Þjóðviljinn - 12.05.1983, Side 12
20 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 12. maí 1983
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Frá Æskulýðsfylkingu
Alþýðubandalagsins.
Friðarvaka um hvítasunnu.
Æskulýðsfylkingin hefur fyrirhugað aö efna til hópferðar á Snæfellsnes um
hvítasunnuna. Haldið verður til í félagsheimilinu Skildi við Stykkishólm og
farið þaðan í skoðunarferðir um nágrennið undir leiðsögn heimamanna.
Svo veröa friðarmálin rædd á samkomum í félagsheimilinu. Farið verður á
laugardaginn 21. maí og komið til baka á mánudeginum 23. maí. Verði
verður mjög stillt í hóf. Þeir ungu sósíalistar sem hefðu áhuga á að koma
með eru vinsamlegast beðnir um aö tilkynna þátttöku í síma: 17500. -
Dagskrá auglýst nánar síðar í Þjóðviljanum. - Undirbúningsnefnd.
Alþýðubandalagið í Hafnarfirði
Félagsfundur ABH verður haldinn þriðjudaginn 17. maí. Dagskrá: 1. Inntaka nýrra
félaga. Ef fleiri hafa áhuga á að ganga í félagið hafið þá samband við Hallgrím í síma
51734 eða Hilmar í síma 53703, eða mætið á fundinn. 2. Kosning viðbótarfulltrúa í
kjördaemisráð félagsins. 3. Hvernig gekk kosningastarfið? Stutt framsaga Sigríður
Þorsteinsdóttir. 4. Kynnt fyrirhugað sumarstarf ABH. 5. Stjórnmálaviðhorfið. Geir
Gunnarsson alþingismaður svarar fyrirspurnum. 6. Önnur mál.
Stjórn ABH.
Aðalfundur 1. deildar ABR
Stjórn 1. deildar ABR boðar til aðaifundar þriðjudaginn 17. maí kl. 17 að
Hverfisgötu 105. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstöf.
Stjórnin.
AB Selfossi og nágrenni
Félagsfundur verður haldinn 19. maí næstkomandi kl. 20.30 að Kirkjuvegi 7
Selfossi.
Fundarefni:
Stjórnmálaviðhorfið að loknum kosningum. Svavar Gestsson formaður
Alþýðubandalagsins mætir á fundinn.
Önnur mál.
Stjórnin.
Lausar stöður
Við Tækniskóla íslands eru eftirtaldar stöður lausar til umsóknar:
1. Staða deildarstjóra i útgerðardeild. Starfið skiptist í stjórnun,
35%, og kennslu, 65%.
2. Kennarastaða í rekstrar- og stjórnunargreinum.
3. Kennarastaða í véladeild.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir með ýtarlegum upplýsingum um námsferil og störf skulu
hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,101 Reykjavík,
fyrir 7. júní n.k.
Menntamálaráðuneytið,
10. maí 1983.
Lausar stöður
Þrjár kennarastöður við Fjölbrautaskólann á Akranesi eru lausar til
umsóknar. Um er að ræða stöðu kennara í efnafræði og stærð-
fræði, í sálarfræði og í heilbrigðis- og umhverfisfræðum ('/2 staða).
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt ýtarlegum upplýsingum um námsferil og störf,,
skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101
Reykjavík, fyrir 6. júní n.k. - Sérstök umsóknareyðublöð fást í
ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
9. maí 1983.
Bladberi óskast
Fornhaga - Hjarðarhaga
Kvisthaga - Melhaga
DJODVIUINN
Utboð
Tilboð óskast í frágang lóðar við Sjálfsbjarg-
arhúsið, Hátúni 12 Reykjavík. Verkkaupi er
Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra. Stærð
lóðar ca. 8000 m2. Verklok 1. okt. 1983.
Útboðsgagna má vitja til skrifstofu Sjálfs-
bjargar Hátúni 12, gegn 1000 kr. skilatrygg-
ingu.
Tilboðin verða opnuð 24. maí 1983 kl. 11.00
á sama stað.
Valgerður Bergsdóttir var kjörin
formaður Félags ísl. myndlistar-
manna á aðalfundinum 5. maí.
