koma fram og að sögn sérfræðinga virðist sem eitthvert bindiefni í plastfilmunni hafi eyðst með tímanum. Stálið undir er galvaniserað og það er óskemmt með öllu“, sagði Haukur enn fremur. „Við hjá Rafmagnsveitum Reykjavíkur höfum líka reynslu af álklæðningum með innbrenndu lakki og þær hafa reynst frábær- lega. Það var um 1970 sem við Stál- og álplöturnar Nauðsyn að gera gæða- úttekt segir sérfrœðingur Iðntæknistofnunar „Þetta dæmi um litla end- ingu piastfilmunnar sem sam- kvæmt sumum auglýsingum á að duga árum og áratugum saman sýnir auðvitað vel hversu seljendur komast langt með auglýsingum og að hlut- lausa úttekt á gæðum þessara efna vantar nauðsynlega“, sagði Rögnvaldur S. Gíslason deildarstjóri efnaiðnaðar- deildar Iðntæknistofnunar Is- lands í gær. „Sjálfsagt er mikið af þess- um klæðningum ágætis efni en það virðist ljóst að innan um eru klæðningar sem ekki henta hér á landi og endast engan veginn eins lengi og fyrirheit eru gefin um. Við hjá Iðntæknistofnun erum með í undirbúningi úttekt á gæðum þessara klæðninga og stefnum á að geta flokkað einstök vörumerki eftirgæðum. Þegar sú úttekt liggur fyrir geta væntanlegir kaupendur þess- ara efna gengið að slíkri hlut- lausri flokkun á þeim efnum sem eru í boði“, sagði Rögn- valdur S. Gíslason að lokum. Fyrir 10-12 árum var þessi stálklæðning sett á hús Rafmagnsveitna Reykjavíkur við Ármúla. Eftir 8 ára notkun var Ijóst að klæðningin reyndist ónýt. klæddum mannvirki inn við Elliða- ár með því efni og núna 13 árum seinna er það eins og nýtt. En þess- „Þessi bæjarráðsfundur fór friðsamlega fram og einhugur ríkjandi nema hvað bæjarráðs- maður Alþýðuflokksins, Guð- mundur Oddsson yfirkennari í Víghólaskóla, mælti gegn samn- ingi um skólahald í Kópavogi. Aðrir bæjaráðsmenn sam- þykktu að fela bæjarstjóra að undirrita fyrir hönd Kópavogs- kaupstaðar samning þessa efnis sem þegar hefur verið undirrit- aður af bæði fjármálaráðherra og menntamálaráðherra fyrir hönd ríkisins“, sagði Björn Ólafsson bæjarráðsmaður Al- þýðubandalagsins í samtali við Þjóðviljann í gær. Samningurinn kveður á um það að strax á næsta skólaári fái fram- haldsskólinn í Kópavogi húsnæði Víghólaskóla til afnota. Víghóla- skóli verði um leið lagður niður sem grunnskóli en nemendur sem nú eru í 7. og 8. bekk færist í aðra grunnskóla bæjarins. Húsnæði það sem Menntaskólinn í Kópavogi hefur haft, fái Kópavogsskóli hins vegar til afnota. Þá er í samningnum ákvæði um að strax næsta vetur taki til starfa ar klæðningar með plastfilmunni getum við ekki ráðlagt nokkrum að kaupa miðað við þá slæmu reynslu í takt við stefnu skólayfirvalda segir Björn Ólafsson bæjarráðsmaður nýr grunnskóli, Hjallaskóli og er hönnun skólans þegar hafin. Til að byrja með verði lausar kennslu- stofur sem Menntaskólinn hefur haft til umráða, fluttar í hinn nýja Hjallaskóla. Einnig er í samning- num ákvæði um áframhaldandi uppbyggingu Digranesskóla og Snælandsskóla. Loks er í samning- num kveðið á um að ríkissjóður beri stofnkostnað vegna húsnæðis fyrir hótelgreinar og verknáms- skóla í matvælagreinum í Kópa- vogi. sem við höfum af þeim“, sagði Haukur Pálmason að lokum. -v. „Á bæjarráðsfundinum í fyrra- dag lagði ég skýrt fram bókun, sem var samþykkt, þar sem kveðið er skýrt á um að þannig verði gengið frá skólavist nemenda 7. og 8. bekkjar í Víghólaskóla næsta vetur að hagsmunir þeirra sitji í fyrirrúmi og tekið verði tillit til óska þeirra og kennaranna, eftir því sem kost- ur er. Jafnframt verði nemendum tryggðir sömu kennarar sem þeir hafa haft undanfarin ár eftir því sem því verður við komið. Auðvit- að skiptir mestu máli í þessari breytingu sem verið er að gera á skipan skólamála í bænum að hags- munir nemenda séu ekki fyrir borð bornir