Þjóðviljinn - 24.06.1983, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 24.06.1983, Blaðsíða 16
DWÐVIUINN Fimmtudagur 23. júní 1983 Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tima er haegt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins I þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná I afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663 Minnkandi innflutningur: Tíndirðu Geigvœnlegar afleiðingar bráðabirgðalaganna Iðja segir upp samningum Verslunarmannafélag Reykja- víkur hefur sagt upp kjarasamn- ingum sínum og vcrða þeir lausir frá og með 1. september í haust. Að sögn Magnúsar L. Sveinssonar for- manns VR er ástæðan nýsett bráðabirgðalög og benti hann sér- staklega á ák'væði laganna um af- nám samningsréttar og verka- lýðsfélaganna. Fundur trúnaðarmannaráðs VR sem haldinn var 20. júní hefur sent ‘frá sér ályktun þar sem segir m.a.' að það sé orðin regla fremur en undantekning að stjórnvöld ógildi kjarasamninga. Þó sé gengið lengra en oftast áður í þeim efnum með bráðabirgðalögum ríkis- stjórnar Steingríms Hermanns- sonar, því nú sé aðilum vinnumark- aðarins beinlínis bannað að semja um kaup og kjör. f>á sé eftirtekt- arvert að allar aðrar vísitöluvið- miðanir en kaupgjaldsvísitalan haldist að fullu og er þar nefnd til lánskjaravísitalan sem reiknist áfram með fullum þunga á lántak- endur. í ályktun VR er vakin athygli á þeirri staðreynd að verslunar- og skrifstofufólk eigi fáa kosti til að drýgja tekjur sínar og að stór hluti þess fólks fái einungis greitt sam- kvæmt umsömdum launatöxtum sem séu á bilinu 9-11 þúsund krón- ur. Þau laun hafi nú verið skert til að vinna bug á efnahagsvandanum. Þeirri aðgerð er harðlega mótmælt. í lok ályktunar trúnaðarmanna- ráðs VR er skorað á stjórnvöld að endurskoða ákvarðanir sínar í þessum efnum. -v. Vinnutími við Reykjavíkurhöfn er nú oftast átta stundir á dag, eða mun styttri en verið hefur. Minn- kandi innflutningur segir til sín í minnkandi vinnu. (Ljósm. Leifur) grös á Jónsmessu- nótt? Þá er Jónsmessunóttin liðin og nú fer daginn að stytta. Sem betur fer er Jónsmessan enginn veður- spádagur, því í gærkvöldi rigndi mikið. En ef einhver skyldi hafa tínt grös í nótt, ætti hann að aðgæta hvort ekki megi hafa af þeim gagn. Einkum eru það mjaðjurt, lásagras og draumagras að ógleymdu brönugrasinu sem gott skal vera að tína á Jónsmessunótt. Brönugrasið á að taka með fjöru sjávar. Um j)að segir í „Ár og dagar“, sem Árni Björnsson hefur tekið saman: „Loks er brönugrasið, sem á að taka með fjöru sjávar. Haldið var, að það vekti losta og ástir milli karla og kvenna og stillti ósamlyndi hjóna, ef þau svæfu á því. Það heitir líka hjónagras, elskugras, friggjargras, graðrót og vinagras. Það skal hafa tvær rætur, þykka og þunna. Sú þykkari örvar kvensemi og líkamlega lysting, en grennri rótin skal gefa manni til hreinlífi." „í kjölfar þessara aðgerða hefur skriða mikilla verðhækkana skollið yfir og fyrirsjáanlegar eru enn frekari hækkanir framund- an, því mun kaupmáttur skerðast all verulega á næstu mánuðum“, segir m.a. í ályktun sem samþykkt var á félagsfundi Iðju, félags verksmiðjufólks vegna nýsettra kjaraskerðingalaga ríkisstjórnar- innar. „Við höfum orðið varir við mikinn samdrátt í vinn- unni við höfnina á þessu sumri. Það er mun minni eftir- og næturvinna en verið hefur og almennur vinnutími er nú átta stundir á dag,“ sagði Skúli Thoroddsen, starf- smaður Dagsbrúnar í Reykjavík í samtali við blaðið í gær. Verslunarmannafélag Reykjavíkur mótmælir bráðabirgðalögunum Samnmgum sagt upp frá 1. september Þessi samdráttur í hafnarvinn- unni kemur í kjölfarið á minnkandi innflutningi í ár. Einkum hefur gengisfellingin, sem gerð var fyrir tæpum mánuði, hægt á innflutningnum. Sem dæmi má nefna, að innflutningur á bílum, heimilistækjum, sjónvörpum, myndböndum og hljómflutning- stækjum hefur dregist saman um nær helming miðað við árið í fyrra. Skúli Thoroddsen sagði, að þessi samdráttur á vinnutíma við höfn- ina kæmi rosalega við menn, eink- um þar sem þetta bættist ofan á stórfellda kjaraskerðingu. Hann kvað Dagsbrúnarmenn ekki finna fyrir atvinnuleysi, það hefði ræst úr því og fáir væru á atvinnuleysisskrá hjá félaginu. Það væri einkum skólafólk, sem erfiðlega gengi að fá vinnu. ast Á fundinum samþykkti Iðja einnig að segja upp gildandi kjara- samningum frá og með 1. septemb- er nk. f ályktun Iðju segir jafnframt að þessar kaupskerðingar geti haft geigvænlegar afleiðingar fyrir af- komu heimilanna og atvinnulífið og orðið til þess að hefta nýsköpun arðbærrar atvinnustarfsemi sem Ieiða mun til atvinnuleysis. „Fundurinn lýsir því andstöðu sinni við þessum aðgerðum ríkis- stjórnarinnar og hvetur verkafólk til að standa saman og krefjast þess að frjáls samningsréttur verði í nú- tíð og framtíð viðurkenndur og virtur". Sjópróf í dag Sjópröf vegna brunans, sem varð þremur mönnum að bana um borð í Gunnjóni GK 506, fara fram í Kcflavík í dag. Minni vinna við höfnina en áður

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.