Aðalfundur FÍM:
Starfslauna-
sjóður brýnt
hagsmunamál
Valgerður Bergsdóttir var
kjörin formaður Félags ís-
lenskra myndlistarmanna á
aðalfundi félagsins, sem hald-
inn var 5. maí sl.. Aðrir í stjórn
eru Þórður Hali, Guðbergur
Auðunsson, Helgi Gíslason og
Hringur Jóhannesson.
Á aðalfundinum var samþykkt
svohijóðandi ályktun til stjórn-
valda: Aðalfundur FÍM ályktar
eftirfarandi: Eitt brýnasta hags-
munamál myndlistarmanna er að
starfslaunasjóður til handa mynd-
listarmönnum verði stofnaður hið
fyrsta. Fundurinn skorar á yfirvöld
að hraða máli þessu, þannig að
myndlistarmenn öðlist meira fjár-
hagslegt öryggi til að sinna sínum
verkum en nú er og njóti þannig
sömu réttinda og aðrar Iistgreinar í
landinu. Með hliðsjón af þessu er
vitnað í kafla úr riti UNESCO, þar
sem fjallað er um stöðu og rétt
listamanna:
„Aðildarlöndunum ber að vemda
og styrkja stöðu listamanna með
því að líta svo á að vinna
listamannsins, bæði í nýju og hefð-
bundnu formi sé þjóðfélagsleg
nauðsyn. Aðildarlöndunum ber að
méta'þannig störf listamanna að
þeir fái notið sín og hljóti það fjár-
hagslega öryggi sem þeim ber fyrir
starf sitt að menningarmálum.
Aðildarlöndunum ber að tryggja
það að listamenn njóti þeirra rétt-
inda og verndar, sem ákveðin eru í
alþjóðlegum lögum hvers lands um
mannréttindi."
Auk þess ítrekar fundurinn enn
áskorun á stjórnvöld að leggja beri
niður listamannalaun í núverandi
mynd.
- ast
Oddvitafundur
Héraðshreppa
og Borgarfjarðar
Þegt r úr-
bætur á
Egilsstaða-
flugvelli
Á oddvitafundi Héraðshreppa og
Borgarfjarðar sem haldinn var í
Valaskjálf þann 14. apríl s.l. var
eftirfarandi tillaga samþykkt sam-
hljóða:
Egilsstaðaflugvöllur er um lengri
eða skemmri tíma árlega ófær
vegna aurbleytu. Umbætur á hon-
um hafa degist úr hömlu. Vegna
staðhátta eru Austfirðingar hins
vegar háðari flugi en flestir aðrir.
Oddvitafundir á Héraði skorar á
stjórnvöid flugmála að taka nú
þegar ákvörðun um uppbyggingu
Egilsstaðaflugvallar og hefjast
handa með framkvæmdir sem
fyrst.
Laus staða
Við Flensborgarskólann í Hafnarfirði er laus til umsóknar kennar-
astaða í stærðfræði. Æskilegt er að umsækjendur hafi tölvu-
menntun og geti kennt tölvufræöi við skólann, jafnframt
stærðfræðikennslu.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt ýtarlegum upplýsingum um námsferil og störf,
skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101
Reykjavík, fyrir 6. júní n.k. - Sérstök umsóknareyðublöð fást í
ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
9. maí 1983.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í steypuviðgerðir á dagvistunarhúsnæði
og ýmsum fasteignum hjá Reykjavíkurborg.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi
3 Reykjavík, gegn 3000 kr. skilatryggingu. Tilboðin
verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 25. maí
1983, kl. 11 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegj 3 - Simi 25800
Stóra
ferðahappdrættið
Gerið skil sem allra fyrst.
Dregið verður 10. maí n.k.
Hægt er að greiða gíróseðla í öllum bönkum og póst-
húsum.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og
útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og
ömmu
Ragnhildar Rafnsdóttur,
Langholtsvegi 142.
Ragnar Jónsson
Guðrún Ragnarsdóttir
Jón Ragnarsson Fiona Ragnarsson
og barnabörn.
Eiginmaður minn og faðir okkar
Björn Eiríksson
frá Sjónarhóli Hafnarfirði
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði, föstudaginn
13. maí kl. 15.00. Blóm og kransar afbeðin, en þeir sem vildu
minnast hans, vinsamlega láti Fríkirkjuna í Hafnarfirði njóta
þess.
Guðbjörg Jónsdóttir
Bjarni, Bára,
Bragi, Boði,
Birgir, Berglind.