og að bekkjum sé ekki tvístrað. Ég tel að með þessum samningi bæjar og ríkis hafi það markmið náðst og að með þessum samningi hafi skapast forsendur fyrir einsetningu grunnskólanna í Kópavogi frá og með 4. bekk. Einnig tryggir þessi samningur uppbyggingu myndarlegs fjöl- brautaskóla í bænum með verk- námsbrautum. Þetta allt saman er enda í samræmi við stefnu skóla- yfirvalda og meirihluta bæjar- stjórnar í þessum efnum“, sagði Björn Ólafsson að lokum. -v. Einn stærsti innflytjandi álklæðninga: „Það er alveg rétt að við höfum verið í innflutningi á ál- og stálplötuin um nokkurra ára skeið og ég get fullyrt að reynsla okkar viðskiptavina af álplötum hcfur vcrið mjög góð, enda bjóðum við 20 ára ábyrgð á því efni“, sagði Björn Möller hjá Innkaupum hf í samtali við Þjóðviljann í gær. Forsíðumynd blaðsins í gær, sem sýnir illa farna stál- klæðningu á verksmiðjuhúsi einu, hefur vakið mikla at- hygli. Þar var að vísu sagt að um væri að ræða innbrennt ál, en klæðningin mun vera af stáli gerð. Aðalatriðið er þó ekki það heldur hitt að neytendur virðast ekki hafa nokkra möguleika á að afla sér hlutlausra upplýsinga um það hvaða efni eru betri en önnur og því hafa skotið upp kollinum dæmi um brostin fyrirheit. „Við höfum lagt áherslu á álklæðningarnar enda af þeim mjög góð reynsla þá um það bil tvo áratugi sem við höfum verið í þessum innflutningi. Eina dæmið um frávik frá þessu kom upp árið 1977, en þá fengum við sendingar af gölluðum plötum og þegar þeir ágallar komu í ljós, var skipt um allar klæðningar á kostnað okkar og fram- leiðandans úti í Noregi. Þessir gallar komu einungis fram í rauða litnum og við athugun reyndist sökudólgurinn vera sá aðili sem sá um blöndun og framleiðslu litarins. Dæmi um góða reynslu af álplötum frá okkur er klæðning á spennu- stöð Rafmagnsveitna Reykja- víkur við Elliðaár, en hún var sett á mannvirki þar á árunum 1964-65 og er ekkert farin að láta á sjá“, sagði Björn Möller hjá Innkaupum hf. -v. Skipan skólamála í Kópavogi í deiglu Bæjarráð samþykkti samninginn við ríkið Nefnd um jafnréttismál skilar tillögu að frumvarpi til laga Staða kvenna verði bætt Akveðnari lagafyrirmæli og fimm ára framkvæmdaáætlanir Nefnd sem Svavar Gestsson félagsmálaráðherra skipaði 1981 til þess að fjalla um jafn- réttismál og endurskoðun laga, skilaði áliti í apríl og tillögu að frumvarpi til laga um jafna stöðu og jafnan rétt karla og kvenna. Helsta nýmæli frum- varpsins er, að tilgangur lag- anna sé ekki aðeins að stuðla að jafnrétti og jafnri stöðu karla og kvenna heldur beinlínis að koma jafnrétti á með því að bæta stöðu kvenna. Þetta ákvæði ætti að opna leið til tímabundinna aðgerða, sem nauðsynlegar þættu. í frétt frá félagsmálaráðuneytinu segir að önnur helstu nýmælin séu breytt skipan jafnréttisráðs á þá lund, að félagasamtök sem hafa jafnréttisbaráttu á dagskrá tilnefni fulltrúa í ráðið. Er ætlunin að tryggja þannig að í ráðinu sitji ævinlega fulltrúar, sem framar öðru hafa áhuga á að vinna farsæl- lega að þessum málum. Þá er gert ráð fyrir að skipan jafnréttisnefnda í sveitarfélögum verði lögleidd og að leitast verði við að hafa sem jafnasta tölu kynja í stjórnum, nefndum og ráðum á vegum ríkis, sveitarfélaga og félagasamtaka. Þá eru fleiri aðilar en nú dregnir til ábyrgðar vegna ólöglegra auglýs- inga og atvinnurekendum gert að vinna að því að jafna stöðu kynj- anna innan fyrirtækja sinna. Gert er ráð fyrir að ríkisstjórnir geri framkvæmdaáætlun til fimm ára í senn, auk þess sem lögin séu endurskoðuð eftir fimm ár frá setn- ingu. Að lokum gerir frumvarpið ráð fyrir að viðurlög vegna brota verði mun ákveðnari heldur en í núgildandi jafnréttislöggjöf. -ekh

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.