Þjóðviljinn - 24.06.1983, Blaðsíða 1
DJÚÐVIUINN
Reiptog milli
„menntamanna-
klíkunnar'* og
„verkalýðsarmsins“
er meðal annars á
dagskrá í Viðeyjar-
ferð Alþýðubanda-
lagsins-
Sjá 5
júní1983
Föstudagur
137. tölublað
48. árgangur
Álviðræður í dag
Þreföldun orkuverðsins
er okkar lágmarkskrafa
í dag fer fram í Reykjavík fyrsti formlegi viðræðufundurinn
eftir ríkisstjórnarskiptin í maí þar sem fjallað verður um dei-
lumál okkar íslendinga við auðhringinn Alusuisse.
í gær komu hingað til lands tveir af forstjórum Alusuisse,
þeir dr. Paul Miiller og dr. Dietrich Ernst og munu þeir ræða
við samninganefnd, sem í eiga sæti þeir Jóhannes Nordal,
bankastjóri, Guðmundur G. Þórarinsson og Gunnar G.
Schram. Auk þess munu Alusuissemenn hitta ráðherra að máli.
í tilefni fundarins vill Þjóðviljinn minn á:
1. Alusuisse greiðir nú liðlega 17 aura á kílówattstund fyrir
þann helming allrar orkuframleiðslu Landsvirkjunar,
sem seldur er dótturfyrirtæki þess í Straumsvík.
2. Fyrir liggur að meðalraforkuverð í heiminum til álvera er
hins vegar milli 50 og 60 aurar, þegar um viðskipti
óskyldra aðila er að ræða.
3. Fyrir liggur að meðalorkuverð í þeim 12 álverum, sem
Alusuisse rekur vítt um heim utan Islands er einnig yfir 50
aurar að jafnaði - lægst tæplega 30 aurar og hæst 85
aurar.
4. Fyrir liggur, að framleiðslukostnaður á orku frá nýjum
virkjunum er nú um þrisvar sinnum hærri en svarar því
verði, sem Alusuisse greiðir hér.
5. Vegna stórkostlegra orkugjafa frá Landsvirkjun til Alu-
suisse, þá verða almenningsrafveiturnar um allt land nú
að greiða Landsvirkjun fimm sinnum hærra verð fyrir þá
orku, sem þær kaupa þaðan heldur en auðhringnum er
gert að greiða.
6. Að óbreyttum samningum, þá á orkuverðið til Alusuisse
ekki að hækka á næstu 7 árum, heldur að lækka úr 17
aurum niður í tæpa 14 aura! - Síðan á samningurinn að
standa lítt breyttur til ársins 2014, - í 31 ár enn!
Með allt þetta í huga, þá er það ófrávíkjanleg krafa íslend-
inga, að orkuverðið til Alusuisse verði hækkað í a.m.k. 50 aura
þegar á þessu ári.
Þetta þurfa þeir dr. Muller og félagar að vita, og breytir hér
engu um, hvað einstakir samningamenn eða ráðherrar kunna
að gefa í skyn. u
Álforstjórarnir, Múller og Ernst ásamt ökumanni sínum, sem bendir þeim
á inngöngudyrnar. Þeir mættu á sekúndunni.
Það er ekki ég sem býð, sagði Sverrir Hermannsson, iðnaðarráðherra
þegar hann mætti til fundar á Ægissíðunni.
Leynifiuidur á Ægisíðu
Fjórirmættu á fundinn: Miiller, Ernst, Nordal og Sverrir
„Ég er kominn hingað til að
nema nefi í fulltrúa Swiss Alum-
inium“, sagði Sverrir Her-
mannsson iðnaðarráðherra er
hann mætti til leynifundar með
forstjórum Alusuisse, dr. Paul
Miiller og Dietrich Érnst auk
Jóhannesar Nordals seðla-
bankastjóra og formanns ís-
lensku samninganefndarinnar
við Alusuisse. Fundur þessi var
haldinn í gærkvöldi í húsi Seðla-
bankans að Ægissíðu 54 í
Reykjavík.
