Þjóðviljinn - 12.05.1983, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 12. maí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17
íþróttir
Umsjón:
Víðir Sigurðsson
Isfirðingar í sambandi við Emlyn Hughes:
Fá sennilega þekkt-
an enskan leikmann!
„Emlyn Hughes fyrrum
fyrirliði Liverpool og enska
landsliðsins, hafði áhuga á
að koma til okkar en gat
ekki gefið ákveðið svar
nægilega fljótt, þannig að
ég á síður von á að hann
þjálfi 1. deildarlið ÍBÍ í sum-
ar“, sagði Pétur Geir Helga-
son, hjá knattspyrnuráði Is-
firðinga í samtali við Þjóð-
viljann í gærkvöldi. „Við
erum að bíða eftir símhring-
ingu frá Englandi en það
eru allar líkur á að við fáum
mann þaðan, mjög senni-
lega einhvern vel þekktan
knattspyrnumann“.
Sem kunnugt er hætti
Þorsteinn Friðþjófsson
með ísfirðinga fyrir stuttu
og þeir standa uppi þjálf-
aralausir viku áður en ís-
landsmótið hefst. Það kom
fram hjá Pétri að á síðasta
ársþingi KSÍ var biðtími er-
lendra leikmanna styttur úr
sex mánuðum í þrjá þannig
að verðandi þjálfari þeirra
ísfirðinga gæti leikið með
þeim síðasta hluta íslands-
mótsins. - VS.
Aberdeen með yfir-
burði í Gautaborg
„Ég fylgdist með viðureign Aber-
deen og Real Madrid, úrslitaleik
Evrópukeppni bikarhafa í knatt-
spyrnu sem fram fór í Gautaborg, í
beinni sjónvarpsútsendingu. Skot-
arnir unnu leikinn verðskuldað, 2-
1, eftir framlengdan leik og voru
mun hættulegri allan tímann.
Spænska liðið var sterkara í fyrri
hálfleiknum en Aberdeen tók öll
völd í þeim siðari. Gordon Strac-
han var yfirburðamaður í liði
Aberdeen og á vellinum og Eric
Black átti einnig góðan leik. Hjá
spænska liðinu voru þeir Juanito og
Vestur-Þjóðverjinn Uli Stielike
hins vegar bestir“, sagði Guð-
mundur Stefán Maríasson, frétta-
ritari Þjóðviljans, í gærkvöldi
hann er staddur í Vestur-
Þýskalandi.
Aberdeen tók forystuna eftir
aðeins sex mínútur. Eric Black,
sem hafði átt þrumuskot í stöng á
þriðju mínútu, fylgdi vel þegar
knötturinn hrökk af varnarmanni
Spánverjanna eftir skalla Doug
Roughvie og skoraði af stuttu færi.
Níu mínútum síðar slapp Santil-
liana einn í gegnum vörn Skot-
anna, komst þá inní slæma'send-
ingu frá Neal Cooper til mark-
varðar, en var felldur og dæmd
vítaspyrna sem Juanito jafnaði úr.
Aberdeen tókst ekki að nýta yfir-
burði sína í síðari hálfleik og því
þurfti að framlengja leikinn. Þegar
átta mínútur voru eftir af framleng-
ingunni fékk varamaðurinn John
Hewitt glæsisendingu frá Mark
McGhee og skoraði sigurmark
Aberdeen, 2-1, fyrsti sigur liðsins í
Evrópukeppni var staðreynd.
-gsm/VS.
HK og Þróttur með
þrjá sígra hvort
HK úr Kópavogi og Þróttur,
Reykjavík, hirtu alla meistaratitla í
yngri flokkunum í blaki í vetur en
keppni þar lauk fyrir skömmu.
Keppt var í sex flokkum og sigraði
hvort félag í þremur þeirra. Ung-
lingastarf þessara félaga hefur ver-
ið mjög öflugt undanfarin ár og
uppskeran er eftir því.
Efstu lið í flokkununr urðu sem
hér segir:
2. flokkur pilta:
HK..................10 10 0 20-3 20
Efling..............10 7 3 15-6 14
Völsungur...........10 6 4 14-8 12
2. flokkur stúlkna:
Próttur R..............8 6 2 13-7 12
Bjarmi....................8 5 3 13-8 10
Víkingur..................8 5 3 11-9 10
3. flokkur pilta:
Þróttur R.............10 10 0 20-0 20
HK....................10 7 3 14-6 14
Bjarmi................10 5 5 11-11 10
3. flokkur stúlkna:
HK-1......................4 4 0 8-0 8
HK-2......................4 2 2 4-4 4
Breiðablik................4 0 4 0-8 0
4. flokkur pilta:
Þróttur R.................6 6 0 12-3 12
Stjarnan..................6 4 2 10-5 8
HK........................6 2 4 6-8 4
4. flokkur stúlkna:
HK........................2 2 0 4-0 4
Hvöt, A.Hún...............2 0 2 0-4 0
Tíu lið eru enn í
hættu í 2. deild
Spennan í fallbaráttu 2. deildar
ensku knattspyrnunnar jókst enn í
fyrrakvöld þegar fram fóru tveir
leikir. Botnliðið Burnley sigraði
QPR, sem þegar hefur tryggt sér
meistaratitil 2. deildar, 2-1, og Mi-
ddlesborough vann Crystal Palace
2-0. Staða neðstu liða er þá þessi:
Carlisle........41 12 11 18 67-69 47
Middlesboro.....41 11 14 16 46-67 47
Chelsea.........41 11 13 17 51-61 46
DerbyCo.........41 9 19 13 48-58 46
Grimsby.........41 12 10 19 44-69 46
Cr.Palace.......40 11 12 17 41-50 45
Charlton........41 12 9 20 59-85 45
Bolton........41 11 11 19 41-57 44
Rotherham.....41 10 14 17 43-66 44
Burnley.......40 12 7 21 56-65 43
í lokaumferðinni verða m.a.
tveir innbyrðis leikir fallbaráttu-
liða, Chelsea-Middlesboro og
Charlton-Bolton. Að auki eiga
Crystal Palace og Burnley eftir að
mætast svo það er alls ekki víst að
úrslitin um hvaða þrjú lið falla
ráðist endanlega í síðustu uniferð-
inni á laugardaginn kemur.
-VS
Jafntefli
í Tirana
Albanía og Tyrkland skildu
jöfn, 1-1, í 6. riðli Evrópu-
keppni landsiiða í knattspyrnu í
gærkvöldi. Leikurinn fór fram í
Tirana og hefur engin áhrif á
úrslitin í riðlinum en þar leika
auk þessarra þjóða V.-
Þýskaland, Austurríki og
Norður-Irland.
Árni
með
Framara
Arni Indriðason, fyrrum
landsliðsmaður í handknattlcik
og einn af burðarásum meistar-
aliðs Víkinga undanfarin ár,
þjálfar 2. deildarlið Framara
næsta vetur. Árni hætti endan-
lega að leika með Víkingum
þegar meistaratitillinn var í
höfn fyrr í vor og ætlar ekki að
klæðast Frambúningnum sjálf-
ur hcldur einbeita sér alfarið að
þjálfuninni.
Aukastig-
in voru
dýrmæt
Lokastaðan á Reykjavíkur-
mótinu í ineistaraflokki karla í
knattspyrnu sem lauk í fyrra-
kvöld varð þessi:
Fram.....6 4 1 1 12-5 12
Víkingur.6 5 0 1 12-4 11
Valur....6 4 0 2 9-4 9
KR......6 3 1 2 7-7 7
Fylkir..6 2 0 4 9-11 5
Þróttur...6 114 3-9 3
Ármann....6 0 1 5 3-15 1
Það voru aukastigin, veitt
fyrir að skora þrjú mörk eða
fleiri í leik, sem færðu Frömur
um sigurinn. Þeir hlutu þrí-
vegis aukastig, síðast í úrslita-
leiknum gegn Víkingi í fyrra-
kvöld. Víkingur, ValurogFylk-
ir fengu citt aukastig hvert en
ckkert hinna liðanna náði að
skora meira en tvö niörk í leik á
mótinu.
Johan Cruyff
aldeilis ekki
hættur!
Emlyn Hughes, „Grazy Horse“
eins og hann var löngum kallað-
ur, er meðal þcirra Englcndinga
sem koma til greina til að þjálfa 1.
deildarlið ísfirðinga.
Paris eða Feyen-
oord næsta vetur?
Hollenski knattspyrnusnillingur-
inn Johan CruyfT, sem nú er orðinn
35 ára gamall, hefur enn aðdráttar-
afl stóru félaganna og tvö kunn eru
nú á eftir honum. Cruyff átti stóran
þátt í að Ajax varð hollenskur
meistari ■ vetur og nú vilja erkióvin-
irnir, Feyenoord frá Rotterdam,
næla í hann fyrir næsta keppnis-
tímabil. Fleiri eru inni í myndinni,
franska félagið Paris St. Germain
hefur haft samband við Cruyff og
miðað við frammistöðu hans sl.
vetur ætti þessum frábæra leik-
manni, sem margir hafa lýst sem
hinum fullkomna knattspyrnu-
manni, ekki að verða skotaskuld úr
að leika knattspyrnu á toppnum í
Hollandi eða Frakklandi a.m.k.
eitt keppnistímabil í viðbót.
- VS.
Johan Cruyff.
Petrovic með stór-
leik gegn West Ham
Valdimir Petrovic, júgóslavneski
landsliðsmaðurinn hjá Arscnal,
var í banaformi þegar lið hans sigr-
aði West Ham3-1 áútivellií 1. deild
ensku knattspyrnunnar í fyrra-
kvöld. Petrovic skoraði sjálfur
fyrsta markið og lagði upp hin tvö
fyrir Chris Whytc og Brian
McDermott.
Næsta víst er að Petrovic yfirgef-
ur Arsenal í vor en hann hefur ekki
náð að uppfylla þær vonir sem
bundnar voru við hann. Líklegt er
að hann fari til belgíska félagsins
Antwerpcn og leiki við hlið Péturs
Péturssonar næsta vetur. í 3. deild
tryggði Portsmouth sér nánast
meistaratitilinn með 1-0 sigri á
Walsall. Um leiki í 2. deild í fyrra-
kvöld og stöðuna þar er fjallað
annars staðar á síðunni.
- VS.
Víkingsstúlkur unnu
öruggan sigur á Fram
Víkingur vann öruggan sigur á þriðja við.
Fram, 3-0, í meistaraflokki kvenna Staðan á mótinu er þá þessi:
á Reykjavíkurmótinu í knatt- vaiur......3 300 10-0 6
spyrnu í gærkvöldi. Vikingur. 3 2 0 1 7-2 4
Víkingsstúlkurnar skoruðu öll ............2 1 0 1 2-3 2
sín mörk í fyrri hálfleik, Gunnhild- Fram...3 0 i 2 ilín 1
ur Gylfadóttir það fyrsta eftir
aðeins tvær mínútur. Hún skoraði Næst leika KR og Fyikir á föstu-
aftur uni miðjan hálfleikinn og dag kl. 19.
Brynja Guðjónsdóttir bætti því - MHM