Skömmu fyrir kl. 19.30 mætti Jó-
hannes Nordal formaður samn-
inganefndarinnar fyrstur til leyni-
fundarins og gekk rösklega inn í
íbúðarhús Seðlabankans við Æg-
issíðu er hann varð blaðamanna
Þjóðviljans var. Á mínútunni hálf-
átta mættu forstjórar Alusuisse
þeir Múller og Ernst á Ægissíðuna
en þeir komu til landsins skömmu
áður.
Sverrir Hermannsson iðnaðar-
ráðherra mætti síðastur til leyni-
fundarins skömmu eftir hálf átta.
Hann var greinilega ókunnur að-
stæðum og þurftu blaðamenn
Þjóðviljans að vísa honum réttu
leiðina á fundarstað.
Veit ekki um
gestalistann
„Ég bauð ekki og veit því ekki
um gestalistann, það er formaður
samninganefndarinnar sem heldur
þetta boð“, sagði iðnaðarráðherra.
Aðspurður hvort hann hyggðist
fallast á ósk Alusuisse um tvöföld-
un á Álverinu í Straumsvík sagði
Sverrir: „Ég hef ekki tekið ákvörð-
un um það“.
Verður sú ákvörðun kannski
tekin í kvöld á þessum fundi?
„ Það verður ekki gert í kvöld“,
sagði iðnaðarráðherra, og gekk inn
til fundar við forstjóra Alusuisse og
seðlabankastjóra.
Það vekur athygli, að Jóhannes
Nordal virðist telja eðlilegt að nota
húsakynni Seðlabankans undir
starfsemi og fundarhöld af þessu
tagi, sem eru bankanum þó með
öllu óviðkomandi.
Hann pukrast með álfurstana í
húsakynnum bankans að kvöld-
lagi, og tekur þar iðnaðarráðherr-
ann nýja í kennslustund, en boðar
ekki einu sinni þá tvo menn til
fundarins, sem þó eiga sæti með
honum í samninganefndinni.
En kannski er von að menn rugl-
ist á hlutverkum, þegar þeir eiga að
hafa svo mörg með höndum, eins
og Jóhannesi er ætlað af núverandi
ríkisstjórn.
-Ig-
Bókmenntaverðlaun forseta íslands
í hófi sem haldið var til heiðurs forseta íslands
að Hrafnseyri við Arnarfjörð, fæðingarstað Jóns
Sigurðssonar, i gær tilkynnti Vigdís Finnbogadótt-
ir, forseti að hún hefði ákveðið að stofna til sér-
stakra'bókmenntaverðlauna, er bæru nafnið Bók-
menntaverðlaun forseta íslands í minningu Jóns
Sigurðssonar.
Verðlapnunum verður úthlutað ár hvert þann
17. júní. Verða þau um 300.000,- krónur, skatt-
frjáls og því sambærileg við mestu bókmennta-
verðlaun annars staðar á Norðurlöndum.
Sjá frásögn af ferð Vigdtsar á síðu 7.
Hús Seðlabankans, Ægissíða 54 -
þar sem fjórmenningarnir hittust í
boði Jóhannesar Nordal.
Vilja nú
tvöfalda
álverk-
smiðjuna
hér
I viðtali, sem Morgunblaðið birti
í gær við Dietrich Ernst, einn for-
stjóra Alusuisse, kemur fram að
auðhringurinn mun nú bera fram
kröfur um að fá heimild til að
stækka verksmiðju sína hér úr 80.
þúsund tonna framlciðslu á ári upp
í 150-200. þús. tonn.
Álverið fær nú í sinn hlut um
helming allrar orkuframleiðslu
Landsvirkjunar, og þarna er
auðhringurinn því að fara fram á að
fá hinn helminginn líka, - það er
alla þá orku sem framleidd er hjá
Landsvirkjun nú!
Önnur krafa auðhringsins, sem
forstjórinn kynnir í Morgunblað-
inu í gær, er sú, að Alusuisse fái að
velja sér sameignaraðila, er átt geti
allt að 50% í verksmiðjunni, þegar
stækkun hafi farið fram.
Norðmenn hefja
loðnu veiðar sínar
um miðjan ágúst og
hefur verið heimil-
aðaðveiða 777.000
tonn á verðtíðinni.